26.2.2010 | 16:56
Það er Austurvöllur á morgun.
Ég vil minna á að á morgun Laugardag verður mótmælafundur á Austurvelli. Nýtt Ísland ætlar að vekja bæði Steingrím og Jóhönnu og gefa þeim báðum 7. mínútur til að ræða um skjalborgina og aðstoðina við almenning í landinu.
Það verður fróðlegt að vita hvort oddvitar ríkisstjórnar almennings í landinu velferðarstjórnarinnar svari kallinu og noti þessar mínútur til að tala til fólksins, vera á meðal þeirra og deila þessum tíma með fólkinu sínu.
Mér finnst nú sætt að vakningarlestinni að benda þeim tímanlega á þetta svo þau geti farið snemma að sofa og hugsanlega sett eitthvað þýðingarmikið niður á blað. Enda hljóta þau að taka þessu vel, fólkið sem ætlaði að endurvekja nýtt Ísland, með réttlæti, gegnsæi og velferð fyrir samborgara sína.
Þau gætu til og með sagt okkur frá hvernig gangi með Icesave og ESB og sona.
Maður getur látið sig dreyma um ýmislegt. Ég vil líka benda á að það er alveg tilhlýðilegt að vekja Össur líka og gefa honum svipaðan tíma. Hann hefur ekki legið á liði sínu að básúna skoðanir sínar um allar trissur, verst að þær skoðanir eru ekki endilega þær sömu og þjóðarinnar að stórum hluta til allavega, frekar en Jóhönnu og Steingríms. En hér ríkir jú tjáningarfrelsi ekki satt?
Hér er ég og ræðan mín til dæmis. Hún var aldrei flutt á Austurvelli, en hún hefur oft verið viðruð hér á þessu bloggi. Og ég segi; látum breta og hollendina sækja sitt eftir að við höfum hafnað Icesave. Og inn í ESB skulum við aldrei ganga. Það er orðið ljóst að þar verður ekkert gefið eftir, "vinir" okkar geta ekki beðið með að koma sér inn í landhelgina okkar, þeir vita líka fullvel af heita vatninu, kaldavatninu, tækifærum í hreinni matvinnslu og gróðurhúsum. Tækifærum sem sum okkar hafa ekki einu sinni hugmynd um að við höfum. En þeir verða fljótir að nýta sér og taka af okkur. Eins og til dæmis orkulindirnar okkar sem verið er að reyna að selja eða leigja til margra áratuga. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þannig er nú það.
Þegar menn segja að við getum ekki ráðið okkur sjálf, þá er það kjaftæði. Við höfum gert það í 1000 ár. Að vísu stundum undir harðstjórnum sem hafa notað vald sitt til að nýta það sem við eigum. Síðan 1944 höfum við verið sjálfstæð fullvalda þjóð. Og notið virðingar í samfélagi manna. Allt þangað til stjórnvöld voru orðin svo spillt að þau höfðu gleymt fólkinu í landinu. En þá reis fólkið upp og fór niður á Austurvöll, hrakti ríkisstjórnina frá og setti ný viðmið.
Við eigum ennþá til dug til að gera betur. Og krefjast þess að þeir sem nú sitja og allir sem að málum hafa komið undanfarið og ekki skilað NEINU fari frá og sett verði upp utanþingsstjórn, eða neyðarstjórn, sem leiðir þjóðina út úr þessari krýsu. Við eigum ennþá sömu rödd og þá, potta pönnur og önnur hljóðfæri.
Við þurfum bara að koma okkur út og framkvæma.
Þessi afskorna rós sem hefur verið án umönnunar síðan í byrjun október á síðasta ári og er ennþá lifandi og farin að vaxa á nýju ári, sýnir okkur svo ekki verður um villst að kraftaverk gerast. þau gerast ef fyrir hendi er kærleikur, trú og von og auk þess áræði til að breyta.
'Eg kemst ekki sjálf vegna þess að ég er of langt í burtu, en ég skora á ykkur öll sem eru með svipaðar skoðanir og ég að láta sjá ykkur á Austurvelli og láta heyra í ykkur.
Við verðum að standa vörð um okkur sjálf börnin okkar og framtíðina.

Smá glaðningur svona í endann. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.
Öxar við ána, árdax í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
Eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nýtt Ísland: Eru þetta ekki samtökin sem vilja setja á stofn leynilöggu, koma á þegnskilduvinnu svo eitthvað sé nefnt. Mér lýst ekkert á þetta selskap.
Finnur Bárðarson, 26.2.2010 kl. 17:10
Gaman að sjá að þú endar á ljóði eftir langafa minn Steingrím Thorsteinson.Svo sá ég líka að ein dúllan þín deilir með mér fæðingardegi.23.02.
Kær kveðja.
Margrét
Margret (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 17:16
Takk fyrir þetta Margrét þetta er fallegt ljóð og ber manni baráttu í brjóst.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2010 kl. 17:18
Finnur minn þetta er alveg dæmigert íslenskt svar. Ég tók þessa auglýsingu sem dæmi, ég er ekki í þessum samtökum, en ég vil berjast fyrir frelsi landsins. Og hvort sem það er Nýja Ísland, Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn InDefense eða what ever sem er á sömu baráttulínu og ég, þá er það vel. Mundu bara að sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.
Það hefur hingaði til verið okkar akkíleasarhæll að við erum alltaf að góna á smáatariðin eins og hvaða skónúmer Jón Jónson notar en ekki hvaða máli hann berst fyrir. Við kjósum ekki þennan flokk, af því að þessi maður er í honum. Ég held að þetta sé einstakt íslenskt fyrirbrigði sem þarf einhvernveginn að virkja á jákvæðan hátt eins og sjávarföllin.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2010 kl. 17:21
Allir á Austurvöll. Ég mæti að sjálfsögðu. Vona bara að ríkisstjórnin fari að hlusta á fólk og gera eitthvað í málunum. Ekki þetta eilífa skítamix á síðustu stundu á þeim alltaf. Ég er alltaf af og til að heyra af fólki sem er búið eða við það að missa allt sem það hefur púlað fyrir alla ævi og svo sér þetta fólk ekki sóma sinn í því að mæta á Austurvöll og mótmæla öllu því klúðri sem þessi ríkisstjórn hefur borið á borð fyrir okkur, heldur situr bara og volar í fólki......
Allir á Austurvöll (nema Zenjór Freddý Zanzibar, hann er svo hrikalega hræddur við púðurkerlingar).
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 26.2.2010 kl. 23:52
Sæl Ásthildur mín! Heldur þú þessa ræðu á morgun? Já "vinirnir" mæna gráðugum augum á auðlindir vorar,bíða eftir að hremma þær. Gleymum ekki að sólgnin er líka í greiða leið um N-Íshafið.
Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2010 kl. 01:14
Nei Helga mín ég á ekki heimangengt, enda eru það meiri ræðusnillingar en ég sem þarna þruma yfir fólki. Þó eru teknar frá 14 mínútur fyrir Steingrím og Jóhönnu.
Ég vil bara hvetja fólk til að fjölmenna og láta stjórnina vita að við erum búin að fá nóg. Við viljum utanþingsstjórn, neyðarstjórn til að taka við kyndlinum, þau hafa sýnt að þau eru þess ekki megnug að gera það sem gera þarf. Hafa ekki sýn á forgang, eins og björgun heimila, fjölskyldna og fyrirtæka.
Þau einblína á Icesave og ESB en ekki þarfir íslensks almenning, hversu langt frá þjóðinni sinni getu fólk eiginlega farið?
Gott mál Sigrún mín. Nú er að duga eða drepast. Það þarf þúsundir ekki hundruðir, til að þau sjái svart á hvítu að þau er EKKI að gera rétt og FORGANGSRAÐA rétt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2010 kl. 10:21
Ég er ekki ferðafær svo að ég mæti ekki en það fer að koma að því. Hérna í bænum snjóar og snjóar svo að ég óttast að það verði ekki góð mæting á Austurvöll í dag.
Knús í kærleikskúluna
Kidda, 27.2.2010 kl. 11:08
Æ Kidda mín er það ferðamátin eða ertu lasin? Annars á fólk bara að klæða sig vel og vera viðbúin kuldanum. Stundum fer fólk jafnvel frekar ef veðrið er vont, svo skrýtið sem það er. Og því fleiri sem verða á Austurvelli því notalegra verður að ylja hvort öðru upp.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2010 kl. 11:40
Maður er bara svo tortrygginn um þessar mundir Ásthildur en sammála hverju orði í þínu svari til mín.
Finnur Bárðarson, 27.2.2010 kl. 16:48
Finnur mér líður eins og þér. Tortryggni er orðið mitt millinafn eins og sagt er. Ef við getum bara treyst hvort öðru og sem manneskjur tekið okkur saman og gert hlutina saman. Við erum svo ótrúlega sterk saman. Við ráðum við það sem við viljum ráða við með samtakamættinum. Fólkið í landinu krefst að því sé sinnt og að því sé sýnt réttlæti. En við verðum að læra að standa saman um það. Fylkja okkur um þá aðila sem sýna að þeir vilja gera sitt besta. Þar eru til dæmis Lára Hanna Einarsdóttir, Marínó G. Njálsson, Gunnar Tómasson, Einar Már Guðmundsson, Hörður Torfason. Allt þetta fólk vill réttlæti og er ekki að hugsa um sjálft sig fram yfir aðra. Ef þessu fólki tækist að gera hlutina saman og okkur bæri gæfa til að fylgja því eftir með nærveru okkar, þá erum við þjóð meðal þjóða. Frjáls meðal frjálsra og manneskjur en ekki mýs. það er mitt álit.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2010 kl. 17:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.