Smá ferðalag til Mexico.

Flugum um hálf níu um morguninn frá Keflavík til Boston.  Þar tók á móti okkur í útlendingaeftirlitinu ung hress suðurríkjadama.  Heilsaði hún okkur brosandi og með kostum og kynjum, sagðist hafa verið á Íslandi,  í Reykjavík og víðar.  Spurði hvort Ísafjörður væri nálægt Akureyri. 

Það var knappur tími til að ná í farangur okkar og setja hana í framhaldsflug til Mexícócity, en við vorum fullvissuð um að taskann færi alla leið.  Það hafði verið klukkutíma seinkun hjá Icelandair svo við höfðum bara einn og hálfan tíma til að koma okkur gegnum útlendingaeftirlitið, fara á annan terminal og ná vélinni til Chicago.  Þar þurftum við að bíða lengur, fengum okkur brauðsneið og djús, og reyndum að láta fara vel um okkur.  Flugið til Mexicócity  tekur fjóra og hálfan tíma. Stúlkan í eftirlitinu í Chicago spurði hvaðan við værum og hrópaði upp yfir sig Íslendingar þá hef ég aldrei séð fyrr. 

 

Úti í Ameríku er geðveikislegt eftirlit, maður þarf að fara úr skónum og allt gegnum lýst, var samt feginn að sleppa við það sem sumir þurftu að ganga í gegnum, að láta taka af sér fingraför og mynd í bak og fyrir. 

 

Lentum í Mexícó um kl. 6 að staðartíma, vorum þá búin að græða 7 tíma.  Þá kom í ljós það sem ég reyndar hafði óttast að taskan okkar hafði ekki skilað sér. Það er samt mikill munur að koma frá Bandaríkjunum til Mexícó, fólkið hér er miklu brosmildara og kurteislegra en í B.N.A.

Þegar maður kemur inn í Mexícó, er tollaeftirlitið þannig að þú ýtir á hnapp, ef það kemur grænt þá ferðu í gegn óáreitt, ef það kemur rautt, ferðu í skoðun.  Við fengum rautt í þetta sinn.  Tollarinn bara brosti og spurði hvaðan við kæmum meðan hann grautaði smávegis í handtöskunni minni.  AHA Íslendingar, ég dáist svo mikið að víkingunum sagði hann og benti okkur á að fara bara í gegn. 

 

Á flugvellinum er það svo í Mexícó að þú pantar leigubíl inn á vellinum og segir hvert þú ætlar og greiðir fyrir hann þar.  Þetta er öryggisráðstöfun, vegna þess hve tíð rán höfðu verið á túristum, þar áður.  Við ætluðum niður á Holliday inn við Zocalotorg.  Það fyrsta sem maður tekur eftir í Mexócó á flugvöllum og rútubílatöðum er að þar er engin klukka. Þeim gengur illa að aðaga sig að Gregoriska tímatalinu. Enda lítið stressaðir.  Þar sem klukkann eltir þá, en ekki þeir klukkuna eins og á Vesturlöndum.

Við fengum staðfest að taskan okkar yrði send á hótelið þegar hún kæmi í leitirnar.  Mágkona mín kom frá Mazatlán hún ætlaði eð vera með okkur í þessari ferð. 

 

Þegar við komum upp á Zocalotorgið iðaði það allt af lífi, börn með blöðrur og lúðrasveitir og söngur.  ‘I dag er 9. janúar dagur Guadalupe.  Maríu Mey indíána í Mexícó og víðar.  Zocaló er stórt torg í miðri Mexícóborg, við það stendur forsetahöllin og hæstiréttur, og dómkirkjan.   Þar safnast fólk saman til allskonar hátíðabrigða, og þar dansa Aztekarnir í sínum glæsilegu búningum.  Stór fáni er á miðju torginu, um 30 metra há stöng, og fáninn stór eftir því. Mexicócity var upphaflega höfuðborg Azteka.

 

Zocalo torg, forsetahöllinn sést þarna og fáninn stóri.  Tekið ofan af Holliday inn.

 

Við byrjuðum á að fara og versla inn það nauðsynlegasta til skiptanna, vegna töskuhvarfsins, og fórum svo og fengum okkur góðan Brunch. Vorum 3 daga í borginni og svo var lagt af stað með rútu til Chapas.  Taskan kom í leitirnar síðasta daginn í borginni, og vorum við harla feginn.

 

Áður en við fórum suðureftir, fórum við og skoðuðum pýramídana í Teothihuacan,  þarna eru margar stórkostlegar byggingar.  Sól og mána pýramídar sitt við hvorn enda dauðagötunnar og byggingarnar meðfram henni, og þar eru margar byggingar ennþá huldar gróðri og jarðvegi.En þarna má sjá bæði tilhöggnar og málaðara myndir og þeir hafa skreytt náttúrulegu steinanna sem þeir hlóðu úr með mynstri úr minni steinum.  Svo hafa þeir múrað yfir og málað.  Vatnsleiðslur og skolp, og þarna mátti sjá leifar af saunabaði og klósetti.  Menningin hefur svo sannarlega risið hátt á þessum tímum.  Þarna var sagt að hefðu búið ættbálkur um 94.000 manns og þau hurfu skyndilega og enginn vissi hvað af þeim varð.

 

Mánapýramídinn.  Þar sem fólkið gengur er dauðagatan.

 

Hér sést vel hvernig þeir skeyttu steinanna.  Og inni sést hvernig þeir múrhúðuðu steinana.  Þarna sést líka útskurður mynd af dreka.

 

Við skoðuðum líka Azteca hof í borginnin rétt hjá torginu. Svolítið óhugnanlegt var að skoða fórnaraltarið og hvernig þeir hafa lagt frárennsli fyrir blóðið.

 

Síðasta kvöldið fengum við okkur að borða á veitingastaðnum á Holliday inn.  Veitingastaðurinn er upp á 6. hæð þar er hægt að sitja úti og horfa yfir Zocalotorg, en í ár er frekar kallt í borginni, svo við sátum inni,  en það var notalegt að sitja með góðan mat, Mexícóst Irish coffee og Tequila og hlusta á taktfastar trommur Aztekana, þar sem þeir dansa og nota fámennið til að æfa unglingana í dansinum, úti á torginu.

 

Flugvöllur Mexícóborgar er mjög nálægt borginni, yfirvöld vilja færa hann lengra burtu en bændur og umhvefissinnar berjast gegn því.  Þeir segja að allt of stórt ræktarland fari undir völlinn og akveg að honum.  Þeir segja að lifibrauð þeirra sé í hættu verði flugvöllurinn færður. 

 

Daginn eftir lögðum við af stað til Tuxtla.  Það er um 13 tíma akstur, en rúturnar eru þægilegar og á leiðinni eru sýndar kvikmyndir.  Vorum fyrr á ferðinn en við ætluðum vorum í Tuxtla um 6 leytið um morguninn, en rútan til Bendingo fer ekki fyrri en kl. 9.00  Settumst niður á litla kaffistofu og fengum okkur kaffi. Á kaffistofunni hittum við tvær ísraelskar stúlkur, þær sögðu okkur að upp í fjöllunum væri gljúfur sem væri mjög frægt.  Við ákváðum að taka leigubíl og skoða það.  Gljúfrið gengur þvert í gegnum fjall sem er 1200 metra hátt, það er hægt að sigla í gegn um skarðið, eða aka upp fjöllinn og skoða að ofan frá.  Það er hægt að stoppa á nokkrum stöðum, en við höfðum bara tíma fyrir tvo fyrstu 600 metra hæð og 900 metra.  Það var ótrúlegt að horfa niður þráðbeinan klettavegginn og sjá 900 metrum neðar silfurband árinnar, að vísu var dálítið móða og úði vegna þess hve snemma við vorum, og sólin ekki búin að bræða sig gegnum dögg næturinnar, en við því var ekkert að gera, því rútan fór kl. 9.00.  Í bænum Tuxtla búa um 850 þúsund manns og er hann með stærri bæjum í Shapas.  Gegnum bæinn rennur áin Rio Sabinal, fyrri nokkrum vikum hafði hún flotið yfir bakka sína og umflotið stóran hluta bæjarins.  Við sáum sumstaðar stóra reykjastróka líða upp úr jarðveginum, við spurðum hvað þetta væri, bílstjórinn sagði að þetta væru ofnar, sem grafnir eru í jörðina, þéttir innan með jarðsteinum og leir, til að baka brauð. 

 

Bílstjórinn ráðlagði okkur að stoppa í San Kristobel, þar sem er hellir einn mikill með allskonar náttúrumyndnum. Grutas Del Pancho nueve.  Hann sagði líka að við skyldum passa okkur á leigubílstjórum.  Lagði á við okkur að skrifa niður merki sem alltaf er á hlið bílanna og skrá líka niður nafn bílstjóranna, þeir gæru verið varasamir. 

 

Sab Kristobel er bær, það búa um 27.000 manns bærin er í 2667 metra hæð.  Við fórum yfir 3000 metra hæð á leiðinni, og vorum skýjum ofar.  Þarna er landslagið hæðótt og hrikalegt en mjög fallegt, hæðirnar eru  þaktar með frekar lágvöxnum gróðri og  mikið var um að menn höfðu rutt gróðri burtu og þarna var ræktaður maís í stórum stíl. Enda maís aðalútflutningsvara Chapasbúa. 

 

Horft yfir Tuxtla.

 

Hér sést inn í hellinn góða.

 

Við tókum leigubíl í San Kristobel upp í fjöllinn til að skoða Hellinn.  Hann var stórkostlegur.  Lítil indíjánastúlka leiðbeindi okkur um hellinn með vasaljós og sýndi okkur hellamyndirnar.  Sem höfðu myndast í mjúku berginu við ágang vatns.  Á þessum slóðum hafði brotist út stríð fyrir fjórum árum milli ensku rétttrúnaðarkirkjunnar og kaþólikka og 45 manns indíjánar voru drepnir þar sem þeir sátu og báðust fyrir í einni kirkjunni.

 

Í skólanum er það svo að börnin eru aðgreind eftir því hvor trú þeirra er.  Svo eru mormónar einnig að hasla sér völl.  Trúmál þarna eru mikið vandamál, vegna þessa stríðs á milli trúarbragða. 

 

Indíjánarnir upp í fjöllunum eru með sína siði og reglur enn þann dag í dag.  Þarna í Chapas eru kindur friðhelgar, það má ekki drepa þær eða skaða á neinn hátt, það eina sem menn mega hafa not af þeim er ullin. Enda vefa konurnar mikið og sauma út.  Þær vinna en karlarnir hafa það náðugt.  Algengt er að menn fastni sér stúlkubörn þegar þær eru fimm til sex ára.  Þá koma þeir með geitur asna og heimabrugg og velja sér telpu.  Hún elst svo upp á heimili foreldra sinna, uns hún er gjafvaxta fimmtán sextán ára, þá kemur brúðguminn, kvænist henni og tekur hana inn á sitt heimil, hann á gjarnan fjórar til sex eiginkonur, sem vinna fyrir heimilinu.  Börnin eru líka mörg.  Aðal fæða þeirra eru tortillur búnar til úr maís, og svo ávextir sem eru ræktaðir heima.  Einnig eru flest heimili með hænur, geitur og kalkúna.  Stærri býli eru svo með hesta og asna. Tvennskonar kýr eru ræktaðar önnur tegundin vegna kjötsins og hin til að mjólka.  Í San Kristobel De la Casas fór bílstjórinn með okkur í heimsókn til fjölskyldu, eiginkonurnar voru fjórar, en einnig systir einnar eiginkonunnar og ein frænka, þær fimm áttu með manninum 15 börn. þrjár kvennanna voru heima, ein að baka tortíllur og önnur að vefa sú þriðja var með ungabarn í sjali á bakinu.  Við vorum látin máta okkur í hátíðabúning ættbálkins og Elli minn var svolítið broslegur í skrautlegri treyju með stóran hatt með mörgum skrautborðum.  Við vorum líka flottar ég og mágkona mín, í vaðmálspilsum skrautlegum mussum með borða og fallega ofið sjal.  Allt heimagert og fallega unnið.  Svo var tekin mynd að herlegheitunum.  Við þáðum líka tortillur sem voru bakaðar við frumstæðustu aðstæður og heimabrugg.  Mjög skemmtilegt.  Framhlið hússins var mjög flott múruð og máluð, en bakhliðinn nokkurs konar patíó sem er reist úr timbri, og hlaðið með efni sem þeir gera úr taði, síðan er torf og leir sett í rifurnar, Við komumst svo að því að framliðin er byggð eins bara múrað yfir með leir og svo málað yfir.  Patíóið var aðeins einföld grind með plasti yfir sem var vinnustaður hannyrðakvennanna, og svo var óþéttur timburkofi sem var eldhúsið.  Engin borð eða stólar, utan nokkrir tréstólar sem eru eins og smábarnastólar, en einu sætinn, hinir sitja bara á gólfinu.  Þetta var samt fjölskylda sem átti nóg, og var í fínu hverfi.

 

 

 

 

 

Eldhúsið og tortillagerð.

 

Hér er ein eiginkonan að vefa. Og verk hennar hanga uppi allt í kring.

 

 

Týpiskur búningur fyrir indíána konur í Chapas.  Pilsin eru með mismundandi mynstri eftir því hvaða ættbálkur á í hlut. Þær vefa pilsin sjálfar, og sauma búningana. Teppið er algengt höfuðfat og er líka notað sem brúðarslör.

 

 

 

Í þessum bæ var katólsk kirkja á miðju torginu.  Þar var dýrðlingunum raðað með fram öllum veggjum kirkjunnar. Gólfið var þakið með furunálun, það gera indíjánar þessa héraðs, þegar þeir halda veislur, svo sem giftingar eða fermingar.  Víða á kirkjugólfinu sátu manneskjur með kerti fyrir framan sig og sumir voru með hænur, flestir voru með kókflöskur og brauðkollu sér við hlið.  Þetta voru heilarar, sem læknuðu fólk sem til þeirra leitaði.  Ég lét tilleiðast og fékk einn indíjánan til að lækna mig.  Með kertum ekki hænum.  Því þegar sjúkdómurinn hefur verið yfirfærður í hænugreyið þá er hún snúinn úr... Þau voru treg til að taka mig að sér, feiminn við þessa hvítu kerlingu, og hafa sennilega fundið af henni nornalyktina.  En loks var einn sem þorði.  Hann sagði okkur að sjúkdómar byrja allir í vitundinni, og ef maður gerir ekkert í því, þá fer sjúkdómurinn úr í líkamann.  En svei mér þá mér snarbatnaði sár verkur sem ég hafði verið með í bakinu. 

Í kirkjunni er messað einusinni í viku og presturinn kemur frá næsta þorpi. Okkur var sagt seinna að Páfinn hefði komið þarna í heimsókn  og hefði fengið svipaða meðhöndlun og ég.  Hann hefði verið spurður afhverju þetta væri látið viðgangast, og hann svaraði; Við megum ekki taka allt frá indíjánunum.

Kirkjan í baksýn og markaður á aðaltorgi San Kristobel.

 

 

Þarna sést ein kona að vinna tóg.  Handavinna hennar hangir þarna uppi.

 

 

 

Það sem vakti athygli sértsaklega er hvað hvítu fötin eru hvít þarna, þar sem aðstaðan til þvotta er afskaplega bágborin.  Indíjánakonurnar þvo mikið, þær byrja daginn á að þvo, og svo er þvotturinn hengdur til þessir á girðingar, limgerði, eða bara hvað sem er.  Aðal tækið sem er notað til að þvo þvotta fyrir utan lækjarsprænur, polla eða móbrúnar ár er .... já það eru nefnilega HJÓLBÖRUR. Á einum stað sáum við um 7 konur allr í röð að þvo í hjólbörunum sínum  hlið við hlið, sumar gamlar ryðgaðar, og aðrar flúnku nýjar.   Hugisð ykkur hjólbörur eru kostagripur, svo er hægt að fara með þvottinn í þeim til að hengja upp, skreppa í bæinn og kaupa inn, hafa barnið í þeim og svo getur maður lánað bóndanum þær er hann þarf að fara í gegningar.  Annars ganga allar konur í Mexóco með börn sín í fanginu eða í teppi á bakinu.  Enginn er með kerru eða vagn.   

Frá San Kristobel fórum við svo áleiðis til Palengue, en þar ætlum við að skoða Pýramída Maja.  Meira um það seinna.

 

 

 


Stundum er lífið of stutt, í minningu Hjálmars H. Sigurðssonar.

Undanfarnir dagar hafa liðið hratt, þar sem ég er á flótta undan vetrinum við að ganga frá plöntunum mínum fyrir veturinn.  Búin að koma flestu sem var óklárað inn í gróðurhús, svo ég get unað mér við að vinna innandyra það er gott. 

En tímin er bara svona afstæður og líður út úr höndunum á okkur áður en við náum að núa okkur við.  Ég fór í jarðarför s.l. laugardag, elskulegur félagi og samverkamaður til margra ára, Hjálmar H. Sigurðsson var jarðsettur.  Við sem unnum með honum erum öll harmi sleginn yfir að þessi káti drengur skulu horfinn okkur.  Mér finnst ég ennþá heyra hlátur hans og sterka rödd hljóma yfir kaffistofuna.  Það ríkti góður andi og vinsemd á vinnustaðnum og þar var gott að vera, þó ég sé nú hætt að vinna fer ég gjarnan þangað niðureftir til að fá mér kaffisopa og rabba við þessa góðu félaga mína, svo ég tali nú ekki um ef ég þarf einhverja aðstoð, þegar Elli er ekki heima, þá er gott að eiga hauka í horni.  

Hjalli var bóndi, með fram því sem hann vann sem gröfumaður hjá Ísafjarðarbæ.  Hann var alltaf kátur og greiðvikinn var hann og mátti ekkert aumt sjá.  Eins kom Hjalli eins fram við alla menn.  Enginn var öðrum æðri í hans augum.  

 

Hjalli 003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þó rödd hans og hlátur séu nú þögnuð, þá geymum við minningu hans í hjörtum okkar.  Og það verður örugglega oft hugsað til hans með hlýju af samstarfsmönnum.    

Hjalli 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Kæri Hjálmar og fjölskylda ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur um leið og ég kveð góðan dreng.  

Lífið getur oft orðið endasleppt og áður en við áttum okkur á er komið stórt skarð í vinahópinn, eða fjölskylduna.  Þess vegna er alltaf best að gleyma ekki kærleikanum og hve mikils virði góð vinátta er.

Far þú í friði Hjálmar minn og blessuð sé minning þín.  


Málfrelsi, hvenær snýst það upp í andstæðu sína?

Ert þú að tala í eigin nafni ágæti þingmaður, eða er þetta ákvörðun alls flokksins þíns?

Látum nú vera að þú mótmælir lokun á síðu þessara glæpasamtaka í nafni málfrelsis.  En þarna kemur annað og alvarlegra til.  Í fyrsta lagi treystir þú hvorki sérfræðingum né stjórnmálamönnum til þess að fylgjast með þessu máli.  En telur að almenningur sem í þessu tilfelli getur aldrei orðið annað en dómstóll götunnar, sé betur til þess fallinn að fá að fylgjast með.  

En það alvarlegast í þessu öllu saman er að þú þingmaðurinn leyfir þér að brjóta brjóta á réttarkerfinu með því að koma með link á síðu sem er búið að loka, að því sem viðkomandi telja hættulega.

 Ef þetta er ekki gert með samkomulagi þingsflokksins, heldur er þín prívat og persónulega skoðun, þá langar mig til að spyrja þig, gerðir þú þetta af réttlætiskennd gagnvart málfrelsi, eða var þetta gert til þess að sýna hvað þú ert klár tölvumaður?

 Eða ertu búin að gleyma því að þingmenn sverja eið að stjórnarskránni og eiga að fara fyrir sauðsvörtum almúganum í því að halda uppi lögum og reglum.  

Þetta samrýmist ekki slíku, þar sem þú tekur það að þér að sýna fólki hvernig það eigi að fara framhjá aðgerðum, sem ráðamenn virðast vera samþykkir.

 Allt svona stuðlar að upplaust í samfélaginu og er nú nóg af slíku í dag.  

Nákæmlega eins og aðrir stjórnmálamenn, gera sitt í upplausn með því að ljúga, fegra málstað, sýna spillingu og "handstýra" réttlætinu.

Ég hef hingað til litið til Pírata sem mest óspillta flokknum sem komst inn á þing.  Ég mun endurskoða þá afstöðu mína eftir þetta mál.  

Mín tilfinning er sú að þessi samtök sem eru afskaplega hættuleg og ruddaleg, og virða ekki mannlíf né neitt annað sem við viljum sjá í okkar samfélagi, ég hætti við að segj siðaða, vegna þess hvernig stjórnmálamenn og aðrir hafa umgengist lög og reglur.  Þau eru nú komin nánast í bakgarðinn hjá okkur, sennilega út af is endingunni.  

þessi menn hlæja að vesturlanda búum, því meðan þeir bisast við að vera fordómalausir og gefa öllum sjens, murka þessir menn lífið úr fjölda fólks, bæði vesturlanda og sínum eigin löndum.

Þetta mál er því að mínu mati svartur blettur á Pírötum, nema þeir lýsi yfir að þetta sé þín einkaaðgerð þ.e. linkurinn, en ekki að undirlagi flokksins.   


mbl.is Rangt að loka vefsíðu Ríkis íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli leikklúbburinn verður fimmtugur á næsta ári.

Litli leikklúbburinn á Ísafirði verður fimtugur næsta vor.  Við erum nokkur í ritnefnd sem erum að taka saman efni fyrir afmælisrit.  Það eru ég, Þórunn Jónsdóttir, Finni Magg, Anna Lóa og Sveinbjörn. 

Við höfum farið yfir þau verk sem LL hefur sett upp, bæði stór og smá.  Þetta hefur verið afskaplega gaman og skemmtilegt að rifja upp.  

Fyrsta verkið var Lína Langsokkur.  Hún var sett á svið 1966.

1-Lína 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Leikstjóri var Sigrún Magnúsdóttir sem lék lengi í þjóðleikshúsinu og var landsþekkt á sínum tíma .  

Mig langar að rifja aðeins upp sumt skemmtilegt frá þessum tíma, því Litli Leikklúbburinn var afskaplega skemmtileg afþreying og lærdómur sem við fengum að upplifa og hefur örugglega breytt okkur flestum sem þar komu nærri.

1-Skyggna vinnukonan 003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Skyggna vinnukonan kom næst.  Ég var hvíslari, þar sem ég var komin langt á leið með mitt fyrsta barn.  Var orðin svo fyrirferðamikil að ég komst ekki ofan í hvíslarastúkuna sem var fremst fyrir miðju sviðinu.  Svo ég sat bak við tjöldin.  Þessi hvísltarahola var svo efnumin eftir það.

 Svo réðumst við í Allra meina bót.

1-allra meina bót 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var virkilega gaman á þessum tíma.

Svo kom Leyndarmál Öskjunnar, Erlingur Halldórsson, hann var nú ekki sá glaðlegasti þessi elska Smile

1-Leyndarmál 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sakamálaleikrit með meiru.

1-Sexurnar 002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sexurnar var algjör farsi sem sló í gegn, og við fórum í skemmtilegt ferðalag með þær, Sævar Helgason lék með, ásamt því að leikstýra.  Þetta var algjört ævintýri.

1-Billý lygari 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi mynd er sögð vera úr því leikriti.  Sýnist vera meira eins og frænka Charles LoL

1-Billy Lygari 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En Billý var frekar ádeiluverk. Leikstjóri þar var Jóhann Ögmundsson sá góði maður að norðan.

1-Afbrýðisöm eiginkona 002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Afbrýðisöm eiginkona var svo næst, farsi sem gekk vel. Jóhann Ögmundsson setti þetta stykki upp líka.

 Ég vil fá minn mann kom svo í kjölarið. 

Sagan af Wasco var sett hér upp þegar Helga Hjörvar og eiginmaður hennar var skólastjóri í Hnífsdal, hann þýddi verkið og við urðum stundum að bíða eftir að fá framhaldið í hendurnar.  En þetta gekk ágætlega.  

1-Afbrýðisöm eiginkona 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Verkin eru orðin æði mörg sem við höfum verið að fara í gegnum og rifjað upp.

Til dæmis Dario Fo, Sá sem stelur fæti.

18849_1349709311168_1484410268_954807_8145133_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá Veigar Kjartansson, sem lék með okkur um tíma, Sveinbjörn Björnsson, Guðna Ásmunds sem lék í næstum hverju leikriti hjá okkur og Jón Hallfreð.  

Í sjö stelpum lék m.a. Bryndís Scram.

1-Sjö stelpur 002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var á þeim tíma þegar Jón Baldvin var hér skólastjóri Menntaskólans, og Bryndís vann í rækjuverksmiðjunni hjá föður mínum.  Og var hvers manns hugljúfi.

Bryndís var líka leikstjóri hjá LL. Setti m.a. upp Sandkassann. 

 Baldur Hreinsson steig sín fyrstu spor í leiklistinni með Litla Leikklúbbnum. 

 

1-Sveitapiltsins draumur 001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér leikur hann í Sveitapiltsins draumur með Jakobi Fal Garðarssyni, en hans kona er Vigdís Jakobsdóttir sem hefur getið sér góðan orðstýr í leikhúsum borgarinnar, en hér lærði hún að meta leikhúsið.
 
1-Dýrin 001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er Baldur refurinn í Dýrin í Hálsaskógi.
 
1-Hinn eini sanni sveppi 001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er Vigdís með hópnum um Kitla.  Hún setti líka upp Bleikir fílar á inniskóm og vann mikið með leikklúbbnum áður en hún varð fræg í Reykjavík. Smile
  
 Hér hafa margt gott fólk lagt okkur lið gegnum tíðina. Fyrir utan leikstjórana þá hafa dvalið hér leikarar um tíma og lagt sitt af mörkum.  
 
Theodór Júlíusson var með okkur um tíma, þá var hann að vinna hér sem bakari minnir mig.  Hugsa bara að hann hafi fengið bakteríuna einmitt hér.
 
Elísabet Þorgeirsdóttir ljóðskáld vann mikið með leikklúbbnum.  
 
1-Fjalla Eyvindur 005
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er hún í Hart í bak.
 
Meira að segja Helgi Björns tók sín fyrstu skref í Litla Leikklúbbnum, í söngleik sem kallast Sabína, og er eftir Hafliða Magnússon frá Bíldudal.
 
1-Helgi Björns 001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ungur, sætur og sexý.  
 
Já það hafa margir lagt hönd á plóg í Litla Leikklúbbnum.  Og margir góðir leikstjórar komið við sögu. Enda held ég að LL sé einn af þekktustu áhugaleikfélögum úti á landi.  Að öðrum ólöstuðum.  
 
Hér var líka BJörn Karlsson leikari hann kenndi hér minnir mig einn  vetur, Rúnar Guðbrandsson, Saga Jónsdóttir og hennar maður Steingrímur var hér í löggunni um tíma. 
 
 
 En þó ég sé að telja upp svona Seleb, þá hefði Litli Leikklúbburinn aldrei orðið það sem hann er í dag, nema af því að hann átti á að skipa duglegu yndislegu fólki sem lagði allt á sig til að gera hann stóran og faglegan.  
Það er ekki hægt að byrja á að nefna nein nöfn, því það eru svo margir sem lagt hafa hönd á plóginn, en þið sem hafi starfað með okkur þekki þau nöfn.  
 
En mig langar til að biðja ykkur þarna úti sem eigi einhverjar minningar, myndir eða eitthvað sem þið viljið miðla að hafa samband við mig, Tótu, Önnu Lóu, Finna Magg og Sveinbjörn.  Það skiptir máli að sem flest komi fram og sé skjalfest þó ekki sé hægt að koma öllu fyrir í einni afmælis skrá.
 
Okkur vantar til dæmis allar myndir úr söngurinn frá My Lai.  Úr Húrra krakki, Sandkassanum og leikskrár úr þeim leikritum báðum.  
En ég mun ræða þetta betur síðar.  Endilega hafið samband.  ég er með gmail asthildurcesil@gmail.som 

Já það er bara sona?

Er ekki rétt að veita honum Grímuna fyrir góðan leik æðislegan  leikþátt ítem Leikstjórn?  Got talent þessi gaur. Smile

Svo má fá hann til að setja þetta allt á svið í þjóðleikshúsinu og síðan taka það upp og sýna í sjónvarpinu svo við missum nú ekki af svona gullétandi sjéníi.   


mbl.is „Eins og froskur í potti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið sem þykist þess umkomin að dæma. Ykkar er skömmin.

Eskuleg samkvæmt bænaskrá bænadags og svo "rétttrúnaðar sinna, þá átti þú bara að hætta við alla meðferð og bara farast með þínu barni.. Því fóstureyðing er synd.  

Þetta ákveðna dæmi segir bara hvað getur gerst og hvað ákvarðanir þarf stundum að taka.  Í hvaða stöðu eru fordæmingsmenn fóstureyðinga  þegar svona kemur upp?

Það fólk sem þannig hugsar hefur ekki hugmynd um hvað oft er í gangi, og svo reyna þessir einstaklingar að reyna að vekja samviskubit hjá fólki, þegar það þarf að velja um eigið líf eða fósturs.

Ég fordæmi þá sem setja sig á háan hest hvað þetta varðar, stundum fólk sem hugsar ekki einu sinni um sín eigin afkvæmi, en þykjast þess umkomin að dæma aðra.  Ja fussum svei.  


mbl.is „Ég var ólétt þegar ég greindist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau koma ekki bara til greina Bjarni minn, þetta verður að gerast.

Bjarni minn það hlýtur að koma meira en til greina, þið hljótið að kaupa þessi gögn, annars eruð þið persónur non grada.  'Eg segi fyrir sjálfa mig, sem svona frekar friðsöm manneskja að ef þið farið í einhver undanbrögð með þetta mál, þá missi ég endanlega trú á þér og Sigmundi Davíð.  

Það er bara þannig.  Þið verðið að átta ykkur á því að þeir sem í hlut eiga munu gera allt til þess að þetta verði ekki gert opinbert.  En við almenningur eigum heimtingu á því að þetta verði skoðað ofan í kjölin.  Hér duga enginn undanbrögð eða afsakanir.  Rétt eins og Eva Joly sagði alltaf, það verður allt gert til að koma í veg fyrir að sannleikurinn komi í ljós.  Og við erum búin að horfa upp á allskonar bankakarla og ríkisbubba lýsa því yfir að þeir séu alsaklausir af öllum áburði um spillingu og þjófnað.

Við erum satt að segja, held að ég þori að tala fyrir munn flestra alþýðumanna í þessu samfélagi, búin að fá okkur fullsödd upp í háls af þessu leynimakki og undanbrögðum.

Þið mynduð því skora stórt til að hreinsa andrúmsloftið með því að gera það sem ykkur ber til að upplýsa hverjir hafa skotið undan skattfé og þar með stolið af þjóðinni milljörðum.   Ef ekki þá held ég að ykka pólitíska líf sé ekki mikils virði.  

Stjórnmálamenn halda alltaf og raunar ekki út af engu að við höfum gullfiskaminni.  En ég get alveg sagt þér að þetta gullfiskaminni er farið að teygjast aðeins, vegna þess að fólk eins og ég allavega er að springa úr óþolinmæði á þeim kosningaloforðum ríkisstjórna hingað til að hreinsa til og koma í veg fyrir spillingu, setja hag heimilanna í forgang og svo framvegis.

Og ég held bara að þessir peningar geti sett stoðir undir það að hægt sé að gera meira og betra fyrir heilbrigðis, mennta og velferðarkerfið en þið ætlið að gera.  og minnkað fyrirhugaðan niðurskurð.  Þið hafi einfaldlega ekki leyfi til að sleppa þessu tækifæri segi og skrifa.

 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og nú ætla ég að fylgjast vel með umræðunni og hvað þið Sigmundur segið og gerið.   

 

 

 

 


mbl.is Kaup á leynigögnum koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himnagalleríið opið. Fallegar skýjamyndir.

Mig langar að deila með ykkur fallegum skýjamyndum, sem ég tók á ferðalagi heim fyrir nokkrum dögum eða vikum.  Sýnir hve í raun og veru við eigum mikið af fallegri ókeypis dýrð, sem enginn getur tekið frá okkur, ekki er nokkur vegur að stela og mölur og ryð fá ekki grandað.  

unnamed

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessar myndir eru teknar allar sama daginn eða eftirmiðdaginn, á mismunandi stöðum á landinu.

 

 

unnamed (1)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sannarlega fallegt.

 

unnamed (3)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og fjölbreytileikinn algjör, eftir því sem líður á kvöldið og mismunandi stöðum á landinu.

 

unnamed (4)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eldgos hvað??Smile

 

unnamed (5)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Get líka sagt ykkur að ekki margar þjóðir státa af svona miklum hreinleika í himinhvolfinu.

 

unnamed (6)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og sjónarspilið algjört.  

 

unnamed (8)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað er eiginlega fallegra?

 

unnamed (10)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sumir taka þessu sem gefnu, en gleyma að njóta.  Heart

 

unnamed (11)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En ég get alveg sagt ykkur að svona himnagallerí gefur sálinni alveg heilmikið ef við gefum okkur tíma til að njóta.

 

unnamed (12)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eigið gott kvöld.  Ég er spennt að fara að horfa á nýja spennuþáttinn á Ruv í kvöld.

 

unnamed (13)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að lokum fallega yndislega, góða El Salvador fjölskyldan mín, sem minnir okkur á að við eigum að vera óhrædd við að hleypa fólki af ólíkum uppruna inn í landið okkar.  Við erum öll manneskjur og okkur ber að taka vel á móti þeim sem hingað leita.  Vera kurteis og opna faðminn og sýna velvilja og kærleika.  Okkur þarf að fjölga meira en nú er, til að standa undir óráðssýju stjórnvalda sem bara vilja eyða peningunum í allskonar gæluverkefni.  Við megum líka mikið læra af fólki sem kann sparsemi og hvernig á að lifa vel á litlu.  

Góða nótt Heart 

 


Mjólkursamsalan og samkeppnin.

Þetta mjólkurdæmi er algjörlega úr út kú... eða þannig.  Siðblindan er algjör hjá forsvarsmönnum Mjólkursamsölunnar. 

 

hinduasidur_fornarathofn_090610

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

http://www.visir.is/-edlilegt-ad-mjolka-greiddi-haerra-verd-/article/2014709259973

Egill er formaður Mjólkursamsölunnar. Hann telur dóm Samkeppniseftirlitsins vera byggðan á misskilningi. „Samkeppnislög eru lagabálkur sem við berum mikla virðingu fyrir. Við teljum okkur ekki hafa brotið gegn neinum og að Mjólkursamsalan hafi í hvívetna farið að þeim leikreglum sem henni eru settar.“

 

Egill telur einnig að aðrar leikreglur gildi fyrir fyrirtæki innan samstæðu MS og annarra aðila á markaði. „Það skiptir máli að greina í sundur hvernig við flytjum mjólk innan samstæðunnar og þegar við seljum mjólk út úr kerfinu. Þetta er tvennt ólíkt. Það er ekkert óeðlilegt við það að selja öðrum framleiðendum mjólk á hærra verði en þegar við flytjum mjólk innan samstæðu MS,“ segir Egill. „Ég fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi. Þetta er að okkar mati ný túlkun á búvöru- og samkeppnislögum.

 

 Jamm svo er nú það Egill.  Þú skilur sem sagt ekki grundvallar rök samkeppni, þar sem allir eiga að vera jafnir fyrir lögum.  Það er nú svo, og hér er svo rúsínan í pylsuendanum: 

 

Egill býður alla nýja aðila velkomna á markaðinn og segir MS ekki standa í vegi fyrir neinum að fikra sig inn á markaðinn. „MS hefur verið legið á hálsi fyrir að vera á móti öðrum aðilum í greininni, það er af og frá og við fögnum allri samkeppni. Ný fyrirtæki geta keypt mjólk beint af bændum en þá verða þeir að greiða uppsett verð fyrir hana.“ “

 

 

AR-329523229

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nefnilega margt skrýtið í kýrhausnum Smile 

 

 

http://www.dv.is/frettir/2014/9/24/forstjori-samkeppniseftirlits-visar-asokunum-forstjora-ms-bug-ekki-med-neinu-moti-haegt-ad-fallast-efasemdir-mjolkursamsolunnar/

 

 Já einmitt, en þannig er nú eiginlega sagan um hvernig hlutirnir gerast á eyrinni...

"Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, MS, segir MS ekki hafa brotið samkeppnislög og hyggst fyrirtækið áfrýja niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem birt var á mánudag þess efnis að MS greiði 370 milljóna króna sekt fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í viðtali í Kastljósi í kvöld sagði Einar að það sem setti að mönnum ugg varðandi niðurstöðuna væri meint andstaða Samkeppniseftirlitsins við búvörulögin síðastliðin tíu ár. Fyrr í kvöld greindi RÚV frá því að Egill Sigurðsson, stjórnarformaður Auðhumlu, samvinnufélags sem á 90 prósenta hlut í MS, hafi sent bændum bréf í gær vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins þar sem fram kom að MS efist um getu eftirlitsins við að rannsaka málavexti með hlutlægum hætti, vegna ítrekaðra athugasemda þess við lagaumgjörð um mjólkuriðnaðinn. MS líti svo á að Samkeppniseftirlitið sé að reyna að knýja fram breytingar á búvörulögum".

 

 Ekki er nú gott að vera uggandi yfir ákvörðunum aðila sem eiga að sjá um að fyrirtæki fari eftir lögum og reglum.  En ef til vill þarf MS ekki að fara eftir lögum og reglum. 

Og svo að lokum þetta:

 

 

http://www.ruv.is/frett/„var-aetlad-ad-reka-felagid-i-throt“

 

 

"Mjólka fékk álagningu sem Mjólkursamsalan lagði á félagið endurgreidda eftir að Kaupfélag Skagfirðinga keypti Mjólku. Þetta segir fyrrverandi framkvæmdastjóri Mjólku. Ólafur M. Magnússon var gestur í Kastljósi í kvöld vegna ákvörðunnar Samkeppniseftirlitsins um að sekta MS fyrir samkeppnislagabrot. MS seldi smærri keppinautum hrámjólk á 17 prósentum hærra verði en fyrirtæki tengd MS þurftu að greiða. Það stuðlaði að því að Mjólka, félag sem Ólafur stofnaði og rak, var selt til Kaupfélags Skagfirðinga, sem á 10% hlut í MS. ÓIafur segir að þessi aukna álagning hafi numið 50 milljónum króna á fjögurra mánaða tímabili árið 2009. „Það sem mér fannst alveg grátlegt var að í samtölum mínum við Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagssstjóra Kaupfélags Skagfirðinga, þá segir hann mér það á einum af okkar fundum eftir söluna að Mjólkursamsalan hafi endurgreitt þennan skatt,“ segir Ólafur. Eftir að Mjólka komst í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, grei"ddi félagið lægra verð fyrir afurðina. „Það er náttúrulega alveg með ólíkindum og sýnir tvískinnunginn í þessu máli og undirstrikar það til hvers þessi skattur var ætlaður. Honum var ætlað að draga úr getu Mjólku til að standa við skuldbindingar sínar og reka félagið í þrot, segir Ólafur".

 

Já einmitt það er svona sem menn fagna allri samkeppni og vilja fá nýja aðila inn.

Hér í Bolungarvík er aðili sem hefur sérhæft sig í lactosfrírri mjólkurvöru.  Og varð afar vinsæll, en viti menn það leið ekki á löngu áður en MS var líka komið með svoleiðis mjóllk.  Auðvitað ekki til að drepa niður samkeppni, ó nei, þeir fagna öllu slíku, heldur þatta var bara svo skemmtileg uppfinning að þeir urðu að koma með hana líka.

Og nú vil ég hvetja alla til að sneiða hjá lactosfríu mjólkinni hjá MS og kaupa frekar af litla vaxtarsprotanum í Bolungarvík og fólkinu sem fattaði upp á að bjóða okkur umm á slíka afurð.  

 

thb_IMG_0465

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er nefnilega algjörlega óþolandi framkoma, og ég vona svo sannarlega að alþingismönnum beri gæfa til að slíta sig út úr vörninni við stórabróður og afnemi þessa einokun sem mjólkursamsalan hefur þrifist á alla tíð, á kostnað annara sprotafyrirtækja það er nefnilega komið árið 2014, og mál til komið að endurskoða svona viðskiptahætti.   


Smá hlátur í leiðindaveðri.

Af því að veðrið er nú svona hundleiðinlegt hjá mér allavega, datt mér í hug að benda ykkur á skemmtilega ljósmyndaröð. 

 

http://www.visir.is/john-malkovich-bregdur-ser-i-liki-marilyn-monroe-og-alberts-einstein/article/2014140929614

john-malkovich-iconic-portraits-recreations-sandro-miller-11

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Che Guevara

 

john-malkovich-iconic-portraits-recreations-sandro-miller-10

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einstein.

 

john-malkovich-iconic-portraits-recreations-sandro-miller-8

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hemingway

 

john-malkovich-iconic-portraits-recreations-sandro-miller-12

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

John og Oko.   

 

V3-140929614

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hitcock

 

V2-140929614

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Salvador Dali

 

V4-140929614

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Andy Warhol.

 

AR-140929614

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og blessunin hún Marlyn Monroe.

 

Smá hlátur sakar ekki þegar ekki er hundi út sigandi.  Eigið góðan dag elskurnar. <3 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023137

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband