31.10.2012 | 00:37
Sandý og Mandý... eða þannig.
Ég vil byrja á að votta fórnarlömbum Sandý samúð mína, það er hræðilegt að nánast sjá eyðilegginguna í beinni. Var að horfa á beina útsendingu frá óveðrinu í gær og í morgun. Ég horfði á húsin sem fólk var að lappa upp á í forvörn og hugsaði með mér´; þvílíkt klandur þetta er sumstaðar, ætli það séu engar byggingareglugerðir og eftirlit með því að fólk byggi hús sem eiga að þola blástur refsins?
Sennilega þess vegna hef ég í dag verið að undirbúa okkar eigið óveður, ef þannig má að orði komast. Ég gaf hænunum stóran skammt af mat og bætti vel á vatnið, lokaði lúgunni út í gerðið, svo þær mættu hafa það huggulegt, búin að ganga frá öllu lauslegu upp í garðplöntustöðinni og fór síðan og verslaði vel inn, gerði fullan pott af kjötsúpu fyrir okkur stubbinn minn, og nú bara bíð ég í rólegheitum eftir að veðrið bresti á, og svo linni. Ég varð fyrir því óhappi í dag þegar ég fór að versla að bíllinn minn varð rafmagnslaus niður við Samkaup, og þá áttaði ég mig á að ég var í vandræðum hvern ætti að hringja í þangað til ég mundi eftir mínum ástkæru fyrrverandi vinnufélögum í áhaldahúsinu og hringdi í þá, en á sama tíma brunaði einn góður maður upp að mér, Úlfur hafði fengið lánuð straumtæki úti á slökkvistöð svo hann gat gefið mér stuð, en þá er málið hvort bíllinn fer í gang á morgun. Lagði honum reyndar upp í heimkeyrsluna þannig að ég gæti látið hann renna í gang.
En sem sagt ég er viðbúin, tilbúin til að taka á móti því sem koma skal.
En það er langt síðan ég hef birt myndir af fjöllunum í kring, og þannig vanrækt fjallafólkið mitt að vestan, en ég bæti nú úr því hér með.
Þessi mynd var tekin í gær, himnagalleríið á fullu.
Það er ótrúleg litadýrð þegar kvölda fer hér á þessum tíma, þegar kvöldsólin nær ekki yfir fjöllin en litar skýin svo fallega. Gísli og þið hin sjáið snjóstöðuna núna.
Ekki mikill snjór eins og þið sjáið, en það mun sennilega koma meira í nótt.
Snjólínan var komin neðar, en það hefur tekið upp snjóinn undanfarið í góða veðrinu.
Þessi mynd var svo tekin í dag, ótrúlegir litir.
Fallegt veður, lognið á undan storminum.
En það skipast fljótt veður í lofti hér á Íslandi stundum.
Og nokkrum klukkustundum síðar blasti þetta við.
Já svona er lífið.
Og þessa fjörkálfa vantar ennþá heimili, annars blasir ekkert gott við þeim, svo er einhver þarna úti vill bjarga litlum fallegum yndislegum kisum, þá er tækifæri til þess
En ég býð ykkur góðrar nætur elskuleg.
![]() |
Slóð eyðileggingar í Ameríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 31. október 2012
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 6
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 75
- Frá upphafi: 2024185
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar