Osló og Austurríki.

það er alveg greinilegt að komin er kosningahugur í fólk. ´Ég hef að vísu lítið verið á netinu núna, notið þess að eiga góðar stundir með fjölskyldunni, þess vegna bregður mér dálítið að sjá heiftina sem fólk lætur frá sér, og ætlar fólki allskonar illsku, fyrir það eitt að vilja taka höndum saman við að reisa landið úr öskustó.  Fólk sem hefur unnið óeigingjarnt starf við að koma á nýjum framboðum, eins og Samstöðu og Dögun.  Sem mér finnst reyndar afskaplega fallegt nafn.

En ég ætla frekar að bjóða ykkur smá myndasýningu af mínum högum hér út í Fortchenstein.  Hér var hitabylgja um helgina og hitinn fór í 24° sem er frekar óvenjulegt á þessum tíma, en febrúar og mars hafa verið óvenjulega kaldir hér þennan veturinn.  Frostið fór yfir 20°þegar verst var.

IMG_2205

Mér datt nú í hug Hrútspungarnir og lagði þeirra þegar ég sá þessa skemmtilegur sýningu í Leifsstöð. 

IMG_2209

Hitti Sólveigu Huldu litlu mína á Oslóarflugvelli, þar sem ég hitti Ella við vorum að fara saman til Austurríkis.  Amma kom með páskaegg að heiman. 

IMG_2212

Skaftir minn kom til að hitta mig.  Og aka pabba sínum út á flugvöll.

IMG_2215

Litla skottann okkar er orðin mikil afastelpa.  Gott fyrir þau að hafa afa svona mikið hjá sér.

IMG_2217

Hér sýnir hún ömmu Tai Kwon Do,

IMG_2219

Engin smá einbeitning hjá þessari litlu hnátu. Smile

IMG_2220

Þetta lærir hún af stóra bróður sínum honum Óðni Frey.

IMG_2221

En svo var komin tími til að kveðja fólkið mitt í Osló, því við þurftum að fara í flug til Vínar.

IMG_2224

Og hér erum við komin til Forchtenstein, Jón Elli heilsar afa sínum.

IMG_2227

Hér er hún Olga hún er aupair hjá Báru.  Olga er eiginlega í fjölskyldunni, því hún er bróðurdóttir Gyðu sem var tengdadóttir mín í mörg ár.  Og við amma hennar erum góðar vinkonur. Virkilega dugleg og frábær stelpa eins og hún á kyn til.

IMG_2229

Afi með nafna sinn.

IMG_2232

Sætur lítill maður Heart

IMG_2233

Ásthildur Cesil að greiða ömmu sinni.

IMG_2236

Tvær neonbleikar barbieskvísur.

IMG_2238

Litli maðurinn alltaf brosandi og kátur.  Hann er að vísu búin að vera veikur litli karlinn.

IMG_2239

Hanna Sólin stóra systir er líka dugleg við að hjálpa til.  Hún er orðin svo stór átta ára.

IMG_2242

Svo falleg bæði. Heart

IMG_2246

Ömmustelpan mín.

IMG_2247

Yndislegt að geta verið innan um barnabörnin. 

IMG_2250

Ömmuskvísan Ásthildur.

IMG_2253

Það er alveg rosalegur heimalærdómur hjá börnum hér í Austurríki, þau eru meira að segja látin sitja eftir strax í sex ára bekk ef þau ná ekki tilteknum einkunum, þá fara þau aftur í sama bekkinn aftur næsta ár.  Það eru fleiri blaðsíður í fleiri bókum hvern dag, og ef þau eru veik, þá er komið heim með verkefni og þau þurfa að læra allt sem var gert í skólanum þann daginn og svo heimaverkefnið.  Og ég get alveg sagt ykkur að þó barn sé yfir meðalgreind eins og þessi stúlka, þá er bara afar erfitt að fá hana til að sitja einn til tvo klukkutíma og læra.  Ótrúlegt alveg.  Sú stutta, er á leikskóla, og þar er líka agi, þau þurfa að sitja í trúarstellingum og biðja, og lesa í biblíunni, það þætti nú ekki góður gjörningur heima.  En Ásthildur er í sjálfu sér uppreisnarseggur svo hún reynir að komast undan að vera í leikskólanum. 

IMG_2255

Afi er orðin ansi góður í barnauppeldinu. 

IMG_2259

Orkunni er eytt á trampólíni.

IMG_2262

Það er sko gaman.

IMG_2280

Svo var setið út í garði og við héldum partý, stelpurnar komu út með spilara og hér eru þær að dansa.

IMG_2282

Gaman að þessu. 

IMG_2287

Heart

IMG_2295

Hér erum við svo allar þrjár.  LoL

IMG_2297

Krossgátubókin er aldrei langt undan hjá mér. En sólin er of sterk fyrir augun hennar Ásthildar.

IMG_2301

Mér finnst voða notalegt að sitja og ráða krossgátur.

IMG_2302

Hanna Sól í sjómanni við pabba sinn.

IMG_2303

Það eru bara ofurhugar sem leggja í það, því pabbi er járningamaður og firnasterkur.

IMG_2311

Litli maðurinn er að taka tennur og slefar alveg ógurlega.  Hér virðist ekki vera hægt að fá slefsmekki, svona litla og krúttlega. 

IMG_2319

Við Bára mín.

IMG_2327

Elli að kokka. 

IMG_2331

Það var nefnilega soðin fiskur, ekta vestfirsk Ýsa, beint frá Suðureyri.

IMG_2332

Allar að gera eitthvað nytsamlegt.

IMG_2333

En nú þarf ég að hætta í bili.  Ég ætla að bjóða ykkur til Vínar einhvern daginn, þegar ég má vera að.  En segi bara bless í bili. Eigið góðan dag. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var einmitt að spá í hvað hefði eiginlega orðið um þig????  En nú hef ég tekið gleði mína á ný því ég veit upp á hár núna að þú varst að sinna fjölskyldunni  Ég sé á myndunum að vorið er löngu komið þarna suðurfrá á meðan við þurfum víst eitthvað að bíða.

Jóhann Elíasson, 20.3.2012 kl. 11:40

2 Smámynd: Kidda

Hafði grun um að þú værir lögst í ferðalag. Frábært að sjá myndir af ömmubörnunum þínum. Sá yngsti er svo mikið krútt, ég er pínu mikið skotin í honum. Verður gaman að fylgjast með dvöl þinni úti og ég tala nú ekki um myndunum.

Knús til Austurríkis

Kidda, 20.3.2012 kl. 14:03

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svo þarna ertu....

Gott þú lætur heyra frá þér annað slagið...

Jónína Dúadóttir, 20.3.2012 kl. 14:28

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk mín kæru, það er ósköp notalegt að fá svona smávorauka.  En það verður líka gott að koma heim.   Vorverkin bíða mín þar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2012 kl. 15:56

5 Smámynd: Jens Guð

  Skemmtilegar myndir. 

Jens Guð, 21.3.2012 kl. 00:46

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Alltaf jafn ljúft að skoða myndirnar af fólkinu þínu Ásthildur mín, englarnir þínir eru búnir að fylgja mér í myndunum þínum í mörg ár og takk fyrir það, en mikið hafa þær þroskast og litli maðurinn orðin svo stór.
Njótið að vera með þeim öllum og ég sendi kærleik til ykkar allra

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.3.2012 kl. 08:59

7 identicon

Yndislegt að sjá loks lífsmark frá þér. Ég þóttist vita að þú værir farin fyrst svona langt leið. Frábært fyrir litlu ungana að fá ömmu í heimsókn, ekki síst þegar hún kemur svona færandi hendi, en ég er viss um að tómhent amma hefði verið jafnvelkomin. Jón Elli er orðinn svo stór. Njóttu þess að vera með þeim. Ef þú átt stund í bakaleið væri yndislegt að hitta þig , en ég skil alveg ef þú ert á hraðferð. Knús til Báru

Dísa (IP-tala skráð) 21.3.2012 kl. 10:14

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk fyrir flotta myndasýningu Áshildur mín

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.3.2012 kl. 10:47

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll. Já ég brá mér af bæ.  Elli minn bauð mér í Austurríkisferð, þar sem hann hefur þénað ágætlega í sinni vinnu í Noregi.  Þó má segja að ég fékk mér rauðvínstár á flugvellinum í Norge og það kostaði já 1900 krónur ísl.  Ekkert gefið þar. 

Á morgun fljúgum við svo aftur til Noregs og ég ætla að dvelja það í tvo daga, og koma svo heim.  Ég veit ekki Dísa mín hvort ég stoppa, en það er líklegt. Ég hef verið að spá í að hafa samband við þig og vita hvort við gætum hist um kvöld þú og jafnvel einhverjar fleiri af skólasystrunum.  En ég hef samband þegar ég veit meira, það er sum sé ekki búið að panta farið heim.  Og ég er rosalega léleg að aka um í Reykjavík.  En við verðum í bandi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2012 kl. 21:34

10 identicon

Ekki málið að sækja þig, en þú lætur mig vita þegar þú veist meira

Dísa (IP-tala skráð) 22.3.2012 kl. 13:23

11 identicon

Hvar ertu stödd núna Ásthildur mín?   Mikið væri gaman að fá að hitta þig þegar þú átt leið um höfuðborgarsvæðið.  

Maddý (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 21:15

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Maddý mín, ég kem heim á morgun, og fer sennilega heim strax en það væri gaman að hitta þig og Dísu mína einhversstaðar áður en ég held heim.  Einhversstaðar þar sem er auðvelt að komast, því ég er dálítið óttaslegin að aka í borginni.  Ég kem til Keflavíkur um korter í ellefu, þá er að koma sér til Reykjavíkur ég fer svo í Garðheima, og upp í það sem áður hét MRbúðin upp í hálsunum.  En ef við gætum hist einhversstaðar þess í milli og fengið okkur kaffi saman væri frábært.  Hringdu í mig um tólfleytið á morgun og þá getum við mælt okkur mót, og þú líka Dísa mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2012 kl. 17:36

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jafnvel Kiddu líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2012 kl. 17:37

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dísa mín komin heim. Takk fyrir spjallið  Segi meira frá seinna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2012 kl. 20:27

15 identicon

Var svo fegin þegar þú hringdir í gærkvöldi og lést mig vita. Það er óhugnanlegt að vita af fólki einu á ferð í vitlausu veðri, ekki síst af því ég vissi að síminn þinn var tæpur með straum . Það var gaman að hittast og spjalla og geta nýtt tímann meðan þú varst að útrétta, þá hafði ég ekki samvisku af að tefja þig. Hlakka til að sjá fleiri myndir og frásögn af ferðinni þinni .

Dísa (IP-tala skráð) 27.3.2012 kl. 23:19

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskuleg, já það var gaman að hittast og spjalla.  Sem betur fer dugði síminn alla leið, börnin að hringja og spyrja stundum þegar illa hittist á og ég þurfti á öllu mínu að halda til að bara halda mér á veginum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2012 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband