Blóm, álfar og ástarjátningar.

Þetta er búin að vera mikill atdagur hjá mér.  Og loksins get ég sest niður og aðeins slakað á.  Við erum á fullu að verðmerkja og setja allt í sölubúning.  Það besta við allt er að fólkið sem kemur er svo glatt og yndislegt.  Því líður vel að koma til okkar, og fá sumarið í æð.  Í gær komu kvenfélagskonur úr Bolungarvík og fengu blóm til að selja.  Þær sögðu að það hefði gengið rosalega vel, og allir ánægðir með blómin.  Gott að vita kvenfélagskonurnar á Flateyri ætla líka að vera með sölu í næstu viku.  Lífga svolítið upp á móralin segja þær.  Ég er ánægð með að blómin mín fari til þeirra sem þurfa uppörfun, það er heilmikill kærleikur settur í hverja plöntu skal ég segja ykkur.  Sá kærleikur skilar sér svo til þeirra sem fá plönturnar mínar.  Heart

 En ég tók nokkrar myndir í kvöld, þegar ég var að koma heim af því að ég var með vélina á mér.  Er að taka myndir af fjölæringunum sem eru í sölu.  þarf að taka myndir þegar þær eru upp á sitt besta, skarta sínu fegursta eins og fegurðardrottningar.  Svo fólk sjái hvað þau eru í raun og veru falleg.

Untitled-1

Svona til dæmis.

IMG_5203

Snemma beygist krókur.............. eða seint sennilega í þessu tilfelli.  LoL

IMG_5204

Segiði svo að blómálfar séu ekki til.  Þessi var að spila Strauss til dæmis. 

IMG_5205

Jamm kirsuberin farin að stækka.  Nammi namm. Þetta er náttúrulega verk býflugnanna, vinflugu minna sem ég bjargaði upp úr tjörninni hvað eftir annað í vor.  Núna eru það geitungadrottningarnar, stórar og pattaralegar sem þarf að veiða upp úr tjörninni.

IMG_5206

Þessi brostu líka við mér, enda er ég búin að annast þau frá upphafi lífs þeirra. 

IMG_5201

Svona var veðrið klukkan sjö.

IMG_5202

Þessi aftur á móti er svolítið duló, en hún er samt tekinn út um dyrnar hjá mér. 

Ég var satt að segja búin að taka myndir af Óshlíðinni í dag, þegar ég sótti blómin frá kvenfélagskonunum, myndaði alla hættulegu staðina.  En svo komst ég að því að kortið var ekki í myndavélinni W00t  'Eg er svolítið utan við mig á þessum síðustu og verstu.

Ein smá gamansaga í lokin.  Ég fór líka inn á flugvöll í dag og hitti þar ágætan kunningja minn, við spjöllum oft og mikið saman.  Þetta er hann Sófi, ekki eins og maður situr í, heldur situr hjá og spjallar.

Hvernig hefurðu það? spurði ég.

Alveg ágætt, svaraði hann, og þó heimurinn myndi endasteypast myndi maður samt segja það sagði hann

Já sagði ég, þannig er það bara.

Ég gleymi aldrei, sagði hann besta tilsvari sem ég hef nokkurntímann heyrt.

Nú ! sagði ég.

Já þetta var á balli, og Elli maðurinn þinn og vinnufélagi hans sátu á spjalli, komnir í glas. 

Þá sagði félaginn; Hvernig geturðu búið með henni Ásthildi ?

Veistu sagði maðurinn minn; ég elska hana eins og hún er, ég er ekkert viss um að ég myndi vilja búa með henni ef hún breyttist. LoL

Frábært svar, ég er alveg sammála því, og ég segi nú bara, hver fær betra hrós frá maka sínum. Heart

Hann hefur reyndar aldrei sagt mér frá þessu sjálfur. 

 

En nú er tíminn til að fara blogghringinn, enginn beinlínis að ónáða mig.  Sjáumst !


Bloggfærslur 31. maí 2007

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband