Ísafjörður í vetrarham.

Það er búið að vera afskaplega fallegt veður hér nú í marga daga.  Sólin er að koma sér fyrir á himninum og færist alltaf neðar og neðar, og nú er hún svona um það bil að hefja sig yfir Ernin, sem er hátt og hún á fullt í fangi með að lyfta sér þar yfir.  Svo inn í Engidalnum eru lægri fjöll og þar á hún auðvelt með að skína, svo kemur Kubbinn og ennþá nær hún ekki alveg að skína yfir hann, en svo er það Dagverðardalurinn.

IMG_2145

En það er afar bjart yfir Ísafirði þessa dagana.

IMG_2146

Það fennti í morgun fram að hádegi, svo allt var hvítt og hreint fjöll, tré og jörð.

IMG_2147

Og krummi skimar eftir æti. Það þarf að gefa honum líka eins og smáfuglunum.

IMG_2148

Og kúlan er eins og grænlenskt hús.

IMG_2150

En ég er á leiðinni upp í gróðurhús að leika mér.

IMG_2152

Það er friðsælt og notalegt að vera með fingurnar í moldinni og sjá líf kvikna í plöntunum sem ég setti í geymslu í haust. Sjá hvað lifir og hvort ég hef misst eitthvað að tegundum eða litum.

IMG_2154

Lífið er yndislegt.

IMG_2155

Og eiginlega var allt dálítið í bláleitri birtu í morgun.

IMG_2157

Þarna uppi voru tveir menn á skíðum, ef til vill snjóaeftirlitsmenn.

IMG_2157-001

Sjást betur hér.

IMG_2158

Fururnar mínar.

IMG_2160

Leikkofi barnanna, hér má sjá snjóþekjuna.

IMG_2162

Þarna í baksýn er kúlan bakið á henni, eins og risasnjókúla.

IMG_2164

Ein af tújunum mínum.

Og reynirinn byrjaður að bruma.

IMG_2165

Og líka kirtilrifsið. Þau eru með hvíta sæng yfir sér og full af tilhlökkun til vorsins.

IMG_2166

Geymslukofinn minn.

IMG_2167

Og snjór um allt.

IMG_2168

Milli gróðurhúsanna er allt fullt af snjó, sem ver þau gegn kulda.

IMG_2169

Grýlukerti.

IMG_2170

Hjólbörurnar fullar af snjó.

IMG_2171

Hvað við erum heppin að eiga þetta hreina fallega landHeart

IMG_2173

Jafnt sumar sem vetur.

IMG_2174

Við njótum þess vel.

IMG_2175

Að eiga hér athvarf langt burt frá heimsins stríðum.

IMG_2182

Perutréð alveg að fara að koma blómknúppunum sínum út.

IMG_2183

Og kirsuberin líka. Þau eru aðeins of snemma á ferðinni því bíflugurnar láta ekki sjá sig alveg strax, þess vegna þarf ég að frjóvga þau með pensli.

Þegar þær koma drottningarnar feitar og pattaralegar er komin tíminn til að bjarga þeim upp úr tjörninni, því þangað rata þær gjarnan kjánarni þeir arna.  En ég er orðin sérfræðingur í að veiða þær upp úr og setja þær varlega á eitthvert blóm þar sem sólin skín svo þær færi yl í kroppinn.   Ég bjarga líka geitungadrottningunum. 

En eins og er er þetta bara allt í góðum gír og mér til ununar.  Þetta er svo skemmtilegur tími í gróðurhúsunum, svo kemur að því að fara að huga að blómunum úti.  Og nú á ég allan tímann í heiminum.  Enginn vinna sem kallar.  Ég held að ég hafi hlakkað til þessa tíma í mörg ár.  Að eiga mig sjálf og geta sinnt mínu.  Hingað til hafa beð bæjarins alltaf haft allan forgang.  En ekki núna. Og ég hlakka svo til. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Falleg færsla, frábærar myndir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.3.2012 kl. 23:12

2 identicon

Fegurðin ein og dýrðin.....

Erla Svanbergsd (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 23:17

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Flottar myndir og það sem þú ritar á bloggið. Sérlega falleg mynd af fuglinum mínum Hafninum.En þegar é sé fannbreiðurnar og Fjöllin sem ég þekki langar mig til Rúpna...

Vilhjálmur Stefánsson, 1.3.2012 kl. 23:30

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

,, Hvað við erum heppin að eiga þetta hreina og fallega land,, Megum þakka fyrir ef Jóhanna &c/o eru ekki búin að ganga frá því. Annars baráttu kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2012 kl. 23:36

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Axel

Erla mín þú ættir að þekkja þetta umhverfi

Hm... Vilhjálmur rjúpurnar eru friðhelgar núna.  Sá einmitt fjórar hér í garðinum mínum um daginn.

Já Helga mín við erum heppin að eiga þetta fallega land, og megi allir vættir lofa að við fáum að halda því í friði.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2012 kl. 00:22

6 identicon

Friðsældin , í gamla daga hefðum við lagt okkur í snjóinn, búið til stóra engla og horft upp í himininn og notið . Það er orðið erfiðara núna en við hefðum tímann tíl þess . Knús.

Dísa (IP-tala skráð) 2.3.2012 kl. 10:04

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já svo sannarlega Dísa ég hugsa að við hefðum bara gert það stóra engla  Og hefðum haft Erlu með.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2012 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband