Jamm kartöflumýs ný músategund, óléttupróf fyrir þorsk ... hvað næst ?

bb.is | 21.02.07 | 16:40
Óléttupróf fyrir eldisþorsk
Þorskeldi HG í Álftafirði.

Matvælarannsóknir Íslands (Matís) hefur í samvinnu við nokkur fyrirtæki, m.a. Hraðfrystihúsið Gunnvör hf., og Háafell hf., á Ísafirði, hannað búnað sem gerir fyrirtækjum í fiskeldi mögulegt að segja til um hvort þorskur verði kynþroska og hrygnir að vori. Búnaðurinn er hluti af verkefni sem felst í því að rannsaka hvernig hægt er að koma í veg fyrir kynþroska hjá þorski í eldi. Mikilvægi þessa felst einkum í því að þegar þorskur í eldi verður kynþroska, lengist eldistíminn til muna. Búnaðurinn getur því einfaldað umsjón með eldisfiski og stuðlað að hagræðingu í þorskeldi.

Búnaðurinn, sem er í raun nokkurs konar óléttupróf, getur greint með verulegri nákvæmni minnstu breytingar í kynhormónum fisksins. Helstu kostir óléttuprófsins eru þeir að fyrirtæki í fiskeldi geta fylgst náið með þróun fiska í ákveðnum eldiseiningum. Þá er hægt að nota prófið til að flokka fisk eftir kyni en slíkt getur verið mikilvægt m.a. í kynbótastarfi. „Eldisþorskur verður yfirleitt kynþroska tveimur til fjórum árum fyrr en villtur þorskur þar sem eldisþorskur vex hraðar vegna aðgengis að fóðri og betri lífsskilyrða almennt. Hins vegar hefur kynþroski eldisþorsks hamlandi áhrif á vöxt og eldistími lengist því til muna. Kynþroskinn veldur stöðnun í vöðvavexti því fiskurinn notar alla orku í að þroska kynkirtla. Þess vegna er óléttuprófsbúnaðurinn mikilvægur til að setja til um breytingar á kynhormónum fisks og auðvelda skipulagningu á eldi fram í tímann,“ segir dr. Þorleifur Ágústsson, verkefnastjóri hjá Matís.

Verkefnið, sem stýrt er af vísindamönnum hjá Marís, felst í því að rannsaka hvaða leiðir eru færar til að tryggja að eldisfiskur nái sláturstærð á sem skemmstum tíma. Í verkefninu eru notuð sérhönnuð ljós fyrir sjókvíeldi sem koma í veg fyrir að þorskurinn upplifi skammdegið, en þegar sumri fer að halla og sól lækkar á lofti fer þorskurinn að þroska með sér kynkirtla. Hann verður svo kynþroska að vori og hrygnir í febrúar til maí.

Hönnun á búnaðinum, sem er hluti af Evrópuverkefninu Codlight-Tech, er samstarfsverkefni Matís, Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, Háafells ehf., á Ísafirði, Vaka-DNG á Íslandi, Háskólans í Stirling, Johnsons Seafarms í Skotlandi og á Hjaltlandseyjum, Hafrannsóknastofnunarinnar í Bergen, Fjord Marin í Noregi og Landbúnaðarháskólans í Uppsala í Svíþjóð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Skyldi vera búið að hugsa fyrir hrognburðarleyfi og hrognabótum fyrir blessaðann fiskinn?

Jón Steinar Ragnarsson, 21.2.2007 kl. 22:26

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe það hlýtur eiginlega að vera. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2007 kl. 22:37

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og margt sem við vitum ekkert um

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2007 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 2021019

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband