4.10.2007 | 23:58
Þakka þér góður Guð fyrir að ég er ekki eins og allir hinir, ég ber mér á brjóst og er auðvitað sæl með að vera faríseri meðal allra hinna.
Djísús kræst þvílík hræsni, ætli þjóðhöfðingjar heimsins grípi þetta ekki á lofti og þakki sínum allra heilgara fyrir að þurfa ekki að skammast sín meira en orðið er. Allt í gúddí Aung San Suu Kyi mín, vertu bara nógu auðmjúk við manninn og ekki vera með neina stæla eða læti og allt verður bara gott, og við getum andað léttar. Skítt með munkana og andófsfólkið sem þeir eru að dunda sér við að pynta í fangelsunum, og skítt með fólkið sem þeir eru að hundelta og murka lífið úr í rólegheitum. Það er svo erfitt að þurfa að bera ábyrgð á svoleiðis. Þess vegna skaltu bara taka þessari nauðgun Aung San Suu Kyi og helst líka ósmurt í óæðri endann, þvi við viljum ekkert vesen hér, við þessi friðelskandi, skilningsríku, vestrænu hræsnarar. Það þarf bara að vera auðmjúk, og þakka fyrir að vera á lífi og sona. Ekki fara að spá í fólkið sem er verið að murka lífið úr. Það er allt í gúddí sko.
Mikið djöfull getur maður orðið hundsvekktur á þessum svokölluðu lýðræðishetjum út um allan heim. Þessum vestrænu forystumönnum sem eru svo umburðarlyndir gagnvart öllum morðingjum heimsins, nema þar sem olíu er að finna eða aðrar auðlindir, sem þeir þarfnast. Ég segi oj, ég segi pass og ég segi skammist þið ykkar. Og þar eru íslensk stjórnvöld ekki undanskilin.
Bloggar | Breytt 5.10.2007 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.10.2007 | 00:57
Tónleikar með Gilles Apap.
Já ég brá mér á tónleika i kirkjunni í kvöld, alveg hreint frábæra tónleika, með heimsfrægum manni sem heitir Gilles Apap, en ekki síst var góður vinur minn að spila þarna Hjörleifur Valsson.
Þegar það lá fyrir að við færum á tónleika í staðinn fyrir sund, varð stubburinn dálitið svekktur. Maður bara veit ekki neitt, er búinn að plana ákveðinn hlut (sund með afa) og svo er bara rokið til og gert eitthvað annað. Og svo þarf Sóley Ebba (annað barnabarn) auðvitað endilega að vilja einmitt þetta.
Já en þetta er miklu uppbyggilegra en sund, sagði afi. Þarna verða bæði Bach og Mozart.
Ha, sagði stubburinn, er Mózart ekki dáinn ?
Nema hvað við fórum þarna fjögur á tónleika, amma, afi, Sóley Ebba og Stubbur.
Og það var reyndar alveg meiriháttar, tónleikarnir fóru fram í kirkjunni þar sem hljómburður er mjög góður.
Þarna er hann snillingurinn, algjörlega afslappaður og í góðum fíling, byrjaði á einhverju sem mér fannst vera írsk þjóðlaga músikk. Og svo á miðjum tónleikum byrjaði hann að ............................ já byrjaði að blístra í takt við fiðluna. Ótrúlega flott
Á síðustu árum hefur Gilles Apap unnið sér orð sem einn af fremstu og nýstárlegustu fiðluleikurum heims. Hann hefur komið fram sem einleikari með mörgum þekktustu hljómsveitum heims s.s. Berlinar Fílharmoníunni, Rússnesku þjóðarhljómsveitinnni, Sinfóniuhljómsveir San Francisco og svo mætti áfram telja. Hann hefur farið tónleika ferðir um víða veröld og komið fram á tónlistarhátíðum í evrópu, Ameríku, Ástralíu, Indlandi, Kína, Japan og víðar. Gilles Apap, hefur tileinkað sér ýmsa stíla fyrir utan klassik á einstaklega sanfærandi hátt, m.a. jass og þjóðlagagónlist frá ýmsum löndum. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlega túlkun á eigin útsetningu á klassiskum verkum og þjóðlagatónlist, sem hann hefur flutt á sin einstaka hátt oft með eigin hljómsveitum. Sem dæmi um fjölhæfni hans sem tónlistarmanns má nefna að á síðustu mánuðum hefur hann m.a. leikið fiðlukonsert Alban Bergs í Sviss, fiðlukonsert nr. 1 eftir Sjostakovitsj í Tyrklandi og frumflutt fiðlukonsert eftir DAvid Balikrihnan í Nashville. Og svo framvegis. ...
Tveir snillingar að leika saman Fiðlukonsert eftir Bela Bartók. Algjörlega frábærir.
Hér koma þeir inn Balzamersveditin Bardukha, sem léku algjörlega frábær þjóðlög frá Austur Evróðu og Litlu Asíu, eins og þeir sögðu. Og takið eftir listaverkinu á bak við. fjöldi af fuglum sem almenningur hefur búið til, allt merkt og hægt að sjá hver gerði hvaða fugl.
Í algjöru stuði.
Hjörleifur á Fiðlu, Ástvaldur á Harmonikku, Steingrímur á Slagverk, Birgir á Kontrabassa. Þvílíkur fílingur.
Og þarna er snillingurinn Apap kominn aftur.
Og ég var að hugsa meðan þetta fór fram, hve við erum rík hér á þessu krummaskuði, að eiga þessa arfleifð. Heimsfrægt fólk sem kemur og eru okkar bestu vinir, til dæmis Askenasi, Erlingur Blöndal Bengtson, sem er af ísfirskum ættum. Hjörleifur, Hjálmar J. Ragnar, Jónas Tómasson, og margir margir fleiri. Og að búa að svona uppeldi fyrir börnin okkar, er ómetanlegt. Arfleiðin skilar sér líka í því að hér er svo mikil tónlistarmenning, að heimsfrægir listamenn vilja leggja leið sína hingað til að bjóða okkur sitt framlag við listagyðjuna. Hér býr þekkingin, áhuginn og krafturinn til að gefa þessu fólki til baka, það sem það vill fá fyrir að flytja okkur list sína. Þetta gerir menningarbæinn Ísafjörð rosalega mikið að því sem hann er, og svo margt fleira sem ég nefni ekki hér, af því að ég er að dást að einmitt þessari tónlist.
En svo við snúum okkur að öðru þ.e. gallerí himni, þá var hann líka flottur í kvöld.
Eins og sjá má.
Hann getur líka verið ógnvekjandi eins og þungur niður bassans.
Eða trillandi ljós eins og fiðlan.
En í kvöld fékk ég góðan innblástur í sálina mína. Þvílík upplifun þvílík tónlist, og troðfull kirkja, með ærslafullu lófaklappi og ánægju tónlistargesta, það er veganestið sem tónlistarfólkið fór með í kvöld, þegar flugvélin hóf sig til flugs í næturhúminu, eftir velheppnaðan konsert.
Og eins og Gilles Apap sagði, við Hjörleif, you are the homeboy here, and that's becouse of you I´m here, þá segi ég, elsku Hjörleifur minn. Ég held að ég muni þig best með fiðluna þína að spila fyrir sýningu hjá LL, í Félagsheimilinu í Hnífsdal, þegar þú varst bara smápolli. Hve langt þú hefur komið síðan þá, orðin virtur tónlistarmaður, m.a. í söngleiknum um Edit Piaff. Þú ert flottastur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Bloggfærslur 4. október 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar