19.2.2008 | 17:37
Hið íslenska kvótakerfi, komið að fótum fram. Hér þarf meira en klór í bakka, hér þarf róttækar aðgerðir.
Ég hef verið að bræða með mér tillögur Ingibjargar Sólrúnar um að endurskoða byggðakvótann. Visslega er þar víða pottur brotinn og illskiljanlegar reglur. En málið er að mér sýnist að með þessu eigi að klóra í bakkan í stað þess að taka af alvöru á athugasemdum Mannréttindanefndar Evrópusambandsins. Í fyrsta lagi þá er þetta enginn lausn, að leigja kvótan út og láta byggðirnar hafa peninga. Hvaða byggðir verða fyrir valinu ? Hverjir fá aur í vasann.
Er ekki nær að skoða allt málið í heild sinni, og sjá hvort ekki megi gera róttækari ráðstafanir til að endurheimta kvótan allann til ríkisins. Það má gera með því að taka hluta af aflaheimildum upptækar til ríkisins, og leigja hann út á verði sem er viðráðanlegt fyrir einyrkja og minni útgerðarfélög. Síðan á að nota það fé til að kaupa meiri kvóta, uns allur kvótinn er komin aftur í eigum þjóðarinnar. Þaðan sem hann er þá leigður út, til þeirra sem RÓA og Veiða sjálfir. Menn eiga ekki að eiga kvóta, sem aldrei fara á sjó, sitja bara með auðlindina í höndunum, og sjúska henni til og frá að eigin hentugleikum. Sama hvað verður um byggðirnar og fólki sem þar býr.
Það mun örugglega taka drjúgan tíma að kaupa upp heimildirnar, og á meðan gætu menn notað tíman til að aðlagast nýjum aðstæðum. Það yrði líka að tryggja að stórgrósserar gleyptu ekki allt og alla. Þar yrði að hugsa til þjóðarhags. Rétt eins og bretarnir gerðu við bankann um daginn, en þeir töldu það þjóna best hagsmunum þjóðarinnar að þjóðnýta bankann. Við getum margt lært af öðrum þjóðum. Þetta er eitt af því, ekki þessi endalausa þjónkun við menn sem vilja ráðskast með auðlindir þjóðarinnar.
Ég er alveg viss um að það er hægt að finna lausn á þessu sem allir geta sætt sig við, en til þess þurfa menn að setjast niður og finna lausnir. Og ráðamenn þjóðarinnar þurfa að setja sig inn í málin, það er ekki nóg að vera valdamikill og ráða. Það þarf líka að huga að hag þjóðarinnar og réttlæti. Það hefur ekki verið leiðarljós núverandi og fyrrverandi valdhafa. Það er komin tími til að kynna þessu fólki rétt og skyldur þess í sambandi við þjóðarhag. Ég vona að fundurinn á Akureyri hafi verið góður, og þar hafi menn lagt inn mál sem munu skila sér áfram inn í stjórnarráðið. Því þetta kvótakerfi hefur gengið sér til húðar, og það er í raun og veru þjóðarskömm hvernig ráðamenn hafa höndlað það nú í 20 ár. Með engum árangri, en risaútgjöldum og skuldum sem eru að verða öllum ofviða ef ekkert verður að gert.
![]() |
Segir tímabært að endurskoða byggðakvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
19.2.2008 | 10:49
Vorboðarnir í garðskálanum mínum, og hið daglega veður.
Jamm, hér er rigningarsuddi, en samt ágætis veður, ef maður klæðir sig samkvæmt því. Upp í gróðurhúsi spítast litlir grænir angar upp úr moldinni, og aðrar eðalplöntur eruklipptar niður í græðlinga, til að fjölga sér og verðar stórar og miklar.
Frekar hráslagalegt að sjá, en ekki eins kalt og það lítur út fyrir að vera.
Páskarósin mín í blóma, og verður fram yfir páska, hún stendur lengi í blóma og er svo falleg, svo er önnur úti í garði, og hún blómstrar aðeins seinna, svo ég fæ tvöfalda ánægju af henni.
Þessi fallega prímúla brosir móti manni, og silfurkamburinn er fallegur rammi utan um hana.
Hér er önnur falleg prímúla, og hér má sjá brumin á prunus Triloba. rósamandlan mín, og fremst er stamminn á Sakurakirsuberjatrénu, þar eru brumin líka alveg að koma út. Kirsuberjatréð er líka með þroskuð brum og perutréð líka, svo þetta er allt að koma.
Þessi minirós er alltaf jafn falleg, hún hefur staðið allan veturinn í blóma.
Bergflettan og larsaklukkan taka sig líka vel út á þessum tíma.
Blómakveðjur frá Ísó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 19. febrúar 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar