14.1.2012 | 15:25
Forgangur, loforð og efndir.
Það er öllum ljóst að mikill niðurskurður er á öllum sviðum, það er eiginlega sama hvar borið er niður, heilbrigðisstofnanir, öryrkjar, barnameðlög hafa víst lækkað um 30 % og allt þetta í boði Norrænu velferðarstjórnarinnar.
Samanber þessa grein í stjórnarsáttmálanum;
Veitt verði heilbrigðisþjónusta við hæfi á viðeigandi þjónustustigi, óháð efnahag og búsetu.
Hlutverk sveitarfélaga í velferðarþjónustu við börn, fatlað fólk, aldraða og fjölskyldur verði aukið með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga.
Heilsugæslan um land allt verði sett í öndvegi sem fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu.
Aðgerðaráætlun í málefnum barna- og ungmenna verði fylgt eftir.
Stefnt verði að því að fólk geti búið heima eins lengi og kostur og vilji er til, meðal annars með því að samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun. Staðið verði við framkvæmdaáætlun um ný hjúkrunarrými fyrir aldraða.
Já Þetta átti nú aldeilis að vera í forgangi.
Svo er nú líka loforðin um heimilin, þau hljóða svona:
Greiðslu- og skuldavandi heimila
Djúp niðursveifla í kjölfar bankahrunsins hefur skapað misgengi á milli greiðslubyrði og greiðslugetu margra heimila í landinu. Þetta misgengi verður að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast. Markmið ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir að tímabundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots, svo sem með hækkuðum og breyttum vaxtabótum og húsaleigubótum. Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga. Greiðslujöfnun sem nú nær bæði til verðtryggðra og gengistryggðra lána gerir kleift að laga greiðslubyrði að lækkandi tekjum. Þá gera ný lög um greiðsluaðlögun sem samþykkt voru á síðasta þingi það mögulegt að taka á vanda þar sem fyrirsjáanlegt er að greiðslu- og skuldabyrði verði skuldurum ofviða til lengri tíma litið. Loks gera frystingar greiðslna sem eru í boði hjá lánastofnunum heimilum kleift að bregðast við bráðavanda vegna skyndilegs tekjumissis. Ofangreindum úrræðum þarf að fylgja fast eftir.
Hér má til gamans lesa þessi háleitu markmið sér til heilsubótar og ánægju. http://www.stjr.is/Stefnuyfirlysing/
En eins og allir vita eru ekki til peningar til að styðja öryrkja, eldriborgara, heilbrigðiskerfið, skólakerfið, svo það verður allt að bíða. Það þarf að koma Vaðlaheiðargöngum í gegn, hátæknisjúkrahúsi og síðast en ekki síst snjóflóðavörnum hér vestra.
Um það mál segir svo í frummatsskýrslu ofanflóðasjóðs:
Ríkisstjórnin ákvað á þessu ári að til margþættra aðgerða á Vestfjörðum væri þörf og um einn þáttinn segir: "I. Aðgerðir vegna efnahagslegs samdráttar og efling innviða, Markmið aðgerðanna er að hafa jákvæð skammtímaáhrif með tímabundinni fjölgun starfa auk áhrifa af umsvifum verktaka, en jafnframt jákvæð langtímaáhrif með bættum samkeppnissikilyrðum efnahagslífs og samfélaga á Vestfjörðum" (leturbreyting mín.)48) gerð ofanflóðavarna undir Gleiðarhjalla mun skapa störf tímabundið og skapar öruggari skilyrði til búsetu á því svæði.
Á bls. 2 um samantektir á niðurstöðum frumrannsóknarinnar stendur eftirfarandi:
Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úrhlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé. Eftir að snjóathugunarmaður tók til starfa hafa fimm lítil flóð verið skráð á svæðinu en þrjú þeirra eru innan við framkvæmdasvæðið. Eitt snjóflóð féll eftir Stakkaneshrygg og stöðvaðist um 100 m. ofan við efstu hús en annað féll sunnan við Stakkaneshrygg og stöðvaðist í um 110 m. hæð yfir sjávarmáli. Einnig eru til óljósar heimildir um flóð sem féll kringum 1950 á svæði þar sem byggð stendur núna en var þá óbyggt.
Ég hef búið undir þessari hlíð alla mína ævi og ég hef aldrei orðið vör við ótta hjá bæjarbúum. Ekki hafa húsin verið svo vitað sé verðminni en önnur hús í bænum, þó skýrslan láti að því liggja, einnig er sagt að þessi 14. hái veggur muni hafa talsverð "jákvæð áhrif á samfélagið"
Einnig segir að garðarnir muni "dempa hljóð sem berast frá bænum og gæti upplifun af hljóðum úr náttúrunni (fuglasöng) fyrir ofan garðanna verið meiri.
Þetta er nú samt sem áður útúr dúr, það er margt þarna sem orkar tvímælis, og að mínu mati ekki verið að gera ráðstafanir fyrir fólkið, heldur að RÉTTLÆTA hlut sem valdhafar vilja framkvæma, ég held í óþökk meirihluta bæjarbúa.
En ég segi, væri nú ekki nær að nota þessa peninga sem virðast handbærir til varanlegrar uppbyggingar, til dæmis til að styrkja atvinnuuppbyggingu á svæðinu, nú ef þetta er eyrnamerkt jarðverktökum þá væri nær að nota þennan pening í Dýrafjarðargöng. Það er nefnilega þannig að það eru fleiri sem farast á vegum úti í bílslysum en þeir sem farast í snjóflóðum, sérstaklega þar sem enginn stór snjóflóð hafa fallið svo vitað sé.
Þetta kalla ég öfuga forgangsröð. Meðan allt er í kalda koli í marglofaðri velferð að þá dansa menn í kring um Gullkálfinn eins og forðum, byggja Hof, Hörpur, spítala sem ekki verður hægt að manna, og verið er að loka sjúkradeildum og sjúkrahúsum.
Getum við ekki á einhvern hátt komið vitinu fyrir þetta fólk, eða er það algjörlega heillum horfið?
Það þýðir ekkert að segja að þetta sé svo nauðsynlegt eða að þessi peningur dugi ekki, og svo framvegis. Það er nefnilega hægt með ráðdeild og sparnaði einmitt með því að klippa niður svona ónauðsynlegar framkvæmdir sem geta orðið til þess að bjarga þeim sem minnst mega sín. Bara ef forgangurinn er réttur, loforðin haldin og skynsemin fái að ráða.
Þessar myndir teknar í fyrradag. Fallegt vetrarveður á Ísafirði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggfærslur 14. janúar 2012
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.9.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 74
- Frá upphafi: 2024191
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar