7.12.2011 | 11:33
Gönguferð, Vínarferð og heimilislíf.
Tíminn líður hratt, og brátt er tími til að koma sér heim í veturinn, héðan.
Við Bára mín skruppum niður í Vínarborg í gærkveldi til að komast í smájólastemningu. Hér eru svona jólaþorp út um allt, eitt var á ráðhústorginu, en þangað fórum við einmitt fyrir nokkrum árum, og þangað lá leiðin líka í gær. Annað jólaþorp var svo í garðinum við náttúrgripasafnið, og við kíktum þanað líka.
En á mánudaginn fór litli maðurinn í fyrsta skipti út í vagni, við fórum í skógarferð.
Hér eru fyrst tveir grallarar, Ásthildur Cesil júnior og pabbi hennar.
Sá litli tilbúinn í vagninum sínum og Trölli til staðar til að gæta hans.
Það er stutt í skógin en hann er hér allt í kring, og gatann hér liggur einmitt upp í skóginn og lengra, upp í kapelluna hennar Rosalíu, en hún var vond drottning sem bjó í höllinni hér á móti, og drap þegna sína miskunnarlaust, fékk svo sjálf sömu meðferð, og hefur gengið ljósum logum síðan, þó var reynt að róa hana með að byggja handa henni kapellu á hæstu hæðínni hér. Rosaliekapell.
Trölli fékk ekki að ganga laus, því hér er mikið um dádýr, villisvín og Lúxar, En það eru stórir skógarkettir. Bára var hrædd um að Trölli gleymdi sér og færi að elta dýrin.
Það var farið að bregða birtu, svo rétt var að snúa við og halda heim á leið.
Er ekki allt í lagi Jón Elli? spyr mamma, og það er sko allt í lagi með hann, alsæll að vera í göngutúr.
Trölli skemmti sér líka hið besta, honum finnst gaman í göngutúr.
Það er orðið rökkvað og búið að kveikja ljósin í höllinni.
Hún sést lagnt að og gnæfir yfir litlu byggðina fyrir neðan.
Húsin standa þétt, og upp allar hlíðar, á þessum tíma dags er reykjarlykt um allt, þar sem íbúarnir hafa kveikt upp í kamínunum sínum.
Vígaleg með höllina í baksýn.
Og næturhimininn er rauður og flottur.
Tvíburar?? nei haha dúkkan hennar Hönnu Sólar.
Lenný villiköttur vill stundum koma inn, hann kemur alltaf inn í vetrargarðinn, því þar eru kattarlúgur, þar getur hann fengið að borða, en stundum langar hann að koma inn í eldhúsið, og fær það en er allur á verði, vegna þess að Trolli þolir hann ekki, og rekur hann út í hvert skipti ef hann er heima.
En hér erum við komnar niður í Vín. Turnarnir í baksýn eru frá Dómkirkjunni í Stefans Platz.
Linsan á myndavélinni var eitthvað að stríða mér en Bára mín var duglegri við að taka myndir.
Skreyting frá skrítnu sjónarhorni.
Þessir rauðu deplar eru ekki flugeldar, heldur skreytt tré og rauðu deplarnir eru risastór hjörtu.
Stemning og jól.
Að ylja sér á heitu púnsi.
VIrkilega gaman þetta kvöld.
Ég held að þessi karl hafi verið sveinki sjálfur í dulargerfi.
Ráðhúsið gnæfir yfir torgið.
Nammi namm.
Ljósadýrð.
Nýt mín í botn.
Jólatréð á Ráðhústorginu.
Hér ríkir sannkölluð jólastemning.
Turnarnir á ráðhúsinu.
ÉG fékk mér nokkra púnsa.
Við vorum búnar að mæla okkur mót við Christina vinkonu mína að hittast þarna. Það var yndislegt að hitta hana, my dear Christina it was so lovely to meet with you that evening.
Bjartar og brosandi.
Með Langos, einskonar austurrísk laufabrauð. traditional.
Svo heldur hið daglega líf áfram. Hanna Sól tilbúin í skólann morguninn eftir, hún þarf að vakna kl. 6 á morgnana sem er ansi snemma fyrir 7 ára stelpu.
Vinkona fékk að koma með henni heim, hún borðaði hérna, ég var með smásteik og karföflumús, og hún át hvort tveggja með góðri lyst.
Hér eru þær að vinna heimavinnuna, sem er ekkert smáræði hér í Austurríki þó maður sé bara 7 ára.
Það þurfti líka að brosa fyrir ömmu.
Og fíflast smá
Og nafna mín er duglegur aðstoðarkokkur hjá ömmu.
Á ég eiginlega ekkert að fá af ömmusósunni???
Og Ásthildur getur líka hjálpað mömmu með litla bróður.
Og hún getur líka haldið á honum.
Þau eru svo falleg og saklaus. Og við bjóðum ykkur góðan dag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 2022160
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndislegt eins og alltaf, hér er hjarta handa skvísunum frá mér
Ásdís Sigurðardóttir, 7.12.2011 kl. 13:49
Vá hvað þær verða glaðar með hjartað, þetta er nákvæmlega það sem þær elska takk Ásdís mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2011 kl. 14:05
mikið er fallegt þarna í kring. Knús á línuna og takk fyrir myndirnar
Ragnheiður , 7.12.2011 kl. 14:24
Knús á móti Ragnheiður mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2011 kl. 14:31
En yndislegt hjá ykkur, hér er líka jólalegt og ííískalt .
Dísa (IP-tala skráð) 7.12.2011 kl. 15:57
Já Dísa mín þetta er verulega skemmtilegur tími. Knús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2011 kl. 16:44
Alltaf gott að koma á síðuna þína. Myndirnar ná alltaf að segja svo mikið og ylja manni allverulega í kuldanum. "Litlu" skotturnar þrífast vel með ömmu sinni, verst fyrir þær að þú skulir fara heim. Kærar kveðjur................
Jóhann Elíasson, 7.12.2011 kl. 17:37
Flott stelpa hún Bára þín. Það er ekki á henni að sjá að hún sé nýbúin að fæða barn.
Kærleiksknús ♥
Hrönn Sigurðardóttir, 7.12.2011 kl. 18:22
Jóhann, já þær eru sífellt að spyrja mig af hverju ég þurfi að fara heim. Geturðu ekki bara verið áfram amma Ég elska þessi börn svo mikið.
Hrönn mín, stelpan mín er eins og mamma sína, ég fór til læknis sem táningur og hann sagði mér að ég væri sköpuð til að eiga börn, ég varð svo hneyksluð að ég gleymi þessu aldrei, en reyndar hafði hann rétt fyrir sér. Og litla/stóra stelpan mín hefur erft þennan eiginleika, allavega gat ég gefið henni það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2011 kl. 19:00
Oh, núna langar mig á jólamarkað í útlandinu, það er einhvern veginn svo allt öðruvísi hérna heima. Skemmtilegra í útlandinu og ég tala nú ekki um að fá sér Lalumba en það minnir mig að drykkurinn heiti.
Það er alltaf jafnmikið fjör í kring um þig mín kæra, heimafólkið er eflaust farið að lengja eftir þér. Vona að þú eigir góða heimferð, er það ekki annars á morgunn.
Knús handa öllum í Austurríki þó sérstaklega til fallega krúttmolans
Kidda, 7.12.2011 kl. 19:30
Jú Kidda mín, ég legg af stað heim á morgun. Fyrst til Kaupmannahafnar og svo heim, verð þar um kl. fjögur. Ellli minn ætlar að taka á móti mér sem betur fer. Það verður gott að koma heim, en það er líka erfitt að fara héðan frá fjölskyldunni minni hér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2011 kl. 21:06
Mín bara á tjúttinuum um hánótt í Austurríki.
Helga Kristjánsdóttir, 8.12.2011 kl. 00:08
Sæl Ásthildur. Myndir segja svo margt. Ég hef verið í Suður Þýskalandi í nokkur jól, og farið á markaðinn. Fengið þýskt jólaglögg, eða jagertee, gengið á milli jólasölubásanna, þar sem handverkið er áberandi, heimagerð matvæli ýmiss konar. Kalt, já, stundum kaldara en oft heima. Minnist þess að hafa farið tiltölulega léttklæddur í kirkju á jóladag. Er alls ekki kulsækinn. Hafði á tilfinningunni að ég væri að breytast í frostpinna. Svo er gleðin, og upplifunin, þú lýsir þessu vel í myndum og máli. Njóttu þess.
Hér heima er sama þvargið. Nú hefur ríkistjórnin komist að þeirri niðurstöðu að hún sé að standa sig best í heimi! Virkar dálítið falskt, en þau eru víst búin að ráða Jón Ásgeir sem fjölmiðlafulltrúa.
Sigurður Þorsteinsson, 8.12.2011 kl. 00:09
Þakka góðar myndir/velkomin á klakan /,kveðja
Haraldur Haraldsson, 8.12.2011 kl. 00:27
Sigurður hahaha góður með nýja fjölmiðlafulltrúa ríkisstjórnarinnar, Það væri alveg eftir þeim, því þeim er einkarlagið að klúðra öllu sem þau koma nálægt.
Takk Haraldur minn og sömuleiðis.
Helga einmitt nákvæmlega.
Ég er sem sagt komin heim í heiðardalinn, var að koma inn úr dyrunum, það var bara gott færi og yndislegt veður alla leiðina. Svo það var ekki málið að koma sér heim með ektamakanum, sem lagði á sig að sækja mig alla leið til Keflavíkur, við gistum svo á B&B í nótt uppáhalds gistiheimilinu mínu, og svo var lagt í hann í morgun.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.12.2011 kl. 19:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.