Úlfarnir farnir á kreik, útsala á sauðagærum.

Ókey núna er allt svo skiljanlegt og hefur verið lengi í umræðunni.  Það væri gaman að rifja nú upp viðtölin við þessa menn síðastliðna hundrað og tíu daga.  Ég veit ekki af hverju fyrirstaðan sprakk í gær en ekki í fyrradag eða fyrir mánuði.  En ég er farin að fá í hnén út af svona viðurkenningum;

Ástæða ákvörðunar minnar er sú sannfæring mín að nauðsynlegt sé að ryðja brautina fyrir uppgjör og uppbyggingu sem byggi á trausti almennings. Forsendur fyrir því að skapa frið og traust í samfélaginu til endurreisnar eru meðal annars þær að stjórnmálamenn og stjórnendur stofnana samfélagsins axli ábyrgð,“ segir Björgvin í bréfi til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, þar sem hann tilkynnir um afsögn sína.

Fyrir það fyrsta, þá er undiralda fólksins búin að standa í margar margar vikur. Hvers vegna er þá allt í einu nauðsynin á að fara núna að huga að trausti almennings og uppbyggingunni?

Jú það hefur nefnilega dálítið breyst.  Það líður að kosningum, ekki seinna en í maí í vor.  Og nú eru úlfarnir med det samme farnir að klæða sig í sauðagærurnar til að plata okkur ennþá einu sinni til fylgilags við sig.  Það hefur jú alltaf gefist svo dæmalaust vel.

Skyldi almenningur trúa þeim núna?  Eða ætli einhverjir séu glaðvaknaðir og hættir að hlusta á innantóm orð og farnir að kalla á aðgerðir.  Skoðaðu frekar hvað menn gera, heldur en hvað menn segja, það gefst alltaf best. 

Orð gera verð beitt, þau geta verið sverð okkar og skjöldur.  Þau geta líka verið hýjalín, til að sveipa um sig og fela sannleikann, þó oftast fari nú fyrir því eins og Nýju fötum keisarans.  Sér í lagi ef fólk er með opin augun.  En tími innantómra orða er vonandi liðinn.  Eins og orðin hans Geirs á "fréttamannafundi" fyrir utan heimili hans.  'Eg er ennþá að reyna að botna í í fyrsta lagi hvað hann var að segja, og hvers vegna hann var að gefa kost á sér í viðtal til að setja ...... nákvæmlega ekki neitt.  Ég ætla ekki að tjá mig um Ingibjörgu Sólrúnu.  Blessuð konan þarf hvíld og ef hún veit hvað henni sjálfri er fyrir bestu, á hún nú þegar að fara í frí, og eftirláta sínum mönnum að taka við keflinu.  Heilsan verður ekki keypt né endurnýjuð þegar hún er farin. 

Svo er að sjá hverjir tjá sig næst um að nú þurfi að fara í "Uppgjör og ryðja brautina fyrir sanngirni og þessu nýlega fundnu orðum "Trausti almennings " Hver fattaði eiginlega upp á þessu? Devil

Og hvenær uppgötvaði blessað fólkið að þau væru nú ef til vill búnin að ganga of langt á þolinmæði og traust okkar pöpulsins/skrílsins?

O jamm og já, batnandi mönnum er best að lifa.  En í mínum eyrum héðan af, hljómar þetta eins og innantóm orð, til að sveipa sig hýjalíni að hætti keisarans.  Þið höfðuð öll tækifæri í heiminum til að komast vel frá þessu, ef þið HEFÐUÐ Í RAUN HAFT UMHYGGJU FYRIR OKKUR AÐ LEIÐARLJÓSI, en því miður var ykkar hugsun að bjarga útrásarliðinu, og hver veit hve nærri ykkur sjálfum það liggur.  Allavega liggur ekkert á að skoða þau mál, eða frysta eigur, eða yfirleitt að raska ró fjármálamannanna hverju sem það veldur nú.  Einhverskonar GOODWILL sennilega. Og mörg partý utanlandsferðir og skemmtilegheit!.  EN ÁGÆTU STJÓRNARLIÐAR ÞAÐ VAR ÞÁ!!! FYRIR HUNDRAÐ DÖGUM.  Þeir eru liðnir, og líka þolinmæði fólksins þanþol þeirra til að skilja ykkur og gefa frið til að vinna.  Líka vegna þess að við höfum ekki hugmynd um hvað þið eruð að bralla, og í svoleiðis uppákomum lifna allskonar vantrú og gróusögur. 

Þess vegna er þetta OF SEINT OF LÍTIÐ OG HÁLFGERT PRUMP ENN SEM KOMIÐ ER.  Það er mín meining.


mbl.is Jón Sigurðsson: Afsögn Björgvins kom ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraafsögn og mótmæli!

Jamm þá hefur byrjað að molast utan af jakanum, eins og Steingrímur komst að orði.  Ef til vill kemur svo aðalbomban á eftir, þegar Geir, Ingibjörg, Þorgerður og Össur segja af sér.

En heyrðuð þið að það á að gera starfslokasamning við einn bjöllusauðinn.  Nú viljum við vita hve há sú upphæð er, hve vel er gert við mann sem hefur hylmt yfir með öllum skítnum, sópað honum undir teppið.

Já því miður Björgvin G. Þetta var of lítið og of seint.  Þú varst spurður að því hvað þú hefðir gert rangt, það var að heyra að það væri nánast ekkert að hjá þér, nema að fólk væri orðið svo reitt, og auðvitað ætlar þú að halda áfram sem þingmaður, og bjóða þig fram aftur.  Sum sé ekkert að.  Málið við ykkur er nefnilega nákvæmlega þetta.  Það hefur loksins síast inn í kollin á ykkur, að fólk sé búið að fá nóg.... Þá er best að fara frá aðeins, og svo vera tilbúin til að leika sama leikinn aftur.  Þú hefur ef til vill fengið þessa hugdettu á árshátíð hjá Seðlabankanum í gær!

Eða eru rotturnar að yfirgefa sökkvandi skip?

Það er sama tuggann aftur, þetta bara gerðist einhvernveginn.  Og núna allt í einu ákvaðstu í gær að hætta við.  Eftir allar yfirlýsingarnar um hve þið væruð að vinna gott verk, og þið sjálf þýðingarmikil.  Veistu að ef til vill er ég orðin svona harðsvírðu, en ég finn hvergi vott af meðaumkvun með þér eða ykkur yfirleitt.  Þetta er bara ennþá einn leikurinn hjá ykkur til að plotta og halda völdum. 

Fyrst var reynt að tilkynna veikindi og fá samúð þannig, en mótmælin bara jukust, þá er næst í stöðunni að fórna peði.  Ég er ekki viss um að það virki í dag.  Hefði eflaust gert það fyrir svona hundrað og tíu dögum eða svo, en eins og ég sagði of lítið og of seint. 

Því miður ágæta fólk, þið hafið illilega misreiknað íslenska þjóðarsál.  Hún er dálítið sveitarleg og undirgefinn alltof lengi.  En þegar hún finnur alvöruna og að vegið er að fjölskyldu og heimili hennar, þá bregst hun við eins og öll dýr merkurinnar myndu gera, rís upp og berst fyrir tilverurétti sínum.

Þið hefðuð átt að átta ykkur á mistökunum, þegar það voru konurnar sem voru í fararbroddi, það voru þær sem sátu og prjónuðu fyrir framan alþingishúsið, þær sem geistust fram með pottana sína og sleifarnar.  Það voru nefnilega konurnar sem voru oftast fremstar í flokki. 

Og svo Hörður, ég verð eiginlega að segja það sem ég hef hugsað frá því að hann byrjaði með mótmælin.  Hörður er einn af þeim fáu sem ég þekki, sem ég gat ímyndað mér að stæðist þrýstingin og ekki síst apparatið sem ég er nokkuð viss um að hefur farið í gang með að leita að ávirðingum um hann, til að koma á hann höggi.  Hörður er gegnheiðarlegur, en hann er meira, hann skuldar engum neitt, og hefur hagað sínu lífi þannig í hvívetna að ekki ber skugga þar á.  Þess vegna er Hörður sterkur fyrir, og hann hefur svo sannarlega gert kraftaverk.  Alveg eins og hann gerði með samkynhneigð sína, þegar hann kom heim og stofnaði samtök þeirra.  Ég vil ekki að þetta framtak hans gleymist.  Það er nefnilega ekki bara nóg að geta komið fram og talað, ekki nóg að þekkja rétta fólkið, heldur er það allra nauðsynlegasta að hafa engar beinagrindur í skápnum. 

Nú er að sjá hvort þetta nýja útspil gerir eitthvert bakslag í mótmælin.  Ég held samt ekki, krafan er nokkuð skýr, burt með spillinguna, burt með vanhæfa ríkisstjórn og burt með seðlabankastjóra, við getum núna sleppt þessu með fjármálaeftirlitið, nema við viljum fá upp á borðið starfslokasamninginn.  Ég er líka viss um að Björgvin prívat og persónulega hefur lést um ein tvö kíló að vera laus úr þessari aðstöðu. 

Nú er að sjá hver framvindan verður.  Ég hef þá trú að ríkisstjórnin kjósi að fara frá.  Ég hef aldrei séð á minni lífsfæddri ævi jafnmikla andstöðu ekki bara almennings, heldur allra sérfræðinga og stjórnspekinga.  Þannig að slímsetan er orðin æpandi og fólk skilur ekki af hverju þið þráist svona við.  Með hverjum klukkutímanum sem líður meðan þið sitjið svona eykst andstaðan og það fólk sem hefur stutt ykkur og vill ykkur vel hættir að treysta sér til að verja ykkur.  Þetta dæmi gengur bara ekki upp.

Svo eru nokkrar myndir frá frábærum fundi hér á Silfurtorgi í gær.

IMG_5358

Fólkið lét hvorki rok né kulda aftra sér frá að mæta.

IMG_5361

Og ræðurnar voru mjög góðar að vanda.  Ég hef líka reynt að fá ræður gærdagsins af Austurvelli en einhverra hluta virkar rás2 ekki, svo það er ekki hægt að spila fundinn. Tilviljun ? Veit ekki ég er farin að sjá grýlur í hverju horni.

IMG_5364

Læknirinn.

IMG_5365

Neminn

IMG_5370

Sjómaðurinn

IMG_5371

Kennarinn.

IMG_5368

Skríllinn.

IMG_5369

Krúttlegasta skyltið í gær.  En einmitt dæmigert fyrir það sem ég var að segja hér áður drottinn blessi heimilið.  Heimilið og börnin eru helgasta vé hvers manns.  Ráðist einhver að þeim gildum, uppsker sá það sem hann á skilið. 

 


Bloggfærslur 25. janúar 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband