30.1.2009 | 13:33
Sjáumst!!!
Áður en ég fer inn í Reykjanes ætla ég að sýna ykkur nokkrar myndir sem voru teknar í gær og í morgun.
Það var mugga í gær, og ekki flogið fyrr en seint og um síðir. En flogið þó.
En það er mjúk fönn yfir öllu, og mjúkt veður líka.
Koddinn minn teppið mitt segir þessi litla hnáta og meinar það
Svona áður en maður fer að klæða sig og borða morgunmatinn er gott að sitja aðeins fyrir framan sjónvarpið og vakna.
Hún púslaði þessu saman alveg sjálf, þó stendur +3 á kassanum, og hún rétt tveggja ára. Duglega stelpan hennar ömmu sín.
Tekinn í morgun, þetta eru bílljósin.
Rómó selja.
Á vinnustaðnum mínum fengum við svo óvæntan konsert, hér er hann Hjalti að spila fyrir okkur.
Þeir tóku nefnilega lagið fyrir okkur hafnarkarlarnir Hjalti aðalgaur og Mugipapa hafnarstjóri, hressilegt áhaldahúsablues
Já þeir eru sko flottir saman.
En veðrið er fallegt til ferðalags.
Og sólin merlar á fjallatoppun, og nú bankar hún á mínar dyr í þessum skrifuðu orðum.
Yndislegt, sól úti og sól í sinni. En nú verð ég að fara að pakka niður og koma mér í gírinn. Hafið það gott á meðan, heyri í ykkur á sunnudaginn. Ekki gleyma mér elskurnar mínar, þið erum mér mjög mikilvæg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
30.1.2009 | 10:55
Ráðherra fer á þorrablót.
Ertu hætt að blogga spurði kona mig í gær Nei sagði ég en ég er búin að vera lasin og orkulaus í nokkra daga. Þótti samt vænt um að hún skyldi sakna mín, þar sem þessi kona er ekki bloggari, heldur ósköp venjuleg yndæl kona hér á Ísafirði.
En ég fæ stundum svona leiðinda svima yfir höfuðið, og þá get ég ekki einbeitt mér mikið. Sem betur fer er ég að lagasta, eins gott, þar sem ég ætla mér í skemmtiferð með félögum mannsins míns í Kajakklúbbnum Sæfara, inn í Reykjanes yfir helgina. Ég tek öll börnin með og hlakka til. 'Eg mun auðvitað taka myndavélina með, svo þið fáið aðeins að skreppa með mér elskuleg mín í ferðina. Ég er viss um að Djúpið er fallegt núna. Það er virkilega fallegt veður hér á Ísafirði í dag, mun setja inn myndir í hádeginu.
Ég var að frétta að settur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra landsins, bolvíkingurinn Einar Kristinn hafi brugðið sér á þorrablót til Bolungarvíkur á helginni. En af því að hann er svo mikið að stússast þessa dagana, m.a. að úthluta hvalveiðikvótum og svoleiðis, þá neyddist hann til að koma á ráðherrabílnum með driver og alles Að vísu fór hann fljúgandi suður. Spurningin er bara hvort hann fór vestur í boði okkar allra?
Það er sennilega ekki vanþörf á að setja siðareglur um stjórnmálamenn og sér í lagi ráðherra, líka eftir að þeim hefur verið hent út af borðinu og sitja nánast umboðslausir. Ég er satt að segja dálítið undrandi á því hvað menn geta verið siðlausir, eða ætlar þessi ágæti maður ekki í framboð aftur í vor? Ef til vill gerir hann sér grein fyrir því að krafan í dag er uppstokkun í flokkunum. Svo það er um að gera að nýta sér það sem tiltækt er meðan hægt er...... eða þannig.
Uppstokkun í flokkunum, já þeir munu reyna. En mér heyrist svona á almenningi að það muni ekki duga. Ég hef heyrt í nokkrum sem tala um að umhverfinu verði ekki breytt nema með algjörlega nýju fólki, og helst fólki sem fer fram einungis til að breyta regluverkinu, og hætta svo og boða nýjar kosningar. Þannig held ég að ég vilji hafa það. Með fækkun þingmanna, aðskilnaði framkvæmdavalds og alþingis. Burtu með pólitískar ráðningar og spillingu. Þjóðfélagið er orðið svo gegnum sýrt af spillingunni að hún verður ekki rifinn upp bara með einhverri uppstokkun flokkanna. Það þarf að rippa upp embættismannakerfið líka og fækka verulega í opinbera geiranum. Þar eru allir nátengdir, stjórnmálamennirnir og kerfiskarlarnir og kerlingarnar. Það þýðir líka lítið að skipta út ráðherrum, meðan ráðuneytisstjórar og lið þeirra geta dregið lappirnar og jafnvel unnið gegn ráðherranum með klækjum og hollustu við "núverandi kerfi".
Sjálfstæðismenn eru alveg tilbúnir svellandi af reiði og hefnigirni rétt handan við hornið, og satt að segja hugnast mér ekki alveg að það skuli einmitt vera Framsóknarflokkurinn sem hefur útslitavald um það hvor armurinn stjórnar. Það þarf ekki mikið að vindast upp á hlutina til að Framsókn sjái sér hag í að hlaupa yfir til Íhaldsins og þá verða allskonar afsakanir viðhafðar. Það eina sem getur komið í veg fyrir slíkt er að við almenningur látum engan bilbug á okkur finna, og látum þá vita að við sættum okkur ekki við slíkt.
Það skyldi þó aldrei verða sama hringavitleysan í landsmálunum og í Reykjavík á síðasta ári. Af hverju í ósköpunum þarf maður endalaust að burðast með svona áhyggjur mitt ofan í efnahagsáhyggjur?
Jú það fólk sem er með umboðið í dag hefur brugðist trausti okkar. Við setjum þau öll undir sama hattinn, því við höfum horft upp á það að þau tryggja hvort annað. Það er þeirra hagur að þau fái að ráða þessu og ráða hvernig þjóðfélaginu verður breytt. Þau þurfa jú að lifa og þetta er ljúft líf svona fyrir utan nýtilkomið argaþras mótmælenda. Guð einn veit líka hvernig krossvinavæðingu er háttað í samfélaginu. Það eru auðvitað til heiðarlegar undantekningar, en þær bara falla ofan í sama sumppottinn og allir hinir synda í. Það er örugglega ekki auðvelt að standa upp og segja frá, því þau eru jú meira og minna öll vinir og vinnufélagar til margra ára.
Nei gott fólk eina leiðin er, að við komum okkur saman um að veita lýðræðisaflinu krafta okkar núna, svo má hver og einn fara aftur í sitt gamla far, þegar við höfum fengið nýja stjórnarskrá, fækkað þingmönnum og ráðherrum, og komið betra skikki á kosningalöggjöfina.
Hlustaði á frábært viðtal við Birgittu okkar Jóns í morgun, þá skeleggu baráttukonu, Hún sagði að um þessi mál gætum við öll sameinast í að standa saman um. Og ég er algjörlega sammála henni um það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 30. janúar 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar