12.4.2010 | 22:59
Maybe I should have.
Ég er búin að vera að hlusta á útvarp og sjónvarp í næstum allan dag. Ég er dolfallinn en um leið ....já ég verð að segja það inn í mér glöð. Það er vegna þess að loksins núna er það skjalfest sem svo lengi hefur verið hvíslað um en ekki mátt segja upphátt, hversu rotið og andstygglegt íslenskt samfélag er orðið. Glöð vegna þess að eins og með fíkla er grunnurinn að betra lífi að viðurkenna fíknina og gera sér grein fyrir hve langt maður er leiddur.
Hingað til hefur ekki mátt tala svona, og alls ekki taka á spillingunni, því þó hún lægi utan og innan á öllu hryggjarstykki þjóðlífsins, mátti ekki ræða það.
Loksins hefur plásturinn verið tekin frá munni fréttamanna, og þeir fengið að tjá sig hömlulítið um þau mál sem hafa brunnið á samfélaginu. Við hin vorum auðvitað löngu búin að sjá þetta, en það mátti bara ekki ræða það opinberlega. Og reyndar ekki alveg hér á MBL má ræða um Do það er greinilega bannað, þó gaurinn sé í útlöndum. Það er eins og menn hafi gleymt því að til er bæði sími, net og sjónvarp Þess vegna er ekki nóg að fara erlendis, menn þurfa helst að fara til tunglsins eða Mars til að vera ekki í sambandi.
Í dag hef ég hlustað á fólk loksins segja hlutina eins og þeir eru, og þetta er í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér að fólk má tala um pólitíska ráðamenn á þann hátt opinberlega og frjálslega. Það eru tímamót sem ber að fagna sérstaklega.
Útrásarvíkingarnir koma sérlega kjánalega út, í ljósi þess sem komið hefur í ljós. Öll glamour viðtölin, sjálfbirgingshátturinn og óheilindin með myndum af þeim setur manni hroll.
Pólitíkusar sem hafa verið berir að stórfelldum lántökum og fyrirgreiðslum setja manni líka hroll. En það er núna augljóst og hverjum manni til að sjá að svona er Ísland í dag. Ef þetta fólk segir ekki af sér strax á morgun ber okkur að sjá til þess að þau komist ekki að í næstu kosningum. Ef við viljum nýtt Ísland, þá verðum við að sýna þá ábyrgð að refsa með afgerandi hætti því fólki sem greinilega hefur látið kaupa sig til fylgilags við peningavaldið.
Eftirtekarvert er að samkvæmt því sem skýrsluhöfundar segja, þá vill enginn taka ábyrgð á sínum gjörðum, Jónar í Fjármálaeftirlitinu er alveg hissa á því að hann skuli fá þarna ámæli fyrir hyskni í starfi, skilur ekkert í því eins og hann hafi nú þanið út báknið sitt, án þess að það hafi skilað neinum árangri.
Ömurlegast var samt viðtalið við fyrrverandi forsætisráðherra bæði á stöð2 og Rúv. Það er ennþá í mér kjánahrollur. Guði sé lof fyrir að hann er hættur og farinn. Þvílík er afstaða hans gagnvart sinni stöðu að þar kristallast allt það sem úrskeiðis fór í stjórnkerfinu. Hann sér ekkert að hjá sér né öðrum í stjórnkerfinu. Þetta voru bara bankamennirnir og svo kreppan að utan sem áttu hér alla sök. Þessi maður er svo gjörsamlega veruleikafirrtur að það hálfa væri nóg.
Ég vil þakka rannskóknarnefndinni fyrir vel unnin störf og vona svo sannarlega að skýrslan verði til þess að tekið verði virkilega til í stjórnkerfinu.
Þó verð ég að segja að ræður stjórnmálamannanna eru ekki til að auka á þá bjartsýni. Forsætisráðherra gat haldið sína ræðu og komist hjá að nefna að hún var sjálf ráðherra og þátttakandi í hruninu, þó það heyrði ekki endilega upp á hennar borð, frekar en Ingibjargar Sólrúnar. Bjarni Ben var að vísu bljúgur, en tókst algjörlega að leiða umræðuna hjá Sjálfstæðisflokknum og hans ábyrgð. Steingrímur greinilega komin í kosningagírinn, og hélt kosningaræðu, sem styrkir mann í því að dagar þessarar ríkisstjórnar eru senn taldir, taldi að hans flokkur hefði varað mest við afleiðingum fjármálastefnunnar, þó hann vissi mætavel að Frjálslyndi flokkurinn hefði varað alveg jafnmikið við þessari stefnu ef ekki meira en hans flokkur. Sigmundur Davíð komst vel að orði með að tala um framtíðina, en djísus endurnýjunin var bara framlenging af pabba gamla og ekki er þáttur Valgerðar hryðjuverkamanns náttúrunnar né Halldórs Írakskóngs minni en svo að það þarf að muna vel. Birgittu mæltist vel, og það þarf að fylgjast með hverjir eru menn og hverjir mýs á Alþingi í framhaldinu. Þráinn æ þetta átti að vera svo fyndið eins og pislarnir í Fréttablaðinu.
Niðurstaða mín er ljós. Eftir þetta spark í rassinn þurfum við sem þjóð að setjast niður og spá í næstu skref. Rannsóknarnefndin og siðanefndin hafa gefið okkur boltan, og nú ríður á að við höldum vöku okkar og krefjum ráðamenn um að þeir taki mark á því sem hér hefur komið fram. Heimtum að þau axli´þá ábyrgði sem á þeim hvílir, þeir sem hafa orðið uppvísir að misnotkun á aöstöðu sinni segi af sér, hinir að taka sig á og setji regluverk sem dugir til að svona atburðir endurtaki sig ekki.
Og svona í lokin; NÚ ER KOMIN TÍMI Á STJÓRNLAGAÞINGIÐ SEM OKKUR HEFUR VERIÐ LOFAÐ. OFT VAR ÞÖRF EN NÚ ER NAUÐSYN.
Rís þú unga Íslandsmerki
upp með þúsund radda brag.
P.S. ætlaði eiginlega að súmmera þetta upp þannig að á einum og sama deginum kemur út þessi rannsóknarskýrsla sem óhjákvæmilega mun setja umræður í allt annan farveg en hingað til,
Gosið sennilega búið...
og Gunnar í Krossinum segist ætla að kúvenda, segist hafa alið á fordómum, en ætli nú að breyta því. Segiði svo að frú Jónína hafi ekki áhrif.
Enda batnandi mönnum best að lifa í algjörri merkingu þess orði á alla kanta.
Bloggar | Breytt 13.4.2010 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 12. apríl 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2023321
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar