Sumardagurinn fyrsti - stóð undir nafni í dag.

Á morgun legg ég í hann til Keflavíkur með litla stubb sem er að fara á Taikwondomót.  Við munum leggja af stað um tíu leytið í fyrramálið, og koma við í Reykjanesi fara þar í sund og grilla.  Síðan er ferðinni heitið í Mosó, þar sem verður snætt á KFC, kjúklingur með tilheyrandi, og svo mun leiðin liggja til Keflavíkur. 

Það mun sennilega vera minna um blogg og myndir af þeim sökum um helgina.  En hér eru myndir frá sumardeginum fyrsta.

IMG_5578

Hún var undirleit.

IMG_5580

En þessi unga dama var ákveðin.

IMG_5582

Já við klæddum okkur upp í tilefni sumardagsins fyrsta.

IMG_5584

Hér er tildæmis kóngur og drottning.

IMG_5586

Drottningar þurfa margt að brasa skal ég segja ykkur.

IMG_5587

Veðrið í Ísafirði var hið besta eins og sjá má.

IMG_5588

Ekki lýgur maður um lognið, víst er það.

IMG_5592

Frænkurnar litlu komnar á kreik.

IMG_5595

Svo þarf aðeins að rífast um hluti og sona Tounge

IMG_5596

Spurning hvor hefur betur.

IMG_5600

Jamm þetta verður sennilega jafntefli enda nógu margir litir í boði.

IMG_5603

Þá er best að drífa sig bara í sandkassann.

IMG_5606

en sumir stubbar þurfa meira svæði til að vera á.

IMG_5612

Og eins gott að þessar litlu séu orðnir vinir.

IMG_5615

Þá finnst öðrum gott að leika sér einum.

IMG_5619

Aðrir vilja hoppa yfir lækinn.

IMG_5626

Hoppa í parís eða bara njóta þess að vera til.  Það er jú sumardagurinn fyrsti.

IMG_5630
Það þýðir að það má fækka fötum ekki satt.

IMG_5632

Fá sér afaskyr og lita smá.

IMG_5633

Ég á lítinn skrýtinn skugga skömmin er svo líkur mér, hleypur með mér úti og inni alla króka sem ég fer. LoL

IMG_5634

Jamm það er nefnilega bara ansi notalegt veður.

IMG_5637

svo er hægt að húla húla....

IMG_5639

Eða kæla sig í tjörninni.

IMG_5644

Eða bara fá sér blóm í hárið.

Gleðilegt sumar öll sömul.


Mömmublogg og annað.

Já þetta er svona dæmigert kúlu-mömmu-ömmublogg. Bið ykkur samt að halda áfram að kommentera á færsluna hér á undan um mótmæli og lögregluaðgerðir.

IMG_5535

Veðrið var unaðslegt í morgun.

IMG_5536

Og við ábyrgðarfullar konur og börn að leggja í hann til Suðureyrar.

IMG_5537

Hér stendur prinsessan við hliðið.

IMG_5539

Og litla skottið mitt.

IMG_5541

Þá vitum við hvaða ungi maður ber ábyrgðina i samverustund í dag. Í besta leikskóla heimsins.IMG_5542

Jamm, það er bara þannig að margt er brallað.

IMG_5544

Svo er ástarlífið í fullum gangi hjá sjófuglunum. 

IMG_5547

Súgandafjörðurinn er eins og bara pínulítil á, í Þýskalandi eða Austurríki.  En óneitanlega glæsilegur svona stilltur og rólegur.

IMG_5549

Kubbinn alltaf jafn flottur.

IMG_5550

Talandi um bíflugur, þá er gullsópurinn þeirra uppáhald, þessi blómstrar  glæsilega í garðskálanum mínum.

IMG_5553
sumir þurfa að smakka allt, jafnvel eldgamlar pizzusneiðar í blómapottum.

IMG_5555

Svo er gott að drullumalla aðeins.Devil

IMG_5560

Svo er lika flott að leggja kapal, og sitja á mjólkurdollunni sinni LoL

IMG_5564

Meðan stóra systir unir sér í tölvunni hennar ömmu, og borðar afaskyr.

IMG_5567

Ein svona til gamans, listræn ekki satt ?

IMG_5572

Jamm dollan sú arna er alveg mátuleg.

IMG_5576

Svo er ein kvöldmynd, og ég segi bara góða nótt elskurnar. 


Bloggfærslur 24. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband