22.10.2013 | 21:39
Er að hugsa um að bjóða ykkur í brúðkaupsferð til Kaupmannahafnar, það yljar í svona leiðinda veðri.
Veðrið í dag er hryssingslegt, ekkert mjög kalt en það er slydduskratti að stríða okkur hér. Þá er bara notalegt að sitja inni og orna sér við minningar. Eitt af því góða sem gerist líka er að þá heyri ég ekki í stórtæku vinnuvélunum sem eru að eyðileggja mitt Gálgahraun, Íslenskir aðalverktakar þar að verki líka.
En systursonur minn kvæntist í sumar yndislegri stúlku, og við systur ákváðum að fara allar saman til Danmerkur til að vera viðstaddar brúðkaupið.
Við gistum á hóteli á flugvellinum, fengum þar heljarstóra íbúð fyrir okkur þrjár.
Elskuleg systir mín í blómahafi. Þau hjón gáfu sér tíma til að sækja okkur á flugvöllinn og bjóða okkur í mat, þrátt fyrir annasemi við undirbúning brúðkaup sonarins.
Við sátum þar í góðu yfirlæti eftir komuna til Köben, þau búa reyndar í Köge. Það var sólríkt og yndislegt veður.
Og við systur nutum okkar vel allar fjórar.
Ragnar mágur snerist kring um okkur eins og við værum prinsessur.
Já sannarlega kósý að hittast svona.
Brúðguminn tilvonandi mættur til að hitta móðursystur sínar. Hann er háttsettur í danska hernum, en tilvonandi eiginkona er þó enn háttsettari, þau hafa bæði þjónað í Afganistan og Írak og hlotið ótal viðurkenningar fyrir vaska framgöngu.
Og brúðurin tilvonandi Kira elskuleg og gullfalleg stúlka.
Allri fjölskyldunni finnst gaman að syngja, og það er alltaf stutt í gítarin hjá Ragnari mág. Synirnir eru svo allir afar liðtækir á gítarinn líka. Við sungum nokkur skemmtileg lög þarna í sólinni, gekk vel með bjórnum.
Þau eru góð heim að sækja Sigga og Ragnar, höfðingjar og Sigga systir góður kokkur.
Yndisleg stund með fjölskyldunni.
Brúðhjónin verðandi að yfirfara lögin sem syngja á í kirkjunni á morgun.
En við systur áttum góða daga í Kaupmannahöfn og það var auðvitað gengir strikið, þessi búð er frábær allt sérhannað þarna og tiltölulega ódýrt.
Fórum niður á torg og systir mín keypti sér flotta tösku af perúmanni, en þeir voru að skemmta þarna á torginu.
En jafnvel dýrðarlandið Danmörk á sínar skuggahliðar.
Að lifa eins og blóm í eggi.
Kínamatur er góður og oftast ódýr.
Svo rann brúðkaupsdagurinn upp, og það þurfti að klæða sig uppá. Systir mín var ákveðin í að vera í íslenskum búningi þrátt fyrir hitann. Og það er ekkert smámál að klæða sig upp í slíkan búning, sér í í lagi þegar herbergið er smá skonsa upp á þriðju hæð, fyrir okkur allar þrjár, við vorum vissar um að minibarinn og klæðaskápurinn hefðu verið fjarlægð til að koma þriðja rúminu fyrir. En þarna var bað og lyfta, og hótelið steinsnar frá Hofbanegården.
gamli og nýji tíminn, renna saman í eitt hehehe..
Yngsta sys svo fín og flott og tilbúin í brúðkaup.
Við erum að bíða eftir Gísla frænda til að koma okkur í kirkjuna.
Þessi ágæti maður varð á vegi okkar, mér skilst að hann sé furðufugl sem fari á ákveðnum tímum í bíltúr á þessu skrýtna farartæki.
Komin til kirkjunnar, brúðgumin með allar sínar orður.
Það var spenningur í loftinu. brúðhjónin ungu höfðu misst nokkra félaga sína í stríðinu í Írak og Afganistan, útför þeirra hafði verið gerð héðan. Svo tilfinningarnar voru líka háttstemdar.
Brúðgumanum heilsað af alúð.
Yngsti sonur Siggu með pabba sínum, Ingólfur.
Myndarlegir feðgar.
Svaramenn Hjalta, báðir úr sömu herdeild.
Flott hjón á hamingjustund.
Systur mínar og frændkyn.
Faðir leiðir brúðina inn kirkjugólfið.
Svo falleg þessi yndislega stúlka.
Presturinn óskar þeim til hamingju eftir giftinguna.
Vek athygli á því að hún á fleiri heiðursmerki en hann, en það er ekki tilhlýðilegt að brúðir beri heiðursmerki ... eða þannig.
Fyrir utan kirkjuna stóðu hermenn, félagar þeirra heiðursvörð. Og þegar brúðurin gekk fram hjá síðustu dátunum skelltu þeir sverðunum í botnin á henni og allir hlógu, en þetta er víst einn af siðunum hér.
Já svo sannarlega glæsileg æska.
Gulla frænka heilsar brúðinni, þessi fallegi brúðarvöndur var svo lagður á minnismerki um fallna félaga Kíru og Hjalta.
Og allir þurftu að kyssa brúðina.
Líka dátarnir, félagar þeirra hjóna.
Eftir vígsluna var boðið upp á kampavín, og auðvitað voru báðir fánar í forgrunni.
Og svo var safnast saman til að ræða málin.
Systur, systkinabörn og bræðrabörn.
Ég, Sigga systir, Gulla frænka, Inga Bára og Dóra.
Búin að leggja brúðarvöndin á minnismerki látinna félaga.
Eftir athöfnina var gengið niður að síkjum borgarinnar, því fyrir lá sigling um Kaupmannahöfn.
Á leiðinni mátti sjá margt skemmtilegt.
Komin um borð, Dóra systir, Gulla frænka og Nonni bróðursonur okkar, komin alla leið frá Sviss til að vera viðstaddur giftinguna.
Harpa þeirra dana, svipuð burðarás um öxl eins og okkar.
Margt að sjá á svona siglingu.
Brúðurin yndislega.
Og elskulegur frændi minn, sem er gull af manni.
Sandlistaverk mjög flott.
Þetta held ég að sé í Nýhöfn.
FLottar skútur.
Fleiri skúlptúrar.
Kapteinn Cook, sumt fólk býr bara í svona bátum.
Eftir siglinguna var smá pása, þangað til matur var serveraður, við gengum þangað í góða veðrinu.
Þeir voru glæsilegir vinir þeirra í búningunum sínum.
Komnar á veislustaðin og búnar að fá okkur smá bjór, meðan beðið er eftir veislunni.
Fallegu systurnar mínar
Og Nonni frændi.
Glæsileg mæðgin.
Og allir skemmtu sér vel.
Ein af systrum Ragnars mágs.
Flott hjón.
Bræður Hjalta, þeir Gísli og Ingólfur og unnusta Ingólfs.
Á leið í veislusalinn og hér eru fánarnir, reyndar vorum við að brosa að því að sá íslenski var a.m.k. helmingi stærri en dá danski. En dönunum virtist alveg sama.
Háborðið fagurlega skreytt.
Við Íslendingarnir vorum sett saman, hér er bróðir Ragnars og konan han, systir Ragnars, Inga Bára og ég. Það var svo sagt að þetta borð hafi verið það fjörugasta í veislunni. hehehe
Elsku Gulla frænka og Magga systir Ragnars.
Ingó og unnustan. Þau ætla að gifta sig á næsta ári í Noregi.
Háborðið fullmannað, Sigga systir, pabbi Kíru, Kíra, Hjalti, mamma Kíru, en hún vinnur hjá DR og er víst vinsæll þáttastjórnandi, og svo Ragnar mágur.
Yfirkokkurinn.
Hér í Danmörku er siður sem ég upplifði líka í Belgrad í Serbíu, fólkið fór að stappa og þá átti brúðhjónin að standa upp á stól og kyssast. Svo var klappað og þá áttu þau að fara niður á gólfið og kyssast, eða öfugt. Þetta vakti mikla kátínu.
Þegar brúðurinn brá sér frá, komu dömurnar og kysstu brúðguman, og þegar hann brá sér frá komu piltarnir og kysstu brúðina.
Myndarleg systkin.
Svo sannarlega ylja minningarnar þegar kári blæs, hvæs og mæs, og slyddan hamast á gluggunum.
Dóra systir í sínum fallega þjóðbúningi sem hún saumaði sjálf af miklum myndarskap með brúðhjónunum.
Svo var hægt að fara út og hygge sig í góða veðrinu.
Já við kunnum vel að meta góða skemmtun.
Það voru ýmis skemmtiatriði, hér syngur litla systir brúðarinnar lag fyrir þau.
Það er draumur að dansa við dáta, eða syngja með þeim, þó þau séu ekki klædd í múnderingu með sín heiðursmerki.
Sigga hélt frábæra ræðu, sem og margir aðrir, það kom m.a. fram hjá dönunum að þau litu ekki á íslendinga sem innflytjendur heldur gesti, því þeir færu alltaf heim aftur. Það er eitthvað við Ísland sögðu þau sem draga íslendinga alltaf heim aftur.
Svo var það brúðardansinn.
Og enn eitt ritualið að rífa af brúðgumanum skóna og klippa göt á sokkana hans.
Svo dansaði pabbi við brúðina og mamma við brúðguman.
Svo var sýndur dans.
Þá var loks farið að huga að kökunni og meiri bjór og rauðvíni.
Brúðurin sjálf hafði bakað brúðarterturnar með vinkonum sínum, þær voru algjört sælgæti.
Og svo var bara alveg rosalega gaman.
Og við frændkynin þurftum mikið ræða málin, þar sem flest okkar höfðum ekki sést lengi.
Og þá voru menn komnir á söngstigið.
Og lítið eftir annað en að kveðja.
Og taka bless myndir.
En það er svo gott að eiga svona nána fjölskyldu þó lönd og haf skilji að. Það eru bara enginn landamæri þegar kærleikurinn er annarsvegar.
Og jú auðvitað einn "Ríðum, ríðum" í lokin, sennilega verð ég myrt fyrir þessa mynd, en hún er bara óborganleg.
Já við kunnum að syngja við íslendingar.
Heim á hótel.
Fengum okkur morgunmat daginn eftir og síðan ætlaði Gísli frændi okkar að sækja okkur, því við ætluðum með Siggu og fjölskyldu á ströndina í Köge.
Ragnar var búin að finna þessa líka fínu hatta á okkur til að verjast sólinni á ströndinni.
Já það er fínt á ströndinni í Köge.
Og auðvitað kælibox með bjór, lífsnauðsynlegt í þessum hitan.
Einu sinni íslendingur alltaf íslendingur.. eða þannig
Og svo var bara að njóta þess í botn að eyða tímanum, því brátt lá fyrir heimferð.
Síðasta kvöldið á hótelinu, því daginn eftir var heimferð, en þar sem við bjuggum svo nálægt járnbrautarstöðinni, gátum við einfaldlega rölt þangað til að taka lestina út á flugvöll.
Já og það er afskaplega róandi að ráða krossgátur.
Flugvöllurinn og svo heim.
Vona að þið hafið notið ferðarinnar, því það gerði ég.
Segi svo bara góða nótt
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 2022150
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bestu þakkir fyrir að deila með okkur þessari atburðarás. Maður er eins og fluga á vegg að fylgjst með. Svoooo gaman.
Jens Guð, 22.10.2013 kl. 22:37
Takk Jens mín er ánægjan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.10.2013 kl. 22:50
Þetta tekur hálfa leiðina til Köben að skoða,en mjög gaman að skoða. Svona vil ég ferðast bara skoða ferðalögin. Þó hef ég flakkað aðeins,en líður hræðilega í flugvél.
Helga Kristjánsdóttir, 22.10.2013 kl. 23:19
3xskoða,góður stíll eða hitt þó heldur,góða nótt og takk.
Helga Kristjánsdóttir, 22.10.2013 kl. 23:21
Góða nótt Helga mín og takk fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.10.2013 kl. 23:22
Ásthildur Cecil, þú ert sannarleg Íslandssól, veitandi gleði og hamingju, hvar sem þú ferð.
Björn Emilsson, 23.10.2013 kl. 00:44
Þú ert veik fyrir mönnum í búningi.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.10.2013 kl. 08:54
Takk Björn minn, mín er ánægjan.
Vilhjálmur, mér finnst sumir flottir í búningum, til dæmis þessir fallegu ungu dátar af báðum kynjum, álíka þykir mér hallærislegt að sjá suma búninga, fjaðraskrúfa, hnésokka og eins allskonar skikkjur með skrautsaumi. Gæsagangur til dæmis er algjör hryllingu, og ýmislegt valhopp annað hlægilegt, mér finnst líka hallærislegir svörtu lokkarnir sem heittrúa gyðingar gjarnan láta lafa niður fyrir eyrun á sér og svörtu hattarnir. Og hana nú
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2013 kl. 10:28
En heittrúaðir gyðingar eru ekki hermenn og langflestir þeirra eru alveg á móti hernaði og lítill hluti þeirra meira að segja á móti Ísraelsríki. Er þetta ekki í uppeldinu hjá þér, eða bara eins og þegar naut sjá rauðan lit...?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.10.2013 kl. 11:06
Nei, ég er á móti þeim gyðingum sem stjórna landinu, landnemum og heitrúðum, það hefur ekkert með uppeldi mitt að gera, heldur hvernig þeir hafa komið fram við það fólk sem býr þarna með þeim, sú framkoma er að mínu mati viðbjóðsleg, þeir meina þeim að fá aðstoð annara ríkja, loka þá inn í gettóum, eyðileggja akra, brjóta niður hús þeirra, svo "landnemar" geti byggt sér hús. Þeir eru í raun og veru ekkert betri en Hitlersviðbjóðurinn á sínum tíma, og hafa greinilega ekkert lært af reynslu síns fólks.
Þeir sem stjórna landinu koma mér sífellt meira á óvart í viðbjóði sínum. Og þessir með hattana eru að uppfylla heimin með því að eiga sem flest afkvæmi.
þú mátt hafa þína ást á þessari þjóð, ég geri það ekki, meðan almenningur lætur þetta viðgangast.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2013 kl. 12:12
Hmm, vil koma því á framfæri (montna frænkan) að hann Hjalti á svo mörg heiðursmerki að hann varð að velja fáein úr safninu fyrir brúðkaupið, annars hefði vinstri helmingur hans verið þakinn niður fyrir hné.
Dóra (IP-tala skráð) 23.10.2013 kl. 17:22
Flottar myndir eins og þín var von og vísa og fólkið fallegt og miskunnuglegt. Var það í þessarri ferð sem ég hringdi í þig og þið systur voruð á Ráðhústorginu?
Dísa (IP-tala skráð) 23.10.2013 kl. 20:05
Hehehe, frábært hin montna frænkan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2013 kl. 20:05
Já örugglega Dísa mín
Takk elskan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2013 kl. 20:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.