29.12.2008 | 11:11
Svo líða dagar....
Jólin að baki og senn koma áramótin. Litlu prakkararnir mínir eru farnir til ömmu og afa á Hellu. Það ríkir því kyrrð og friður í húsinu. Þeirra er reyndar sárt saknað af okkur öllum.
Það var mikið dansað hér.
Stóra systir og sú litla dansa af hjartans list og stóri strákurinn okkar spilar á ukelele, sem hann fékk í skóinn, fyrir að vera aðstoðarmaður jólasveinsins.
Allir dansa með.
Dansað hátt og lágt.
Og enn er dansað...
Með stæl ....
Og tilþrifum..
Svo er hægt að fara út að ná sér í ís.
Hér eru þau frændkinin að leika sér með púsl sem Júlli gerði úr steinum.
Þau eru bæði mjög áhugasöm.
Notalegheit í eldhúsinu.
Og ærsl og skemmtilegheit.
hér er líka spilað vestfirska kvótabraskspilið.
sumir vilja skreppa í garðskálann.
það er líka rosalega gaman að púsla.
allt púsl komið á sinn stað!!!
Allt klárt til að fara í bílinn og keyra á Hellu.
Við vorum svo boðin í alþjóðlegt súpukvöld hjá þýskum vinum okkar.
Virkilega skemmtilegt jólaboð, frá öllum heimshornum, eða frá Þýskalandi til El Salvador.
Súpan var alveg einstaklega góð.
Hér má sjá Leon Abrecht og mömmu hans. Leon hefur ákveðið að reyna að fá vinnu á ísafirði í sumar, hann þarf að vinna einhverskonar samfélagsþjónustu í skólanum sínum. Ég vona að Heilsugæslustöðin á Ísafirði taki honum vel. Leon er duglegur drengur.
Hér var líka Alejandra mín.
Úlfur og Ísaac Logi.
Það var spilað.
Knúsast.
og kitlað.
Hér er verið að spila Hornstrandaspilið, heimagert af okkar þýsku íslandsvinum. teiknað á blað og málaðir litlir fjörusteinar sem taflmenn.
Svo er það veðrið. Ég get alveg sagt ykkur það að ég hef ekki gert neitt við þessar myndir.
Þó veðrið hafi verið rysjótt undanfarið, þá hefur það líka verið fallegt.
Með þessum fallegu myndum sendi ég ykkur kveðjur inn í daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.12.2008 | 14:22
Smá pistill og myndir.
Það er bráðum komið árið 2009. Mér finnst heilmikill tvískinnungur í því að þegar ráðamenn þurfa að hækka áfengis og olíuverð er það gert á einu kvöldi, búmms búið mál. Þegar þarf að lækka launin sín þá eru lappirnar dregnar í fleiri mánuði, og ekki skorið niður eins og skyldi, frekar svona til málamynda og það á ekki að taka gildi fyrr en eftir hálft ár eða svo... þegar kemur að því að bjarga þjóðarskútunni, þá skyndilega tekur allt svo langan tíma, nú eru liðnir fleiri mánuðir síðan óveðrið skall á, og Geir og Ingibjörg eru á fullu við að gera ekki neitt..... og það þarf nafnleysingja utan úr bæ til að benda þessu fólki á að það sé ekki allt með heiglum í bankakerfinu að milljörðum hafi faktískt verið stolið úr bönkunum rétt fyrir hrun.
Haldið þið ágæta fólk að við séum fávitar? Nei það erum við ekki, en langlundargeð okkar er ótrúlega langt og friðsamt. En látið ykkur ekki detta í hug að mótmæli og reiði sé að fjara út. Málið er nefnilega að við viljum halda friðin yfir jólin. En ég get lofað ykkur því að ég til dæmis sem er venjulega frekar friðsöm manneskja og góð inn við beinið er búin að fá nóg. Ég vil fara að gera eitthvað til að losa landið við ykkur spillingaröflin. Og ég mun leggja því afli lið sem vill breytingar í átt að nýju betra og óspilltara Íslandi. Ég hef smátt og smátt komist á þá skoðun. Hér skiptir pólitíkin ekki máli, heldur við fólkið í landinu, hvar í flokki sem við stöndum og hvaða stefnu við aðhyllumst. Við þurfum að standa með sjálfum okkur og börnunum okkar. Ég segi fyrir mig ég vil ekki hafa að þið sitjið þarna og þykist vera að gera eitthvað af viti, þegar það er nokkuð ljóst að það eina sem er að gerast er að þið eruð að fela spor, fyrna sakir og fyrra ykkur ábyrgðina sem þið eigið að bera. Notið fagurgala, lappadrag og allt sem ykkar fátæklega þröngsýna hugsun nær. Þið eruð búin að vera, leppar gærdagsins, og á morgun mun rísa upp nýtt og betra Ísland. Land fólksins, sem þjófar eru þjófar hvort sem þeir stela milljón eða kjötlæri. Þar sem komið verður í veg fyrir slímsetu eins og ykkar hér núna undanfarnar vikur. Þar sem börnin verða ekki skuldsett fyrir gullskeiðar í kjafti. Þar sem fólk verður ekki borið út úr húsum sínum, og þau gefinn hinum ríku. Land þar sem öllu sem þið nú standið fyrir verður úthýst. Og það verður án ESB aðildar. Það verður með því að hlú að því sem við eigum sjálf, heita vatninu, hreina loftinu, fiskinum í sjónum, ullarpeysunum meira að segja. Við erum rík þjóð af auðlindum. Og með því að við leggjumst öll á eitt, vinnum við okkur út úr þessu. En það verður ekki gert með ykkur við stjórnvölin, því fyrr sem þið áttið ykkur á því, því betra, því minni skaði, því minni reiði.
Þjóðin er að verða tilbúin í átök. Ég finn það í hjartanu og í sinninu. Ég finn það gegnum næsta mann. Ég finn það gegnum allt sem andar í kring um mig. Við höfum fengið nóg, það verður ekki aftur snúið. Það verður því farsælast fyrir alla að þið stígið nú niður og gefið öðrum tækifæri til að bjarga okkur og landinu okkar. Ykkar ráð duga einfaldlega ekki. Þið eruð nefnilega ekkert að gera. ykkar lausn er bara að koma okkur inn í ESB og svo getið þið bara slaka á, rétt eins og með Jón bónda og Skjóðuna góðu sem kerling kastaði inn fyrir gullna hliðið. En það var nefnilega bara saga sjáið þið til. Við erum hér í nöturlegum raunveruleika.
En ég ætla að snúa mér að öðru varð bara að koma þessu frá mér, reiði mín er orðin slík að ég held að ég fari að verða veik af henni ef ég byrgi hana lengur inni.
Íslenski hesturinn er ein af okkar auðlindum, og hvað höfum við gert með hann ? Jú flutt hann út skammlaust, bæði merar og graðhesta, er það viturlegt ? Ég segi nei.
Þetta eru hestarnir hennar dóttur minnar. Ég set myndir af hestum hér inn til að minna ykkur á að á gamlárskvöld og nýjársnótt er mikið um hávaða og skothvelli, dýrin hræðast þetta mjög, og það ætti ekkert dýr að þurfa að eyða nóttinni í ótta, jafnvel hlaupast á brott og jafnvel deyja. Munið að gæta að dýrunum á þessum tíma. Hundar og kettir þurfa jafnvel róandi lyf. Að því þarf svo sannarlega að hyggja.
Sjáiði fótaburðin á þessari meri. Hún fer til Bandaríkjanna. Við eigum mikið eftir að læra í markaðsetningu og skipulagi áður en við getum farið að hala inn peninga fyrir svona útfluttning.
Vissuð þið að börnin okkar meta ekki mat eftir því hve dýr eða sérstakur hann er. Sum börn elska spaghettí og meira að segja grjónagraut.
Maður getur því sparað sér heilmikið í matarpeningum, með skynsamlegri matargerð.
Það er því enginn skömm að því að bjóða börnunum upp á slíkar trakteringar.
Því þar eins og í svo mörgu öðru erum við föst í eigin fordómum. En ég hef í mörg ár haft kalkún á gamlársdag, þetta ár verður lambalæri á boðstólum hjá mér. Bara venjuleg sunnudags fjallavillibráð. Að vísu verða þau tvö, því ég ætla að bjóða þýskum vinum mínum í mat það kvöld, ásamt pabba.
Það getur vel verið að það verði súpa í forrétt. Hef ekki ákveðið það ennþá.
Vissuð þið að það sést í augunum á þeim sem er myndefnið hver tekur myndina, það sést í augunum. Oftast eru þau full af ást þ.e. þegar ástvinir taka myndina.
En mynd getur líka verið full af ást, þá viðkomandi séu með augun lokuð. Það er líkamstjáning.
Það var pabbi sem tók þessa mynd. Hér sést líka ástin og virðing líka ef að er gáð.
Mömmuknús eru líka full af ást og kærleika.
Lítill prakkari.
Vissuð þið að jólin eru komin, þegar búið er að opna allar tölurnar á jóladagatalinu.
Það er líka tíminn sem maður liggur afvelta vegna ofáts og má það...
Nú eða lætur sig dreyma prinsessudrauma.
Eða bara pósar...
jafnvel að breytast úr barni í ungling, það getur verið ruglingslegt líka.
Gjafir eru góðar, en best er nálægðin við fjölskylduna og kærleikurinn. Honum getum við líka miðlað til annara, til allra því hann kostar ekkert, og það er til nóg af honum handa öllum
Svo finnast líka óviðjafnanlegir prakkarar, sem eru bara hreyknir þegar þeir hafa gert prakkarastrik, fá sér ís og dáðst að gjörðum sínum. En þeir eiga örugglega góða framtíð fyrir sér.
Elskulegir bloggvinir mínir þetta var ágætis therapí hjá mér ég er viss um að jafnvel bloggvinkona mín Jóna Ingibjörg myndi hrósa mér fyrir útrásina. Ég tók flestar þessara mynda úr myndavél dóttur minnar, því ég gleymdi minni í matarveislu sem ég var í í gær. Fjölþjóðlegri veislu sem spannaði allt frá þýskalandi til El Salvador. En nóg um það síðar.
Litlu stelpurnar mínar eru komnar á Hellu, þar sem þær ætla að eyða áramótunum hjá afa og ömmu á Hellu, þeirra eru auðvitað sárt saknað húsið hljótt, en hvíld er líka góð.
Eigið góðan og friðsælan dag. Stríðið byrjar ekki fyrr en með nýju ári.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.12.2008 | 15:32
Jólin eru hátíð barnanna.
Jólin hafa verið yndæl hjá mér, ég hef notið þess að hafa dóttur mína hjá okkur, og tengdason. Stelpurnar hafa líka verið afskaplega ánægðar að hafa pabba og mömmu hjá sér. Þær fara svo með þeim suður og halda áramótin á Hellu. En koma svo aftur eftir áramótin, þá hefst hið daglega líf aftur.
Þetta er ekki Hamraborgin, en ef til vill fimm litlir apar..... sem hún er að syngja.
Það er allt svo spennandi og tíminn lengi að líða á aðfangadag.
Úlfur pakkar inn gjöfinni fyrir ömmu.
Og loksins kemur að því að það er farið í að opna pakkana.
Og allir eru góðir hver við annan.
Prinsessan var ánægð með kjólinn sem mamma keypti á hana.
Það var reyndar litla skottið líka, enda fékk hún alveg eins.
Og svo er það gamla hefðin hér að hafa tómatsúpu í forrétt. Þetta byrjaði þegar við vorum ung og höfðum lítið milli handanna, þá var alltaf tómatsúpa með cream crackers á undan steikinni, til að spara. En svo komst ég að því seinna, að börnunum mínum fannst ekki vera jól nema fá þessa súpu á aðfangadag, og núna var það Úlfur sem bað sérstaklega um hana. Svona geta einfaldir hlutir orðið að hefð í einni fjölskyldu.
Úlfur las utan á pakkana og Hanna Sól bar þá til viðkomandi, flestir voru reyndar til þeirra, en allt gekk þetta snurðulaust fyrir sig.
Þetta er hápunktur jólanna hjá börnunum í þessu húsi allavega.
Vá hver gægist þarna út úr pakkanum. Lala!!!
Ég fékk þennan flotta krabba.
Þetta er ævintýrið um Loðfílana, saga sem amma samdi fyrir börnin í kúlunni.
En það var líka gaman að púsla saman Lababæ....
Og gæla við dýrin.
Eða bera fram kaffi.
En svo var skemmt sér frameftir kvöldi, þegar litlu stelpurnar voru sofnaðar var dregið fram Vestfirska kvótasvindlið og spilað. Skemmtilegt spil.
Morgunin eftir var bara notalegur, hér eru tvær slæðukonur að spjalla
Já vestfirska kvótabraskið er staðreynd. Gleðilega rest elskuleg mín öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
24.12.2008 | 12:18
Aðfangadagur.
Ég vil byrja á að þakka ykkur öllum innlitið. Ég fer að hafa betri tíma til að kíkja við hjá ykkur, það er bara svo mikið um að vera hér hjá mér nákvæmlega núna.
Það er aðfangadagur, lítil kríli og stærri kríli geta varla beðið kvöldsins, þau eru að skoða pakkana, og láta sig dreyma um gjafirnar, með glampa í augum og bros á vör. En aðfangadagur er alveg rosalega lengi að líða, það hefur ekki breyst síðan ég var barn. Að bíða eftir að borða góðan mat, og svo þarf að ganga frá, og þá loksins kemur stundin langþráða, þegar allir setjast kring um jólatréð og gjöfum er úthlutað. Maður gleðst og hrífst með af barnslegri gleði litla fólksins.
Að geta gleymt sér við að upplifa jólin með þeim er yndislegt. Og það er alltaf eitthvað sérstakt við aðfangadagskvöld. Ég man eitt sinn þegar ég var 19 ára og var aupair út í Skotlandi, ég var boðin í mat til íslenskra hjóna kl. 6, eins og vaninn er hér heima, en hjónin sem ég var hjá, vissu ekki að þetta væri svona mikilvægt. Hjá þeim var aðfangadagur eins við höfum þorláksmessu, notuð til að kaupa inn fyrir jólin. Klukkan varð sex, og svo hálf sjö ég að passa börnin og gráti nær að missa af jólunum. Loks komu þau og voru alveg miður sín, þegar þau sáu hvernig ég var. Mér var skutlað með hraði til íslendinganna, þau höfðu þá beðið eftir mér, svo ég missti ekki af neinu. En mikið var ég feginn. Síðan hef ég helst bara viljað vera heima hjá mér um jólin, með mínu fólki.
Pabbi kom í gær, svo nú er litla fjölskyldan sameinuð hér í kúlunni.
Það er gaman að pússla.
Pabbi getur nú ýmislegt, eins og hér sést.
Bjartasta brosið, litla Evítan hennar ömmu sinnar.
Smá reiðtúr á blesa gamla, en hann þarf að fara, því jólatréð á að standa þarna.
Og súpermann mættur á svæðið
Tinna farin að æfa sig fyrir framtíðina sína.
Þessi skápur er uppáhaldsstaður litlu prakkaranna minna, hann er við hliðina á tölvunni og hér skríða þær gjarnan inn og loka.
Systkini við eldhúsborðið.
Og Sigurjón Dagur kíkti líka í heimsókn.
Kannast einhver við þessa staðsetningu !
En svo var farið að kaupa jólatré.
Það tilheyrir Þorláksmessu að kaupa tré. Við eigum gamalt gerfitré, en Úlfur vildi endilega fá að kaupa tré, svo það varð úr. Hér eru hjálparsveitarmennirnir við afgreiðsluna flottir.
Og nú þarf að vanda valið.
Best að hafa afa með í valinu.
Þá þurfti að skreyta.
"Litla systir" fékk að vera með í því.
Undir handleiðslu stóra bróður.
Óðinn Freyr var líka að fylgjast með.
Þessi hestur er alltaf jafn vinsæll.
En það þarf að skreyta tréð.
Aðfangadagsmorgunn og börnin öll vöknuð.
Mamma búin að greiða prinsessunni og hún komin í nýja skó.
Og þá er að leggja lokahönd á skreytinguna á jólatrénu.
Og síðast fer upp jólatréstoppurinn, og það er litla systir sem fær að setja hann á.
Með hjálp.
En ég fékk líka glaðning í gær. Þið munið ef til vill eftir að ég orti ljóð um Fljótavíkina að beiðni vinkonu minnar Sigrúnar Vernharðsdóttur. Hún hringdi svo í mig í gær og sagði að Baldur Geirmundsson sá ágæti maður og frændi minn, hefði samið gullfallegt lag við textann minn, og ég fékk að heyra það á diski. Hann ætlar svo að útsetja það fyrir Sléttuhreppskórinn og það verður svo frumflutt á þorrablótinu. Ég er náttúrulega mjög stolt yfir þessu.
En svo af svipuðu, Elli spurði mig hvað ég vildi fá í jólagjöf, og ég bað um diskinn hans Villa Valla, áritaðan. Ég vona að ég fái hann.
En við erum miklir vinir við Villi Valli og ég dáist mjög að honum sem músíkant og manneskju.
En elskulegu bloggvinir mínir ég vil nota þetta tækifæri til að óska ykkur innilega gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Megi allir góðir hlutir falla ykkur í skaut, og gleðin ríkja.
GLEÐILEG JÓL!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
23.12.2008 | 15:25
Þorláksmessa.
Jamm það er Þorláksmessa í dag. Kári hamast eins og fýsibelgur á hurðum og rúðum hér vestra, en nær ekki að spilla stemningunni hjá okkur.
Það er rosalega gaman að knúsast og hamast í ömmu holu þegar þau koma saman krakkarnir.
Það er bara svo skemmtilegt.
Svo er það ævintýrakistan með öllum búníngunum, sem er svo spennandi að klæðast.
Hér sjáum við Kaptein Ofurbrók.
Sumt er bara gaman.
Hún er líka í svona spúkífötum hún Evíta.
Þar eru engin landamæri hvað aldur varðar.
Þetta er bara skemmtilegt.
Og jólasveinnin setti svo púsluspil í skóna hjá stelpunum mínum og það var virkilega gaman að sitja og pússla, enda voru þær báðar mjög áhugasamar.
Og svo kom mamma, það var frábært fyrir okkur allar, og úlf og afa líka. Og pabbi kemur í kvöld.
Úlli búlli bí var líka allur á lofti yfir heimsókninni.
Knúsí knús.
Svo er maður að undirbúa að fara heim til Ingu Báru frænku í skötuveislu, gaman gaman...
Og veðrið er svona rok og rigning, en við látum það ekki á okkur fá. Þorláksmessa í algleymingi, ég er búin að gera það mesta á bara eftir að taka ísskápinn í gegn. Vissuð þið að það væri flottasta lausnin að nota hárþurrkuna til að afþýða ísskápinn?? heheheh það ætla ég að reyna núna. En elskurnar, ég hef ekki komið við núna í gær og dag, hef haft svo mikið að gera við að sinna fjölskyldunni og mínu hér, en mér þykir vænt um ykkur öll og á eftir að fara hringinn og skoða hvað þið eruð að bralla. Knús á línuna og gleðilegan Þorlák.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
20.12.2008 | 18:14
Tónleikar hjá Karlakórnum Erni og stúdentaveisla.
Sæta stelpan mín hún Tinna tengdadóttir varð stúdent í gær. Og auðvitað hélt hún smá veislu fyrir vini og vandamenn.
Hér eru þrjár sætar saman, Ásthildur Tinna og Pálína stolt móðir.
Skafti og Óðinn Freyr tóku auðvitað þátt í að gleðjast með mömmu sinni og eiginkonu.
Innilega til hamingju með hvítu húfuna þína og prófið Tinna mín
Ásthildur glaðleg í veislu.
En svo fór ég á konsert hjá Karlakórnum Erni. Þeir hafa haldið þrjá tónleika, fyrst í Bolungarvík, svo á Þingeyri og í gær var það í Ísafjarðarkirkju. Kirkjan var troðfull, það var talið að um 500 manns væru þar í gær, og þurftu einhverjir að hverfa frá, svo mikill var mannskapurinn. Óskar Pétursson Álftagerðisbróðir söng einsöng með þeim.
Hann var hversmanns hugljúfi og mikill grallari að þeirra sögn. Enda í veislu á eftir sagði hann nokkrar skemmtilegar sögur, og fór með vísukorn.
En honum sagðist svo frá að þegar bróðurdóttir hans dóttir Gísla, varð þrítug, þá sagði konan hans að hann yrði að setja saman vísu í tilefni þess. Hann samdi þá þessa;
Í lífi þínu er brotið blað
berð þrjátíu ár á bakinu.
Það var meira lánið það,
að þú lentir ekki í lakinu.
En konstertinn var svo tekinn upp, það var Mugison sem sá um þá hlið.
Upptaka á fullu.
Hér er kórstjórinn Margrét, þeir eru náttúrulega flottastir karlarnir.
Dagskráin var hátíðleg og falleg. Ég kom út í jólaskapi.
Óskar söng meðal annars lag við ljóð eftir vin minn Úlf Ragnarsson lækni, og föður bloggvinkonu minnar Grétu Betlehemstjarnan.
Að síðustu sungu þeir svo Heims um ból, og allir stóðu upp og sungu með. Það var mjög áhrifaríkt. Innilega takk fyrir mig drengir mínir fyrir frábæra tónleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
19.12.2008 | 12:11
Jól.
Jól.
Ég hugsa er kuldinn herðir koss,
Og hel dimm nóttinn nálgast oss.
Með skammdegi og skugga,
er skylda okkar að hugga.
Þann sem ekki á neinn að
einskis barn, við skiljum það,
að þá er þörfin brýna
að þekkja vitjun sína.
Með kærleikann sem leiðarljós
lifir best vor sálarrós,
það blómið blítt sem dafnar
og birtu andans safnar.
Allt sem innra áttu nú
elsku þína von og trú,
vert er gaum að gefa.
grát og sorgir sefa.
Dreyfðu ást um byggð og ból
þá bestu áttu gleði jól.
Gott er lífið sitt á því að byggja,
að sá sem gefur öðrum, allt mun þiggja.
Ásthildur Cesil.




Bloggar | Breytt 20.12.2008 kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.12.2008 | 20:24
Jólaklippingar.
Jæja dagurinn hefst þessa dagana á því að opna jóladagatölin.
Spennandi, þetta gerist eftir að búið er að tékka á jólasveinaskónum.
Stubbur fær jólaklippinguna. Matta tengdadóttir kom með skærin og greiðuna, og fór yfir nokkra hausa.
Sigurjón Dagur kom líka í heimsókn.
Hann er töffari þessi drengur.
Hanna Sól fékk líka klippingu. Hún var voða stillt og róleg meðan Matta klippti hárið.
En Sóley Ebba spilaði jólalög og það skapaði náttúrulega stemningu.
Hanna Sól að verða flott, og Aron Máni vill fá klippingu líka.
Tvær litla fiktrófur hjá ömmu sín.
Ömmukrullidúlla.
Veðrið er fallegt alla daga núna.
Ég þarf að fara að svæfa, en ætla að kíkja við hjá vinum mínum á eftir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.12.2008 | 19:20
Myndir myndir myndir!!
Jæja mín elskuleg, þá er ég komin í samband aftur. Elskulegur sonur minn bjargaði mér með tölvuvandræðin, og þeir í Netheimum áttu varahlut í hana, yndislegir drengir á allan hátt. Svo nú er ég komin í samband aftur og er alveg rosalega glöð með það.
Það var þessi elska, frumburðurinn sem bjargaði móður sinni. Pabbi hennar Evítu litlu. Takk Ingi minn.
Við Úlfur fórum í verslunarleiðangur í dag og keyptum jólafötin á strákinn, hann er náttúrulega rosalega flottur.
Hann á eftir að fara í klippingu, ég er að vona að Matta mín, tengdadóttir sjái um hana.
En það gerðist ótalmargt meðan ég var tölvulaus. Ekki vildi ég hafa verið í þessum bíl til dæmis,
En það voru margir til að leggja hönd á plóg.
Og allt gekk þetta svo vel sem betur fer.
Hér eru Hanna Sól og Sigurjón Dagur að leik. En litla skottið þurfti að snyrtast eftir að stóra systir klippti hana um daginn.
Og afi sá um þá klippingu, afsakið klæðnaðinn á herranum
En hún er alveg hæstánægð með drengjakollinn.
Svo kom Evíta litla í heimsókn og pössun.
Og hún svaf í ömmuholu.
Úlfur spreytti sig á rosalega góðum ítölskum kjúklingarétti. Hann er að verða Gourmekokkur drengurinn.
Hér er allt klárt.
Þetta er saladið með matnum. Stelpunum þótti það rosalega gott.
Þetta er orðin uppáhaldsstaður prakkarans.
Í dag var jólaballið í Leikskólanum, það var svaka fjör, hér sést litla skottið með drengjakollinn sinn.
Það var gengið kring um jólatréð og sungið.
Prinsessan ekki í vandræðum með að dansa.
En svo fór að kárna gamanið.....
Það komu nefnilega skrýtnir karlar.
Satt best að segja varp hún skelfingu lostinn, yfir þessum körlum.
Ekki er hægt að segja það um alla hina.
Krakkarni fögnuðu þeim nefnilega vel, þeim Giljagaur og Stekkjastaur.
Þau sungu fyrir þá.
en sumir forðuðu sér sem lengst í burtu hehe
Hér eru börnin með jólasveinunum.
Að lokum svo nokkrar fjallamyndir.
Og svona mun jólakortið mitt líta út, ég hef ekki getað unnið í því ennþá, vegna tölvuhrunsins, en nú get ég sett allt í gang með það.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
17.12.2008 | 11:29
Ljósið í myrkrinu.
Jólin nálgast, jólin eru líka hátíð Ásatrúarmanna. Ég ætla ekki að fara neitt nánar út í það. Það skiptir ekki máli. Þessi tími er dimmasti tími ársins, þegar myrkrið hefur yfirhöndina yfir birtunni. En ljósið skín skærast í myrkrinu. Það er bara þannig, þegar börn fá vasaljós, þá fara þau með það á dimmasta staðinn til að njóta birtunnar, inn í skáp jafnvel. Við erum öll inn í þessum skáp núna, að dást að jólaljósunum, allur heimurinn, við sjáum misvel til. Sumir eru úti í horni og missa af mesta ljósinu. Það er okkar allra að sjá til þess að hver og eitt geti notið þess. Með því að taka tillit til allra, lyfta ljóskerinu aðeins, svo birtan nái til fleiri, jafnvel víkja aðeins til hliðar svo næsti maður fái aðeins meiri birtu.
Það et ótrúlegt hvað hægt er að gera gott með smá kærleika, umhyggju og tillitssemi. Og ef ástæðan er ekki fyrir hendi einmitt núna á okkar litla landi, þá er það aldrei.
Aldrei hefur fólk staðið frammi fyrir öðru eins óöryggi, reiði, vonbrigðum og ótta en einmitt nú. Aldrei hefur útlitið verið jafn dökk og framtíðarhorfur litlar og einmitt nú.
Þess vegna eigum við að sýna hvort öðru tillitsemi, jafnvel opna hjarta okkar og snerta eða knúsa næsta mann. Ef maður getur ekki gert það, þá er það brosið sem vermir. Við getum sjálf gert alveg heilmikið með því að ljóma og gefa frá okkur góða strauma. Brosið skiptir máli. Það lýsir upp vitund fólks, og veitir þeim gleði sem fær það. Það kostar ekki neitt, en gefur svo mikið.
Munum að brosa til fólksins sem við mætum. Það getur verið að við fáum ekki bros til baka, þá er bara að brosa betur næst. Sumir eru jafnvel hræddir við slíka nánd. En við skulum strengja þess heit að læra að meðtaka bros og hlýleika frá næsta manni. Læra að treysta því að fólk vilji vera gott hvort við annað.
Mig langar til að fara hér með smá bæn að lokum.
Ég stend við uppsprettu kærleikans,
frá uppsprettunni fer sálin,
Ég.
Frá uppsprettunni vinn ég sem
þjónustumaður
og með vitundina í
kærleiksljósi,
sendum við kraft til allra þeirra sem
þarfnast hjálpar.
Megi kærleikur hins Guðlega kjarna,
streyma út og inn í hjarta mitt,
inn í hópinn minn og um allt landið mitt
og um alheim.
Gerum þessi orð að okkar, og ljósið í myrkrinu skín fegurra og bjartara en nokkru sinni, því hvað er allt heimsins glópagull miðað við visku og kærleika alheimsins.
Falleg mynd af Ísafirði, eins og Guð brosi við okkur.
Elsku táningarnir mínir, jólabörnin í kúlunni, þau eru að vísu orðin 18 í dag og tvo á leiðinni.
Og svo brosa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar