20.9.2012 | 22:11
Heimför og ýmislegt annað með Richard Clayderman.
Ég á eftir að skrifa hér um vínarferðina, og sitthvað fleira. En núna langar mig til að tala um heimförina. Sig hér og hlustar á Clayderman og hugljúfa tónlist og líður vel.
Notó í Austurríki.
Þegar aðrir voru farnir að sofa var notalegt að sitja og skrifa.
Ég er svona frekar næturdýr... eða þannig.
Við erum svona frekar samrýmdar mæðgurnar það er líka voða notalegt.
Já það þarf að sinna tölvunni... líka
Síðasta kvöldið og það er alltaf jafn erfitt að segja bless.
Flugið var 8.35 og við þurftum að ganga frá barnakörfunni sem átti að fara til Tinnu og Skafta.
Þar sem hún var það að auki full af barnafötum þurfti að vefja hana með sellofan.
Sem betur fer er flugvöllurinn í Vín frekar lítill á okkar mælikvarða. Svo allt gekk fljótt og vel fyrir sig.
Við Elli flugum saman til Kaupmannahafnar, en þaðan fór ég heim en hann til Osló.
Skýjum ofar með Niki Austrian airlines.
Stórabeltisbrúin.
Dálítið draumórakennd mynd.
Systir mín og mágur Sigga og Ragnar hittu okkur á flugvellinum, þau vildu bjóða okkur eitthvað í snarl og bjór. Við ókum talsvert um en fundum ekki neitt slíkt nálægt flugvellinum. Jæja sagði Ragnar við förum þá bara í mollið. Svo hló hann, þeir segja að þetta sé stærasta mollið í Skandinavíu, en þeir hafa víst hvorki séð Kringluna né Smáralind.
En sem sagt við fórum í mollið, ég var orðin svöng hafði bara borðað eina brausneið síðan um morguninn.
Fundum okkur góðan stað og tókum okkar tíma í að velja á matseðlinum. Pöntuðum rauðvín, ég smakkaði og það var reglulega gott rauðvín.
Jamm það var ákveðið að panta kjúklingasalad sem hljómaði bara ansi vel.
Ég var rétt búin að smakka rauvínið og fá mér tvo bita af kjúklingasaladi þegar bjalla hringdi og rödd hvað við; Its a fire in the building please leave the building emidially. Og allir þurftu að koma sér út, verðir sáu svo til þess að fólk færi rétta leið út. Sá mest eftir að hafa ekki gripið flöskuna góðu með mér
Og fólki streymdi eins og foss niður alla ganga og út.
Sáum engan reyk en á neðstu hæðinni fundum við brunalykt.
Og þegar út var komið komu brunabílarnir. Jamm enginn matur þarna. Og þá var bara að koma sér út á flugvöll því það var klukkutími í brottför. Sigga systir mín hafði miklar áhyggjur af þessu öllu, en ég sagði henni að það væri alltaf gaman að lenda í smáævintýrum. Og svo var hægt að borða í flugvélinni.
tengdadóttir mín Marijana sótti mig út á flugvöll, ég hafði geymt bílinn hjá þeim, en þau eru flutt í Reykjanesbæ, og ég gisti hjá þeim um nóttina, því ég var frekar þreytt eftir ferðina.
Þetta eru litlu gaurarnir mínir í Reykjanesbæ
Yndislegir, þeir eru í leikskóla upp á velli, þar er hjallastefnan á fullu. Leikskólinn rosaflottur, frá tímum herliðsins risa garðskáli með allskonar flottum leiktækjum. Og amma varð að koma með að aka þeim á leikskólann morguninn eftir
Ofboðslega duglegir og flottir strákar.
Þeir eru líka rosalegir afakallar báðir tveir. Ég á samt meira í þessum hér.
Svo þurfa svona strákar að tuskast aðeins og stundum er mamma alveg uppgefinn þessi elska.
En svo var bara að koma sér af stað heim, taka bensín á bílin, fara upp í Lífland og taka hænsnafóður og koma sér áleiðis heim.
Sem betur fer hafði ekkert frost verið hér svo blómin mín sem voru úti ennþá voru í lagi.
Smá snjór í efstu toppum, svo ég hef ennþá tíma til að ganga frá.
En næsta sunnudag fæ ég konur í heimsókn og ætla að kenna þeim að skipta plöntum, en það lærði ég hjá Herdísi minni í Fornhaga þeirri elsku.
En hér var Ísafjarðardeil Garðyrkjufélagsins endurvakinn í vikunni. Vilhjálmur Lúðvíksson formaður G.Í. mætti með okkur og hélt heilmikin og fræðandi fyrirlestur.
Kosin var ný stjórn og er Harpa Kristjánsdóttir formaður.
Sem sagt á sunnudaginn kl. 15.00 koma félagar út garðyrkjufélaginu til mín í kúlu og ég rölti með þeim um garðinn og sýni svona hvernig er best að skipta plöntum. Það eru allir félagar velkomnir, bæði nýjir og gamlir.
Af því að ég var nú komin út á annað borð, stoppaði ég aðeins hjá henni Sædísi vinkonu minni til að spjalla.
Tók mynd af þessari elsku fyrir mömmu sín. Til hamingju með hana Beta mín
Og Sædís nýtur sín við barborið, alltaf jafn flott þessi elska.
Doppa litla er flutt að heiman, Matta mín Jónu og Helgadóttir kom hingað með dóttur sinni ætluð að fá sér högna, en snarsnérust á punktinum þegar þær sáu Doppu, núna heitir hún Sigurrós held ég. En þessa tvo vantar ennþá heimili, þeir eru flottir og þrifnir. Snúður
Og gleði, heilbrigðir fallegir og ljúfir
Eigið góða nótt elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 2022151
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allsstaðar getur maður lent í ævintýrum, góðum og slæmum .
Einhver var að tala um í gær að börnin væru í skóla á vorin í góða veðrinu og gætu ekki notið þess. Það minnti mig á þegar við ákváðum að vakna snemma og lesa því veðrið og spáin var svo góð. Og ég var viss um að vakna þegar pabbi færi í vinnu, en þér fannst erfiðara að vakna og bast spotta í tána á þér sem ég togaði svo í. Það var skemmtilegsti próflesturinn minn og ég hló mikið þegar ég rifjaði það upp .
Dísa (IP-tala skráð) 20.9.2012 kl. 23:45
Kisubörnin kátu á leið að heiman,færðu ekki seinna got frá þeim,??
Helga Kristjánsdóttir, 21.9.2012 kl. 00:57
Dísa þú manst svo margt skemmtilegt frá því að við vorum litlar, þú ættir að setja þetta niður á blað okkur báðum til skemmtunar og ánægju
Helga mín það verður ekkert annað got, nú verður hún tekin úr sambandi þessi elska. Þó ég hafi haft ánægju af þessu ævintýri, þá einfaldlega get ég ekki staðið í kettlingastandi. Dýralæknirinn bíður tilbúin að grípa hana við fyrsta tækifæri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2012 kl. 07:44
Skemmtilegar myndir að vanda. Verður Elli þínn í Noregi í vetur? kær kveðja í vestrið :)
Ásdís Sigurðardóttir, 21.9.2012 kl. 11:38
Nei hann ætlar að koma heim í nóvember, það verður yndælt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2012 kl. 11:44
Æ það er nú gott, ekki gaman að vera án elsku kallsins síns :)
Ásdís Sigurðardóttir, 21.9.2012 kl. 13:00
Nei það getur stundum verið notalegt, en oftast frekar einmanalegt. Og nú er gott að hafa elsku Úlfinn minn hjá mér. Hann er bæði umhyggjusamur og hjálpsamur og bara góður drengur í gegn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2012 kl. 14:03
Skemmtileg myndasaga. Enn og aftur, þessar kisur eru algjör krútt :)
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 21.9.2012 kl. 17:54
Takk Sigrún mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2012 kl. 18:48
Mér finnst líka fyrsta myndin algjört listaverk :)
Ég leyfi ekki Steina syni mínum að sjá kisubloggin þín því annars myndi húsið fyllast af þessum krúttum :)
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 22.9.2012 kl. 00:51
Takk Sigrún mín, hann getur fengið báðar þessar elskur, það er ekkert fyrir þeim að hafa í alvöru
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2012 kl. 01:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.