9.6.2007 | 01:48
Huggulegt kvöld, sem endar með skothríð í næsta nágrenni.
Jamm sem við hjónin sátum úti í garðskála og "hugguðum" okkur með bjór urðum við vör við að það kom þyrla aðsvífandi, en hún settist ekki á flugvöllinn heldur hélt áfram austur fyrir, við vorum að spá í hvað þetta gæti verið. Maðurinn minn hélt að það væri verið að vinna að einhverri endurvarpsstöð á Bolafjalli. En annað átti nú eftir að koma á daginn.
Þessi er tekin fyrr í kvöld.
Aðeins seinna.
Svo er komið kl. 00.00
Jamm svona kvöldar á Ísafirði.
En við vorum sem sagt að hafa það huggulegt, þegar þyrlan kom.
Brandur var þarna líka. Ertu nú ennþá einu sinni að taka mynd?
Best að láta sem ekkert sé.
Við vorum náttúrulega ekkert að spá meira í þyrluna, fyrr en þulurinn í útvarpinu tilkynnti að sérsveit lögreglunnar hefði verið kölluð út vegna vopnaðs manns í Hnífsdal.
Vá! hér á þessu fallega kvöldi, var einhver, sem við örugglega þekkjum sem hafði dregið upp byssu og hleypt af skoti á konuna sína. Hvað getur ekki gerst á fallegu sumarkvöldi í litlum bæ úti á ysta nesi ?
En þetta er svo sem ekki í fyrsta sinni sem það gerist í Hnífsdal.
Fyrir allmörgum árum voru nokkir ungir menn að byggja sér hús þar. Einn þeirra var að snudda fyrir utan húsið sitt, inni voru píparar við vinnu sína.
Þá bar þar að nágranna mannsins. Hann var í síðum dökkum frakka. Þeir heilsuðust. En svo hneppti sá aðkomni frá sér frakkanum, dró fram byssu ósamsetta. Hann byrjaði í rólegheitum að setja hana saman.
Hvað ertu að gera ? spurði sá sem var að byggja.
Ég ætla að skjóta þig, sagði hinn sallarólegur, og hélt áfram að setja saman riffilinn.
Vinurinn starði á aðfarirnar, og í þann mund sem nágranninn setti magasínið í, tók hann viðbragð og hentist inn fyrir dyrnar og lokaði á eftir sér, og í þann mund dundu skotinn á hurðinni.
Það var uppi fótur og fit inni, og pípararnir og eigandinn þustu út um bakdyrnar.
Engum varð meint af þessari uppákomu, og vonandi verður heldur ekki þannig núna. En við erum mitt í tragedíunni.
Vonandi fer samt allt vel. En þetta er aldeilis uppábrot á huggulegri stund á fallegri sumarnótt. Say no more.
![]() |
Sérsveit lögreglunnar kölluð út vegna vopnaðs manns í Hnífsdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 9. júní 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar