17.3.2011 | 14:58
Geir Ólafsson þú ert snilli.
Ég hef svolítið fylgst með Geir Ólafssyni gegnum tíðina, hef séð plötudóma um hann sem voru argandi skepnulegir og fólk sem talar niður til hans. En þessi drengur hefur tekið öllu slíka af ljúfmennsku og aldrei svarað neinu slíku og er jákvæður og fylgin sér. Ég dáist að slíku fólki sem svarar illu með góðu og er alltaf jákvæður í viðtölum. Og þegar menn hafa ætlað að tala niður til hans, hefur hann snúið því upp í jákvæðni og elskulegheit. Betra væri að við hefðum fleiri slíka. Svo er hann að gera það gott í henni Ameríku, og þá fer landinn svona frekar að spara stóru orðin og hugsa að ef til vill sé eitthvað varið í piltinn.
En þetta hér er algjör snilld. Mikið asskoti eru flottur Geir Ólafsson, ég sendi þér mína innilegustu aðdáun fyrir frumkvæðið og pælinguna á bak við.
Meiri svona baráttuaðferðir sem rífa málið upp úr röflfarveginum, og setja hann í allt annað samhengi.
Go boy!!!
Geir Ólafs afhendir Steingrími óútfylltan víxil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 2022144
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðan daginn Ásthildur.
Ég tek undir hvert orð hjá þér.
Heyr! Meir Geir!!!
Kristinn Snævar Jónsson, 17.3.2011 kl. 15:38
Ég hlustaði á life upptöku af söng hans á ehv, klúbbi eða hljómleikasal í U.S.A. hann var þrusu góður. Á eftir að hlusta á þetta, knús.
Helga Kristjánsdóttir, 17.3.2011 kl. 16:06
Takk fyrir innlitið Kristinn Snævar Já margur hefði verið búin að láta kúga sig niður með þeim trakteringum og blammeringum sem hann hefur fengið gegnum tíðina, en nú er honum að takast að ná sér vel á strik.
Geir bætir upp sönginn með því að vera sú persóna sem hann er Helga mín og honum hefur farið mikið fram.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2011 kl. 16:38
Takk f. athugasemd og samhug með hr. Franz Jósef. Hann var alltaf svolítið sérstakur, hann mátti líka vera sérstakur. Kisur eru ólíkar rétt eins og mannfólkið Ásthildur mín. Ef til vill ætlum við báðar að fara sinna blómum á sinnhvorn háttinn, þú að sinna þinni Garðyrkjustöð og ég að eignast heimilisblóm. Ég hef alltaf haft svo mikið dálæti á vínviði, t.d. kónga- og rússavíniði. Og svo bergfléttu, innanhússblómi. En gangi þér allt í haginn.
Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 17.3.2011 kl. 17:05
Já kisur eru karakterar og ólíkir, hver hefur sinn eigin stíl.
Ræktun er góð fyrir sálina Ingibjörg mín. Og sömuleiðis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2011 kl. 17:36
Algjör snilldarhugmynd
Haraldur Rafn Ingvason, 17.3.2011 kl. 20:57
Já og á jákvæðum nótum. Hvernig ætli Steingrímur bregðist við?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2011 kl. 21:30
Frábært hjá honum.
Síðan þarf hann bara að taka My Way í beinni útsendingu, ef hann fær víxilinn undirritaðan af okkar gjafmilda (fyrir hönd skattgreiðenda) fjármálaráðherra.
Theódór Norðkvist, 18.3.2011 kl. 00:41
Heyr, heyr
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.3.2011 kl. 01:17
Sæl Ásthildur. Geir er rosalega góður drengur og hefur sýnt það á ýmsan máta. Hann er t.d. alltaf boðinn og búinn þegar Sjálfsbjargarfélagar eru að gera eitthvað skemmtilegt. Málið er að maður hefur ekki heyrt hann taka nema sömu lögin og þó hann sé flottur í þeim þarf kannski meira til að slá í gegn sem skemmtikraftur, veit það þó ekki. Gæti trúað að hann hafi ekki fengið þau tækifæri sem hann hefði þurft til að ná vinsældum. Mér finnst hann rosaflottur og óska honum alls hins besta í Ameríku. Varðandi víxilinn þá hefði hann þurft að vera búinn að efna til skuldar sem íslenskur þegn og færa svo Steingrími víxilinn :) Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 18.3.2011 kl. 09:02
Alveg sammála þér að það væri óskandi að fleiri leystu málin eins og hann. Ljúfmennskan uppmáluð
Dagný, 18.3.2011 kl. 09:07
Geir Ólafs er umdeildur maður sem þarf virkilega að venjast. Því þegar hann birist fyrst á sjónarsviðið, var þetta því miður einn af þeim sem allir elskuðu að hata, sökum athyglissýkinnar sem hann var haldinn þá. En mjög mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá, og er hann greinilega einn af þessum skemmtilegu sérvitringum sem við gætum ekki hugsað okkur lífið án, og hefur einnig látið af oflæti sínu og sýnt fram á að hann er afar hjartahreinn maður með sterka réttlætiskennd. Sem sannast í þessari frétt sem þú tengi við Ásthildur.
Þess vegna tek ég ofan fyrir þessum öðling eins og þú Ásthildur, og gott hjá þér að fjalla um þetta.
Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.3.2011 kl. 09:13
Ég er þér100% sammála..... en stundum heldur maður að það virki ekki að vera svona jákvæður..... Áfram Geir Ólafsson.
Fólk vill bara heyra það vonda.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 18.3.2011 kl. 09:16
Takk öll fyrir innlitið. Í upphafi var ég svo sem ekkert betri en aðrir með að gera grín að honum, en ekki opinberlega, og fannst hann með athyglissíki eins og Haukur bendir réttilega á. En það er ekki annað en hægt að dáðst að honum í dag, hvernig hann hefur hagað sínu lífi og lært, og vera svona jákvæður og ljúfur. Ég virkilega met það við hann í dag.
Og við eigum líka að minnast á það sem vel er gert, sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2011 kl. 10:51
Fólk talar alltaf um Geir eins og hann geti ekki sungið?Ég held að þið hafið ekki heirt hann singja nýlega..Ég þekki Geir ekki neitt en ég hef heyrt hann singja í heimahúsi og ég get sagt ykkur það að hann er bara alveg helv,,góður söngvari,og svo er hann með þetta bölvaða icesave á hreinu líka.
casado (IP-tala skráð) 18.3.2011 kl. 12:15
Ég held að enginn sé að tala um að hann geti ekki sungið. Hann er ákaflega duglegur að koma sér áfram. Það er ekki auðvelt það veit ég. En það sem mér finnst meira um vert er þessi góði persónuleiki sem hann er og bíður öllum birgin með góðmennsku sem þykjast vera meiri menn en hann.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2011 kl. 13:09
Vel skrifað hjá þér Ásthildur, það er skritið hvað margir hafa "drullað" yfir Geir, held hann hafi ekki gert neinum neitt, bara reynt að gleðja fólk. Aldrei svarar hann opinberlega öllu því sem yfir hann er hellt. Hef heyrt hann syngja og hann var alveg ágætur. Kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 18.3.2011 kl. 13:11
Hef alltaf gaman af fólki sem þorir að vera það sjálft
Jóhanna Magnúsdóttir, 18.3.2011 kl. 15:50
Já stelpur mínar. Það er gott að vera jákvæður og láta ekki illmælgina hrína á sér. Það sýnir að þessi maður er sterk persóna, hann þarf ekki að látast vera neitt annað en hann er. Það er einmitt það besta sem til er til að gera mann sterkan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2011 kl. 16:33
Ég hef aldrei skilið hvað fólk hefur verið að agnúast út í Geir Ólafs. Mér sýnist eins og hann sé alltaf jákvæður og hress, þrátt fyrir gegndarlausa gagnrýni frá tónlistarelítunni. Ekki eru allir steyptir í sama mót - Guði sé lof fyrir það og ég óska honum alls hins besta.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 19.3.2011 kl. 01:01
Og smá til viðbótar. Hann er alveg ágætur söngvari, en af þvi að hann er ekki á einhverri viðtekinni nútímalínu er hann álitinn eitthvað.... Hvað með það, ég veit um marga miklu verri söngvara á Íslandi sem hafa meikað það.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 19.3.2011 kl. 01:10
Já alveg rétt Sigrún, það eru margir sem hafa komist áfram á klíkuskap sem eru verri söngvarar en hann. Svona er Ísland í dag klíkur alltsataðar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2011 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.