Ný ríkisstjórn í burðarliðnum.

Ég vann ekki í síðustu kosningum á undan þessum, minn flokkur nánast þurrkaðist út.  En úr því sem komið var, þá var ég sátt við þá ríkisstjórn sem tók við.  Þau höfðu lofað okkur skjaldborg fyrir heimilin, að ekki yrði gengið í ESB, að AGS myndi enginn áhrif hafa hér og ég veit ekki hvað og hvað.  Þess er skemmst að segja frá, að þetta var allt svikið, í stað skjaldborgar var fólki hent út á guð og gaddinn, og ennþá eru þúsund uppboð á dagskrá þannig skilur sú ríkisstjórn þjóðfélagið eftir í rúst, langar biðraðir í heilsugæslu, sjúkrainnlagnir og aðgerðir, langar biðraðir eftir mat, sífellt hefur verið þrengt að öryrkjum og öldruðum, ég þarf ekki að telja þetta upp, það vita þetta allir þeir sem hafa fylgst með.  Þó kallaði þessi ríkisstjórn sig Norræna velferðarstjórn.  Þvílík öfugmæli.  Ég verð því að segja það, að mér er mikið létt að vera laus við þetta fólk úr forsvari, ég vil ekki forræðishyggju stjórnvalda á öllum sviðum, þó ég vilji ákveðið aðhalda í að ganga ekki á auðlindir náttúrunnar, og að velferð manna, dýra og náttúru sé tekin fram yfir auðhyggjuna sem öllu tröllríður núna  bæði hér á landi og erlendis.

Ég vann heldur ekki í þessum kosningum.  En ég fylgist með því sem er að gerast.  Og mun leyfa mér að vona betri daga uns annað kemur í ljós. 

Ég treysti forsetanum okkar, og held að hann hafi stigið gæfuspor þegar hann veitti Sigmundi Davíð keflið til að mynda ríkisstjórn.  Hann hafði lofað ýmsum breytingum sem voru samkvæmt væntingum almennings.  Það sást líka að með því að einmitt velja hann, þá styrkti hann þær væntingar sem almenningur hefur.  Og undir það þurfti Bjarni að beygja sig.  Það getur vel verið að þeir klúðri þessu og geri einhvern andskotan af sér, sem vekur reiði almennings.  En trúlegra er að þeir fari varlega, eing og þeir hafa gert undanfarið við stjórnamyndunarstörfin, þar hafa þeir gætt þess að leita ráða fagmanna, og ekki hleypt sínum klíkum að ferlinu, sem ætti að sýna að þeim er full alvara. 

Mér er mikið létt ef þeir hætta við ESB aðlögunina, í það hefur farið öll sú orka fyrrverandi ríkisstjórnar sem átti að fara í skjaldborgina. Ég er líka sammála því að stjórnunarstíll Jóhönnu og Steingríms einkendist af frekju og yfirráðasemi, sem þau svo kenndu öllum öðrum um.  Þau hafa nú fengið það allt saman ofan í sig aftur blessuð með þvílíku afhroði að þess verður lengi minnst.  

Svo er bara að bíða og sjá hvað verður.  En sem betur fer hefur almenningur vaknað upp við vondan draum og er ákveðin í að láta ekki traðka meira á sér, enda komin tími til. 

Við verðum örugglega á verðinum og svo er alltaf hægt að leita til forsetans ef stjórnin ætlar að vaða yfir okkur með skítugum skóm.  Hann hefur sýnt að hann tekur marg á fólkinu í landinu. 


mbl.is Heimilin finna breytingar í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér fannst skipta máli að báðir voru þeir brosandi og létt yfir þeim (þar kveður svo sannarlega við nýjan tón) á meðan Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða Móri voru alltaf afundin, með skeifu og nánast "plægðu" jörðina á undan sér, með hökunni.  Hvort er nú skemmtilegra og meira traustvekjandi fyrir þjóðina???  Allt þeirra fas fannst mér einkennast af bjartsýni og ákefð.  Eigum við ekki að gefa þeim tíma áður en er farið í að rífa verk þeirra niður, fyrirfram?????

Jóhann Elíasson, 22.5.2013 kl. 19:37

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Algjörlega sammála Jóhanni. Þótt við einblínum ekki bara á brosmildi núverandi stjórnarformanna í samanburði við munnherkjur þeirra síðustu, þá er þó augljóst að vinnugleði og bjartsýni þeirra fyrrnefndu virkar mun betur á sálartetrið en svartsýnin og flórmoksturshjal þeirra síðarnefndu.

Kolbrún Hilmars, 22.5.2013 kl. 20:55

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú mikið rétt, það er eitthvað annað yfirbragð yfir Sigmundi og Bjarna en skeifugörnunum tveimur sem eru að fara frá.  Og jú við skulum gefa þeim tækifæri.  En við skulum líka vera á verði, því það er búið að svíkja okkur svo oft og mikið að það er alveg komin tími á að fylgjast vel með. 

Annars sammála þér Kolbrún mín og ykkur báðum að vinnugleði og bjartsýni virðist ríkja yfir þessari tilvonandi ríkisstjórn, og það stendur ekki á mér að gefa þeim tækifæri.  En það er bara þannig að ég er orðin frekar þreytt á að láta draga mig á tálar, plata mig upp úr skónum og svíkja það sem mér var lofað.  Þannig er það bara.  En svo er bara að sjá til hvað gerist. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2013 kl. 22:00

4 Smámynd: Jens Guð

  Enn og aftur er ég 100% sammála þinni greiningu á stöðunni.  Þú orðar hana bara miklu betur en ég myndi gera.  Þetta á líka við um "kommentið" #3. 

Jens Guð, 23.5.2013 kl. 00:16

5 identicon

Því miður þá ber ég ekki í brjósti mér jákvæðar tilfinningar til þessarar nýju ríkisstjórnar. En eins og skáldið sagði lengi skal manninn reyna.

Ásamt mörgum öðrum er ég hræddur um að eitt af verkum tilvonandi heilbrigðisráðherra verði að loka Heilbrigðistofnun Þingeyjasýslu á Húsavík, muni hann nota þá átyllu að göng verði komin í gegnum Vaðlaheiði.  Ætli það sé ekki eftir um 24 mánuði?

thin (IP-tala skráð) 23.5.2013 kl. 08:10

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jens gott að heyra.  Já við getum víst ekkert annað en beðið og séð til með þessa ríkisstjórn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.5.2013 kl. 08:39

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála þér. Mér líst vel á persónuna Sigmund Davíð - það er svolítill Albert í honum :) Mér finnst líka við hæfi að leyfa þeim að klúðra málum áður en skrattinn er málaður á vegginn.

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2013 kl. 11:44

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega Hrönn mín, leyfum þeim sjálfum að hafa frumkvæðið á hvorn veginn sem þeir kjósa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.5.2013 kl. 12:28

9 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Við munum fylgjast með og veita þessari stjórn aðhald.

Ég vona að eitthvað að dyggðunum sem stjórnin talar um sé tengt, jákvæðni, gagnhvæma virðingu og heiðarleika. Ég vona líka að þessi stjórn taki tillit til fólks og bregðist við með jákvæðni því sem er beint að þeim.............

Guðni Karl Harðarson, 23.5.2013 kl. 18:15

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það vona ég svo sannarlega líka Guðni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.5.2013 kl. 18:16

11 identicon

Það sem mér líst best á núna er það að nú mun þjóðin

aftur hafa óheft aðgengi að forseta sínum.

Sem fyrrverandi ríkisstjórn hafði beitt þvílíku

þöggunarofbeldi

að varla mun nokkurntíma hafa verið hefð fyrir öðru eins.

Þar sem hann hefur varla mátt segja góðan daginn í fjölmiðlum hér heima eða erlendis án þess að Jóhanna og Steingrímur væru komin á hvæsandi á eftir honum.

Þessi ríkisstjórn mun ekki standa í vegi fyrir því að kraftar og kunnátta forsetans nýtist þjóðinni og það tel eg að muni skila sér drjúgt til okkar allra

Sólrún (IP-tala skráð) 24.5.2013 kl. 20:24

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er sammála því Sólrún.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2013 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband