Vökvun alla leið frá himninum.

Já það byrjaði að rigna um kl. hálf sjö í kvöld, loksins.  Mér var mikið létt.  En það leit út fyrir í dag, að sólin yrði áfram.  Hun kemur aftur blessunin, en það þarf bara að vökva.

IMG_6253

Svona var í  morgun.

IMG_6254

jamm svo birti til.

IMG_6255

Birtan er frábær hérna.

IMG_6250

En þar sem ég var að færa vatnið til, sá ég þessi yndælu börn og leiðbeinendur þeirra í leik á Austurvelli.

IMG_6251

Hvað er klukkan spurði annar hópurinn, og hinn svaraði einhverju, sjö.... og þá tók hinn hópurinn sjö skref í átt að þeim hópi.

Síðan var hlaupið og klukkað og það var rosalegt fjör hjá þessum litlu skottum.

IMG_6252

Stubburinn er í vinnu hjá mér núna, hann kemur í vinnuna kl. 10 til 12, og þarf að gera ýmislegt vökva blómin og hitt og þetta smávegis.  Hann er ákveðin í að "vinna" þangað til Bára frænka kemur í heimsókn með Hönnu Sól og Hildi Cesil, þá ætlar hann að taka sér frí.  Hann mætir alltaf tímanlega.  Ég held að það sé þroskandi fyrir hann. 

Annars er allt gott af mér að frétta, bara svo ósköp þreytt eftir alla vökvunina.  Það lagast stórlega eftir þessa hellidembu. 


Bloggfærslur 5. júlí 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband