Að kíkja í pakkan eða vera í aðlögun.

Ég les alltaf Bændablaðið.  Það er eiginlega eina blaðið sem ég les á pappír.  Það er bæði uppbyggilegt og gott blað.  Það er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast í sveitinni, og bændur af báðum kynjum að gera skemmtilega hluti og sinna frumþörfum mannsins matarkistunni.  Mér verður alltaf létt í huga við lestur blaðsins hafi þeir þökk fyrir.

Núna var ég að lesa grein eftir Baldur H. Benjamínsson framkvæmdastjóra landssambands kúabænda.  Þar ræðir hann um aðlögunarkröfur ESB.

Ég ætla að birta þennan pistil hér, vegna þess að sumt fólk trúir því alls ekki að við séum í aðlögunarferli við sambandið.

 Mynd_0943634

Hverjar eru aðlögunarkröfur Evrópusambandsins?

Mánudaginn 5. september sl. sendi starfsmaður samningahóps um landbúnaðarmál og byggðaþróun sk. rýniskýrslu nefndar fastafulltrúa aðildarríkja ESB til fulltrúa í hópnum. Skýrslan skiptist í þrjá kafla, sá fyrsti er almenn innihaldslýsing, annar er yfirlit yfir það sem fram kom á rýnifundum um landbúnaðarmál sem haldnir voru sl. vetur og gerð hefur verið grein fyrir. Sá þriðji og veigamesti fjallar um mat ESB á hversu mikið beri í milli á landbúnaðarstefnu Íslands og ESB og getu Íslands til að hrinda hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu í framkvæmd.

 

Það er mat ESB að verulegur munur sé á ráðstöfunum þeim sem notaðar eru hér á landi til að styðja við landbúnað og hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins, CAP. Sama gildi um stofnana- og lagaumhverfi allt. Með aðild Íslands að ESB þurfi að tryggja framgang hinnar sameiginlegu landbúnaðarstefnu og kalli það á mikla aðlögun löggjafar, stjórnkerfis og stofnanaumhverfis landbúnaðarins hér á landi.
 

Tekið er fram að Ísland hafi ekki látið í té neinar tímasettar áætlanir varðandi undirbúning þessarar aðlögunar. ESB tekur fram að slíkar áætlanir séu ófrávíkjanlegur grundvöllur viðræðna um landbúnaðarkaflann, til að tryggja að viðeigandi aðlögun fari fram á skikkanlegum tíma og í samræmi við þann ramma sem viðræðum um einstaka kafla er settur. Ísland hafi haldið þeirri afstöðu fram að gera engar breytingar, fyrr en eftir að aðild hafi verið samþykkt, því sé afar mikilvægt að biðja Ísland um að leggja fram áætlun um hvernig öllum kröfum ESB verði mætt frá fyrsta degi aðildar.

 

Nokkur atriði eru tiltekin í skýrslunni sem sérlega mikilvæg:

 

1. Stofnun Greiðslustofu landbúnaðarstuðnings (e. Paying agency) og viðeigandi eftirlitskerfis sem að fullu sé í samræmi við kröfur ESB. Geta stjórnkerfis landbúnaðarmála hér á landi sé takmörkuð og nýta þurfi það stjórnkerfi sem fyrir er sem best og taka mið af fábreyttri landbúnaðarframleiðslu og tiltölulega fáum bændum. Engu að síður verði greiðslustofa þessi að standast allar kröfur og reglur ESB og gildi þá einu hvort verkefnin eru lítil eða stór. Þetta stjórnkerfi þarf að vera til staðar áður en af aðild verður.

 

2. Landupplýsingakerfi (e. Land Parcel Identification System). Tekið er fram að hér á landi finnist ekki tölvuvætt landupplýsingakerfi, þar sem hægt sé að kalla fram landamerki, stærð og yfirborð einstakra landskika. Nauðsynlegt sé að kanna möguleika á upptöku slíks kerfis sem taki mið af búháttum, sérstaklega hinni umfangsmiklu úthagabeit.

 

3. Fyrirkomulag hagtölusöfnunar og búreikningauppgjörs er verulega frábrugðið fyrirkomulaginu í ESB. Breyta þarf svæðaskiptingu, flokkun búa, uppsetningu gagna og fyrirkomulagi á söfnun þeirra til samræmis við FADN (e. Farm Accountancy Data Network).

 

Í kjölfar útgáfu rýniskýrslu ESB um landbúnað og dreifbýlisþróun ásamt bréfi fastafulltrúa Póllands, sem gegnir formennsku í sambandinu þetta misserið, frá ESB til íslenskra stjórnvalda, hefur hafist hefðbundið karp og skæklatog um það hvað stendur í skýrslunni og hvað bréfið þýði. Samtökum bænda er fullljóst hvað þetta þýðir – gerð er krafa um aðlögun að lögum og reglum sambandsins jafnt og þétt, eftir því sem viðræðum vindur fram. Sé þeirri aðlögun ekki sinnt, stöðvast viðræðurnar, eða geta ekki hafist. Þessa staðreynd gengur jafnvel málsmetandi mönnum illa að skilja. Því er ekki úr vegi að skoða hvernig fyrirkomulagið er í öðrum löndum, sem sótt hafa um aðild að ESB á síðustu árum.

 

Sem kunnugt er stefnir Króatía að aðild að ESB. Sótt var um aðild árið 2003, rýnivinna hófst haustið 2005, viðræðum lauk 30. júní 2011 (síðasta kaflanum lokað), gert er ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning á útmánuðum 2012 og aðild 1. júlí 2013. Króatía er prýðilegt dæmi, þegar um er að ræða kafla sem ekki tilheyra EES samningnum, eins og er tilfellið með 11. kafla um landbúnað og dreifbýlisþróun. Í aðlögunarviðræðum Króatíu var sá kafli opnaður 2. október 2009 og honum lokað 19. apríl 2011. ESB setti sem skilyrði fyrir opnun viðræðna um kaflann, að söfnun hagtalna um landbúnað yrði komið í nauðsynlegt horf, áður en viðræður hæfust.

 

Í framvinduskýrslu ESB um aðlögunarviðræður Króatíu 2010, sem nær yfir tímabilið október 2009 út september 2010, kemur aðlögunin skýrt fram, eins skýrt og nokkur kostur er. Árangur aðlögunarinnar er metinn á grunni ákvarðana sem teknar hafa verið, löggjafar sem tekin hefur verið upp og ráðstöfunum sem hrint hefur verið í framkvæmd. Aðlögunarstyrkir ESB til Króatíu árið 2010 voru 154 milljónir evra, eða 24,6 milljarðar króna. Hlekkur á skýrsluna er hér aftast í pistlinum. Í henni segir m.a. um framvinduna í landbúnaðarmálum:

 

1.      Á árinu 2010 var lögð fram ný landbúnaðarstefna fyrir árin 2010-13 sem hafi umbætur á núverandi stefnu að markmiði og aðlögun að CAP, sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins.

2.      Vel miðaði í að setja á stofn greiðslustofu landbúnaðarstuðnings og að koma á fót stafrænu landupplýsingakerfi. Þessi tvö atriði eru lykillinn að áframhaldi viðræðna um þennan kafla. Uppsetning eftirlitskerfis gengur einnig vel.

3.      Þokkalega gekk að koma á fót búreikningastofu, meiri mannafla er þó þörf í þetta verkefni að mati skýrsluhöfunda.

4.      Vel miðaði að koma á fót sameiginlegu markaðsskipulagi (e. commom market organisation).

5.      Skráningarkerfi vínbúgarða verður komið í fullan gang (e. fully functional) fyrir árslok 2010.

 

Af þessu má ráða, að allt tal um að aðlögunin geti farið fram eftir að íslenska þjóðin hefur gefið jáyrði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu, eru staðlausir stafir. ESB setur opnunarskilyrði (bréfið frá Jan Tobinski, fastafulltrúa Póllands) og lokunarskilyrði (e. closing benchmark) varðandi einstaka kafla aðildarsamnings. Þó það sé ekki sagt hér, þá liggur beint við að lokunarskilyrðin verði í grófum dráttum þau, að búið sé að aðlaga hlutina að því fyrirkomulagi sem gildir í hinu háa Evrópusambandi, áður en gengið er frá samningnum og hann staðfestur af öðrum aðildarríkjum. Það er eina leiðin fyrir ESB til að tryggja að fyrirkomulag hlutanna verði eins og það gerir kröfu um í aðildarríkjum bandalagsins. Þegar að þjóðaratkvæðagreiðslunni loksins kemur, standa kjósendur frammi fyrir orðnum hlut.

 

Baldur Helgi Benjamínsson

Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda

 

Framvinduskýrsla Króatíu 2010

 

Bréf fastafulltrúa Póllands til íslenskra stjórnvalda

 

Rýniskýrsla Evrópusambandsins um landbúnað og dreifbýlisþróun

Lillableiki liturinn er frá mér.  Það er nokkuð ljóst hvað sem hver segir að hér er ekki neinn pakki til að kíkja í, ekki einu sinni oggulítill jólapakki, hér er bara rimlabúr pakkað inn í skrautpappír með ost innst inn í svo við göngum í gildruna. Þetta vilja forsvarsmenn okkar ekki segja hreint út, heldur er laumuspilið spilað á fullu meðan stætt er.

Þeir sem vilja breytingar ættu að huga að því að senda áskorun til forsetans okkar um að hann stöðvi leikinn og myndi utanþingsstjórn hér er það hægt.

Með kveðju.

 

http://utanthingsstjorn.is/

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég verð að viðurkenna að það er fremur stutt síðan ég fór að lesa Bændablaðið reglulega, en ég er alveg sammála um að þarna er virkilega áhugavert og gott lesefni á ferðinni.  Það er gott að þú kemur inn á "aðlögunina" hjá Króatíu.  Þegar þeir sóttu um aðild að ESB árið 2003, voru þeir EKKERT að fela fyrir þjóðinni að um aðlögun væri að ræða og sú aðlögun hefur tekið sinn tíma þrátt fyrir að algjör samstaða virðist vera hjá yfirvöldum í Króatíu.  En Íslensk stjórnvöld hafa ekki fengist til að viðurkenna það fyrir þjóðinni að um AÐLÖGUN sé að ræða.  HVERNIG STENDUR ÞÁ Á ÞVÍ AÐ ÞEIR TELJI AÐ INNLIMUNARSAMNINGUR VIÐ ESB VERÐI KOMINN Á FYRIR ENDA KJÖRTÍMABILSINS OG RÍKISSTJÓRNARFLOKKARNIR ERU ÞAR AÐ AUKI ÓSAMSTÍGA Í MÁLINU???

Jóhann Elíasson, 20.10.2011 kl. 16:51

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þessi feluleikur hjá okkur er auðvitað af því að sannleikurinn þolir ekki dagsljósið.  Og nú vill Össur flýta ferlinu.  Hann er orðin hræddur um starfið sitt í Lúxemburg eða Brussel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2011 kl. 17:09

3 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Gott hjá þér Ásthildur Cesil að vekja athygli á þessari grein nafna míns í Bændablaðinu. Hann veit hvað hann syngur.

Jón Baldur Lorange, 20.10.2011 kl. 20:38

4 Smámynd: Aztec

"HVERNIG STENDUR ÞÁ Á ÞVÍ AÐ ÞEIR TELJI AÐ INNLIMUNARSAMNINGUR VIÐ ESB VERÐI KOMINN Á FYRIR ENDA KJÖRTÍMABILSINS OG RÍKISSTJÓRNARFLOKKARNIR ERU ÞAR AÐ AUKI ÓSAMSTÍGA Í MÁLINU???"

Þeir reiða sig á að bara af því að landið er i EES og hefur þegar innleitt einhvern (lítinn) hluta af tilskipunum ESB, þá gangi þetta með ofsahraða. En það mun ekki verða. Aðlöguninni mun ekki ljúka fyrir næstu kosningar.

Það er við því að búast að þjóðaratkvæðagreiðsla í Króatíu sýni einhvern meirihluta fylgjandi ESB-aðildinni. En sama þótt fullkomin aðlögun hafi náðst hér á landi, þá eru tveir hnökrar eftir að aðildarsamningurinn hefur verið undirritaður af hálfu ríkisstjórnarinnar: Forsetinn á eftir að staðfesta lögin um aðild (sem hann gerir vonandi ekki) og þjóðin á eftir að kjósa um aðildina (sem væntanlega 60-70% mun hafna). Hins vegar mun VG ekki standa í vegi fyrir aðild (burtséð frá Jóni Bjarnasyni).

Framhaldið eftir fyrstu höfnunina verður þannig, að það mun verða kosið aftur og aftur um aðild með 1-2 ára millibili, þangað til kýrnar koma heim. Í hvert skipti verður búið að sykurhúða einhvern hluta samningsins eða gefa lítilvæga undanþágu. Sama hvaða ríkisstjórn er við völd. Því að framkvæmdastjórnin krefst þess að umsóknarríki, sem hefur fengið aðlögunarstyrki frá sambandinu, verði aðildarríki á endanum.

Óhugnanleg framtíðarsýn.

Aztec, 20.10.2011 kl. 22:14

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jón Baldur ég tel að bændur landsins sé ein mikilvægasta stétt okkar til framtíðar.  Og ég vil veg hennar sem mestan.

María, við látum það bara einfaldlega ekki gerast að sykurhúða sjálfstæði okkar svo að það verði falt fyrir fals og fláræði.  Aldrei.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2011 kl. 22:25

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

ESB vill tímasetta aðlögun um hvern kafla, áður en hann er opnaður. Íslenskir aðildarsinnar vilja túlka það svo að um áætlun sé að ræða sem taki gildi að lokinni samþykkt aðildar. En er það svo?

Alls ekki. Fyrir það fyrsta er aðlögunarplan að reglum ESB, áður en niðurstaða viðræðna er ljós, í raun samþykki á að við ætlum að ganga að öllum kröfum ESB, að ekki verði um neinar undanþágur að ræða. Í öðru lagi er útilokað að gera tímasetta áætlun fyrr en vitað er hvenær aðild verður samþykkt.

Þá falla þau rök íslenskra aðildarsinna að um plan sé að ræða er taka mun gildi eftir að aðild hefur verið samþykkt. Jafnvel þó tækista að opna alla kafla, þá hafa öll þau ríki sem gengið hafa inn í ESB á þessari öld hafa þurft að klára aðlögun hvers kafla áður en honum er lokað. Lög og reglur ESB heimila ekki undanþágur frá þeirri efnismeðferð. Samnigur er ekki kominn fyrr en öllum köflum hefur verið lokað.

Það er annars ekki rétt að kalla þetta samningaviðræður, mikið frekar er hægt að segja að um samræmingarviðræður sé að ræða.

Gunnar Heiðarsson, 21.10.2011 kl. 08:27

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Gunnar þetta eru klárlega aðildarlvilðræður hvað sem hver segir.  Og það má minna á að Bændasamtökin voru einu samtökinn sem settu fram skír viðmið og þröskulda fyrir samningaumræður.  Íslenska ríkið hefur ekki gert neina slíka og allt galopið.  Smjaðrið algjört og einbeittur brotavilji um að troða okkur þarna inn með góðu eða illu.  Það er orðið hart þegar maður getur ekki treyst sínum eigin stjórnvöldum til að vinna með þjóðinni sinni, heldur þvert á móti.  Ef þetta er ekki landráð og málefni fyrir landsdóm þá veit ég ekki hvað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.10.2011 kl. 10:49

8 Smámynd: Dagný

Ríkisstórnin ætlar að koma landinu í ESB hvað sem tautar og raular. Vilji og hagsmunir þjóðarinnar skiptir hana engu. Ja nema þetta fólk sé svo heimskt að það telji í alvörunni að okkur sé best borgið innan þessa kúgunarbandalags. Þá er þeim vorkunn og stjórnarliðar greinilega ekki í stakk búnir til að leiða þjóðina og ættu því hið hraðasta að segja af sér.

Dagný, 21.10.2011 kl. 14:38

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega hér þarf að staldra við og hreinsa til áður en við sökkvum í botnlaust dý ESB klíkunnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.10.2011 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2020894

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband