Við verðum aldrei söm og áður, tel ég.

Evrópa og vesturlönd í heild eru í uppnámi yfir því hryllilega sem gerðist í Noregi.  Ég get alveg séð fyrir mér að þessi atburður hafi jafnvel ennþá meiri áhrif en 911 á sínum tíma.  Það er vegna þess að í þessu dæmi er maðurinn "einn af okkur". Þá er ég að meina að menn búast alltaf við öllu illu af múslimum, oftast að ósekju. En allt í einu rennur sannleikurinn upp fyrir fólki, það leynast hryðjuverkamenn allstaðar.  Hingað til hafa menn viljað halda því fram að hryðjuverkamenn séu dökkir á hörund og frá arabalöndunum.  Þó þeir séu fæddir og uppaldir í vestrænum löndum.  Það er jafnvel þannig að þeir eru sakfelldir vegna þess hvaðan þeir eru upprunnir.  Eins og árásirnar í neðanjarðarlestunum í London, þar sem næsta öruggt er að sökinni var klínt á menn sem ekkert höfðu gert af sér en voru af réttum lit og burði og að því að mér er sagt búið að fylgjast með af lögreglu til að sakfella, vegna þess að það þurfti eitthvað að gerast til að hræða fólk.  Og þeir gerðir að glæpamönnum af yfirvöldum.

Nú allt í einu standa menn frammi fyrir því að þessi maður er hvorki dökkur á hörund eða múslimi, heldur norðmaður, alinn upp í lýðræðisríki og eflaust við gott uppeldi... eða þannig. 571823

Las einhversstaðar að faðir hans hefði tekið þetta afar nærri sér, og ég hugsa að móðirin sé sömu skoðunar.  Það hlýtur að vera hræðileg upplifun að komast að því að þau hafa alið upp hrottafenginn siðleysingja sem vílar ekki fyrir sér að drepa unglinga og alla sem hann kom í nálægð við, og kunna ekki einu sinni að skammast sín; þetta varð að gera, er haft eftir honum. 

Fólk hér er að rífast um hvort hann var hægri eða vinstri öfgamaður, nasisti eða what ever.  Málið er að hann var manneskja eins og við hin, sem ákvað eftir umgengni við samskonar öfgamenn eins og hann er sjálfur að hann yrði að "hreinsa til"  En hann er bara ekki einn í þessu eftir því sem upplýsingar liggja fyrir um, ef þetta reynist rétt að þarna sé á ferð teymi sem hafi svona hugmyndafræði.  Og þá er að spyrja; hvað gera ráðamenn heimsins?  Þeir eru fljótir að dæma hryðjuverkamenn Islam og taka á slíku.  Munu þeir gera slíkt hið sama um þessa vitfyrringa? Eða verður fundinn afsökun.  Það er nefnilega ekki sama hver er, hræsnin er slík í okkar samfélögum því miður.

Það er ekki hægt að ímynda sér hvað gekk þarna á, og sérstaklega af hverju lögreglan var svona sein að taka við sér, að það voru almennir borgarar sem flýttu sér á vettvang til að bjarga fólki eins og þeir gátu. En langt á annan klukkutíma tók fyrir lögreglu að stoppa ódæðið.  Hvar var 112, eða hafa norðmenn ekkert slíkt neyðarkerfi? Allt þetta fólk hlýtur að hafa haft gemsa og getað hringt í neyðarlínuna.  Þetta hlýtur að verða þungamiðjan í rannsókninni þegar moldviðrinu lýkur. 

En ég sé á umræðunni hér að fólk er skekið, ekki bara vegna þessa hryllilega ódæðis, heldur fyrst og fremst vegna þess að þarna er um að ræða atburð sem er við bæjardyrnar hjá okkur.  Og umræðan er farin að snúast um hvenær gerist svona atburður hér hjá okkur. Fólk er farið að skoða allskonar blogg og skrif í því ljósi að nú geti þessi eða hinn allt í einu tekið sig til og byrjað að drepa fólk. Tortryggni og öfgaskrif á alla kanta fara sem heitur vindur um spjall og bloggheima. 

Málið er að þetta hefur sáralítið með hægri eða vinstri öfar að ræða, heldur upplifun einstaklinga um hvernig málin hafa þróast.  Í þessu tilfelli er um að ræða áhyggjur af eftirgefni í innflytjendamálum.  og ótta um að múslimar ætli að taka yfir hinn vestræna heim.  En þessi maður ræðst samt ekki á múslima, heldur telur hann sig vera að ráðast að rót vandans, þeim sem hafa stefnuna á þessa tilslökun við önnur trúarbrögð og siði. 

Þetta er farið að sjást hér líka, því ég man ekki betur en í ákveðnum skólum á höfðuborgarsvæðinu sé hætt að hafa svínakjöt á matseðlinum.  Þarna held ég að við þurfum að staldra aðeins við. 

Þó ég sé manneskja sem er afar umburðarlynd gagnvart innflytjendum, og hef sjálf tekið að mér að hjálpa fólki að flytja hingað frá öðrum löndum, þá segi ég að þegar fólk flytur til annara landa, þá á maður að tileinka sér þá siði og reglur sem gilda á nýja staðnum.  Það er ekki hægt að koma og ætla sér að vera áfram eins og allt var í gamla landinu. Auðvitað eiga menn að fá að stunda sína trú, og hafa sína siði, innan síns heimilis.  En ekki að heimta að samfélagið lagi sig að þeirra siðum.  Eins og að banna að svínakjöt sé á boðstólum í mötuneytum skólanna.  Mér finnst það rétt að konur frá austurlöndum fái að hafa sínar slæður í friði, og ekkert meira um það að segja.  En ég skil líka þegar yfirvöld í vestrænum ríkjum banna búrkur og slíkan búnað.  Of mikið umburðarlyndi skapar vandamál heima fyrir.  Það er bara staðreynd sem ráðamenn þurfa að taka tillit til.  Og ef Stoltenberg ætlar að auka enn á eftirgjöf fyrir innflytendur eins og hann boðaði, þá hygg ég að hann sé að kveikja bál sem mun loga skært.  Þó er ég ekki að segja að hann eigi að fara á hinn veginn.  Við erum öll á þessari jörð og eigum eins og hægt er að reyna að vinna saman.  En það þarf þá líka að vera á báða bóga. 

Ég er með sársauka í hjartanu eftir þennan atburð og held að við verðum aldrei söm, að hugsa sér að nokkur maður geti fengið af sér að fara og drepa saklaust fólk, unglinga, skjóta og skjóta meðan eitthvað hreyfist er svo brenglað að það er erfitt að ímynda sér hvað gerist í kollinum á slíkum manni. Hann virðist þó hafa þyrmt þeim sem komust í augnkontakt við hann, þannig að ekki er hann algjörlega samviskulaus.

Ég vorkenni foreldrum hans og fjölskyldu.  Vorkenni konunni hans og ef hann á börn, því þetta mun líklega bitna alvarlega á þeim.  En  ef þetta hefðu verið múslimar þá hefðu upphafist "réttlætingarmorð" á innflytjendum því menn með skoðanir eins og þessi Anders hefðu ugglaust talið það "heiðursmorð" að "hefna" fyrir morðin.  Engum dettur í hug að viðhafa slíkt núna af því að maðurinn var óvart hvítur norðmaður.  Svona er nú hugsunarhátturinn og "réttlætið"hjá okkur. 

Ég hef oft hugsað um það hvenær eitthvað slíkt myndi gerast hér.  Það gæti allt eins verið, þegar fólk er búið að missa allt sitt og horfir upp á allt það ranglæti sem er hér, þar sem ríka fólkið sleppur endalaust meðan verið er að murka lífið úr þeim sem hafa barist fyrir sínu og tapað.  Það gæti allt eins gerst og þá er voðinn vís.  Þetta held ég að sé líka ástæðan fyrir uppnámi landsmanna við þessa hryllilegu uppákomu.  Því allt í einu gerir fólk sér grein fyrir hve stutt er í villimennskuna í okkur, hvaða lit sem við berum hvaða stöðu sem við erum í og hversu "þróuð" við eigum að vera. 

Ég held að þessi atburður eigi eftir að marka þau spor í hinum vestræna heimi, sem hafi meiri breytingar í för með sér en 911.  segi það enn og aftur.  Því það var talið hryðjuverkaárás Alqaita sem ég er svo sem ekkert sannfærð um.  En allavega var það miklu fjær okkur en nákvæmlega þessi atburður í Noregi.  

Það á ekki eftir að leggja þyngri byrðir á flugfarþega eða herða eftirlit við ferðamenn.  En svo sannarlega munu yfirvöld hins vestræna heims stíga varlegar til jarðar og hugsa sinn gang betur.  Og almenningur sem allt í einu vaknaði upp við vondan draum, verður meðvitaðri um að við getum átt óvini sem eru bara nágrannar eða bara næsti maður út í bæ.  Rétt eins og margar aðrar þjóðir hafa þurft að upplifa, svona var þetta í Króatíu og Serbíu, þegar Kosovodeilan stóð sem hæst.  Fólk sem þekktist og voru nágrannar urðu allt í einu hatursóvinir, og fólk sem var í blönduðum hjónaböndum fékk nokkra klukkutíma til að koma sér burt, áður en hermenn komu og hreinlega drápu það. 

Maðurinn er villidýr, við teljum okkur siðmenntuð og æðri dýrunum.  En ég get alveg fullyrt að margir mennskir eru miklu neðar í þróunninni en dýr merkurinnar.  Í raun og veru ætti jörðin að losa sig við þessa plágu sem mannskepnan er.  Því hún er alltof oft allstaðar til óþurftar.  Það er ef til vill það sem við sjáum byrjunina á núna, með öllum þessum jarðskjálftum, eldgosum og skriðuföllum og náttúruhamförum.  Kannski er jörðin bara að losa sig við versta sníkjudýrið. 

En eitt er víst við verðum aldrei söm eftir þennan atburð.  Hvar sem við erum, og þar sem við höfum talið okkur örugg, rétt eins og fólkið á Úteyju. 

571829

Þessari byssu gæti allt eins verið beint að mér eða þér, óþægileg tilfinning ekki satt?


mbl.is Ætlaði að sprengja fleiri hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. júlí 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband