13.10.2011 | 20:20
Þegar maður fer landavillt svona óvart í boði flugfélags.
Já það var komin tími til að halda heim. Þó það sé yndælt að heimsækja fólkið sitt, þá er líka gott að komast heim. Við fórum því ánægð út á flugvöll, en með söknuði þó.
Já við vorum komin út á veg í tæka tíð. Og svo var beðið. Það var þoka á flugvellinum, en þotur komu og fóru... en ekki okkar. Svo kom upp á skilti að flugvélin hafi tafist og upplýsingar yrðu gefnar eftir korter.... og svo annað korter, og þriðja korterið, svo var komið upp í hálftíma. Ég var farið að hafa áhyggjur af flugvélinni sveimandi yfir Osló, svona eins og þegar flugvélin sveimar yfir Ísafirði á "góðum degi". Loks var gefið út að flugvélin hefði lent í Gautaborg, það var þó allavega léttir að þau væru ekki að eyða orku í að sveima yfir Osló. Þá hringdi sonur minn þau áttu von á farþegar með IE, og Tinna beið út á flugvelli lengi, uns ljóst var að vélin hafði ekki lent þar. Hann sagði mér að það ætti að senda rútu með farþegana frá Gautaborg. Ég hafði tekið eftir konu með tvo drengi sem biðu þarna ásamt okkur. Þeir voru á svipuðum aldrei og mínir unglingar.
Minn farin að leika sér á ýmsan hátt.
Ekki sást nokkur starfsmaður frá IE, nema stúlkan sem hafði átt að afgeriða okkur út í vélina, var hún þarna einhversstaðar, og ég var að senda Úlf til að spyrjast fyrir á þessum korters og hálftímafresti sem gefin var, og hún var víst orðin ansi pirruð. Þegar við vorum búin að bíða þarna á flugvellinum í um 6 tíma, horfandi á aðra farþegar allavega tvær mömmur með þrjú ung börn, og fleiri börn og farþegar sem voru jafnilla upplýst og við, var loks tilkynnt að við færum með rútu til Gautaborgar, við yrðum sjálf að sækja farangurinn okkar niður á töskubeltið, en við myndum fá mat í rútunni.
Orðin ansi óþolinmóður, og líka Alejandra.
Þá var haldið niður á beltabandið. Þessir gaurar eru reyndar allir ofvirkir, en voru samt ótrúlega flottir .... svona eða þannig. Flottir samt.
Ég vorkenndi nú eiginlega mest mömmunum með ungabörnin og hinum foreldrunum með minni krakka en við.
Þetta er svo maturinn sem við fengum í rútunni. Það var auðvitað löng biðröð í rúturnar sem voru tvær, og var komin svefngalsi í flesta krakkana enda höfðu sum þeirra komið langt að til að fara í flug, ein hafði verið í 9 kl. tíma rútuferð frá Volda á flugvöllinn og bíða þar allan þenna tíma, og svo var um fleiri.
Aldrei sáum við neinn frá EX, en þarna var kona sem var með nafnalistann og raðaði í rúturnar, sem betur fer var barnafólkið látið ganga fyrir. Eins og sést var drykkurinn ekki veigamikill í fimm tíma ferðalag. Og þess vegna var stoppað á sjoppu svo fólk gæti fengið sér að drekka og jafnvel eitthvað í gogginn á eigin kostnað auðvitað.
Einhversstaðar á leiðinni tilkynnti svo bílstjórinn að við færum ekki út á flugvöll, heldur yrði okkur ekið á hótel og myndum við gista þar um nóttina, eða nokkra klukkutíma, þar sem við vorum ekki komin á staðinn fyrr en kl. um 12. þar var sagt að okkar biði matur.
Í enn einni biðröðinni þennan daginn. Nú eftir hótelherbergi.
Ég og vinkona mín sem ég eignaðist í þessari ferð Margrét vorum komnar með fimm unglinga, þessa sem við áttum sjálf og svo tvö auka. Það var nefnilega vetrarfrí í skólanum í Noregi, og einhverjir unglingar voru á leið til ættingja á Íslandi, og forráðamenn voru orðnir áhyggjufullir um börnin þegar kom í ljós að það var ekki flogið frá Osló. Annar drengurinn sem var með Margréti var jú með okkur, og svo fékk hún hringingu frá dóttur sinni sem átti vinkonu sem var orðin ansi hugsjúk út af sinni unglingsdóttur á svona ferðalagi, því varð það svo að við tókum þau að okkur og gættum þeirra.
Komin inn á hóteli og aðeins að slaka á, hér er hópurinn að bíða eftir matnum, sem var ágætis rækjusalat.
Við þessi nýja fjölskylda deildum okkur svo niður á herbergi sem betur fer, því þó ég til dæmis bæði um að vera vakinn, þá brást það, og nýja vinkona mín sem hafði heyrt að ég bað um vakningu hringdi í mig um morguninn svo ég gat vakið restina af mínu liði. Við áttum sem sé að leggja af staða út á flugvöll kl. hálf sjö, en svo var því flýtt til tuttugumínútur yfir sex, og sem betur fer ræddu farþegar saman, því hvorki starfsfólkið á hótelinu eða neinn annar vissi neitt. Enda enginn þarna frá flugfélaginu.
Hér erum við aftur í biðröðu á flugvellinum í Gautaborg, innskráning enn á ný.
Og loks um borð í flugvélina. Þar var virkilega vel tekið á móti okkur, og starfsfólkið allt að vilja gert til að þjónusta okkur. Og allt frítt um borð, matur og vín. Því miður gat ég ekki þáð neina drykki, því ég ætlaði að aka beint heim.
Börnin okkar voru í rosa stuði, og þurfti aðeins að sjatla til eldra fólk sem var ekki eins fjörugt og þau. En sem betur fer var nóg pláss í flugvélinni.
Við Margrét voru bara nokkuð ánægðar með að hafa allan hópinn, því þau voru þá félagsskapur fyrir hvort annað.
Við gátum því slakað á í flugvélinni. En það var ekki sama sagan með foreldra og ættmenni unglilnganna sem við vorum að gæta. Þau biðu í angist eftir því hvernig þeim reiddi af.
Og það voru felld tár við móttökuna á Keflavíkurflugvelli. Ég get alveg ímyndað mér áhyggjur fólks af unglingum í hálfgerðu reiðileysi svona milli landa. En við Margrét sáum samt um þau með sóma.
Og takk Margrét mín fyrir skemmtileg kynni og vonandi hittumst við aftur. Þetta var þrátt fyrir allt .... allavega öðruvísi.
Ég segi nú bara að það hefði verið heppilegra fyrir flugfélagið að hafa manneskju á staðnum í Osló sem fylgdi fólkinu og hefði haldið því saman og upplýst um hvert spor. Þessi óvissa um hvað gerðist næst var erfið. Til dæmis að segja strax að flugvélin hefði lent í Gautaborg og við yrðum flutt þangað. Það var ekkert annað í stöðunni tel ég vera þá strax. Þegar svona kemur upp á sem auðvitað er ekkert við að gera, þá skiptir máli að halda fólkinu upplýstu um hvert skref. Jafnvel bjóða því upp á hressingu á Oslóarflugvelli, þar sem fólk hefði getað rætt saman og verið í meira samabandi, en ekki þessi smáskammtaupplýsingar sem við fengum frá hinum og þessum og þetta væri mögulega svona eða kannski hinsegin.
En þá erum við komin í Hesteyrarfjörðin og haustlitirnir upp á sitt besta.
Ég hafði ætlað mér að koma við hjá frænda mínum honum Atla Smára Ingvarssyni í Mosó, en vegna þessara hrakninga var ákveðið að fara beinustu leið heim.
Ég kem við hjá þér seinna elsku frændi.
Nú er ég bara að reyna að ná mér upp úr leti og ómennsku.
Ég var líka heppinn að fara beint heim, því daginn eftir var byrjað að fenna og komin hálka á heiðar.
Að vísu var hlýtt í dag, og snjórinn horfinn. En veturinn læðist upp að manni hægt og hljótt.
Því verður ekki mótmælt.
Vona samt að fá nokkra sæmilega daga ennþá, því ég á eftir heilan helling að ganga frá fyrir veturinn.
En svo verður bara að hafa það ef það næst ekki.
Takk Margrét mín fyrir skemmtileg kynni og þið krakkar og ég er himinlifandi yfir að vera komin heim. Þó ég sakni fjölskyldunnar minnar bæði í Noregsi og Austurríki.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 2022163
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þakka ferðasöguna bloggvinkona/og frábærar myndir/Kveðja og velkomin á klakann
Haraldur Haraldsson, 14.10.2011 kl. 00:34
Þvílíkar hremmingar á heimleiðinni, en gott að allt fór vel og þið komust heil heim...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.10.2011 kl. 02:12
Þetta hefur verið allsvakaleg ferð heim. Þegar þetta er rifjað upp er þetta kannski ekki svo voðalegt en þetta er algjör "martröð" á meðan á þessu stendur. En það er fyrir öllu að allir komu heilir heim............
Jóhann Elíasson, 14.10.2011 kl. 06:19
Já, það er skemmtilegt að lesa um þetta og segja frá núna, en örugglega ekki eins gaman meðan á því stóð. Svona þeytingur og óvissa er svo slítandi. En þegar óförunum er lokið verða þau oft skemmtilegt ævintýr sem engan langar þó að endurtaka. Ég get ímyndað mér að þú hafir verið þreytt og tætt eftirá.En allt er gott sem endar velog ég get hugsað mér að mömmurnar sem áttu börnin sem voru ein hafi verið fegnar að þau fengu stuðning. Og ekki hefði ég getað hugsað mér betri stuðning fyrir mín börn, en ferðast í samfloti við þig
Dísa (IP-tala skráð) 14.10.2011 kl. 10:13
Það er alltaf eins með þig, þar sem þú ert stödd, fara hlutirnir vel. Mikið hefur unga fólkið verið heppið að hitta á þig og þitt fólk. Þér tókst greinilega með þínu æðruleysi og yfirvegun að gera skelfilega seinkun að þolanlegri ferð sem verður svo bara skemmtileg í minningunni, allavega fyrir allt unga fólkið. Þú ert hetjan mín takk fyrir þetta elskuleg og eigðu sem ljúfasta helgi.
Ásdís Sigurðardóttir, 14.10.2011 kl. 11:20
Held að ég myndi ekki ferðast með þeim ef ég gæti komist hjá því. Ég yrði brjáluð á að bíða svona í óvissu og hanga á flugvellinum. En sem betur fer komust þið heim áður en veðrið breyttist.
Þær eru kuldalegar neðstu myndirnar, vona að snjórinn sé alveg horfinn og komi ekki aftur fyrr en um miðjan desember.
Gangi þér vel að sinna haustverkunum í garðinum.
Knús í kúlu
Kidda, 14.10.2011 kl. 11:24
Gott að allir komust heim heilir á húfi ;) Þú áttir bara að taka kvittanir fyrir öllu sem þú keyptir og rukka svo IE.
Geysilega flottir haustlitir þarna hjá fossinum í hlíðinni. Nánast óraunverulegir.
Hrönn Sigurðardóttir, 14.10.2011 kl. 13:13
Já bið og óvissa var verst. Við hefðum getað gert fullt af skemmtilegum hlutum þarna á flugvellinum ef þeir hefðu bara gefið það út strax sem var þeim augljóst að flugvélin er ekki með lengingarútbúnað fyrir þoku. Þeir hefðu líka getað látið okkur gista í Osló, veit ekki hvort það hefði verið dýrara en að taka 2 rútur og gistingu í Gautaborg. En þetta er allt í lagi í dag. það var bara gaman svona eftir á að koma til Gautaborgar. En ég vorkenni mest íslendingunum sem voru að fara heim í vetrarfrí með börnin til að hitta ættingjana, þarna fór heill dagur til ónýtis.
En vissulega var þetta ævintýri og svona eftir á bara gaman að þessu. No hard feelings, og ég mun áfram skipta við IE ef ég færi ódýrara far en hjá Icelandair. Samkeppni er af hinu góða og mér er alveg sama ef ég kemst frá A til B forfallalítið ef ég þarf að borga minna.
Einnig vildi ég hafa séð starfsfólk frá flugfélaginu til að gæta krakkana sem voru þarna ein á ferð, þau sem við tókum að okkur við Margrét. Ég held að ég hafi þar eignast flotta vinkonu. Svo er hún líka vinkona vinkvenna minna Laufeyjar og Söru. Svona er heimurinn lítill.
Hrönn ég var að hugsa það, en gerði það ekki. Og vissulega var gott að komast um borð og flugþjónar vildu allt fyrir okkur gera. Viltu kaffi? Já takk. Má bjóða þér koníak með? Nei því miður ég er að fara að aka bíl á eftir, en ég hefði þegið það í gær í rútunni
Hvað má bjóða þér að borða. Viltu nammi? Bara að láta vita ef þig vantar eitthvað. Já það var gott að vera um borð, sýnir hve starfsfólk hvers fyrirtækis er mikill fjársjóður, þegar yfirmenn bregðast ekki nógu vel við.
Hrönn já Djúpið var ægifagurt með sína flottu haustliti. Ég varð að stoppa og taka myndir af dýrðinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2011 kl. 13:27
Ég skil það! Ég er að spá í að leggja af stað sneggvast Þetta eru dásamlegir litir
Hrönn Sigurðardóttir, 14.10.2011 kl. 13:30
Takk .. komdu þá við í kúlunni
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2011 kl. 16:16
Þvílikt flottar myndir- vá !
Erla Magna Alexandersdóttir, 14.10.2011 kl. 21:06
Takk Erla mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2011 kl. 21:44
Gott að heyra að allir komust klakklaust heim.
Ég hef samt aldrei skilið að fólk sem lendir í seinkun á flugi krefjist fæðis af flugfélaginu. Mér finnst mjög eðlilegt að krefjast endurgreiðslu á kostnaði við gistingu og ferðir en mér finnst eðlilegt að þeir sem lendi í slíkum hremmingum sjái sjálfir um að borga sinn mat. Við þurfum öll að borða hvar sem við erum, en við ættum ekki að þurfa að bera kostnað af því að þurfa að gista einhvers staðar vegna seinkunar á flugi.
Varðandi kostnað við mat gæti ég þá t.d. krafið flugfélagið um greiðslu á morgunverðinum mínum heima - allt vegna þess að ég átti flug klukkan 7 um morguninn en endaði á því að fara í loftið klukkan 3 um daginn.
Kannski má segja að þessi sýn mín eigi ekki við um seinkanir að nóttu, en að degi til ættu allir að geta bjargað sér um mat - er einhver hér sem getur sagt með fullri vissu að viðkomandi fái matinn ókeypis heima hjá sér.
Hvar sem við erum, hvert sem við förum og hvar sem við endum - í þessu lífi - hljótum við að vera ábyrg fyrir því að við og okkar nánustu fáum mat.
En sem betur fer tókst þú að þér vegalausa unglinga og komst þeim "undir manna hendur" og allt endaði vel.
Ég hef nokkrum sinnum lent í miklum seinkunum og stundum þurft að gista. Ég keypti mér að sjálfsögðu mat, tók kvittanir fyrir gistingu og öðrum kostnaði sem á féll og sótti hart að fá það greitt. Sem gekk eftir. Eftir sat ég með matarreikning södd og sæl :)
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 14.10.2011 kl. 22:38
Já reyndar er það vissulega rétt að við þurfum alltaf að borga matinn heima og að heiman. En einhvernveginn finnst mér það vera svona gott PR á vondu máli að gera vel við viðskiptavini sína þegar svona er komið. En sum sé þetta endaði vel og svo má segja að ítrustu aðgætni var gætt við að lenda ekki þó flestar vélar gætu lent með betri útbúnað, öryggið er nefnilega það besta við þetta allt saman. Takk fyrir innlitið Sigrún mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2011 kl. 23:12
Ég var einmitt ein með son minn í þessari vél og sat m.a. fyrir framan þig og við hliðina á þessum flottu skemmtilegu unglingum sem þið voruð að ferðast með - til hamingju með þá :D
Sigrún - það kostar bara ekki nærri þvi það sama að kaupa ruslfæði eða hollustu á einum af dýrasta flugvelli í heimi og að vera heima hjá sjálfum sér eða ættingjum.
Málið er að þennan dag lentu ALLAR vélar á flugvellinum og tóku á loft nema umrædd vél frá Iceland Express. Ein vél frá TelAviv lenti ekki enda var henni aflýst í upphafi. Vélarkostur IE er bara því miður með eindæmum lélegur og farþegar verða að bíta í það súra epli.
Ég var að fara í 3 daga ferð með soninn til Íslands - sem endaði í 2 daga ferð og er IE alveg sama um það að hafa tekið af okkur tæpan sólarhing. Það er ekki þeirra mál. Endurgreiða útlagðan auka kostnað gerðu þeir ekki og sögðu mér jafnframt að þeir fengju MJÖG SJALDAN kvartanir frá farþegum............. Skriflega kvörtun fengu þeir frá mér og mínum tólf ára syni og annað eins hallærissvar hef ég sjaldan fengið enda ljóst að allar aðrar vélar fengu lendingarleyfi þennan dag (og á sama tíma og IE átti að lenda) - læt það fylgja með hér fyrir neðan. Skaðabætur sem beðið var um í kvörtuninni voru þær að flugfélagið greiddi breytingu á flugmiðum til baka til Oslo þannig að við mæðginin gætum fengið sólarhrings lengri veru á Íslandi.
Þetta flugfélag fær allavega ekki mitt atkvæði aftur og ég myndi ráðleggja þessu yndælisfólki sem vann í umræddri fllugvél að finna sér vinnu hjá öðru fyrirtæki.
Svar við formlegri kvörtun til IE:
Takk fyrir bréfið þitt.
Til að byrja með viljum við biðja ykkur innilegar afsökunar á þeim óþægindum sem þessi seinkun olli ykkur.
Ástæða seinkunarinnar var þoka í Osló og þurfti vélin að lenda í Gautaborg vegna þess að ekki fékkst lendingarheimild í Osló. Við skiljum vel að seinkanir hafi ávalt óþægindi í för með sér og þykir okkur það miður. Þessi seinkun var algjörlega óviðráðanleg í þetta skiptið þar sem um þoku er að ræða. Þar sem þokunni létti ekki var tekin ákvörðun um að ferma farþega á milli Osló og GOT með rútu. Allir farþegar fengu gistingu á hóteli yfir nóttina skv. EU reglugerð 261/2004.
Það sem í þessu tilfelli var um algjörlega óviðráðanlegar aðstæður eru engar skaðabætur í boði. Er það í samræmi við reglugerð og færðu sömu svör hjá Flugmálastjórn Íslands.
Aftur biðjum við þig innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þið urðuð fyrir og ítrekum að okkur þykir þetta mjög leiðinlegt.
Bestu kveðjur
Farþegaþjónusta Iceland Express
Elín (IP-tala skráð) 16.10.2011 kl. 07:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.