10.3.2011 | 18:38
Smá gigg frá mér.
Eins og ég sagði í gær þá var ég í upptöku hjá nokkrum Ísfirðingum sem eru að taka upp þætti með ísfirsku tónlistarfólki, til dæmis við Villa Valla og fleir slíka sérfræðinga. Svo datt þeim í hug að ræða við mig. Það var reyndar í Janúar, en þá var ég á leiði til Austurríkis og hafði ekki tíma. En svo í gær fór ég í umrætt viðtal. Þetta er elskulegt fólk með áhuga á vestfirskri músik og aðallega að halda til haga því sem hér hefur verið gert. En sem sagt þarna var ég spurð spjörunum úr.
Ég ætla auðvitað ekki að fara út í viðtalið nánar, en það er gaman að rifja þetta upp, hér er ég 14 ára að skemmta á þorrablóti og fékk að syngja með hljómsveitinni.
Um 13 ára aldur höfðum við vinkonurnar stofna tríó og skemmtum ísfirðingum í nokkur á ár þorrablótum, árshátíðum og allskonar skemmtunum, við vorum stjörnur.
Þá var lífið afar einfalt og skemmtilegt.
Hér var heilmikil skemmtur á vegum BG, og var heitið fimm söngvarar frá fyrri tíð. Hér erum við Árni Búbba, ég, Barði Ólafs, Ingibjörg Guðmunds, Óli Guðmunds sem er látinn blessuð sé minning hans,
Ogh svo hljómsveitin. Við skemmtum í Sjallanum á Ísafirði og var einstaklega velheppnuð skemmtun.
Hér er ykkar einlæg á góðri stund.
Þetta var kaparett með BG og gestur var Ómar Ragnarsson, skemmtileg uppákoma og gaman að taka þátt. Ég þarna í miðjunni með gítarinn.
Þegar ég var í Glasgow aupair, voru tvær vinkonur mínar frá SÍS Austurstræti líka þarna og við stofnuðum tríó og skemmtum á þorrablóti íslendingafélagsins, meira að segja saumuðum okkur búninga, sem litu svona út.
Og svo er það Sokkabandið í allri sinni dýrð.
Tekið á tónleikum Sokkabandsins í Sjallanum og hér er Bára mín að syngja eigið lag um Fidda feita.
Jamm þetta var rosalega góður tímin.
Svo kom platan mín í kjölfarið.
Sem var afar skemmtilegur tími.
Reyndar var ég í nokkrum hljómsveitum áður en Sokkabandið kom til, fyrst Hljómsveit Ásgeirs Sigurðssonar. Hér eru Örn Jónsson, Dúddi, Geiri, ég og Rúnar Pétur Geirs sem ég kallaði oft lyklabarnið mitt, því ég reyndi að vernda þessa drengi sem voru með okkur í hljómsveitinni óttalegir fjörkálfar.
Hehehehe..
Síðan kom hljómsveit sem kallaðist Aðild og Ásthildur, svo Ásgeir og félagar, Líparít, síðan þessi hér Gancía.
Svo kom hlé hjá mér uns Sokkabandið varð að veruleika.
Og að lokum Gömlu brýnin.
Reyndar stálu nokkrir frægir hljómlistamenn úr Reykjavík nafninu síðar. En það er önnur saga. En þetta var bara skemmtilegur tími.
Jamm elskurnar ef þið viljið heyra meira þá þarf að horfa á þessa nýju ísfirsku sjónvarpsstöð. Segi ég bara svona.
En eigið annars góðan dag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtilegar myndir og upprifjun, vá!
Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.3.2011 kl. 20:16
Takk Jenný mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2011 kl. 21:24
Gaman að sjá þessar myndir.
Njóttu lífsins mín kæra.
Laufey B Waage, 10.3.2011 kl. 22:13
Takk Laufey mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2011 kl. 22:23
Skemmtileg upprifjun
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.3.2011 kl. 22:24
Já svo sannarleg Jakobína, svo sannarlega. Og ég sem hafði gleymt þessu öllu, en núna varð ég að rifja þetta upp.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2011 kl. 22:41
Sæl Ásthildur !
Gaman að sjá þessar fallegu og skemmtilegu myndir.
Mig langar svo að vita meira um þessa nýju sjónvarpsstöð
og hvort sé hægt að sjá hana á netinu.Geturðu frætt mig um þetta ?
mbkv
Halldóra
Halldóra (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 00:46
Þetta var gaman að sjá, tónlistarlíf alltaf blómlegt á Ísafrði. Flott þarna með plötuna ,milli trjánna.Ég man svo vel eftir Uppsölum.
Helga Kristjánsdóttir, 11.3.2011 kl. 01:11
Frábært að sjá þessar gömlu myndir og gaman að þeim sé haldið til haga. Mér skilst að Dr. Gunni sé að skrá annað bindi af rokksögu Íslands. Hann þyrfti að komast í þessar myndir og þessar heimildir.
Jens Guð, 11.3.2011 kl. 01:39
Frábær upprifjun hjá þér....
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.3.2011 kl. 01:53
ÆÐISLEG, í þátíð og nútíð!
Jóhanna Magnúsdóttir, 11.3.2011 kl. 07:40
Takk öll
Halldóra það var misskilningur hjá mér með sjónvarpsstöðina, þeir eru að taka þetta efni upp sjálfir, og ég mun bara tilkynna hvar það verður sýnt þegar að því kemur.
Jens Doktornum er guðvelkomið að hafa samband við mig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2011 kl. 11:09
Gaman að sjá þessar gömlu myndir og rifja upp, sumt af þessu fór fram hjá mér því ég var farin. En gaman að sjá myndirnar af ykkur Hildu og Klöru. Áður en þú fórst að spila með Rúnari Þór í hljómsveit reyndi ég af veikum mætti að ala hann upp í sveitinni, hann kom nú vel út á endanum, en ég er ekki viss um að mínar tilraunir hafi haft nein áhrif. En alltaf þykir mér vænt um drenginn. Sokkabandsplötuna á ég og geymi sem dýrgrip. Þú hefur nú afrekað heilan helling
Dísa (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 12:51
Flottar myndir og mikið er dóttirin í Austurríki lík þér .Það var allt einhvern veginn svo mikið einfaldara og hreinna fyrir nokkrum árum síðan.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 13:07
Takk Birna Dís mín, já hún hefur alltaf verið sögð lík mömmu sinni þessi elska.
Gaman að heyra Dísa mín. Já Rúnar er yndælis drengur og alltaf góður.
Það eru ótrúlega margir þarna sem eru farnir langt fyrir aldur fram, eins og Klara blessunin, Óli Guðmunds, Maggi Þórðar, Kalli Tomm, Kristinn Friðbjarnar, Silli, og svo er Þórarinn Gísla líka horfinn á braut. Hann var mikið í músikinni.
Takk elsku vinkona mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2011 kl. 16:01
Æðislegt að sjá þessar myndir og þú ert sko æðislega flott gella, og ert það enn
Knús í Kúlu
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.3.2011 kl. 19:35
Vá - þú ert eitt af því yndislegasta. Ég er stolt af því að vera ættuð frá Ísafirði:)
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 12.3.2011 kl. 07:43
Frábært að skoða þetta, takk fyrir
Sigrún Jónsdóttir, 12.3.2011 kl. 09:38
Sá bæði Báru og Júlla á myndunum af þér. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegur tími, örugglega gaman að rifja upp gömlu góðu dagana og eins og Birna Dís segir, einföldu dagana. Lífið er orðið mun flóknara í dag.
Knús í söngkúluna
Kidda, 12.3.2011 kl. 09:42
VÁ - þú hefur bara verið heimsfræg þarna fyrir vestan og þó víðar væri leitað. Þú hefur byrjað ung og ertu ekki bara enn að? Frábært að fá að skoða þessar yndislegu myndir.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 12.3.2011 kl. 11:16
Takk elskurnar.
Já þetta hefur vissulega verið skemmtilegur tími. Og ennþá meira gaman að horfa til baka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2011 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.