Ferðin til Mexico og San Fransisco.

Vindurinn gnauðar þó heyrist minna hér en í mörgum öðrum húsum, því kúlan liggur lágt og vindurinn nær ekki taki sínu á henni, fer yfir eins og flugvélavængur.

Úlfur sem átti afmæli þann 8 mars, fær að halda partý fyrir vini sína í kvöld, þeir eru núna að búa sér til Pizzu og ég læt lítið fyrir mér fara.  Mér finnst alltaf notalegt þegar krakkarnir eru hér heima, maður veit þá hvar þau eru.  Alejandra fékk að gista hjá vinkonu sinni. 

Er búin að sá flestum sumarblómunum, nema þeim sem spretta hraðast eins og morgunfrúin dahlían og slík.  Ætla svo að bregða mér af bæ  og heimsækja Báru mína í Austurríki, það verður bara gaman að koma sér aðeins út úr rútínu.

En mér datt svona í hug þegar svona viðrar að það væri gaman að bjóða ykkur í ferðalagið mitt, við erum búin að fara gegnum Mexico, Guatemala og Belize, þá er eftir að skreppa til San Fransico.

Og hefst nú ferðin:

Ferðasaga Cesiljar.  Fjórði og síðasti hluti. Mazatlán til Vestfjarða. 

 

Það var gott að komast til Mazatlán, heim til mágkonu minnar, það var tilbreyting að komast inn á heimili og geta farið í venjubundið heimilislíf, þó við værum ekki komin alveg heim.  Þarna var stjanað við okkur.  Vöknuðum, fórum út á Patíó að lesa, fengum okkur morgunverð og svo var farið niður á strönd. 

Á STRÖNDINNI 

Á ströndinni. 

Mazatlán er mjög falleg borg, þar búa um 140 þúsund manns.  Aðalgatan liggur með fram hreinlegri sandströnd, þar koma margir ferðamenn á hverju ári.  Aðallega frá Ameríku eða Kanada.  Þeir stytta veturinn heima fyrir, með því að koma hingað í hlýtt og gott veður. Margir eiga íbúð eða villu þarna, og svili minn sér einmitt um hótel sem er í eigu margra Ameríkana og Kanadamanna.  Hann hefur líka séð um glæsivillur ríka fólksins, eins og frú Grímhildar, en hún átti snyrtivörufyrirtæki Lancome að mig minnir.  Við fengum að skoða villuna hennar, og þvílíkan og annan eins íburð hef ég aldrei séð fyrr né síðar.  Glæsikerra var í bílskúrnum sem beið komu hennar, og þernur, garðyrkjumaður og bílstjóri sem voru þarna meðan hún var í burtu.  Hún er að vísu búin að selja bæði fyrirtækið og húsið núna.

 

Mazatlan

Götumynd frá Cerr De Jesus Mazatlán. Íbúarnir eiga gangstéttina út að götu, og þurfa að sjá um að gera þær og þrífa.  Þess vegna eru gangstéttarnar mismundandi fyrir framan hvert hús, og sumir hafa ekki gert neina gangstétt.  Bara sandur fyrir frama.  Aðrir helluleggja og sumir steypa.  Götutréð er Fícus Benjamínus.  Og yfirleitt eru það garðyrkjumenn sem koma og snyrta trén, það er sama með þau íbúarnir eiga trén og láta klippa þau eftir eigin smekk. Við betri götur eins og þessa eru varðmenn sem íbúarnir deila með sér að greiða fyrir að vakta götuna á nóttunni.  Á nóttunni er allir bílar fyrir innan grindurnar sem þið sjáið, og hliðin læst.   

 

 Þarna lifa menn á rækjuveiðum, humri, ostrum og ferðamennsku.  Til skamms tíma voru nokkrir íslendingar þarna í útgerð og veiðarfæraþjónustu.  Rækjan er stærri en við eigum að venjast, og humarinn líka.  Á ströndinni vorum við alltaf á svipuðum slóðum hjá Playja del Oro. Sjórinn er tandur hreinn og ágætlega hlýr.  Á hverjum morgni um nýju leytið kom maður syngjandi upp úr sjónum, með poka á bakinu, hann var á ostruveiðum.  Hann hafði smáaðstöðu rétt við hliðina á okkur. Lítinn trékassa og salt og sítrónu.  Þangað hélt hann með aflann og byrjaði að brjóta skeljarnar, maður get svo fengið nýja og spriklandi ostru hjá honum á 2 pesóa.

 

Þarna er stöðugur straumur af sölumönnum sem ganga um ströndina og reyna að selja manni allt mögulegt frá tyggjópökkum upp í flottar tréskurðarmyndir, og málverk.  Handklæði og sólgleraugu.  Margir sölumennirnir eru indíjánar.  Einn maður gekk þarna um á hækjum og söng aríur, ekki var nú röddinn til að hrópa fyrir, en hann fékk stundum pening, menn tóku viljann fyrir verkið.

Strandsala

Strandsala.

 

Sinalóa fylkið sem Mazatlán tilheyrir er eitt helsta Mafíusvæðið í Mexícó.  Hér er friðsælt á daginn, en margt gerist í skjóli nætur.  Og margir eru myrtir.  Þó maður trúi því ekki þegar maður gengur um þennan vinalega bæ að degi til, með öllum sínum ferðamönnum og friðsæld. Það mátti heyra skothvelli í kyrrð næturinnar, og enn hefur syrt í álinn hér, þegar fjölskylda sem átti litla verslun sem við gengum oft framhjá var myrt og höfuð þeirra stjaksett á girðinguna framan við húsið.

Hérna er karnival um þetta leyti, og er þegar byrjað að skreyta bæinn.

 

úTI AÐ BORÐA

Úti að borða morgunverð í Mazatlán með fjölskyldunni.

Tíminn leið allt of fljótt þarna, því við höfðum ráðgert að stoppa þrjá daga í San Fransisco. 

Yfirgáfum Mazatlán á fallegum sólardegi, til að fara út á flugvöll, þurftum að fljúga til Mexícósity, og svo þaðan til San Fransisco.  Urðum að stoppa eina nótt í höfuðborg Mexícó, gistum á flugvallarhóteli “Rezor” mjög fínu hóteli með tveimur herbergjum nóttin kostaði 100 pesos.  Þurftum að vakna um kl. 4 a.m. til að ná fluginu. 

 

Maður finnur svo vel þegar maður kemur aftur til bandaríkjanna hve dónalegir þeir eru og leiðinlegir, þeir sem eru í einkennisbúningum þ.e.a.s.  Að vísu lentum við á afskaplega elskulegum ungum manni í útlendingaeftirlitinu, við vorum fyrstu íslendingarnir sem hann hafði séð.  Maður þarf að gera vel grein fyrir sér, og á hvaða hóteli maður ætli að dvelja, og við vorum ekki ákveðin.  “Æ ég set ykkur bara á Holliday inn” sagði hann og hló. 

Síðan tók við þrautarganga gegnum eftirlit þar sem þessir venjulegu ameríkanar komu við sögu ruddalegir og ofstopafullir.  Til dæmis konan sem tók við tollmiðanum, hún hrifsaði hann úr hendinni á mér með fyrirlitningar svip, svo mig langaði mest til að sparka í rassinn á henni. Þarna voru engar almennilegar upplýsingar að fá um hótel og slíkt, við vildum vera niður í miðbæ.  Þegar við spurðum í upplýsingum, sagði daman með þjósti að það væri ekki hennar mál að svara til um hvaða hótel væru í miðborginni.  Meðan hún athugaði neglurnar á sér.  En rétti okkur samt ferðamannabækling þar sem voru upplýsingar um hótel en við vissum náttúrulega ekki hvað snéri upp eða niður á San Fransisco.

 

san Fransico

 

Við stautuðum okkur fram út bæklingnum og komumst að því að sennilega væri Unik square í miðbænum.  Þar fundum við hótel sem heitir King George Hótel.  Þokkalegt hótel og í göngufæri við allt. 

Leitað eftir hóteli á flugvellinum í San Fransisco.

Slöppuðum af eftirmiðdaginn, en fórum á röltið um kvöldið.  Borgin iðaði af lífi, við fórum svo á hótelbarinn þar var live djass og blues, ungir strákar alveg frábærir músikantar.

Danmark 554

Gaman að kíkja og skoða.

 

 

Við vöknuðum snemma morgunin eftir og löbbuðum einn og hálfan tíma til að leita að stað til að borða morgunverð, annað en kaffi hús með sætum kökum og vöfflum. Fundum loks einn.... við hliðina á hótelinu, þar sem við höfðum reyndar snætt kvöldið áður.  Eftir hádegið tókum við einn af hinum frægu Cable vögnum niður í ferðamannahluta borgarinna við höfnina. Fengum okkur að borða humar og krabba á frábærum stað í Fiehermanswharf við höfnina.

 

Danmark 572

Yndislegt og gott.

 

 

Málari

Útsýnið úr restaurantinum. Listamenn að störfum. 

Úti tafl

Teflt á Unik squaire.

 

Síðasti stóri jarðskjálftinn hér var 1989, hann lagði stóran hluta borgarinnar í rúst.  Hér eru um 32 hæðir sem mynda borgina, en hún er frá sjávarmáli upp í 929 feta hæð. Þess vegna eru göturnar eintómar brekkur. Aðal samgöngutækin frá Höfninni í miðborgina eru rafmagnsvagnarnir.  Þeir ganga fram og til baka, þessir gömlu vagnar.

Cable train

 

Cable train. Þessir vagnar voru teknir í notkun um 1873, það var maður að nafni Andrew Smith Hallidie, sem fann þá upp, áður höfðu menn hesta til að draga vagna upp og niður hæðirnar, en eitt sinn horfði hann upp á að hestur féll og vagninn dró hann niður eina hæðina og þá hét hann að finna upp leið til að gera samgöngurnar mannúðlegri.

 

 

 Fyrir 155 árum var hér aðeins þorp en svo fannst gull í nágrenninu og síðan hefur borgin þanist út.  Hún er ekki síður fræg fyrir margvíslegan arkitektúr. Hér býr fólk frá öllum heimshornum.

FLottur arkitektur

Flottur arkitektúr.

 

Listin blómstrar

Listin blómstrar í miðborginni.

Við sigldum svo undir hina frægu Golden gate brú. Hún var 17 ár í byggingu og lengi vel var talið ekki væri hægt að byggja brú á þessum stað. Því gífurleg rok geta orðið þarna, og mikil þoka.

Gólden Gate 

Golden Gate. Liturinn er táknrænn og brúin er stöðugt máluð alla daga, öll ár. Brúin sveiflast 9 metra til og frá í mestu rokhviðum. 

Danmark 569

Sigldum um á fljótabátnum Queen Mary.

Danmark 570

Þarna gátum við leigt heyrnartól og fengið söguna beint í æð. Það var afskaplega fræðandi.

 Í mörg hundruð ár sigldu spánverjar og aðrar þjóðir þarna framhjá, án þess að uppgötva innsiglinguna.  En það var fyrir tilviljum að spænskt skip hraktist þarna inn fyrir sjávarstraumum.  Straumurinn er svo mikill að oft er erfitt að komast þarna inn.  Brúin sveiflast um 9 metra til og frá þegar kári geisar af fullu afli.  Það eru menn allt árið, alltaf að gera við brúna og mála hana.  Þeir byrja á einum enda hennar og þegar þeir eru komnir yfir er byrjað aftur þar sem frá var horfið.  Oft gella við þokulúðrar þegar bátarnir koma inn, í þokumistri. Þokulúðrarnir við innsiglinguna gefa frá sér mismunandi hljóð, til að sjómenn átti sig á aðstæðum.

Alcatras 

Alcatraz hin illræmda fangaeyja.  Ekki er hægt að synda frá henni í land vegna þungra strauma.

Inn á miðjum flóanum er fangaeyjan Alcatraz.  Þar voru menn hafðir í haldi og afar fáum tókst að flýja.  Því ekki var hægt að synda frá henni sökum straumsins.  Eyjan er núna til sýnis fyrir ferðamenn.  Þarna er önnur eyja þar sem innflytjendur voru geymdir.  Uns þeim tókst að sanna að þeir mættu flytjast inn til landsins.  Þeir urðu að eiga ættingja í landinu til að fá dvalarleyfi.  Aðallega voru það kínverjar. Og eru þeir áberandi í borginni. Önnur stór brú er hér hún kallast Bay brigde öðru meginn og Oaklandsbrigde hinu meginn, hún liggur í gegnum tvær litlar eyjar og er önnur kvikmyndastúdíó.  Í jarðskjálftanum féll efra dekk hennar niður og kramdi þó nokkuð marga bíla undir farginu og margir dóu.  

Við fórum á nokkur söfn, vaxmyndasafnið, og safn sem heitir Ripley´s Believe it or not.  Eða furður veraldar.

Ripley´s

Elli  í góðum félagsskap. Fídel, Hussein og Napóleon.  Madam Tussaud er samt flottari.

Danmark 586 

 

Ýmislegt að skoða í San Fransisco.  Smile

 

 

Danmark 563

 

Um borð í fljótabátnum.

 

Danmark 583

 

Hótelið ekkert smáflott.

Hér er margt að sjá og mikið um að vera.  Hér eru allstaðar bílageymslur, kallaðar Parkhótel. Upp á níu hæðir, og kostar 30 dollara að geyma bílinn 24 tíma.

Síðasti dagurinn lofaði ekki góðu regnið buldi á rúðum hótelsins.  En það stytti upp sem betur fer.  Fórum aðeins í búðarrölt, í Macys og Old Navi. Þá varð nú amman gráðug, þvílíkt úrval af barnafötum.

Um kvöldið röltum við um í höfninni hér er aðalferðamannasvæðið, og margt um að vera. 

Við fengum okkur að borða á Johns’ steakhouse. Ég fékk mér ostrur í forrétt og grillaðan túnfisk í aðalrétt.  Ekkert smágott.

 Danmark 608

 

Á góðri stund.

 

 

Danmark 582

 

Danmark 614

 

Í góðum félagsskap.

 

Röltum um og rákumst á litla sjoppu þar sem hláturmildar Havairósir buðu okkur að freista gæfunnar og velja okkur ostru og gá hvort í henni væri perla.  Ef ekki væri perla þyrftum við ekki að borga.  Til að gera langa sögu stutta, þá fann ég fyrst eina bláa perlu sem er mjög sjaldgæf, og svo fékk ég að prófa aftur og fékk aðra, reyndi einu sinni enn og fékk þá eina hvíta.  Ég lét gera hálsmen og hring með tveimur bláu perlunum, til þess var nú leikurinn gerður, og svo hálsmen úr þeirri þriðju sem var hugsuð sem sængurgjöf fyrir dóttur mína. Þetta kostaði all plús skartgripir fyrir mágkonu mína með hennar perlum um 800 dollara.  En það var svo gaman að þessu og hreint upplifelsi að kvöldinu og aurnum var vel varið. 

Perlur

  Perluleit

Úbbs og hér var svo blá perla þær þykja flottastar reyndra fékk ég tvær bláar og tvær hvítar.

Svo var haldið upp á hótel King George, með cable train auðvitað.

Konsert 

Blómabarn sem lék fyrir þá sem biðu eftir fari með cable car.  Hér sést aðeins í hringinn sem var snúið við til að rétta af vagnana.  Gæinn átti örugglega bílinn i baksýn, svo hann hefur ekki verið á nástráinu.

Sæljón

Niður á höfninni. Hér hefur verið gert stórátak í að hreinsa flóann af mengun og sæljónin eru friðuð og þessi pallar gerðir sérstaklega fyrir þau. Það var bæði mikill hávaði og fnykur af þessum elskum.

 

 Þegar heim á hótelið kom var verið að sýna í sjónvarpinu morðsögu með Jessicu Flecher, marga þætti, eiginlega alla nóttina.  Og meðal annars þegar frú Flecher fór í cable car einmitt hér í San Fransisco. Vagnarnir ganga frá Unik torgi að Fishermans Wharf, á hvorum stað er svo snúningshleri sem er handsnúið, og svo aka vagnarnir til baka. 

 

Daginn eftir var svo haldið til Boston og það þurftum við aðeins að bíða á flugvellinum, þá var tíminn notaður til að ljúka við að lesa þær bækur sem ég hafði fengið lánaðar hjá mínum ástkæra Mustrum.  Og svo var farið upp í flugleiðavél og haldið heim á kalda gamla frón. 

Vestrirðir 

Gamla frón, Vestfirðir, í ljósbrotum. Það er einmitt á svona stöðum sem nornir verða til. 

 Máni 

 

Og hér er fullt tungl.

 

Hér með lýkur þessum ferðabrotum mínum. ‘Eg vona að þið hafið haft gaman af, og getað upplifað í huganum ferðalagið með mér.  Þegar maður ferðast svona á eigin vegum, þá kemst maður nær fólkinu sjálfu og tengist betur landi og þjóð.  Það gerir ferðalagið miklu innihaldsríkara. 

 

                                                   Sögulok.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er gaman að lesa þetta -. Svona ferðalög eru frábær.

Kveðja,

I.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 10.3.2012 kl. 21:32

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ingibjörg mín, mín er ánægjan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2012 kl. 22:43

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta var gaman... takk fyrir mig 

Jónína Dúadóttir, 10.3.2012 kl. 23:23

4 Smámynd: Kidda

Mikið var nú gaman að ferðast með þér um framandi slóðir á meðan rokið lét heyra í sér.

Takk fyrir mig :)

Kidda, 10.3.2012 kl. 23:37

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar, það er gaman að fá skemmtilegt fólk með sér í ferðalag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2012 kl. 23:40

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Takk fyrir mig :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.3.2012 kl. 01:39

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Máninn er þá bara FULLUR út um allan heim og samt hangir hann í "jobbinu"..........     En ferðlýsingarnar eru flottar og myndirnar gefa þessu mikið líf.  Bestu þakkir.

Jóhann Elíasson, 11.3.2012 kl. 10:26

8 identicon

Alltaf jafngaman að ferðast með þér. Frábært að fá svona góðar lýsingar og ekki skemma myndirnar .

Dísa (IP-tala skráð) 11.3.2012 kl. 11:37

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, já Jóhann máninn fullur fer um heimin og missir ekki jobbið.

Dísa mín ég reyni að afla mér upplýsinga heimamanna um þá staði sem ég ferðast um það er hluti af upplifuninni að kynnast landi og þjóð.  Gefur ferðinni meira gildi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2012 kl. 11:44

10 Smámynd: Páll Blöndal

Það er nú ánægjulegt að þú skulir hafa efni á að eyða gjaldeyri landsmanna mitt í gjaldeyrishöftum krónunnar
Þú ættir að bölsótast svolítið meira út í ríkisstjórnina um slæmt efnahagsástand og bág kjör

Hættu svo þessu helvítis væli og lærðu að meta það þú hefur

Páll Blöndal, 11.3.2012 kl. 20:50

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Páll Blöndal viltu ekki útskýra frekar hvða þú átt við?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2012 kl. 01:21

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Bara að það sé á hreinu að þessi ferð var farin löngu fyrir hrun. Þetta er því löngu liðin tíð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2012 kl. 01:22

13 Smámynd: Páll Blöndal

Ég hef oft lesið pistla þína og athugasemdir.
En ég er ekki sáttur við orðbragð þitt og hatur í garð þess fólks sem ekki er sömu skoðunar og þú.
Ég held að það finnist varla sú manneskja sem ekki vill Íslandi og Íslendingum allt hið besta.
En við sjáum ólíkar leiðir að markinu.

Áshildur, ég vil taka það fram að ég samgleðst þér ef þú getur notið lífisns
Sérstaklega þar sem ég þekkti þig af góðu einu hér áður fyrr og veit hvað þú hefur þurft að ganga í gegnum.

... hvernig væri að taka eftir því sem vel hefur tekist í stað þess að rífa allt niður í sorann?

Páll Blöndal, 12.3.2012 kl. 10:02

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta fyrra innlegg þitt var ekki þér til sóma, og talandi um orðbragð hm...

Ég hata ekki nokkurn mann, en mér er illa við að fólk sé vísvitandi að fara með hálfsannleika og rangt mál, eins og mér finnst forystumenn ríkisstjórnarinnar gera í ESB málinu og mörgum öðrum.  Þau hafa verið staðin að því að segja ósatt.  Ég tek alveg ágætlega eftir því sem vel er gert, og þar sem það er gert.  En meðan ég er að vinna að því að hjálpa til við nýtt og betra ísland, mun ég halda áfram að tala um það sem ekki er vel gert, og betur má fara. 

Þakka þér svo hlý orð. 

En þú getur glaðst yfir  því að ég er ekki að eyða íslenskum gjaldeyri, því maðurinn minn sem er að vinna út í Noregi er að bjóða mér í þessa ferð til að hitta barnabörnin, það eru því alfarið norskir peningar sem sóast en ekki íslenskir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2012 kl. 12:28

15 Smámynd: Páll Blöndal

Hafðu það sem allra best Ásthildur mín

Páll Blöndal, 12.3.2012 kl. 12:58

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Pátt minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.3.2012 kl. 17:37

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Páll átti þetta nú að vera fyrirgefðu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2012 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 2021019

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband