Færsluflokkur: Bloggar

Góða nótt.

Dagurinn i dag.

IMG_9483

Kajaknámskeið í fullum gangi.

IMG_9484

Stubbur skemmtir sér vel.  Og er rosalega ánægður.

IMG_9486

Bátaflotin bíður eftir krökkunum, þau ætla að fara sigla um pollinn.

IMG_9487

En vinnudýrin mín voru að þökuleggja.  Gera allt grænt og fallegt.

IMG_9488

Og Jói minn blessaður var á gröfunni að slétta.

IMG_9494

Við systur bröllum ýmislegt, ein systir mín ákvað að það yrði að taka mynd af ketti annarar systur með svona flotta húfu hehehehe

IMG_9495

Nema sir Jóakim var ekki alveg tilbúin að samþykkja þetta, enda í fýlu, af því að systir mín fór í ferðalag og skildi hann eftir heima,  Hann er búin að vera í fýlu í heilan sólarhring, svo þótti honum þetta brölt vera fyrir neðan sína virðingu LoL Sjáiði bara svipinn á dýrinu ?

IMG_9499

Hér er hann enn í fýlu hehehehe...

IMG_9503

en á svona góðum dögum er bærinn fullur af fólki, sem situr og hygger sig í sólinni.  Það er voða notalegt.

IMG_9505

Já sólin gerir allt svo gott og notalegt.

IMG_9507

Hér er falleg rós.

IMG_9509

Hengipetunía svo falleg líka.

IMG_9510

Og fjóla, sem ég hreinlega elska.

 

En þetta er bara svona smásnakk fyrir svefninn.  Ég hef vaknað allof snemma núna undanfarna morgna, eða um fjögur fimm, og get ekki sofnað aftur.  Ligg og hugsa um svo margt.  Þannig að ég er orðin sybbinn, og vil bara segja góða nótt með þessum fallegu blómum, mannablómum og blómablómum.  Góða nótt. Heart


Morgunstemning frá Ísafirði og Bolungarvík.

Svona nokkrar stemningsmyndir í morgunsárið. 

IMG_9464

Þegar nóttin er búin að segja bless, og dagurinn er ekki ennþá kominn.  Þessi birta heillar mig.

IMG_9463

Og róin yfir öllu, fjallið mótað í pollinn, og allt svo ferskt því í nótt rigndi enn á ný.  En nú er sólin að brjótast fram aftur.

IMG_9467

ég þurfti að skreppa út í Bolungarvík, og það er dálítið hrikaleg leið skal ég segja ykkur.  Eða eigum við að segja hrikalega falleg leið.  En næsta ár verða þarna göng, ég held samt að Óshlíðin verði opinn yfir sumartímann, svona til að fólk geti fengið óttahroll eins og að fara í rússíbana.

IMG_9476

Eftir 20 ár trúir enginn því að þetta hafi verið aðalvegurinn til og frá Bolungarvík árið 2008. 

IMG_9473

Þeir eru að stækka og laga félagsheimilið sitt Bolvíkingar, þar ríkir enginn smámunasemi skal ég segja ykkur.  Enda eru Bolvíkingar stórhuga menn.  Datt í hug að segja hér inn myndir af þessum aðalskemmtistað Bolungarvíkur til margra ára, fyrir þá sem ekki eru þar lengur.  Margir hafa stofnað til sambanda hér, og örugglega einhverjir orðið til, vegna þessa húss hehehe... og svo nálgast ástarvikan.  Gott að hafa það í huga.  Þó þetta hús verði ekki tilbúið þá.

IMG_9474

En það er alveg öruggt að einhverjir fá sæluhroll að minnast skemmtana í húsinu.  Og svo verður það fínt og flott, fyrir komandi kynslóðir að taka á móti, og gera þeim kleyft að kynnast og stofna til hjúskapar og barneigna.  Félagsheimilin eru auðvitað bráðnauðsynleg svona í dreyfbýlinu.  Heart

IMG_9477

Svo fór ég smárúnt á höfnina.  Það er eitthvað við þessi skip, sem bíða endalaust eftir því að einhver bjóði þeim í siglingu.  Sem sennilega verður ekki, nema þetta fjandans kvótkerfi verði afnumið eða breytt verulega. 

Enda skrýtið að heyra í fréttum í morgun, Valgerði Sverrisdóttur segja okkur frá því, að Evrópusambandið hefði boðið íslenskum sérfræðingum að taka þátt í mótum fiskveiðistjórnunarkerfi Evrópusambandsins, og vinna nánar með þeirra sérfræðingum, en íslenska ríkisstjórnin, eða sjálfstæðismenn hefðu lagst alfarið gegn því.  Það væri gaman að heyra þeirra útskýringar á því, hverju það sætti.  Sennilega þurft að vernda kvótakóngana, sem borga í kosningasjóðina þeirra.   Eða manni dettur það í hug.

Og svo vil ég nota tækifærið og vekja athygli á undirskriftasöfnun sem Guðsteinn Haukur hefur komið af stað til að styðja við bakið á Ásmundi Jóhannssyni sjómanni úr Sandgerði, sem er að róa kvótalausum bát, til að mótmæla þessu kerfi.  Hann á heiður skilið og stuðning allra réttlátra manna.  Því aðgerðir stjórnvalda eru mannréttindabrot á sjómönnum.   Ekkert minna en það. http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur

IMG_9478

Þó ekki hafi ríkt friður um byggingu nýju kirkjunnar á Ísafirði, þá er friður í þessari mynd.

IMG_9479

Og gamli pollinn, vísar leið til nýrra tíma, stjórnsýsluhúss, hótels og blokkar.  Bryggjan er farin að gefa sig, eins og kvótakerfið.  Brátt hrinur hún niður, og ég vona að það geri þetta arfavitlausa kvótakerfi líka.   Svo mitt í allri niðurníðslunni vaxa munablóm. Smile

IMG_9480

Já hvað vilja menn hafa betra veður en þetta?

IMG_9481

Menningarhúsið Edinborg og smábátar sem una sér vel í logninu.

IMG_9482

Og hér er hún María Júlía á kafi í drasli og dóti. 

En ég býð ykkur góðan og blessaðan daginn kæru bloggvinir. Heart


Móðirin mikla og dulúðuga.

Það var rosalega flott birtan í morgun, og draumórum líkust.

IMG_9447

Þessi sérkennilegi blámi, sem þýddi að sólin var um það bil að bræða af sér þokuna.

IMG_9448

En hún lá inn með firðinum, eins og draumórar.

IMG_9449

Það var eins og lýsti af fjöllunum.

IMG_9450

Og allt var hljótt, nema fuglarnir sungu sinn morgunsöng.

IMG_9452

Þetta er eins og maður sé milli svefns og vöku og sé horfinn inn í drauminn, sem mann dreymdi um nóttina.  Maður heyrir grasið vaxa, ánamaðkana skríða milli hola, og blómin springa út. Heart Söngur móður jarðar.

IMG_9453

Þetta er vonandi ekki mengun frá skipinu LoL Nei reyndar ekki, en reykurinn frá strompnum stendur beint upp í loftið í þessu venjulega Ísafjarðar logni.

IMG_9455

Svo fer að rofa til, maður byrjar að heyra í bílum, og umferðin vaknar til lífsins, maður er ekki lengur einn í draumaheimi, heldur hefur bæst annað fólk í hópinn.

IMG_9456

Og bærinn fullur af ferðalöngum, sem hafa borgað stórfé fyrir að fá að koma og heimsækja okkur sveitavargana.

IMG_9457

Já skýin gerast viltari, og gallerí himin opnast upp á gátt í allri sinni fegurð.

IMG_9458

Hér er gyðjan góða að snúa skýjunum í kring um fjallið sitt, hún er sennilega að auka kraft sinn, sogar til sín orkuna, nýtir hana sjálf og gefur svo okkur ástvinum sínum stóran hluta af henni.

IMG_9459

Ekki veitir af, því margir eru tilkallaðir.

IMG_9461

Og það er ekki bara kajaknámskeið, goflnámskeið hér er líka gerfigrasvöllurinn nýttur í leikjanámskeið.  Bærin iðar af börnum í leik og starfi, og frábæru ungu fólki, sem stendur fyrir allskonar kennslu og þjálfun á ungviðinu.

IMG_9444

en ég faðma mitt gullregn og fer svo að horfa á Frost.  Góða nótt elskurnar, friður sé með ykkur öllum, og ég sendi ykkur orkuna frá Gyðjunni í Kubbanum. 


Kajak og sól.

Já þá er stubburinn farin aftur á kajaknámskeið.  Það er mjög gott að geta komið börnunum á slík námskeið, þar sem þau læra að umgangast sjóinn og fjöruna.

IMG_9424

Aðstaðan er líka alveg prýðileg, náttúrleg fjara beint niður af Sæfarahúsinu.

IMG_9426

Hér er hann á tali við leiðbeinendurna.  Hann var mjög ánægður með daginn, þó hann vildi ekki alveg samþykkja að fara í fyrstunni. 

IMG_9429

Þau hafa bara svo gott af þessu börnin.

IMG_9430

Svo hnerraði Guð og það komu nákvæmlega tvær vindhviður, það þýddi náttúrulega ekkert að segja við aðal Guð hjálpi þér, því þetta var örugglega hann sjálfur.

IMG_9432

Svo voru bátarnir bara reistir við aftur, og áfram var lognið. 

IMG_9441

Hér er hún Dísa vinkona mín, að koma í heimsókn til mín.  Æskuvinkona mín og fermingarsystir.  Við sátum lengi yfir kaffi og höfðum margt að spjalla.  Það er hún sem stundum svarar hér á blogginu mínu.  Heart

IMG_9442

Það sem gerðist þegar Guð hnerraði, var að öll rigningarskýin fóru burtu, og eftir var bara sól og blíða hehehehe...  Gott mál. 


Túristar og viðmið, hversu pottþétt eru þau ?

Það fer ekkert á milli mála að ferðamanna straumurinn er í algleymingi.  Hér á hjara veraldar hefur aukist til mikilla muna koma skemmtiferðaskipa.  Allt í einu eru bærinn fullur af röltandi túrhestum, fer eftir þjóðerni hvort þeir eru vinalegir og brosandi, eða kuldalegir með fjarrænan glampa í augum.  En samt er það svo að þegar þeir eru komnir hingað inn að kúlunni, þá eru margir sem koma við og vilja annað hvort taka myndir eða kíkja aðeins inn í garðskálann og garðinn að þá verður brosið ofaná. 

IMG_9412

Sum þessara skipa eru enginn smásmíði, og furðulegt að þessir stóru dasar geti lagt við bryggju hér hjá okkur.

IMG_9414

Hér sést svo auðvitað lognið sem er svo algengt hér.  Það var að vísu rigning í dag, en hún var lóðrétt, og hlýtt í veðri.

IMG_9416

Stóru húsin á höfninni verða einhvernveginn svo ósköp lítil miðað við, og sjáiði litla gula bátinn fyrir miðju, hann er reyndar ekkert svo lítill.  Þetta vekur manni nefnilega hugsun um það sem er afstætt.  Hvernig allt samhengi breytist þegar kemur annað viðmið.  Þetta er mikið notað á okkur sálrænt í vinsældarkapphlaupi stjórnmálanna.  Þegar eitthvað verður óþægilegt fyrir segjum stjórnvöld, þá er kastað fram einhverju öðru, til að augu okkar beinist í aðra átt.  Þá breytist viðmiðið, og við verðum ráðvilt, og erum ekki viss lengur um það sem verið var að gagnrýna.  Eins og núna til dæmis er verið að innprennta okkur að það hafi verið Sjálfstæðisflokkurinn sem alla tíð hafi verið í forystu fyrir því að taka upp evruna.  Og við auðvitað trúum því og hugsum, hvað framsýnn flokkurinn sé, og hve vitrir forystumenn hans séu.  Sannleikurinn er gjörsamlega endurskapaður frá grunni, og við fáum ný viðmið.  Allt í einu er Björn Bjarnason og Geir H. Haarde frumkvöðlar í Evrópumálum.  Og við gleymum því snarlega að Það var ekki til umræðu að taka upp Evru fyrir tveimur árum, þegar Björn Bjarnason sagði að engum dytti slík fyrra í hug nema Valgerði Sverrisdóttur.  Og Geir spilaði því út fyrir nokkru að mun betur lægi við að taka upp dollara.  Nei við gleypum við þessu öllu eins og mér hefur alltaf fundist húsin á höfninni vera risastór, en svo eru þau bara pínulítill, þegar smjörklípa í formi skemmtiferðaskips leggst við kantinn og smækkar allt sem þar er fyrir.

IMG_9417

Já það breytast öll viðmið, þegar eitthvað allt annað kemur upp.

IMG_9418

Svona erum við bara, og ekkert við því að gera, nema ef okkur ber gæfa til að skilja kjarnan frá hisminu, og vita að þegar skipið er farið, verða húsin aftur stór.

IMG_9419

Fyrir þá sem hafa verið eitthvað í burtu, þá er þetta nýji barnaskólinn, glæsibygging, sem eykur örugglega og bætir aðstöðu kennaranna í bænum.  Verst er að lóðin minnkar, og þess vegna reyna stjórnvöld að troða sér inn á Austurvöll, á sviknum forsendum.  Þar breytist viðmiðið líka, því þeir hafa skilgreint aðalskrúðgarð bæjarins sem leiksvæði, en segja samt að þar verði áfram skrúðgarður.  Hann er teiknaður af Jóni H. Björnssyni einum mest metna og elsta skrúðgarðaarkitekt okkar, þetta er systurgarður Hallargarðsins, og nú stendur til að breyta það öllu, koma upp leiktækjum í jaðrinum á honum, og þrengja hann þannig.  Breyta garði sem er orðin yfir 50 ára gamall, og hefur unnið sér hefð og er einn af fjórum hönnuðum skrúðgörðum í Ísafjarðar bæ, sem er einstakt í sögu Íslands, þar eru, Austurvöllur, Jónsgarður, Simsonsgarður og SKrúður. 

IMG_9420

Hér er Austurvegurinn, það er verið að helluleggja hann og gera fínan, ég vona að menn fari svo nærfærnum höndum um Austurvöllinn, og detti ekki í þá gryfju að fara að breyta honum, bara til að ná í leiksvæði fyrir börnin, þar ætti að vera hægt að finna aðra lausn.

IMG_9421

Ég skrapp á Flateyri í morgun, og auðvitað tók ég mynd af bautasteininum hans Einars Odds.  Ég hygg að Einar Oddur hafi verið vel að þessum virðingarvotti kominn.  Þó ég væri ekki sammála stefnu hans í þjóðmálum, og þeir vinir og samherjar Einar Kristinn og Einar Oddur segðu stundum eitt og gerðu annað eftir kosningar.  Þá verð ég að segja að mér líkaði alltaf vel við Einar, það var ef til vill garðyrkjumaðurinn í honum sem mér þótti vænt um.  Hvað áttu nýtt og spennandi núna Ásthildur mín, sagði hann.  Ég hitti hann bara nokkrum dögum áður en hann dó.  Þá röltum við um garðinn hans, og hann sýndi mér stoltur öll uppáhaldstrén sín, hann mundi alveg hvenær hann hafði gróðursett þau, og hvar keypt.  Þennan hlyn keypti ég hjá þér, sagði hann, og hann er stolt mitt í garðinum.  Hann er farin að dafna svo vel. 

IMG_5757

Ætli hann hefi ekki bara fengið betri bautastein hér á síðasta ári þann 19. júní, þegar feministar ákváðu að gefa honum bleikan stein.  Já mér þótti vænt um karlinn,  Þó ég væri ekki sátt við hvernig þeir fóru með sjávarútveginn.  En öllum getur orðið á,  og grein sem hann skrifaði stuttu áður en hann kvaddi þennan heim, í viðtali í BB, segir mér, að hann hafi verið farinn að átta sig á því að stefnan var ekki alveg samkvæmt kompás.  Blessuð sé minning þín minn kæri.  Þú varst held ég fyrst og fremst ræktunarmaður, og flateyringur.  Þó pólitíkinn hafi glapið þig á refilstigu kvótakerfisins.  Þá varstu samt hlý manneskja og þið hjónin miklir mannvinir og menningarvitar. Enda ertu örugglega einhversstaðar í aldin garðinum Eden að gróðursetja hlyn og blágreni. 

IMG_9423

Hér er Flateyri, margt hefur dunið á þorpinu, en dugnaður og þrautsegja einkenna fólkið.  Þau hafa rifið sig upp úr sorginni og aukið sínu fólki trú á framtíðina, með allskonar góðum hlutum.  Einmitt núna eru þar veraldarvinir, sem hafa komið til að leggja sitt af mörkum, líkt og í fyrra.  'Eg ætla einmitt að stjórna þeim í viku, frá 17 til 22 júlí.  Það er nóg að gera við minningargarðinn, sem þau hafa reist af miklum myndarskap.  En ég segi örugglega meira frá því seinna, og set inn myndir af þessu unga ævintýrafólki sem er frá mörgum þjóðlöndum. 

Læt ég þessu rausi svo lokið um viðmið.  Þau eru hvort sem er ekki raunveruleg að því leyti, að þau blinda mann oft og leiða mann afvega.  Því er best að hafa sinn bautastein á hreinu, og vita hvar maður stendur í baráttunni.  Ef maður gerir það, þá getur ekkert falskt viðmið haggað manni af réttri braut.  Knús á ykkur elskulegust. Heart


Sæluhelgi, og annað á döfinni hér vestra.

Já þau komu í heimsókn, Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra.  Það var fjör í krökkunum, eins og gengur.

IMG_9282

Hann var fljótur að bleyta sig, og svo endaði þetta allt með að Ólöf Dagmar datt í tjörnina hehehehe

IMG_9290

Hér eru svo bæjarstjórahjónin að sækja plönturnar sínar, til að fara með þær inn í Djúp til gróðursetningar, og ég sé ekki betur en kajakarnir séu með í för.

IMG_9291

Og tími fyrir smáspjall um landsins gagn og nauðsynjar.

IMG_9293

Jamm smá systkinametingur eins og gengur, ég er með meira en þú.

IMG_9294

Já tjörnin gerir sitt.

IMG_9296

Það var svo skömmu síðar sem stóra stúlkan okkar datt í tjörnina LoL

 IMG_9297

en það hafði verið ákveðið að fara á Sæluvikuna á Suðureyri í dag, og við stóðum við það.

Súgandafjörðurinn langur, hlykkjóttur og fagur.

IMG_9304

Þar var auðvitað elskuleg bloggvinkona mín Sigrún ásamt vinkonu sinni, sem búsett er í svíþjóð.

Flottar saman.

IMG_9309

Ég er nokkuð viss um að hér voru ekki undir þúsund manns í dag þegar mest var, rosalega vel sótt.

IMG_9317

Og sumir klæddu sig upp á í tilefni dagsins.

IMG_9318

Og sumir einfaldlega vildu frekar leika sér á róló heldur en í hoppiköstulum.

IMG_9320

Sem auðvitað stóðu öllum til boða.

IMG_9321

Hér er mitt fólk á ferð.

IMG_9323

Ömmu í kúlustrákar í leik.

IMG_9325

Hér voru líka ýmsir aðrir, sem ekki eru algeng sjón hér.

IMG_9328

Það var hægt að fá góðan Tailenskan mat.

IMG_9329

En svo reyndar líka pylsur, harðfisk og annað góðgæti. 

IMG_9333

Bikarar fyrir sigurvegara voru þarna til staðar.

IMG_9336

Börnin máluð fagurlega.

IMG_9345

Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.  Súgfirðingar hafa alltaf verið skemmtilegt fólk sem hefur gaman að að koma saman og skemmta sér.  Ég man hér í den, þegar ég var í hljómsveitarbransanum, og eins í leiklistinni, að það var alltaf gaman að koma á Suðureyri bæði til að halda böll og svo með leikrit.  En, málið var að það þýddi ekkert að byrja giggið fyrr en um miðnættið, bæði vegna þess að þeir unnu svo lengi fram eftir, og svo að þeir fóru einfaldlega ekki út á lífið fyrr en eftri miðnætti. Það voru partý í heimahúsum, og þeim var ekki rótað fyrr.  Stunum voru böllin frá eitt til sex um morguninn, því þegar þeir loksins komu á böllin, vildu þeir einfaldlega ekki hætta fyrr en í fulla hnefana.  Súgfirðingar eru dásamlegt fólk.

IMG_9347

Þessi unga stúlka er að syngja sæluvikulagið í ár.

IMG_9348

Gríðarlega margt fólk var hér samankomið, bæði súgfirðingar, fólk af fjörðunum í kring, og svo brottfluttir og aðrir gestir.

IMG_9350

Stemningin lá í loftinu, og veðrið var dýrðlegt.

IMG_9353

Þessi unga snót opnaði svo söngvarakeppnina, hún var dálitið feimin, enda erfitt að byrja, og frábært hve margir tóku þátt í keppninni.

IMG_9357

Þessi ungi maður tók Stál og hnífur með stæl.

Hér er verið að keppa um bronsbarka, silfurbarka og gullbarkabikara hvorki meira né minna.

IMG_9358

Það var ellefumanna dómnefnd og áhorfendur fylgdust spenntir með.

IMG_9360

Mér fannst þessi góð, sviðsframkoman hennar var frábær.

IMG_9362

ég held að við séum að horfa á framtíðar performans.

IMG_9363

Ömmur fylgjast vel með afkvæmunum, þegar þau eru að koma fram.  Tounge

IMG_9365

Sól sól skín á mig, söng þessi litla stúlka, og svei mér þá sólin kom fram í smástund.

IMG_9366

Glæsileg ekki satt ?

IMG_9368

Litla Evíta hafði líka gífurlega áhuga á söngvakeppninni ætli hún verði ekki með eftir nokkur ár ?

IMG_9369

Hann er bara þriggja ára, og hann söng Bahama öll erindin, og ég er ekki að ljúga Heart FYndið að heyra þetta litla skott syngja um veistu hve mörgum konum hann hefur sofið hjáLoL ég er enn að brosa.

IMG_9374

Þessar skottur sungu saman.

IMG_9376

Þessi á undan voru Bronsbarkarnir frá 0 upp í tíu, svo komu silfurbarkarnir, frá 11 upp í 15 minnir mig, hér er Sóley Ebba komin, margfaldur sigurvegari, ég held að hún eigi þrjá bikara nú þegar.

IMG_9379

Stubburinn minn tók þátt, hann söng This is my live, og gerði það bara rosalega vel.

IMG_9380

Svo voru það gullbarkarnir,, þessi var flottur á því og tók Queen.

IMG_9382

en þessi unga kona, var aldeilis frábær, þarna stóð hún ólétt eins og ég veit ekki hvað, og söng! Sister, svo frábærlega að ég fékk gæsahúð.  Mikið rosalega var hún flott.

IMG_9384

Það var þröngt setin bekkurin á Suðureyri í dag svomikið er víst.

IMG_9387

Það var keppt í fótbolta, brottfluttar og heimakonur, sleggjukasti kvenna og karla, snúðabökun og ég veit ekki hvað og hvað, gefinn verðlaun fyrir flottasta garðinn og snyrtilegustu eignina. 

IMG_9390

Og stráksi sem söng stál og hníf, varð bronsbarkinn í ár.

IMG_9393

Og Sóley Ebba fékk sinn fjórða bikar, enda flott.

IMG_9395

Gullbarkinn Syster hampaði sínum bikar.

IMG_9400

Þessi unga kona var kjörin bjartasta voninn, og fékk farandbikar; Rabbabikarinn í minnigu Rafns Jónssonar, það er ekkjan hans hér lengst til vinstri sem afhenti hann. 

IMG_9403

Hér er enn og aftur mitt fólk, ég á tvær tengdadætur héðan frá Suðureyri.  Svo fyrir utan góðar minningar fá Suðureyir i denn, kátt er í Kongó og svoleiðis, þá hefur hún öðlast öðruvísi stað í mínu hjarta fyrir utan leikskólann og skotturnar mínar tvær sem þar eru.

IMG_9404

Síðast á dagskránni var að vígja minnismerki súgfiskra sjómannskvenna.

IMG_9405

Eins og hér kemur fram er það hugmynd frá Lilju Rafney.  Frábært framtak, það vill oft gleymast þeir aðiljar sem ekki eru í sviðsljósinu, en taka allan þátt í ævintýrinu.  Vonir ótti, sorgir og tár.  Það vill svo oft gleymast, það sem þykir sjálfsagt, en er það bara alls ekki.

IMG_9406

Hér stendur hún og horfir til hafs, bíður eftir bónda sínum og fyrirvinnu, kemur hann heim í kvöld?

IMG_9408

Hún horfir til hafs bíður og vonar að hann komi heill heim.

IMG_9410

Hér er verið að undirbúa vígsluna, en ég varð að fara heim, til að setja steikina í ofninn, því faðir minn elskurlegur kemur í mat á sunnudögum, og það þarf tíma til að elda læri eins og allar konur vita.

IMG_9411

Lífið gengur sinn vanagang, og þýsku veiðimennirnir koma af hafi, glaðir með feng sinn, en alls utan við gleði og hátíð þorpsbúanna.  Ég vil þakka ykkur kæru Súgfirðingar fyrir frábæran dag, og góða skemmtun.  Það er nauðsynlegt hverju samélagi að eiga svona helgi þar sem allir leggjast á eitt við að gera sér dagamun.  Þið eigið líka gott að eiga ykkur sterka, bæði andlega og fjárhagslega einstaklinga, sem elska samfélagið sitt og leggja sitt af mörkum til að gera þessa Sæluviku svona frábæra eins og hún er.  Það myndi aldrei ganga öðruvísi.  Því segi ég, ekki gleyma að klappa þeim  á bakið sem svo mikið lögðu á sig til að gera þessa hátíð svo glæsilega.  Það þarf ekki að nefna nein nöfn, það vita allir við hverja er átt.  Hafið hjartans þökk fyrir.  Heart


Sunnudagsmorgun í kúlu.

Yndislegur kyrrlátur fallegur sunnudagsmorgun.  Hreinn og tær eftir rigningu gærdagsins og næturinnar.

Ég en í kotinu, því afi skutlaði Úlfinum til Suðureyrar á æfingu, nú á að taka þátt í söngvarakeppninni, hann er búin að vera að æfa sig og æfa sig í allan gær og fyrradag.  Vonandi gengur honum vel.

IMG_9269

Það er auðvitað logn.  Og ég er viss um að sólin brýst fram um hádegið.

IMG_9271

Vitiði nú hvað.  Mér finnst það algjör forréttindi að hafa pollinn svona dag eftir dag, eins og eitt stórt málverk. Hugsið ykkur, það er engin myndlistarsýning sem toppar þetta. Heart

IMG_9272

Það sést líka vel hve úthaginn hefur grænkað í úrkomunni undanfarið.  Allt svo hreint og fallegt, og mikill friður.

IMG_9273

Alveg einstakt að mínu mati.  Ég er reyndar búinn að fara upp á lóð og taka upp plöntur fyrir bæjarstjórann.  Hann er að fara að planta út í dag blessaður með sinni konu.  Það er ekkert uppbyggilegra fyrir samlíf en einmitt það.

IMG_9274

Hér sést vel hve allt hefur grænkað, og sennilega verður mikil berjatekja í ár.

IMG_9275

Hehehe ég stend á sama blettinum og sný mér bara í ýmsar áttir.

IMG_9276

Á svona morgni er svo gott að vera til.  Allt hjálpast að að setja frið í sálina, fuglasöngurinn, kyrrðin og maður heyrir plönturnar stynja af vellíðan vegna rakans.  Fjrðurinn glitrar af spegilmynd fjallanna.

IMG_9277

Hélurifsið brosir við manni.

IMG_9279

Fjólurnar hafa greinilega stundað stóðlíf hehehehe.

IMG_9281

Vestmanneyjabaldusbráin skartar sínu fegursta.  Mér þykir vænt um hana, eins og alla vini mína hér frá eyjunni grænu. 

Én í þessu heyri ég að krúttmolinn minn Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra eru að koma inn úr dyrunum.  Það þarf að gefa kaffi, og jafnvel einhvern morgunmat.  Sé ykkur. Eigið góðan dag, og vonandi jafn fallegan og yndælan og þessi sem hér er.  Heart


Rólegheit hjá kúlubúum.

Dagurinn í dag hefur verið rólegur hjá mér.  Algjör afslöppun, ósköp notalegt.  kl. eitt þarf ég að fara upp á lóð, ef einvher skyldi líta inn til að kaupa sér plöntur. 

Loksins kom rigninginn.  Það var þungbúið í gær, en hún lét á sér standa.  Nú vökvast alt og það eykur á mína vellíðan. 

IMG_9262

Sigurjón Dagur og Ólöf Dagmar litu við hjá ömmu í gær.  Það gengur vel með sýninguna hans Júlla, hún stendur til 4 ágúst.  Og hann er að betrumbæta aðstöðu sína tól og tæki, fyrir næstu sýningu. Þetta er bara gott mál.

IMG_9265

Hann Sigurjón var náttúrulega búin að bleyta sig, með því að vaða í sjónum.

IMG_9264

Ömmurúsína, ef hann hverfur þá byrja ég að leita að honum hjá Hrönn LoL

IMG_9260

Vinir, saman í haga.

IMG_9267

Og þungbúin Ísafjörður.  Samt alltaf jafn magnaður.

IMG_9268

Alejandra og Eva Rut eru svo í heimsókn hjá Úlfinum núna.  Jamm, rólegheit, afslöppun alveg eftir bókinni eins og þið sögðuð mér að gera Tounge Hlaða batteríin, og bara vera það er líka gott.

Eigið góðan laugardag öll sömul. Heart


Kraftakarlar.

Það er auðséð að brátt verður keppt í kraftakeppni hér vestra. 

Ég tók nokkrar skemmtilegar myndir af kraftakörlum sem eru að undirbúa keppnina.

IMG_9249

Jæja hann er að verða kominn upp úr, steinninn.

IMG_9250

Ekkert hald í þessu, hvernig eigum við að koma honum upp á kerruna ?

IMG_9252

Best að ég kippi honum bara yfir....

IMG_9253

Púff hann er helvíti þungur.

IMG_9254

AHH kominn á sinn stað.

IMG_9255

Og ekki nema 148 kíló.

IMG_9256

Já þetta voru glaðlegir og kátir strákar.

IMG_9259

Það verða örugglega margir sem fylgjast með köppunum. Ég segi bara gott gengi.


Daglegt veður á Ísó og ýmislegt.

Sólin braust fram í dag, en í morgun var þokan niður undir jörðina.

IMG_9227

Samt svolíltið rómó.

IMG_9228

Og gömlu bátarnir kúrðu svo friðsælir í logninu í höfninni. IMG_9229

Þetta er svona sjokkaðvörun fyrir þá sem koma heim í sumar, og vita ekki neitt, en hér er risinn glæsibygging við hliðina á gömlu Björnsbúð, sem núna er dótabúð.

IMG_9230

Og til að glöggva sig ennbetur, þá sést hér í gamla barnaskólann, heheheh.

IMG_9231

 

En pápi minn elskulegur verður níræður í byrjun ágúst, og ég á að sjá um skemmtiatriðin, svo mér datt í hug að heimsækja nýja hafnarstjórann í Bolungarvík til að vita hvort hann væri til í smá gig, en svei mér þá, verslunarmannahelginn er eina helgin sem þessi piltur ætlar sér að vera burtu, nánar til tekið á Austfjörðum, svo það gekk ekki upp.  En þetta er sum sé nýji hafnarstjórinn í Bolungarvík.

IMG_9232

Sjáið bara hrikalega fegurð Bolungarvíkur.

IMG_9233

en þar sem ég ók inn Seljalandsveginn, þá byrjaði að rofa til, þessi mynd sýnir birtuna vel.

IMG_9234

Og loks hafði sólin betur í baráttunni við mistrið, og skein á rangláta og réttláta, eins og hún hefði aldrei gert neitt annað.

IMG_9235

Ef þið viljið blóm, sem er bæði harðgert og duglegt, getur bæði verið í bleytu og þurrki, þá er þetta plantan sem þið viljið.  Apablómið stórkostlega, sem breiðir sig út yfir heilu skurðina, en getur alveg eins staðið og blómstrað, norðanundir vegg, í þurrki,  þá hafði þið það hér minulus frábær harðgerð planta sem þolir nánast hvað sem er, og svo er hún líka svo dómdags falleg.

IMG_9237

Og ísafjarðarbörnin á kajaknámskeiði.  Það skortir ekki verkefni fyrir börnin okkar hér, það er öruggt mál.

IMG_9239

Þessi fallega sýrena, sem líklega er fagursýrena Bogarsýrena, blómstarði og brosti við mér niður í Kínahverfi, sem svo er kallað hér.

IMG_9240

Þau eru búnir að vera þvílíkir vinir í fleiri daga, Sóley Ebba og Úlfur hér í kúlu, en í kvöld fengu þau að sofa í tjaldi hjá Ólöf Dagmar.

IMG_9243

En í kvöld átum við Hrefnuket.  Ég get alveg sagt ykkur það, að réttmeöhöndlað hrefnuket er BETRA en nautakjöt.  Ég keypti marinerað hrefnuket í Samkaup, og steikti það samkvæmt ráðleggingum Magga Hauks, súperkokks, steikt í smjöri, það verður ekki gefið upp nánar hér, nema eftir sé leitað, og soðnar kartöflur, með sultu.  Algjört sælgæti. Allir tóku vel til matarins, og hrefnan var uppétin á nóinu.  Reynið sjálf, passið bara að steikja hana ekki lengur en 2-3 mín.  á velheitri pönnu, og hún bráðnar upp í ykkur..... nammi namm.

IMG_9244

Meiri háttar steik.

IMG_9245

Hér er kvöldmynd, þar sem sólin hefur unnið sigur á mistrinu.  Æ það er bara yndælt.

IMG_9246

Og börnin að fara að heiman LoL Til að sofa í tjaldi, með allar sínar græjur í kerrunni hennar Ásthildar.  Svo við erum ein í kotinu.  Það er auðvitað bara notalegt, en samtvantar eitthvað. Ég segi bara góða nótt elskurnar mínar og takk fyrir öll fallegu komentinn ykkar.  Ég nýt þeirra í botn, nota mér þau mér til sáluhjálpar, og geymi þau í hjartanu, og læt þau ylja mér endalaust gegnum daginn og kvöldið.  Ég held að þið áttið ykkur ekki einu sinni á hve gefandi þið eruð, með svörum ykkar.  Það er bara þannig.  Knús á ykkur.  Og Sigrún mín, það var rosalega gaman að hitta þig í dag, og ég vona að þú gefir þér tíma til að koma við, og þiggja kaffi eða eitthvað.  Knús á þig mín kæra. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband