10.12.2013 | 15:13
Að hlusta á fólkið í landinu.
Í kosningabaráttunni ítrekaði Sigmundur Davíð oft og mörgum sinnum að hann myndi hlusta á fólkið í landinu. Þegar hann svo gerir það, þá er hann kallaður vindhani. Mér finnst oft umræðan vera ansi hörð, og svekkelsi forystumanna Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Bjartar framtíðar, sést afar vel í hvernig þeir reyna að finna öllu því sem gert er allt til foráttu. Vinstri græn hafa komið fram með ágætis tillögur, en þar er ennþá róið á sömu mið að hækka skatta, ég veit bara að öll sú hækkun skatta sem var gerð á þeirra vakt lamaði meira og minna samfélagið. Þeir sem voru einyrkjar höfðu ekki lengur tækifæri á að ráða sér starfsfólk svo störfum fækkaði. Ég var líka rækilega bólusett gagnvart því fólki sem réði síðastliðin 4 ár.
Það er svo sem allt í lagi að vera vitur eftir á. Núna veit þessi fyrrverandi ríkisstjórn alveg hvernig á að gera hlutina, þau höfðu jú fjögur ár til þess og komu ekki miklu í verk. Það er því hálf aumkvunarvert að heyra þau hamast á þeim úrræðum sem núverandi ríkisstjórn er að reyna að gera.
Ekki ætla ég að fara að dásama ríkisstjórnina, en þeir eru þó að reyna að gera eitthvað af því sem þau lofuðu. Ég vil sjá hvað út úr því kemur. Ég er svo sem alveg sammála mörgum um að þessi ríkisstjórn er fíll í postulínsbúð hvað varðar sjávarútveg og umhverfismál, þess vegna var ég oft afar ánægð með ákveðni Svandísar Svavarsdóttur í þeim málum, á sínum tíma. En í Sjávarútvegsmálum eru menn á kolröngu róli, og þar voru fyrrverandi stjórnvöld ekkert skárri. Það er eins og það megi ekki hreyfa við stórútgerðinni, þó öll sanngirnis sjónarmið snúi einmitt að því að gefa upp á nýtt, einnig uppgangur hinna dreyfðu byggða sem eru í stórhættu, meðan L.Í.Ú. fær að leika sér með fjöregg byggðanna.
En sem sagt, þessi neikvæðni er að drepa mann og annan, það virðist vera alveg sama hvað reynt er að gera, og ef mótmæli koma fram, og hlustað er á þau sjónarmið, þá er það allt rakkað niður í svaðið.
Við skulum reyna að vera jákvæð, taka því vel sem vel er gert, og láta vita þegar okkur ofbýður. Eins og þetta með barnabæturnar, ég er bara afskaplega glöð með að það eigi að hætta við skerðingu á þeim, sýnir bara að menn hlusta á þau sjónarmið sem koma fram, bæði hjá stjórnarandstöðu og ekki síst almenningi, það hlýtur að vera jákvætt ekki satt?
Nú þegar jólin nálgast, og búið er að aflétta hjá mörgum að boðin verði upp húsin þeirra, svo það fólk getur allavega átt jól heima hjá sér, og vonandi lagast málin sem hjá flestum með aðgerðum ríkisstjórnarinnar, þá ættum við að líta bjartari augum á nánustu framtíð. Á þessum tímum eru margir þungir á sálinni, og eiga erfitt með að vera til, slíkir þurfa ekki endalaust þras og neikvæðni. Það fólk þarf von og birtu, ekki slökkva ljósið áður en útséð er um hvernig málin æxlastl.
![]() |
Ekki skorið niður í barnabótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 10. desember 2013
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.9.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 70
- Frá upphafi: 2024175
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar