16.11.2008 | 14:52
Smáhugleiðing, spilamennska og Karlakórinn Ernir á góðri stundu.
Mér líður hálfeinkennilega þessa daga. Ég er áhyggjufull og reið, en líka er einhver ákveðin ánægjutilfinning, hún á rætur sínar að rekja til mótmælanna. Mér líður vel með fundinn sem ég fór á, og fundinn sem ég horfði á í sjónvarpinu, aðdáun mín er mikil á því fólki sem ber hita og þunga af þessu öllu saman, sem leggur á sig að semja tilfinningaþrungnar ræður, og flyta þær með þvílíkum sóma, á Herði Torfa, sem er einn af þeim fáu íslendingum sem er algjörlega sjálfs sín herra, hefur alla tíð staðið af sér allar tilraunir til að vera einhverjum háður. Það þarf einhvern slíkan til að halda utan um þetta allt saman. Og Hörður hefur gert það með þvílíkum sóma að eftir verður tekið.
Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, hvort upp úr þessu verður stofnuð stjórnmálahreyfing, þá vona ég bara að það fari ekki fyrir því eins og Íslandshreyfingunni, þar sem safnaðist saman einstaklingar sem höfðu fyrst og fremst eigin frama að leiðarljósi. Hún endaði svo í 2% fylgi. Það kostar mikla vinnu að stofna stjórnmálaflokk. En vonandi breytist þjóðfélagið okkar eftir þennan skell, og hér komi til meira réttlæti, meiri jöfnuður og betra samfélag. Spilltir stjórnmálamenn, embættismenn og atvinnurekendur fái pokann sinn. Og við sjáum fram á nýja daga, með réttlæti, firði og góðæri í stað gróðæris. Samfélag, þar sem fólki skilur að það er öllum betra að eiga nóg en ekki of mikið. Að náttúra landsins er auðlind sem er óbætanleg. Að fiskimiðinn okkar eru sameign þjóðarinnar, og tækifæri fólksins í dreyfðum byggðum til að hafa ofan í sig og á. Að nafnli alheimsins er ekki stórborg, sem sogar allt til sín. Heldur er betra fyrir sálarlífið að búa á smærri stöðum, vera stórir fiskar í litlum tjörnum, en ekki litlir fiskar í stórri.
Ég er sammála því að við þurfum að breyta hugsunarhætti fólksins. Það er svo lengi búið að segja okkur að svart sé hvítt og hvítt sé svart, að við vitum ekki lengur hverju við eigum að trúa. Þeirri lygi þarf að ljúka hér og nú. Þess vegna er mikilvægt að það fólk sem nú situr sem fastast á valdastóli skilji það sem við erum að reyna að segja þeim. Við viljum að þeir hverfi brott, og nýtt fólk með nýjar hugsanir setjist þar í þeirra stað. En við skulum líka muna að lýðræðið er einungis virkt, ef við pössum upp á það. Tökum þátt, og látum stjórnendur vita og finna að við líðum ekki lygi og ótrúverðugleika. Lýðræðið kostar, það kostar fyrirhöfnina að taka þátt í samfélaginu. Sú þátttaka er ekki trúarbrögð, heldur eftirlit með þeim sem við veljum okkur til forsvars. Því vissulega er vald vandmeðfarið, og auðvelt að misstíga sig ef aðhalds er ekki gætt. Látum þetta okkur að kenningu verða. Því vissulega ber fólkið í landinu þá ábyrgð að hafa kosið yfir sig sama fólkið ár eftir ár, án þess að það hafi gefið minnstu ástæðu til að treysta því. Við verðum að fylgjast með, og refsa eða umbuna, ef við virkilega viljum lýðræði.
En þetta er búið að vera notalegur sunnudagur, afi er farin í sund með stærri börnin, en sú litla skottan mér er hjá ömmu sinni.
Hanna Sól og afi spiluðu Veiðimann.
Það finnst Hönnu Sól gaman.
Þetta er nýjasta listaverkið hans Júlla, steinnál.
Ef til vill hægt að sauma sláturkepp með henni þessari.
en við hjónin fórum á skemmtikvöld með Karlakórnum Erni á föstudaginn. Það var mjög skemmtilegt, það var myndakvöld frá Ungverjalandsferðinni. Og auðvitað var boðið upp á ungverska gúllassúpu.
Hér er kokkurinn, hann er líka kórfélagi.
Það mættu langflestir félagar kórsins ásamt betri helmingum.
Og gúllassúpan bragðaðist afar vel.
Og ánægjan lýsti sér af andlitum kórfélaganna.
Kórfélagar skemmtu okkur svo.
Mugipapa var veislustjóri og hann tók líka lagið.
Hjónin í Botni létu ekki sitt eftir liggja.
Og enn var tekið lagið.
Og það var sungið..... af innlifun.
Og svo söng allur hópurinn saman.
Og við dáðumst auðvitað af.
Já þetta var skemmtilegt kvöld, þið eruð flottastir.
Takk fyrir skemmtilegt kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 16. nóvember 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar