31.7.2009 | 22:26
Ferðasagan. Warsjá - Pforzheim.
Ferðin til Þýskalands gekk ágætlega í fyrstu. Við vorum reyndar frekar ósátt við rútuna, því við höfðum ferðast með rútum bæði í Mexíkó og Bandaríkjunum, þ.e. svona langferðarútur sem voru þægilegar og var hægt að leggja sæti aftur, sem sjálfsagt er, þegar ferðast á í 20 tíma eða lengur. En þessi rúta var bara eins og venjuleg langferðarúta á Íslandi með þröngt á milli sæta.
Þegar leið á kvöldið kom í ljós að það hafði orðið alvarlegt slys á þýsku hraðbrautunum, og þurftu pólsku bílstjórarnir að fara út af hraðbrautinni og inn á þjóðveginn sem liggur um þorp og bæi. Þeir villtust dálítið og ekki bætti úr skák að nóttin var að skella á og skuggsýnt orðið. Þeir voru bæði með vegakort og símann, loks náðu þeir þó áttum og að lokum fóru þeir inn á stæði til að bíða þess að vegurinn yrði opnaður. Loks þegar þeir óku af stað aftur klukkutíma síðar, var ljóst þegar við ókum loks upp á veginn aftur, að það var eitthvað mikið að, þarna voru ótal slökkvibílar, lögreglubílar, sjúkrabílar og menn í sýklavarnarbúningum.
Ég hafði hringt í Birgit og tjáð henni að við yrðum a.m.k. klukkutíma seinna en ætlað var. En var undrandi þegar við ókum inn í Pforzheim klukkutíma á undan áætlun, en sá þá að þeir höfðu einfaldlega sleppt Mannheim. Sjálfsagt hafa þeir verið orðnir þreyttir og svangir eftir 23 tíma aksturs án þess að borða eða hvílast.
Við fundum svo veitingastað rétt hjá þar sem rúturnar stoppa, og fórum inn og fengum okkur bjór, eða brauð í fljótandi formi eins og ferðafélagar okkar sögðu gjarnan í Eistlandi.
Birgit sótti okkur svo á brautarstöðina og við fórum með henni til Dietlingen, sem er lítið þorp, það eru að mig minnir 5 þorp sem eru sameinuð í eitt svæði eins og Ísafjörður, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og þingeyri. Við gáfum okkur samt tíma til að fara á ítalskan veitingastað í Pforsheim og fá okkur hádegismat. Í Pforsheim er eins og ég hef sagt áður manngert fjall, sem var gert úr húsarústum borgarinnar, í endaðan ferbrúar 1945 gerðu bandamenn árás á borgina eftir stríðslok, og drápu um 20 þúsund manns konur og börn. Mér er sagt að fólki finnist sárast við þetta að stjórnvöldum borgarinnar hafði verið sagt frá þessu, en þeir sögðu engum heldur bara fóru burtu með sitt skyldfólk, kvöldið áður, en létu hitt fólkið vera eftir til að deyja. Ég hef farið upp á þetta manngerða fjall, þar er minnigarreitur um þennan voðalega atburð. Það er ekki ósennilegt að flugvölllurinn í Eistlandi hafi einmitt verið notaður til að bombardera Pforzheim. Þetta var hefnd bandamanna vegna þess að í borginni voru hergagnaverksmiðjur, þær framleiddu þó einungis varahluti í hergögn að sögn. En þetta sýnir hve menn geta orðið veruleikafyrrtir í stríði, og svífast einskis.
Það var notalegt að koma heim til Birgit og Stefáns. Um kvöldið grilluðum við úti á palli á fjórðu hæð, en húsið þeirra er fjórar hæðis, en byggt inn í hæð, þannig að það er inngangur á hverri hæð hússins. Þetta er all sérkennilegt hús, sem er næstum sjálfbært með hita og rafmagn, flesta mánuði ársins selja þau rafmagn inn á kerfi bæjarins, en aðeins janúar og febrúar þurfa þau að kaupa af kerfinu. Stefán er sólarorkusérfræðingur og býr til sólarsellur, Birgit er arkitekt og í sameiningu hönnuðu þau húsið sitt og byggðu. Á sólardögum skiptir húsið um lit, þegar hitaplötur taka í sig varman frá sóliinni.
Daginn eftir ákváðum við að fara til Bad Vildbad. Þar er gamalt baðhús byggt í rómverskum stíl af kóngi á nítjándu öld. Við ætluðum líka að fara á kláf upp í fjöllin, en þar er lítið þorp sem er kallað þorpið á berginu. Aðalbygging þess og kláfurinn eiga 100 ára afmæli á þessu ári.
Þorpið er í 7oo metra hæð, og þaðan er svo hægt að ganga niður gegnum Svartaskóg. Uppi er turn sem maður getur farið upp í og horft yfir fjöllin skógivaxin og þorpinn inn á milli. Þegar upp kom var hægt að velja um a.m.k. 6 mismunandi erfiða göngstíga niður af fjallinu og ofan í Vildbad. Við ákváðum að taka leið 2, sem er frekar auðveld. Það var heitt og ég er ekki mikið fyrir gönguferðir.
Við gengum þarna í yndislegu veðri, þó það væri hlýtt, þá var kalt miðað við árstíma. Enda hitabylgja á Íslandi og það er ávísun á svalari Evrópu.
Á leiðinni týndum við svo ber. Aðalbláber, vilt jarðarber, brómber og sveppi.
Fengum okkur svo hádegisman á veitingastað sem Birgit og Stefán þekktu fyrir sérlega góðan mat. Þetta er fallegt þorp áin liðst gegnum það full af silungi og á bökkunum eru matsölustaðirnir og allskonar fallegar byggingar.
Eftir matinn ákváðum við að fá okkur bað. En í Vildbad er gamalt baðhús eins og áður sagði. Þar er börnum innan 12 ára bannaður aðgangur, sem skýrist af því að allflestir ganga þar um allsberrassaðir. Vði vorum í sundfötum og vorum litin hornauga fyrir vikið. Þarna eru allskonar heitir pottar, sauna og gufubað, nudd og allsonar meðhöndlun á þakinu er svo baðströnd sem þeir kalla svo, sandur og bekkir þar sem fólk getur legið í sólbaði.
Það var notalegt að rölta þarna milli pottanna og prófa þeir eru mismunandi heitir það er bara vandamálið að hafa augun einhversstaðar annarsstaðar en á lafandi bibbum og rössum og lærum. enda var fólkið hálf feimið við okkur sem vorum í sundfötum. Þarna var líka bar og afslöppunarherbergi.
Notalegt að koma heim og slaka á. Dietlingen er mikll vínræktarbær og því upplagt að kynna sér hvað staðurinn hefur upp á að bjóða.
Á sunnudeginum var ákveðið að fara til Strazborgar í Frakklandi. Veðrið var notalegt ekki of heitt frekar en gærdagurinn. Birgit og Stefán tóku þá ákvörðun að aka frekar sveitavegina um þorpin frekar en að taka hraðbrautina.
Stoppuðum í Bad Herrenalb þar sem hægt er að fá sér að drekka mineralvatn sem er allra meina bót, það er svo stútfullt af steinefnum að það má einungis drekka hálfan lítra á dag. Vatnið rennur bara og allir geta fengið sér að drekka án endurgjalds. þarna er líka trjásafn, flottasta tréð sem ég sá þar er það sem þau kalla mammúttré, það er Sequiandendron giganteum eða sem við köllum risafuru, það er þó ekki furutré. Þessi tré eru risastór í Arisona og þar hefur verið gerð göng í gegnum þau til að aka í gegn. Þau verða a.m.k. 2000 ára, stóra tréð í þessum garði var 100 ára.
Skoðuðum gamlar klausturrústir og sáum fallegt vatnsfall á leiðinni.
Þegar við ókum gegnum Rínardalinn var aðeins byrjað að rigna, þar er mesta vínrækt í Þýskalandi einstaklega gróskumikill dalur.
Strazburg er falleg borg. Þar er Europian parliament sem ákveðið var að setja árið 1979. Samvkæmt Edinborgarsáttmála 1922 var Strazborg gerð að fastri setu fyrir Evrópuþingið og var það klárt 1998.
Þar er líka Evrópusendiráð, sem samþykkt var 1949.
Dómkirkjan þeirra sem rís í miðbænum glæsileg er byggð á hæsta punkti borgarinnaréða í 144 metra hæð. Turn hennar er 142 metrar. Hún er byggð á rústum rómverskrar Basiliku. 1015 varð hún eldi að bráð og var þá reist á ný. Byrjað á heni 1176 og okið 1439 hún er byggð í gotneskum stíl.
Á mánudeginum kl. þrjú átti rútan að fara frá Karlsruhe. Það var vesen að finna stæðið, og þegar við fórum á upplýsingastöðina fyrir rúturnar og báðum um upplýsingar um rútu til Belgrad uppskárum við uppásnúning og dónaskap af hendi kvennanna sem þar voru. Þær þóttust ekkert vita og svöruðu engu, Birgit reyndi að spyrja þær að lokum ofbauð mér dónaskapurinn ég þreif miðana af þeim og sagði með þjósti við skulum koma okkur héðan, þvílíkur dónaskapur svei ykkur bara. Loks fundum við svo hvað rútan átti að stansa og biðum dálitla stund, hún var frekar seint á ferðinni.
Við kvöddum svo Birgit og stigum upp í Serbneska rútu. Á leið í næsta áfanga sem er Belgrad.
Á landamærum Póllands og Þýskalands.
Sólarupprás í Þýskalandi.
Komin til Pforzheim, og búin að finna krá.
Komin heim til Birgit og Stefan. Og það var tekin upp kampavínsflaska í tilefni þess.
Um kvöldið var svo grillað.
Grillið er á fjórðu hæðinni, og því hátt niður á götuna.
Og við nutum matarins.
Enda létt yfir okkur öllum. Gaman að vera komin í heimsókn.
Ég fékk þetta fallega barmmerki frá mömmu Birgit Edidt.
Húsið þeirra er all sérstætt og það skiptir litum þegar sólarsellurnar fara að vinna sitt verk.
Hér sést hvernig húsið er byggt inn í hæðina.
Á leið til Bad Vildbad Það er eins og húsin og trén séu í feluleik.
Húsin eru falleg. Og sjáið hve hétt uppi þeir byggja stóru blokkirnar.
Ég held að þeir hafi byggt þorpin kring um þær ár sem renna niður í Dóná og Rín.
Hér er fiskistigi, en þessar ár eru fullar af silungi.
Hugvitsamleg borð, þetta er alvöru gras og plönturnar á borðinu eru góðursettar í borðin og eru kryddplöntur, Salvía, piparminta, basilika, tymian og fleiri.
Þetta er rosalega flott.
En nú erum við að fara í kláfinn. Takið eftir stákunum.
Hér er svo kláfurinn.
Dálítið skerí fyrir lofthrædda.
Þarna eru þeir aftur búnir að hengja hjólin sín upp.
Og upp skal haldið.
Áfram hærra, þessi sem er að koma niður togar hina upp.
Komin upp og strákarnir líka, hvað ætli þeir séu að gera.
Þorpið í fjallinu.
Og þarna er útsýni yfir Svartaskóg.
Fallegt og gróðursælt.
Þá er að leita að réttu gönguleiðinni.
Svona leysa þjóðverjar snjóhrun af þaki.
Og enn eru strákarnir á vegi manns.
Hingað koma göngugarpar og fá sér rauðvín.
Já það er nefnilega það, þeir hjóla á fullu niður fjallið í þar til gerðum krákustígum.
En við týndum ber, aðalbláber nammi namm.
á beit í skóginum.
Villi jarðarber.
Brómber
Og sveppi.
Og trén eru ógnarstór.
Svona má sjá mig oft.
Og hér er rekin áróður fyrir því að spara olíu og benzin. þessi bunki brennir svipað og 1100 l. af olíu.
Svo er hægt að setjast niður og horfa yfir fjöll og dali.
Og veifa til vina.
eða bara fylgjast með þeim týna sveppi.
Hér er hægt að þvo sér um hendurnar líka, ég vildi samt ekki drekka þetta vatn, þó held ég að það sé öruggt.
Og hér sjáið þið brautirnar sem drengirnir fara niður.
ekkert myndi fá mig til að fara út í svona sport.
Það er eins gott að það er ekki oft hálka í þessum þýsku þorpum í dölunum, því hæðarmismunurinn er rosalega mikill.
Svo er bara að fá sér ekta þýskan sveitaman.
Ráðhúsið Bad Vildbad.
Og svo er það baðhúsið.
Hér er gamli rómanski hlutinn.
En það var bannað að taka myndir innan dyra. Ég ætla samt að stelast til að sýna ykkur nokkrar myndir sem við tókum.
Mun samt ekki sýna neinar tippamyndir enda tókum við engar slíkar.
Mikið skraut var hér.
Og allskonar litlir pottar.
Eins og sjá má.
Flott ekki satt.
Og komin með bjór hehehe...
Ný böðuð.
Ég er skælbrosandi og glöð.
Risahátt sem þessi rússíbanaleið liggur.
Og svo er það tískan.
Flottar skreytingar.
Járnbrautin.
Speglunin minnti mig á Ísafjörð.
Sólarlag í Dietlingen.
Bad Herrenalb með sítt míneralvatn
Þeir eru hver öðrum snyrtilegri og fallegri þessir þýskusmábæir í Svartaskógi.
Hér má fá sér vatn að vild.
Hér sést innihald vatnsins.
Og svo er bara að fá sér að drekka.
Þau eru sérstök þessi gömlu þýsku hús.
Fórum sveitavegina til Strazburg og sáum vítt yfir landið.
Hæsta hæðin og miðja skógarins. Hér geisaði stormur fyrir nokkrum árum og felldi fullt af trjám, sem ég held að liggi ennþá eins og hráviður þarna. það mátti víða sjá ummerki bæði hvirvilvinda og eldinga í skóginum.
Ákvaðum að skoða klaustrið og vatnsfallið.
Þetta virðist hafa verið annað hvort reist á vitlausum stað eða ekki Guði þóknanlegt, því ég held að þetta hafi brunnið a.m.k. þrisvar niður,
Það var samt alltaf byggt upp aftur, og bæði í gotneskum og rómverskum stíl.
Gamlar rústir sem minna á aðra tíma.
Hér er hægt að sjá bæði gotneska stílinn og þann rómverska.
Hér var svo safn af ýmsum munum og sérstaklega myndir af hvernig þetta var allt saman.
Svona leit þetta út einhverntímann. Og á veggnum er handskrifað aflátsbréfið fyrir lóðinni með upphaflegum stimpli.
Þá var að fara og skoða fossinn.
Það þurfti að príla ansi langt niður til að sjá vatnsfallið.
Alveg þess virði samt sem áður.
Við kvöddum svo gömlu rústirnar og héldum áfram til Strazburg.
Rínardalurinn. Grænn og fagur.
Bændur þurftu ekki að hafa áhyggjur af vökvun, því hér var rigning.
Áin Rín.
Falleg borg Strazburg.
Hámenningarborg með Evrópuþingið.
Og sín fallegu hús.
Það rigndi dálítið en ekkert til ama.
Sum húsin voru samt lágreist.
Sýkin falleg.
sérkennilegir fararskjótar. Sá einu sinni sjónvarpsþátt um þessi tæki, þau geta farið upp stiga og eru bið mesta þarfa þing, en sennilega of dýr fyrir þá sem virkilega þurfa á þeim að halda.
Lagt af stað heim á leið.
Hin tilkomumikla sögulega Notre Dame Strazborgar.
En þá var þessari heimsókn að ljúka og næsti áfangi verður Karlsrhue - Belgrad.
Eigið góða stund. Vonandi hefur einhver gaman að þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.7.2009 | 18:20
A boy named Sue.
Þar höfum við það. Margir hafa reynt að segja þjóðinni að þetta sé allt saman einn samsærispakki, ASG, Icesave og ESB. Nú er það komið á tært að þannig er það. Samt sem áður grípa sumir lesist samfylkingarmenn til þess að æpa að þetta sé allt saman þeim að kenna sem hafi staðið gegn samkomulaginu, þeir sem hafa ekki viljað spila geymið eru ljótu karlarnir og ríkisstjórnin fórnarlambið. Ja hérna hér.
Mér virðist okkar ríkisstjórnir undanfarin ár ekki hafa neina burði til að leysa svo erfið mál sem að tjónka við svona erfið milliríkjamál. Þar hafa verið gerð mistök á mistök ofan. Aðallega sýnist mér af því að í stað þess að ráða færustu sérfræðinga í alþjóðasamskiptum til að vinna að málinu, hafa menn reynt að klúðrast með þetta sjálfir og einnig ráða flokksbræður sína sem eru allsendis ófærir um að eiga við þá hákarla sem um ræðir og eru sjóaðir í að plata sitt fólk upp úr skónum, vanir menn í lygi og undirferli. svo má líka benda á að mörg ár hefur verið valið í allar stöður pólitískt eða fjölskyldulega en ekki faglega, þannig að það fólk sem er í lykilstöðum er oftar en ekki vanhæft til að gegna svo mikilvægum störfum, eins og nú þarf til.
Það er ljóst að það á að knésetja okkur. Annað kemur ekki til greina af því að ef þetta örríki gefur skít í samkvæmið, þá missa þeir trúverðugleikann sem þeir telja sig hafa meðal síns fólks.
Það má því ekki gerast að við segjum þeim upp og leitum annara leiða. Eins og vinir mínir erlendis segja; þið eruð eina þjóðin sem getur gert það. Og við það eru þeir hræddir.
Ætlum við virkilega að láta fara svona með okkur, hvað varð um gamla víkinga andann, eða voru það bara þrælarnir sem eftir lifðu af innrásarliðinu sem hingað kom fyrir þúsöld?
Vantar okkur ef til vill landsföður eins og pabbann í ljóðinu ameríska, sem vissi að hann gat ekki verið hjá syni sínum, og ákvað þess vegna að nefna hann stúlkunafni, til að hann lærði að berja frá sér þegar föðurins naut ekki við.
Steingrímur og Jóhanna lýstu þvi yfir galvösk í upphafi þegar þau voru vinsæl og trúverðug, að þau væru eins og pabbi og mamma þjóðarinnar. Síðan hefur runnið mikið vatn til sjávar, og "pabbi og mamma" hafa reynst vera lánafíklar, sem eingöngu treysta á að einhver komi og mati þau, en ekki manneskjur sem koma með lausnir og herða þjóðina upp í að takast á við vandann sjálf, og það strax í dag en ekki eftir tvö til þrjú ár?
Þetta endalausa væl um að allt lagist þegar við sækjum um aðild reyndist vera tálsýnin ein, og sýnir okkur ágætu landsmenn að þau hafa ekki hugmynd um hvernig þau ætla að leysa málin. Þær raddir sem nú verja þau í bak og fyrir munu því hljóðna smátt og smátt, þegar það rennur upp fyrir fólki að þessi "lausn" er enginn lausn, heldur eins og ég sagði í pistli hér fyrir framan, ungamamman sem í stað þess að breiða vængi sína blítt yfir land og þjóð, hefur klærnar og gogginn vel brýndan tilbúin til að rífa í sig hræið.
Þið ættuð að sjá heildarmyndina ef þið reynduð að hætta að hugsa pólitískt og færuð að hugsa sem sjálfstætt fólk. Þetta samkrull þjóðanna og síðan yfirlýsingar til dæmis spánverja sem nudda saman höndum og bíða slefandi eftir að komast inn fyrir landhelgi okkar og þurrausa fiskimiðin.
Ásókn erlendra aðila um að komast í ódýra raforku, og kaupa sig inn í orkuveitur okkar. Þarna úti bíða svo sannarlega hákarlar sem enskis svífast, og er alveg sama um fólkið í landinu. Og við kúrum eins og kjúklingar lokum augunum og tautum við okkur sjálf og aðra; þeir eru bara að reyna að bjarga okkur, þeir bara fara svona að því, enginn er svona vondur í raun og veru.
Við erum eins og unglingur sem er plataður af barnaníðingi á netinu til fylgilags, af því að við höldum að allir séu svo góðir of frábærir.
Nei takk segi ég; það er að koma æ betur í ljós hvað er í gangi. Við getum náð vopnum okkar, með því að neita að taka þátt í þessum leik. Við getum kastað bullunum út og byrjað upp á nýtt. Staðið saman sem ein þjóð og hert beltin, staðið föstum fótum og látið umheimin vita að við hin gamla víkingaþjóð getum hrundið þessari árás af höndum okkar. Það mun kosta blóð svita og tár, en í það minnsta verðum við frjáls þjóð. Og ég er klár á því að ef við gerum þetta, munum við finna aðilja sem vilja hjálpa til og koma okkur til hjálpar. En við þurfum samt sem áður að vera viðbúin því að þurfa að standa á eigin fótum meðan þetta gengur yfir, en við verðum þá að minnsta kosti stoltar manneskjur, en ekki undirlægjuþý auðvaldsins og elítunnar í Evrópu.
![]() |
Afgreiðslu AGS frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
30.7.2009 | 14:47
Ferðalag. Warsjá.
Það var svo daginn eftir sem við fórum miður í miðborgina til að skoða hana. Eins og ég sagði áður þá var 90% borgarinnar sprengd upp í stríðinu, en gamli miðbærinn stendur samt ennþá, þó lítið hafi verið eftir af sumum húsum eins og konungshöllinni, sem var reyndar endurbyggð, eins og flestar gömlu byggingarnar.
Cultur and scieance palase eða Stalínpalas eins og Warsjá búar kalla höllina sem Sovétmenn gáfu þjóðinni var næst í röðinni til að skoða. Þetta merkilega hús var opnað 21, ágúst 1955, nær yfir 3.3hektara. Var byggt á rústum húsa sem höfðu verið eyðilögð í stríðinu. Hæsta bygging í Póllandi 231 metra hátt og 154.000 fermetrar.
Daginn eftir var þrumuveður og ausandi rigning. Við Elli röltum út á markað sem er hér rétt hjá, þegar sólin braust fram.
Þa byrjaði svo aftur að rigna svo það var rólegheit fram eftir degi. Svo kom í ljós að ég hafði gleymt myndavélinni við grillið kvöldið áður. Hún var óvirk og full af vatni. Sem betur fer fann Lech digitalviðgerðarverkstæði þarna rétt hjá, og þeir lofuðu að gera við myndavélina fyrir kl. 3 daginn eftir, því þá áttum við að fara með rútunni til Pforsheim.
Um þrjú leytið var svo komið gott veður og Lech fór með okkur að skoða litlu Versali. En Pólskur prins kvæntist Franskri prinsessu, hún saknaði svo Versala, að hann byggði fyrir hana eftirlíkingu af þeim frönsku. Garðurinn er risastór og mjög fallegur.
Við fórum svo á grískan veitingastað og fengum okkur að borða.
Daginn eftir lögðum við svo af stað með rútu til Pforsheim. Lech skutlaði okkur á rútubílastöðina. Við eigum fyrir hendi að aka niður Pólland og Þýskaland. Lech hafði bent mér á að hér gæti ég fengið góð lestrargleraugu fyrir lítið verð, svo við fórum á stúfana. Það gekk eins og í sögu að fá gleraugu, með lækniskoðun og öllu saman á einum klukkutíma aðeins 470 slots eða um 20.000 krónur.
Síðan var það rútan hún fór kl. þrjú og átti að vera í Pforsheim kl. 12.45 daginn eftir. Svo var bara að kveðja þetta yndislega góða fólk og leggja upp í landferð.
Takk fyrir okkur.
Garðurinn heima hjá vinum okkar er mjög fallegur og velhirtur, þessi jukka var samt það alflottasta.
Þessi elska er náttúrulega sér kapítuli út af fyrir sig.
Þá er að skipta peningum... nei ekki íslenskum, ég reyndi það ekki einu sinni. Ég átti dálítið af evrum.
Skoðuðum þetta skemmtilega moll, minnti okkur á Kúluna. Sérlega glæsilegt eru að rísa mörg falleg nútímaleg hús, þó mér virtist í augnablikinu ekki mikið um að vera, og byggingarkranarnir jafn þögulir og hér heima.
Hér getur svo að líta garðinn í kjallaranum, þarna er greinilega músik og veitingar.
Hér er þessi skemmtilega útfærða hafmeyja, en hafmeyjan er merki Warsjá. Þessi heitir rafmagnsdrasl og er samsett úr ótal og allskonar rafmagnsdóti eins og sjá má.
Hér er svo Stalinpalas. Heldur þunglamalegt. Hér voru haldnir fundir herráðsins og allra þeirra sem stjórnuðu landinu frá Moskvu. Núna er þetta ráðstefnuhöll, félagasmiðsstöð, og allskonar menningarhús. Hér var þegar við litum við bílasýning á Kia frá Kóreu.
Og eins og allir vita þá er ekki hægt að sýna bíla nema hafa léttklæddar og léttgeggjaðar ljóskur með í kaupunum.
Hér getið þið svo lesið allt um þetta merkilega hús, sem minnir óneitanlega á Empier state.
Frá þrítugustu hæðinni, en þangað er gestum hleypt upp, má sjá yfir Warsjá.
Það er hægt að sjá margar glæsilegar byggingar, og svo gömlu húsin innan um.
Og hér sést gamli bærinn með höllina og dómkirkjuna.
Gæti alveg eins verið New York ekki satt?
Víða um borgina má sjá hvar þessi veggur hefur legið, Gettó veggur 1943, dálítið óhugnanlegt ekki satt?
Hér er svo kóngsgatan sem liggur niður að gamla bænum.
Falleg og björt gata.
Og hér var Kopernikus gamli. Og er í hávegum hafður.
Svona hefur þetta litið út. Og í þessari götu er geymt hjartað úr Chopen. Hann dó í París, en mælti svo fyrir að hjarta hans yrði varðveitt í Warsjá. Og það var gert.
Gamli bærinn í augsýn. Veðrið var ótrúlega fallegt eftir regnið, loftið hreint og hitinn notalegur.
Hér er verið að auglýsa vatnið.. Já að vísu var sýnishornið ókeypis, en verið var að leyfa fólki að drekka pólska vatnið til að finna hve gott það væri.
Þarna sést í gamla bæinn, með sínum þröngu götum og virkisveggjum.
Höllinn, það var einungis eftir smábrot af henni í stríðinu. Núna er þarna safn. Við gáfum okkur ekki tíma til að fara þar inn.
ef vel er að gáð má sjá hlutann sem stóð uppi.
Hér má svo sjá gamla virkisvegginn.
Þröngar götur og hellulögð stræti.
Dómkirkjan.
Það er greinilega lagt mikið upp úr fegurð í byggingu kirkna.
Og það má allstaðar fá sér Pivo.
Húsin eru skemmtilega ólík en hvert upp í öðru. Og þeir eru ekkert hræddir við litina.
Sjáið þið húsið fyrir miðri myndinni, hafið þið séð mjórra hús?? ég held að mjóa húsið í Amsterdamm sé breiðara en þetta. Hvernig komast menn fyrir í svona mjóu húsi?
Verð að viðurkenna að ég man ekki alveg söguna um þessa bjöllu, nema að hún brotnaði og var límd saman, og menn snerta hana sér til gæfu þegar þeir ganga hjá.
Og þrátt fyrir alla mafíósana sem hér ganga lausir og að því mér skilst margir, þá er löggann ekkert banginn.
Hér komum við svo aftur að virkinu.
Og varðmannaskýlum og byssugötum.
Krúttleg hestakerra.
Fengum okkur svo súpu í brauði, mjög góða.
Þá var að kveikja upp í grillinu.
Það er að segja karlarnir, ég lá eins og prinsessa í slökun og Ela í Eldhúsinu.
Svo áttum við notalega stund saman um kvöldið í garðinum hjá Lech og Elu.
Málið var að í kring um okkur var að þvælast lítill broddgöltur, og ég ætlaði að reyna að taka mynd af honum. Því fór sem fór, það var orðið dimmt og við sátum bara með kertaljós og úbbs myndavélin gleymdist úti og það hellirigndi. Núna er vélin mín nýuppgerð og hreinsuð og í besta standi.
Hér er svo garðurinn í Versölum hinum pólsku.
Gaman fyrir okkur að skoða allan fallega gróðurinn.
Við forvitnuðumst svo um ríka fólkið sem auðvitað býr sér, en takið eftir að gatan er ómalbikuð. Íbúarnir verða nefnilega sjálfir að sjá um göturnar sem liggja að húsum þeirra. svoleiðis er nú það.
Hér liggja það sem heimamenn kalla landsmæri milli gömlu og nýju Warsjá, þar sem nýju húsin blasa við og á móti liggja ljótu rússablokkirnar.
Við fórum svo og skoðuðum skólann sem Lech lærði í.
Þar er Fridrich Shopin auðvitað heiðursgestur.
Og reyndar nokkrara aðrar skemmtilegar fígúrur líka.
Enn einu sinni var komið að því að kveðja gott samferðafólk.
Og halda af stað til annara góðra vina í Dietlingen, með rútu til Pforsheim.
Vona að þið hafið notið Warsjá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.7.2009 | 14:18
Ferðasagan. Frá Tallin til Warsjár.
Mánudagsmorgun var svo bless við hópinn. Hluti hópsins lagði af stað til Helsinki en við gerðum okkur klár í að aka 1000 km með Lech og Elísabetu til Warsaw. Veðrið var gott, ekki of heitt en sól.
Lech og Elísabet hafa boðið okkur að gista hjá sér nokkra daga í Warsaw, og þar sem við höfum aldrei komið þangað þáðum við það með þökkum.
Við ókum gegnum Eistland, Lettland og Litháen og niður allt Pólland. Það var virkilega gaman að sjá þessi lönd þó við stoppuðum ekki mikið þar.
Eistland er skógi vaxið og sást lítið af landslagi því það var eins og að aka í Noregi bara vegurinn trén og himininn.
Strax og komið var inn í Lettland var meira rými, meira landslag og vötn, það er greinilegt að grunnvatnsstaðan er há þarna. Víða mátti sjá að varað var við dýrum inn á veginn, aðallega elgum og hjartardýrum, en í skógunum eru líka skógarbirnir úlfa, refir og fleiri smádýr.
Við stoppuðum aðeins í Lettlandi, því við Elísabet þurftum að pissa. Við stoppuðum hjá lítilli sveitakrá við þjóðveginn, þar var skilti sem sagði að hér mætti enginn fara á klósettið nema viðskiptavinir, og við vorum ekki með neina Lettneska peninga, svo við ákváðum að fara í smágöngutúr inn í kjarr þarna rétt hjá. Það sást fljótlega að við vorum ekki þær fyrstu, og örugglega ekki þær síðustu sem það gera. Það voru þurrkublöð út um allt. Ég fékk svo þrjú stór bit á rassinn fyrir tiltækið. Sem betur fer björguðu ofnæmispillurnar því að mig klæjaði ekki mikið.
Þegar komið var yfir til Litháen voru endalausar sléttur með ökrum og ávaxtatrjám. Þar var ekki sama landslag og í Eistlandi og Lettlandi. Þeir eru greinilega mikil akuryrkjuþjóð. Það var líka gaman að sjá tækin þeirra og tól, sumt svo eldgamalt að það voru til að mynda sláttugræjur dregnar af hesti, og svo voru líka nýmóðins traktorar. Þannig að það er auðséð að nútíminn er að halda innreið sína í Balkanlöndin..
Við stoppuðum til að taka gas í Litháen ég þurfti að nota vísakortið mitt, því við höfðum ekki neina mynt þaðan. Bíllinn hans Lech notar bæði gas og benzín. Gasið er ódýrara og endist að mig minnir 300 km. Þeir nota því gasið meira á hraðbrautum, en benzínið innanbæjar.Til Warsaw vorum við svo komin um miðnættið, ósköp þreytt en ánægð með að vera komin. Þetta yndæla fólk lét okkur svo sofa í hjónarúminu, enginn mótmæli voru tekinn til greina. Þau sváfu svo sjálf á sófa í stofunni.
Um morguninn svignaði borðið undan dýrindis morgunmat, meira að segja var á boðstólum taðreykt hangikjöt frá Íslandi. Eftir morgunmatinn fórum við svo í miðbæinn með Lech til að skoða borgina. Warsaw er stórkostleg borg með mikla sögu. 90% borgarinnar var jöfnuð við jörðu í stríðinu. Gamli miðbærinn var samt byggður upp í sömu mynd. Við fórum upp í Menninga- og listasafnið sem þeir kalla Stalinpalas. Stalin gaf þjóðinni þetta hús. Það líkist einna helst Empire state byggingunni í New York, sama tilfinningin að fara þarna upp í 30 hæðir og horfa yfir borgina. Byggingin sjálf er yfir 40 hæðir.
Frá þessu sjónarhorni sést að hér er allsstaðar verið að byggja upp og lappa upp á eldri hús, rífa ljótar byggingar frá rússatímanum. Sama hér og í Eistlandi ljótu blokkirnar frá rússum málaðar og blómskreyttar.
Þegar pólverjar losnuðu undan okinu í austri vildu margir rífa þessa byggingu, en sem betur fer var ákveðið að láta söguna ekki gleymast. Það er samt ljóst að þjóðin lítur á bygginguna sem óþægilega minningu um það sem hún vill helst gleyma og ég skil það vel.
Á sínum tíma var Úkraína og Litháen hluti af Póllandi, fólkinu sem þar bjó var svo skipað að rýma húsin sín á skammri stundu, eða var hreinlega skotið, og landamærin færð þangað sem þau eru nú.
Mikið er gott að járnkrumlan missti takið á austur Evrópu og Eystrasaltsríkjunum, áður en þjóðirnar misstu menningu sína og tungu. Hér er svo margt að læra af og uplifa. Yndislegt fólk og mikið menningarlíf, sem íslendingar njóta góðs af. M.a. með því að fá allt hæfileikaríka fólkið og listamennina sem búa á Íslandi og kenna okkur að leika á hljóðfæri og syngja og svo framvegis. Á Íslandi býr fólk frá Eistlandi, Lettlandi Litháen, Póllandi og Ungverjalandi svo eitthvað sé nefnt, sem er að kanna unga fólkinu tónlist og söng.
Í þessum rituðu orðum ligg ég hér í leti út á verönd með bjór meðan Lech kveikir upp í grillinu með aðstoð Ella og Elísabet stússast í eldhúsinu, sjálfsagt að útbúa matinn, en hún er meistarakokkur. Þegar ég spurði hvort ég gæti ekki hjálpað, spurði hún á móti hvort ég vildi ekki heldur fá mér kaldan bjór.Grillveislan var flott, þau eru með grill upp á lóðinni og þar sátum við fram eftir kvöldi að borða, drekka rauðvín og bjór og spjalla í góðu veðri við kertaljós.
Hér eru myndir frá ferðalaginu. Þær eru allflestar teknar út um afturrúðu á fullri ferð, svo það er ekki alltaf bestu myndgæði eða þannig. Biðst afsökunar á því.
Við byrjuðum á að fara í verslun og kaupa okkur vatn og nesti.
ég man ekki alveg hvort er hvað, svo verið getur að ég segi ekki alveg rétt frá, því myndirnar koma ekki alveg í réttri röð. En ég held að þetta sé landamærastöð Eistlands.
Hér sést vel að í Eistlandi er ekkert útsýni á þjóðveginum.
Og ekki er húsakosturinn beysin sumstaðar.
Skemmtilega uppsettar sátur, greinilega þríhyrnd grind fyrst og svo grasið yfir, líkt og þeir setja grasið upp á girðingu í Færeyjum. Þetta sýnist mér vera vegna þess hve grunnvatnsstaðan er há hér.
Það má sjá að útsýnið er meira í Lettlandi.
Ég er annars orðin ansi lunkin við að taka myndir út um bílrúðu á bíl á fleygiferð.
Léttar á okkur við Elísabet búnar að pissa úti á akri og svoleiðis
Eins og ég sagði áðan, þá er ekki alveg að marka hvar við erum, því ég man ekki nákvæmlega hvað var tekið hvar, en þið getið allavega séð það sem fyrir augun bar.
Það er greinilegt að Lettland er evrópusinnað.
Þarna er afleggjarinn til Ríga svo við erum greinilega ennþá í Lettlandi.
Þessi skemmtilegu dýr voru innan landamæra Litháen.
Hér sjáum við Eistrasaltið, en við ókum meðfram ströndinni, þó ekki sæist mikið af því fyrir trjám og hæðum.
Þessi draumur þarf eflaust að bíða um sinn held ég.
Þessi skemmtilega vindmylla vakti athygli mína og nógu tímanlega til að smella af mynd.
Já það er ekki um að villast við erum komin til Litháen.
Þeir hafa líka þessar skemmtilegu lanir sem standa á einhverskonar grindum.
En eins og sjá má, þá er langvíðsýnast í Litháen, og akrar og tún miklu frekar en fjöll og tré.
Og hér glittir í skilti Vilníus höfuðborgar Litháen.
FLugvélar, einhver flugvöllur í sveitinni. Vonandi ekkert hernaðarleyndarmál.
Þið sjáið greinilega muninn á þessum löndum.
Og í Litháen tókum við svo gas á bílinn, ég þurfti aftur að nota kortið, því enga myntina áttum við hér frekar.
Hér er þetta skemmtilega farartæki, ég sá margt skrýtið á leiðinni, til dæmis rakstrarvél sem var dreginn af hesti, og svo voru líka nýtísku traktorar á ferðinni líka með rúllur og plast eins og heima.
Kirkjur eru hér margar og fallegar.
Þetta sérkennilega fjall bar líka fyrir augu. Þetta er ekki snjór, frekar kalk held ég.
Landamæri út úr Litháen. við Pólland.
Og þá erum við að koma inn í Pólland.
Hér má sjá rúllur í plasti. Landslagið var meira hér hólar og hæðir og trjáþyrpingar.
Hér er verið að rúlla og plasta.
Himnagalleríið á fullu, það er farið að halla degi.
Landamærin.
Ég tók eftir að við flesta sveitabæina far svona tjörn, var að spá í hvort þetta væri manngert, til að laða að endur og aðra fugla. Þarna er greinilega svanur á tjörn.
Við vorum farin að verða svöng, enda lítið borðað allan daginn nema kex og snakk. Lech vissi af vegakrá sem var ódýr með ekta pólskum mat. Á þessari krá stoppa flutningabílarnir.
Og hér erum við komin. Margir bílanna hafa einmitt þetta merki á sér Tír.
Og maturinn stóðst allar væntingar. Man bara ekki alveg hvað við fengum, en með voru þær bestu kartöflur sem ég hef smakkað. Elli hafði ekið alla leiðina hingað, nú ætlaði Lech að taka við svo Elli gat fengið sér bjór.
Hér eru svo storkar í hreiðri. Þau voru mörg slík á leiðinni eftir að við komum inn í Pólland. Ég held að menn útbúi svona stæði fyrir fuglana til gera hreiðrin sín. Þetta eru glæsiskepnur.
Sólin er að setjast, og ekki langt í Warsaw.
Á ferð um þorpin.
Á himninum má sjá herskara af krákum ef vel er að gáð. Þær fara í flokkum upp í svefnstæðin sín þegar kvölda tekur. Þessir litlu blettir eru fuglarnir.
Komin heim í faðm fjölskyldunnar.
En ég segi bara takk fyrir mig. Næst mun ég segja dálítið frá Warsjá. Og sýna myndir hún er skemmtileg borg.
Bloggar | Breytt 30.7.2009 kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
O jamm, bara svona til að létta lundina á þessum síðustu og verstu heheheh...
Þessi risastóri broskarl er á Flateyri, einhverji prakkarar hafa greinilega haft mikið fyrir því að gera þennan flotta broskarl í lúpínuna fyrir ofan Flateyri.
Flottur ekki satt?
Flateyringar ráku líka upp stór augu þegar fyrir sjónir þeirra barst þessi galvaski austurríkismaður á því sem kallað er mónobike og þarf talsvert jafnvægi til að hjóla á.
Viðhafnarmikil jarðarför fyrir lítinn fugl sem lenti í kjaftinum á Brandi.
Hér er verið að leggja lokahönd á flöskuskeyti sem senda á út í útlönd, sennilega til að fara fram á fjárhagsstuðning
Lakkað yfir með kertavaxi og allir mjög áhugasamir.
Himnagallerí. Eigið góðan dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.7.2009 | 11:42
Mín skoðun og hugleiðingar um Icesave og ESB.
Almenningur í Þýskalandi, Austurríki og Danmörku vara íslendinga við að ganga inn í Evrópusambandið.
Þeir segja að Evrópa sé á fallandi fæti og fyrirtæki þar hvert af öðru að hætta eða fara á hausinn. Enda eru bankarnir hættir að lána fyrirtækjum og lána bara hvor öðrum og sameinast.
Sumir segja mér að þeir hafi tekið alla sína peningana út úr viðskiptabankanum nema þessar 20.000 evrur sem þýskir bankar ábyrgjast.
Það sé betra að hafa þá undir koddanum eða eyða þeim í að stórbæta húsin sín til framtíðar. Setja upp sólarsellur og þétta húsin til að spara orku. Þetta eru skilaboð til íslendinga frá þessum þjóðum sem vita hvað þeir eru að segja.
Þau segja líka og ég er að tala um mismunandi fjölskyldur í þremur löndum sem ekkert þekkjast innbyrðis en segja nákvæmlega það sama;
Þið hafið allt sem þið þurfið, allar þær náttúruauðlindir sem nýtast ykkur, reynið frekar að standa saman og vinna að því að vera sjálfstæð, skilið láninu frá AGS. Þið eruð eina þjóðin sem getur gert þetta. Og við það eru forvígismenn Evrópu skíthræddir, því fólkið þeirra er hundóánægt með ástandið. Því er lygin þeirra vopn og samtakamátturinn um að halda völdum. Þeir kaupa því alla háu gjaldi sem þeir þurfa til að fá sínu framgengt.
Það er líka allstaðar í þessum löndum sama vandamálið með rúmena sem streyma inn ruplandi og rænandi. Verð auðvitað að taka fram að það er ekki verið að tala um rúmensku þjóðina í heild heldur fólk sennilega sígauna, sem notfæra sér aðstöðu sína til að komast yfir eignir nágrannanna. Þeir stela öllu steini léttara. Austurríkismennirnir sögðu mér til dæmis að þeir hefðu orðið að koma sér upp sérstakri læsingu á blokkinni þar sem dyggði ekki bara að læsa útidyrum, heldur eru tvær læstar hurðir, með nokkurra metra millilbili og innri hurðin einungis opinn fáa klukkutíma á dag, sam komst einhver rúmenin þangað inn og varð að hringja á lögreglu til að fjarlægja hann.
Í Danmörgu er sama vandamálið með svona hópa. Þeir hafa meira að segja komið að nóttu til með trailer og lyftara og tekið alla bílana af sama bílastæðinu.
Ég hef hvergi orðið vör við andúð á íslensku þjóðinni meðal frændþjóða okkar og heldur ekki fyrrum austantjaldslöndum. Allir vita af ástandinu, og flestir þeirra bera frekar hag okkar fyrir brjósti og með þessum viðvörunum vilja þeir að við hugsum um hvað við eigum.
Ef menn eru hræddir við viðskiptaþvinganir, má benda á að það verður örugglega auðvelt að komast að vöruskiptasamningum við til dæmis Serbíu, þeir eru miklir kornræktendur og rækta allan sinn mat sjálfir. Við ættum svo frekar að fara að leggja áherslu á rafknúin farartæki bæði til sjós og lands, þar sem raforkan er ein af hornsteinum styrks okkar.
Ég segi enn og aftur, eins og þessir vinir okkar í Evrópu. Ekki láta þvinga okkur inn í bákn sem er á fallanda fæti, og vill leggja allt í sölurnar til að þvinga okkur inn, hvað sem þeim gengur til. Sumum sem ég ræddi við finnst líklegast að stjórnvöld finni sívaxandi óánægju meðal þegna sinna yfir ástandinu heima fyrir og vilji þess vegna ekki að örríkið Ísland setji þeim stólinn fyrir dyrnar. Þeir eru hræddir við að þurfa að svara ýmsum erfiðum spurningum heima fyrir ef svo verður.
Þetta snýst nefnilega allt um völd og álit. En ekki um efnahagslegar aðgerðir.
Fólk segir líka við mig; Ef þið haldið að sambandsríkin ætli að gera eitthvað fyrir ykkur, þá er það regin misskilningur. Þeir ætla bara að tryggja sína stöðu. Þið fáið engar patentlausnir á ykkar vanda, því þeir geta ekki leyst sinn eigin. Það fara til dæmis daglega fyrirtæki á hausinn í Þýskalandi, oft rótgróin fyrirtæki. Vegna þess að bankarnir lána ekki lengur til fyrirtækja heldur eru þeir í sama leiknum og útrásarvíkingarnir okkar lána hver öðrum og sameinast til að setja þrengri skorður við viðskiptum, segja einhliða upp þeim samningum sem þeir hafa við viðskiptamenn sína. Hjólin eru bara stærri og það tekur lengri tíma að hjakkast niður í endalokin.
Ég viðurkenni að ég veit lítið um þessi mál, og skil ekki alveg sjónarmiðin og reglurnar og allt báknið. En ég kann að hlusta á fólk sem vill okkur vel, vellesið velmenntað fólk sem er okkur hliðhollt og vill ekki sjá Ísland og þjóðina í þessari stöðu.
Við skulum því huga vel að hvað við gerum og ekki flana að neinu. Ekki taka einhver gylliboð og lýðskrum frá neinum. Heldur vanda vel til, láta valdhafa hér vita að við viljum ekki láta þröngva okkur inn í eitthvað sem við hvorki skiljum né þekkjum.
Við þurfum þess nefnilega ekki. Við höfum næstum allt sem við þurfum. Heimóttarskapurinn sem Evrópusinnar saka okkur hin um er nefnilega þeirra meginn. Að vilja hlaupa undir einhvern verndarvæng af því að þeir halda að ungamamma breiði vængina sína yfir okkur og verndi. Málið er einfaldlega það að ungamamman er bæði með klær og velbrýndan gogg og þarf nýtt blóð. Það er því ekki mjög árennilegt að reyna að smjúga þar inn, ekki frekar en Hans og Gréta sem héldu að kökuhúsið væri heimsins besti staður fyrir þau, en fundu svo sannarlega að þar var maðkur í mysunni.
Við komumst aldrei hjá því að vinna okkur sjálf út úr vandanum. Og við getum það ef við einhendum okkur í það en ekki þetta bull sem nú er. Og eins og einn daninn sagði við mig; ég heyri að þið eruð alltaf að tala um að þið þurfið að borga Icesave til að fá traust.... ég get alveg sagt ykkur að traustið er farið, og þó þið borgið kemur það ekkert til baka. Eina sem þið gerið af viti er að neita að borga og fara svo í að vinna þjóðina út úr þessum vanda heima fyrir.
Nú segja einhverjir að þetta séu bara tilfinningaleg rök og ekkert að marka. Það eru til hundrað álitsgjafir skýrslur og allskonar tölulegar upplýsingar sem hægt er að lesa sér til um, svo má skoða hvað mikið er að marka þær, það fer eftir því hver semur og hvernig sá eða sú er tengd inn í apparatið, og hvort viðkomandi fær greitt frá einhverjum til að setja svona kenningar fram, það virðist vera að vel flestir séu falir fyrir fé, og mér skilst að þarna sé allt löðrandi í mútufé og gylliboðum.
Ég hlusta á fólkið og finn í hjarta mínu að þar liggur sannleikurinn. Það er að vísu mín sannfæring, en ég vil samt sem áður segja frá þessum álitsgjöfum mínum sem lifa og hrærast í þessu ESBsambandi og þekkja þar allt mikið betur en ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2009 | 21:25
Síðustu dagar í Tallin. Dans og Sönghátíðin mikla.
Við byrjuðum daginn kl. 9 með morgunverði. Rútan kom kl. 10.30 og þá var farið á ólympíuleikvanginn þeirra. Þar vorum við í stúkusætum. Allir miðar voru uppseldir, svo við vorum heppin að fá miða og hvað þá stúkusæti.
Ólympíueldurinn var kveiktur og það ríkti mikil stemning.
Þetta var þvílíkt sjónarspil dansinn, ég var að hugsa þegar ég horfði yfir þennan risastóra fótboltavöll, að fólkið hlyti að vera eins og krækiber í helvíti, að dansa þarna niðri. Ég get bara lýst þessu í myndum, því mig skortir orð. Þau táknuðu sögu frá sjónum, og mynduðu m.a. Eistland og eyjarnar.
Eftir sýninguna urðum við að fara fljótt yfir sögu til að ná tónleikunum, sem voru annarsstaðar, í öðru ólympíuhúsi.Tallin statium. Það er sér hönnuð bygging og eru bara tvær til slíkar í himinum. Hin er held ég í Vilnius, ef ég hef tekið rétt eftir. Báðar eftir sama arkitekt.
En það var ekki hægt að flýta sér neitt, rútan komst ekki lönd eða strönd, því allstaðar var fullt af rútum. Loks fór Matis út og sagði eitthvað við umferðarverðina, og þeir rýmkuðu til fyrir okkur. Held að hann hafi sagt að við værum gestir frá Íslandi, og við þyrftum að komast leiðar okkar. Allavega komum vil ekki mikið of seint á hinn leikvanginn. En drottinn minn dýri þvílík mannmergð. Við höfðum líka keypt okkur stúkusæti þar, og sátum í hæfilegri fjarlægð frá sviðinu til að sjá og heyra vel. Það var líka rýmra um okkur í sætum sem þar voru en fyrir utan, þar sem fólkið þurfti að standa, eða sitja í grasinu. Þarna hefur verið ca 200 000 manns. Ég held að ég verði að láta myndirnar tala þar líka.
Fyrstir á svið á Song Celebration var lúðrasveit Wind Orhestras með 1700 spilurum. Þarna gat að hlýða á 24.700 manna kór, með hljómsveit Estonian National symphony og ýmsum stjórnendum, sem var vel fagnað. Í þessum kórum var fólk frá mörgum löndum, barnakórar, kvenkórar, karlakórar og blandaðir. Þau sungu svo öll saman síðustu lögin og var mikil stemning, fánum veifar og sumi klökknuðu, aðrir stóðu stoltir. Það var gríðarleg stemning á staðnum. Og tekið upp með fjórum myndavélum af estoniska sjónvarpinu. Þegar svo í lokin var sungin Þjóðsöngurinn My country is my love og það lag sem þeir elska mest og My homeland stóðu allir á fætur veifuðu fánum, sungu með og sumir grétu.
Yfirskriftin á þessum tónleikum var To Breath as one, o gþarna önduðu þúsundir í takt. Ég hugsa að þetta verði fyrir mér alveg einstök upplifun.
Smá upphitun.
Ólympíuleikvangurinn annar þeirra.
Dansarar streyma niður á leikvanginn. Stórkostlegt að horfa á.
Og það var hvert sæti skipað á vellinum eins og sjá má.
Hér hafa þau myndað Eistland og eyjarnar. Þetta er saga af hafinu. Saga Eistlands.
Er þetta ekki alveg magnað?
Allt dansandi fólk í sínum fallegu búningum.
Maður fer að hugsa hve langur tími hafi farið í æfingar og slíkt.
Því þetta er svo sannarlega sjónarspil.
En ég held nefnilega að það taki margar þjóðir þátt í dansinum, og það flækir málið svolítið.
Þetta hljóta allt að vera fagfólk í dansi.
Ég veit bara að það liggur alveg ofboðslega mikil vinna á bak við svona skipulagningu.
Og flott er það.
Sjór og skip.
Sjáið bara.
Slaufa í hárið.
Takk fyrir það.
Við reyndum að komast út áður en öll skriðan kæmi. Því þarna voru mörgþúsund manns.
Og svona rétt til að kæla sig niður eftir dýrðina, tilbúin í næstu, er ágætt að skoða arkitektúr. Hér sjást þessi tradisional Eistnesku hús sem voru mörg eyðilögð í stríðinu. Og svo glæsibyggingar sem byggðar hafa verið þar sem þau stóðu.
Sjást betur hér.
Við urðum að ganga drúgan spöl því rútan komst ekki að okkur. Enda mikill rútuskógur allt í kring.
Og þá er það posjón númer tvö. Ekki var færra um manninn hér í Statium.
Nánast hver þúfa full af fólki.
Hugsa að hér hafi ekki verið undir 200.000 manns. Jafnvel eins og allir íslendingar.
Svo þurfti að standa aðeins upp og fá sér að borða og kaupa bjór. En við vorum heppinn að hafa keypt okkur stúkusæti sem kostuðu 300 estonian money.
Hér sést hin hliðin á þessari glæsibyggingu.
Ég veit að þið getið ekki ímyndað ykkur að hlusta á fleiri þúsund radda kór, en þarna innundir þakinu er fólkið að syngja.
Og takk fyrir 24.700 manna kór.
Og áhorfendaskarinn.... Drottinn minn.
Symfónían eistneska.
Stjórnendur voru þarna í bláa kassanum, eins og krækiber í helvíti. Hugsið ykkur að stjórna svona og þetta var ekkert bara eitthvað út í loftið. Heldur söng fólkið hækkað og lækkað og jafnvel með kúnstþögnum í miðju lagi. Það var ótrúlega flott.
Ó já mín kæru, þessu er ekki hægt að lýsa í orðum. Hér dugar bara myndmálið.
En það voru ekki allir andagtugir heheheh... Palli var að nudda fæturna á elskunni sinni, hún var örugglega þreytt eftir allt labberíið.
Við reyndum að komast í burtu áður en allt var endanlega búið, til að komast út í rútuna.
Hápunktur kvöldsins, My Country is my love... og My homeland. We breath as one, og þetta var virkilega áhrifamikil stund.
Fólkið fór að týnast heim til sín glatt í sinni. Og hafði efni á því eftir svona glæsilega hátíð.
Innilega takk fyrir mig Eistland.
Og bílstjórinn okkar hann Arvi gaf okkur síðan margverðlaunaða rauðvínsflösku að skilnaði. Og þarna má sjá bjórinn sem við nutum í rútuferðum.
Við ókum síðan fram hjá hinu rússneska gettói, sem er þunglamalegt og ljótt.
Þeir eru samt sem áður að byggja sér flotta kirkju. Það er svoleiðis að trúin gengur alltaf fyrir bæði mat og gæðum manneskjunnar. Fyrst þarf kirkjan sitt svo mega hinir bjarga sér.
Hópmynd, þar sem þetta er síðasta kvöldið í Tallin. Á morgun förum við sitt í hvora áttina. Við til Warsaw með Lech og Elisabetu og þau hin til Íslands.
Fengum okkur að borða á hótelinu síðasta kvöldið. Og nutum rauðvínsins verðlaunaða.
En finnarnir dönsuðu áfram af mikilli gleði.
En á morgun liggur fyrir 1000 km leið til Warsaw. Kæru ferðafélagar kærar þakkir fyrir mig, þið voru virkilega skemmtilegur félagsskapur, Matís og fjölskylda takk fyrir okkur Ella, við virkilega nutum okkar þarna undir ykkar leiðsögn. Og allt var þér og þínu fólki til sóma. Eistland takk fyrir mig. Ég á örugglega eftir að koma þarna aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.7.2009 | 20:59
Frá Tallin til Belgrad. Ísafjörður - Tallin fyrsti hluti.
Við lögðum af stað frá Ísafirði 27. júní á laugardegi. Litlu stelpurnar fóru með okkur og ætla að vera hjá pabba sínum, mamma þeirra kemur svo eftir þrjá daga. En við dveljum hjá Bjarka pabba þeirra í húsi við Háteigsveg sem hann hefur tekið á leigu, meðan Bára dvelst á landinu.
Þessi mynd er tekin í dag, sjáið samt hve snjórinn er mikill í fjöllum komin endaður júlí.
Á leiðinni suður, krían í árásarhug tekinn í Ísafjarðardjúpi.
Afi sækir snjó fyrir ungar dömur upp á Þorskafjarðarheiði.
Komin heim til pabba og hann búin að kaupa alvöruprinsessurúm.
Og þá var bara eftir að opna skartgripaskrýnið og skreyta prinsessurnar.
Svo þurfti að teikna... afi er góður leiðbeinandi.
Svo er að máta sig við skartgripina
Pabbi þarf svo að lesa fyrir dömurnar sínar.
Meðan afi fór út að prófa skrýtið hjól.
Við flugum svo út þann 29. mánudegi. Við hittum ferðafélagana, en það er lúðrasveit Ísafjarðar sem er að fara. Það fara þó einungis fáir með, þá langt sé síðan ákveðið var að fara. Sennilega spilar efnahagsástandið inn í. Matis sem er tónlistarkennari hér frá Eistlandi tók á móti okkur á flugvellinum í Helsinki, og við fórum með risastórri ferju yfir til Tallin. Það beið okkar rúta og bílstjórinn Arvi sem fylgdu okkur alla dagana í Eistlandi.
Og nú get ég sýnt ykkur himnagalleríið frá öðru sjónarhorni. Jafnfallegt fyrir því.
Ekki satt?
Komin til Helsinki.
Jamm hingað liggur leið.
Superstar risastór ferja flutti okkur frá Helsinki til Tallin.
Samt betra að fá sér að drekka fyrst.
Ekki samt og mikið því það kostaði skrifa og segi 5 evrur að pissa þarna.
Má bjóða ykkur Vana Tallinn? Nei segir Baldi Geirmunds, því hann drekkur ekkert sterkara en kók, já sagðí ég og fékk mér sopa.
Aðrir ferðafélagar fengu svona Titanic fíling hehehehe... Enda sumir hér stórleikarar.
Um borð voru margir veitingastaðir, við völdum einn sem var í ódýrarikantinum en vorum ánægð með matinn sem við fengum.
Tallin framundan.
Komin til Tallin.
Eistland hefur verið við lýði í a.m.k. tíu þúsund ár og Eistlendingar með rótgrónustu þjóðum í heimi, með sitt eigið tungumál sem hefur fylgt þeim alla tíð, og nútímavæðst eftir því sem tímarnir líða.
Vilt dýr í Eistslandi eru m.a. Elgir, skógarbirnir, refir úlfar, hérar, hjartardýr, villisvín og bifur.
Fyrsta og lengstu lestarteinar í Evrópu lágu einmitt frá Tallin til St. Pétursborgar og voru lagðir 1870.
Tallin höfuðborg Eistlands komst á heimskortið um 1154 og fór í samstarf við Hansaverslunarsambandið 1300 - 1500.
Matis var búin að panta fyrir okkur hótel út í sveit, sem var á virkilega fallegum stað. Þegar við áttum að tékka okkur inn þar, kom í ljós að posinn virkaði ekki, svo enginn gat greitt fyrir herbergin.
Endaði með því að Matis lagði fram vegabréfið sitt sem pant fyrir okkur. Það kom svo á daginn að sumir voru ekki nógu ánægðir með rúmin sem í boði voru. Og það var ekki morgunmatur innifalinn, og þetta var í sveit, og enginn matsölustaður. Svo Matis ákvað að finna annað hótel niður í Tallin.
Innrituninn gekk ekki vel, því posinn virkaði ekki og endaði með því að Matis þurfti að leggja vegabréfið sitt inn að veði fyrir okkur.
Sveitahótelið.
Hanna Sól og Brandur..... nei Aníta og Branda.
En við áttum yndislegt kvöld í sveitinni, með pólskan mat og eistneskt vín og virkilega góðan félagsskap.
Matis ákvað því að finna annað hótel niður í bæ morguninn eftir. Hann bauð okkur svo í morgunmat morguninn eftir, því hann hafði áhyggjur af því að við fengjum ekki morgunmat.
Við eyddum kvöldinu á þessu fallega sveitahóteli, sátum í stórri rólu sem virðist vera hér á mörgum stöðum. Lech frá Póllandi sem einnig er kennari við tónlistarskólann var kominn ásamt konu sinni frá Warsaw, með allskonar pólskt góðgæti og Matis hafði komið með rauðvín og bjór. Reynar keypti hann ósköpin öll af bjór í ferjunni, því hann sagði að það væri alveg ómögulegt að vera bjórlaus í rútunni. Hann reyndist sannspár það, það var gott að fá sér öl sérstaklega þegar langt var ekið. Við drukkum líka Vana Tallinn sem er líkjör sérlega bragðgóður.
Í morgunmat hjá Matis og hans góðu fjölskyldu.
Daginn eftir, var byrjað á morgunmat hjá Matis, hann býr í einni af þessum gömlu rússablokkum sem eru tákn fyrir gamla tímann. Það var skrýtið að labba upp á sjöttu hæð og allt var eldgamalt hurðir og leiðslur og veggir. En íbúðin var skemmtileg og sást vel yfir nágrennið.
Því næst var að skipta um hótel. Þetta var gott hótel og auðvelt að komast í bæinn, en við fórum mest allt með rútunni og Arva sem alltaf var boðinn og búinn.
Svo var haldið suður á bóginn til bæjar sem heitir Pärnu, en þar er stór og mikil strönd.
Sigrún Viggós ein af ferðafélögunum og Elli syntu í Estrasaltinu en við hin létum okkur nægja að vaða, þarna er mjög aðgrunnt og þarf að fara langt út til að geta synt.
Í Tallin er Rússneskt hverfi þar sem rússar sem koma til að fá betra líf, fá íbúðir. Þar er líka allt svolítið grátt og ljótt. Það er greinilegt að Eistar hafa ekki mikla ást á Rússlandi og því sem því viðkemur.
Eistar hafa svo gert tilraun til að fríkka upp á ljótar rússablokkir með því að mála þær í glaðlegum litum og setja blóm á svalirnar.
Rútan sem flutti okkur hvert á land sem var á Eistlandi.
Á leið niður á strönd í Pärnu, Elli vildi endilega taka þessa mynd hehehe..
Ströndin var stórglæsileg, hér eru Lech og Elísabeth.Og Matis á milli.
Ströndin er gríðalega stór og mikil, en mikið aðgrunn.
Vatnið er um 18°.
Ef maður má ekki breyta útliti bæjarins, þá þarf bara að hafa framhliðina í stíl. Það gera Parísarbúar líka.
Í Eistlandi var lengstu lestarteinar í Evrópu, þegar lestinn gat farið frá Tallinn til St. Pétursborgar. Hér er gamla lestinn, barn síns tíma. Í dag er dýrara að ferðast með lestum en rútum, sem mér finnst skrýtið, því bílar nota jú olíu eða benzín, meðan lestarnar nota rafmagn og hljóta því að vera umhverfisvænni heldur en rúturnar.
.
Já það er ýmislegt skondið sem maður sér í útlöndum.
Skrýtnir gaurar líka
Má bjóða ykkur appelsínur.
Við borðuðum svo góðan kvöldverð á hótelinu. Við þurftum að vakna snemma eða kl. 7 að eistneskum tíma, en klukkan hér er þremur tímum á undan okkar.
Hér er reyndar setið fyrir utan og smá bjórþamb í gangi. Nema náttúrulega Kaja og Baldi, þau drekka bara kók og vatn.
Vöknuðum kl. 6.30 til að borða morgunmat og síðan út í rútu til að fara til eyjarinnar Hiiumsaa, þar er frægur viti sem sum okkar fóru upp í, en ég sat bara og fékk mér rauðvín í góðum félagsskap Elisabethu hinnar pólsku eiginkonu Lech, reglulega yndæl kona.
Matis sagði okkur að þá um nóttina hefði verið svo mikið þrumuveður sunnar í landinu að það kom eldur í 10 hús og þrjú þeirra brunnu til kaldra kola. Enginn dó þó en einhverjir voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun og fólkið fékk áfallahjálp eftir á.
Ferjan sem við fórum með til eyjarinar er sumum íslendingum að góðu kunn, því hún var í flutningum milli lands og eyja meðan Herjólfur var í viðgerð, nafn hennar er St. Ola. Þeir sögðu að það gæti vel verið að þeir færu aftur til Íslands, því það stendur til að laga Herjólf aftur. Það var stýrimaðurinn sem sagði Matis þetta og var ánægður með Íslandsdvölina.
Um borð í St. Ola.
Vestmanneyingar muna ef til vill eftir þessari ferju.
Við borðuðum hádegismat á skemmtilegri sveitakrá Tarvo Nömm, þegar við komum inn tók á móti okkur tónlist með Messoforte, Gardenpartý glumdi við þegar við gengum inn. Þarna er líka skrifað á veggina, og sumt á íslensku, gaman að því. Enda dvelur eigandinn á Íslandi á veturna við kennslu í músikk við Mývatn.
Kemur svo hingað á sumrin og rekur veitingakrá sína yfir blásumarið. Þetta var yndisleg upplifun.
En smá útúrdúr hér er spilað oft á dag í eistneska útvarpinu lagið hennar Jóhönnu Is it true.
Jää hefur skrifað bók um Ísland sem heitir Minu Ísland, þar sem hann segir frá upplifun sinni á Íslandi, fólki og áttúru. Það væri gaman að fá hana þýdda á Íslensku. Þetta er tíðkað hér að fólk sem fer í önnur lönd skrifi um þau þegar þeir koma heim. Þetta er vinsælt og bókin um Ísland var með vinsælustu bókum þetta árið í Eistlandi. Í bókinni eru mjög fallegar myndir af landi og þjóð.
Á Hiiumaa ókum við fram hjá rússneskri herstöð sem var látinn grotna niður það var greinilegt á rödd fararstjórans að hann hafði andstyggð á þessum stað. Þaðan voru sendar sprengiflugvélar í stríðinu. Ef til vill ti Pforzheim, þegar bandamenn lögðu borgina í rúst eftir að stríðinu lauk og um 20 þúsund manns létu lífið á einni nóttu. Saklausir borgarar konur og börn. Þetta var hefnd bandamanna vegna þess að í Pforzheim voru hergagnaverksmiðjur.
Fengum okkur svo kvöldverð um borð í St. Ola og vorum allþreytt þegar við komum heim á hótelið.
Kvöldverður um borð í St. Ola.
Sváfum út morguninn eftir. Nú var hátíðin að byrja. Við ætluðum niður í miðborg Tallin, og allstaðar var prúðbúið fólk í þjóðbúningum. Á hótelinu var finnsk lúðrasveit sem lék lög fyrir gestina út í hótelgarðinum.
Við vorum upp á herbergi og Elli segir við mig, "ég er að horfa á rússneskar fréttir í sjónvarpinu". Aha sagði ég, "en mikið eru þeir þjóðernissinnaðir, hafa bara lúðrasveit hersins að leika undir fréttirnar". Svo uppgötvaði ég að blásturinn kom inn um gluggann en ekki úr sjónvarpinu. Þá var finnska lúðrasveitinn að leika í garðinum. Við hlóum eftir á yfir því að við skyldum hafa haldi þetta með fréttirnar og lúðrablásturinn.
Finnskar eiginkonur lúðrasveitarmanna komnar í búninga tilbúnar í opnun hátíðarinnar. Smá brandari, fór upp með lyftunni með nokkrum finnskum lúðrasveitarmönnum. Þeir spurðu hvaða hæð ég færi á, og ég svarðaði þeim á sænsku, þeir töluðu það mál, að ég færi upp á sjöundu, já sögðu þeir þið segið shugv við segju sju, jamm sagði ég en það bíttar engu fyrir mig því ég er frá Íslandi. Nú sögðu þeir, þá hlýtur þú að eiga fullt af peningum, og svo hlógu þeir rosalega.
Tallin iðaði öll af lífi og prúðbúnu fólki. Það var mikil stemning í loftinu og veðrið var yndislegt.
Við fórum upp á hæð þar sem forsetahöllin er og heimili hinna ríku. Svo gengum við um bæinn og upplifðum stemninguna.
Garðurinn bak við forsetahöllina.
Höllin sjálf.
Myndarlegur yfir 100 ára gamall pílviður í garðinum.
Vorum viðstödd opnunarsýninguna sem var á stóru sviði á torgi einu. Þar sem allskonar hljómsveitir léku.
Stórt svið á einu torginu í miðbænum.
Fólkið streymir allstaðar að, allir prúðbúnir og flestir í þjóðbúningum.
Það er margt að skoða í Tallinn, hér er afar falleg kirkja og höll upp á hæð sem sést vel yfir Tallin.
Þar uppi er milljón króna klósett, sem við urðum auðvitað að prófa hehehehe....
Hér eru margar fagrar byggingar.
Frá virkisveggnum sést vel yfir Tallin.
Við þurfum einn svona ekki satt? Þessi smíðar mynt.
Á ferð okkar gat að líta mörg skrýtin farartæki.
Góð hugmynd að skreytingum svona á þessum síðustu og verstu.
Og hátíðin í fullum sving, hér eru það nikkarar sem spila.
Upplagt að fá sér að borða.
Og menn eru uppábúnir.
Konur geta líka stjórnað.
Úr fíflum og sóleyjum festar hún batt.... þær voru margar sem höfðu svona falleg höfuðskraut.
Ekki árennileg þessi.
Tallin var hluti af Hansakaupveldinu, það reyndist ekki vera neitt Bauggroup eða þannig.
Já þessir koma ef til vill í staðinn fyrir mercedesbens og svoleiðis farartæki.
Gamlar byggingar.
Loks er gott að koma sér heim með strætó eftir viðburðarríkan dag.
Á föstudeginum fórum við að skoða safn frá síðustu öld. Það var virkilega gaman að skoða hvernig alþýða Eistlands bjó fyrir löngu síðan, meðan við vorum í torfkofum. Það er samt ótrúlega margt líkt af munum sem menn notuðu, matarílát, rokkar, vefstólar og svo framvegis. Bróderingar og fallegur útsaumur.
Verðirnir voru afskaplega þjóðlegir í sér.
Gæti vel verið hér heima, nema bara við vorum í torfkofunum þegar þessi saga gerðist.
Sumar eldhús.
Tvær flottar.
Flott herbergi. Tók eftir því hve rúmin voru lítil fólk hefur sennilega hækkað eftir því sem árin líða og við höfum betra matarræði og meira úrval. Það gæti verið að breytast núna, því matur virðist ekki hafa sama næringargildi nú og áður.
Hér eru barnaleikföngin.
Fallega fléttað, indíjánar í Mexico tvinna saman pálmablöð en hér nota þeir strá af akrinum.
Þessi hleðsla gæti verið úr Skötufirðinum ekki satt?
Og hér leikur Jón Jónsson og langspil.
Reyndar rugla ég hér saman tveimur söfnum. Annað er gamalt sveitasetur sem upprunalegt og sama ættin sem hefur haft umsjón með því, hitt er Estonian Open Museum.
Það var stofnað árið 1957 við strendur Kopliflóa, það þekur um 60 ha lands og þar eru 72 byggingar frá 18 öld til 1930. Því er svo skipt niður í vestur- norður- og suður Eistland og svo eyjarnar. Og þangað hafa verið flutt hús og munir allstaðar að frá Eistlandi.
Á heimleiðinni komum við við í hljóðfærabúð, þar var margt að skoða.
Um kvöldið fóru svo ferðafélagarnir í næsta þorp til að hlusta á lúðrasveitarkonsert, en ég var þreytt og ákvaðað vera heima. Horfði m.a. á sjónvarpið og sá þá Latabæ á Eistnesku.
Ekkert smáúrval af hljóðfærum.
Skrúðgangan byrjaði svo kl. 14 þennan dag, endalaus röð af prúðbúnu fólki frá mörgum löndum. Þessi hátíð er haldinn á 5 ára fresti og þykir mikill viðburður. Hér mátti sjá fána frá Noregi, Danmörku, Finnlandi, Kanada Ítalíu og mörgum öðrum löndum. Fólki kom í hópum og hafði hver hópur sinn fána, eða merki hvaðan þeir væru, skólum, héruðum og slíku.
Menn farnir að mæta á svæðið.
Sumir komnir ansi langt að, þessir frá Perú.
Glaðar göngukonur.
Og líkt og á Austurvelli veifa menn spjöldum, nema þessi voru gleðispjöld.
Endalaus röð í fleiri klukkutíma full af gleði og fegurð.
Allstaðar að út heiminum, frá Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Kanada og miklu fleiri.
Áfram áfram nú skal halda, syngja, spila og vera glöð.
Valkyrjur og börn og bura.
Flottar mæðgur með fánana sína.
Þegar skrúðgangan hafði farið fram hjá okkur, fórum við heim á hótel og fylgdumst með öllu í beinni í sjónvarpinu.
Og ef þið hafi haldið að þetta væri ekki mjög margt fólk, þá sést hér að það er heill hellingur alveg.
Hér eru margar fallegar byggingar.
Við fórum líka í listasafn Tallins.
Nýlega opnuð glæsibygging.
Húsið bak við stafina er dæmigert hús frá tímabili í Tallinn, mörg þeirra voru sprengd í stríðinu.
Dálítið dæmigert fyrir okkur ekki satt??
Við fylgdumst með skrúðgöngunni fara hjá, en nenntum ekki að fylgja þeim alla leið á enda, en þau enduðu niður við Leikvanginn frá Ópympíuleikvanginum, skrúðgangan var endalaus frá því kl. 14 til 18.30, og þá fórum við heim og horfðum á útsendingu í sjónvarpinu þar sem fólkið var að safnast saman við endastöðina.
En næst mun ég segja frá dansinum á ólympíuleikvanginum þeirra og svo Konsertinum þar sem við hlýttum á 27 þúsund manna kór syngja.
Vona að ykkur hafi ekki leiðst ferðalagið.
Bloggar | Breytt 27.7.2009 kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
25.7.2009 | 16:38
Komin heim.
Jæja þá er maður komin heim í heiðarbæinn. Kom í gærkveldi og er ennþá dálítið ferðarykug. Fer að vinna að ferðasögunni fljótlega. Það gerðist svo mikið og skemmtilegt og mig langar svo mikið til að segja ykkur frá upplifun minni, þannig að vanda skal til alls. Get bara sagt að það var upplifun að hitta allt þetta dásamlega fólk sem bar okkur Ella á höndum sér frá Tallinn, niður til Warsaw, þaðan með rútu til Pforsheim, þar sem vinir okkar tóku á móti okkur og síðan til Belgrad að lokum Kaupmannahön. Allstaðar var hlýja og virðing. Allir vissu af "the crass" og fólkið hafði samúð með íslenskrfi þjóð, það varaði okkur við að ganga í ESB og greiða Icesave.
Alþýða þessara þjóða hafði ríka samúð með íslenskri þjóð eins og ég sagði, og varaði við því að verið væri að pretta okkur og fara illa með, með aðstoð fólks sem vissi betur.
Í þýskalandi sögðu þau okkur að það væri glapræði að fara inn í ESB, því það væri allt á hægri niðurleið að krassi alveg eins og hér. Þýskaland og þau hin væru bara stærri og tæki lengri tíma, en það væri greinilega hægt að sjá sömu merkin, þar sem bankarnir væru hættir að lána fyrirtækjum, lánuðu bara hver öðrum til að hífa upp bréfin sín. Þar voru allstaðar fyrirtæki að leggja upp laupana, og víða mátti sjá til leigu skilti, og heimamenn sögðu mér að hver verslunin á fætur annari legðist af, meira að segja yfir 100 ára gömul rótgróin fyrirtæki hættu eða færu á hausinn. Og stjórnvöld segja okkur ósatt, var sagt. Einn sagði ég er búin að taka alla mína peninga út úr bankanum mínum, nema þessar 20.000 evrur sem hann ábyrgist. Það er miklu betra að nota peningana í að byggja upp íbúðarhúsið eða í fjölskylduna, því bráðum fer þetta allt niður. Sama var upp á teningnum í Danmörku. Þið getið varla verið svo vitlaust að ætla að ganga inn í ESB, sagði vinur minn. Hér er allt að fara til fjandans. Maður fær ekki læknisaðstoð, því það er allt einkavætt og þeir ríku ganga fyrir öllu. Ég þurfti að fara með konuna mína til Íslands í aðgerð, því við komumst ekki að hér. Hér ganga líka allskonar ribbaldar lausir ruplandi og rænandi og ekkert hægt að ráða við neitt. Nei sagði hann, núna er stærsta rán sögunnar að gerast á Íslandi, vegna þess að þjófarnir sitja enn og ráða, öllu. Af hverju takið þið ekki á þessu og látið þjófana svara til saka? Af hverju lætur íslensk alþýða það viðgangast að útrásarliðið sé að leika sér um allan heiminn í snekkjum og listiskútum, hér er gert grín að þessu í fjölmiðlum sagði hann.
Ég átti enginn svör. En sem betur fer hef ég séð og lesið að íslensk alþýða er að vakna til lífsins loksins, en mikið andskoti tekur það langann tíma. Það þarf að hreinsa ærlega út, alla stjórnsýsluna eins og hún leggur sig og fá inn nýtt samfélag, eins og við vorum að biðja um í vetur. Út með spillingarliðið. Þjóðstjórn með sérfræðinga sem eru eins óháðir og hægt er sem fá það verkefni að vina skynsamlega að því að koma okkur út úr þessu, helst hjálparlaust.
Ég er komin á eftir þessi samtöl og álit fólks erlendis að við eigum að gera alþýðubyltingu.
Við látum ljúga að okkur og segja okkur allskona bull, eins og að ef við borgum ekki Icesave missum við allann trúverðugleika. Við höfum engann trúverðugleika hvort sem við borgum eða ekki, þannig er það bara, eina sem breytist er að við verðum þrælar um margra áratuga skeið og börnin okkar og barnabörnin.
Einn þjóðverji sagði við mig, þið eruð mesta von Evrópu, með því að neita að taka þátt í þessu dæmi, skila alþjóðagjaldeyrispeningunum og standa saman sem þjóð að því að reisa ykkur við, sýnið þið hinum þjóðunum að það er hægt. Því þeir eru allir skíthræddir. Þið hafið allt sem þið þurfið. Allar ykkar auðlindir og þið getið örugglega komist betur út úr þessu dæmi öllu ef þið standið á eigin fótum.
Einn íslendingur sagði mér að við værum búin að verðleggja okkur út af Bandaríkjamarkaði með fisksölu, vegna þess að við værum svo mikil flón að hækka alltaf verðið af því að við tryðum því sjálf að fiskurinn okkar væri besti fiskur í heimi. Hann sagði bandaríska húsmóðirinn hefur ákveðna upphæð sem hún ætlar að nota í mat, og þegar hún fer út í fiskbúð, þá kaupir hún frekar ódýra fiskinn en þann dýra. Væri ekki nær að ríkisstjórninn lækkaði álögur á útfluttan fisk svo fleiri gætu keypt hann og meiri peningur þannig komið inn. Sama er að gerast í Evrópu, það er kreppa og þá hugsar fólk fyrst um verðið en ekki gæðin.
Ég hef á tilfinningunni að við séum ekki að hugsa málin á réttan hátt, heldur erum við í svona heiðursæfingum, eins og í fornöld, þegar maður drap mann, sjálfum sér til heiðurs. Í stað þess að ganga í verkin eins og þau liggja fyrir, og skoða hvað við getum gert sjálfum okkur til bjargar, þá erum við móðursjúk yfir þvi hvað þessi eða hinn hugsar um okkur. Þetta er bara tjara. Við getum alveg bjargað okkur sjálf. Hættum að hlusta á þetta fólk sem æpir um að við verðum að borga til að halda andlitinu. Þau eru að forgangsraða vitlaust, og því ættum við að hlusta á aðrar raddir og skynsamari, sem segja okkur að við viljum frekar leggja á okkur meiri vinnu og auknar byrgðar í bili til að losa okkur undan sleiferíi og nauðung.
Þetta er fólkið sem verður að fara í hárgreiðslu einu sinni í viku af því að það getur ekki látið sjá sig með hárið druslulegt, jafnvel þó það hafi engan veginn efni á því. Og ég er að tala myndrænt.
Ég losnaði undan þessu Icesave kjaftæði í þrjár viku og ESB umræðunni sem betur fer, og sé núna í svolítilli fjarlægð að ég og þeir sem tala líkt og ég er fólkið sem hefur rétt fyrir sér. Það segja líka vinir mínir erlendir. Þess vegna ætla ég að leggja mína vigt á vogarskálarnar til að láta þá rödd heyrast hátt og vel að við eigum hvorki að ganga í ESB eða borga Icesave. Og hananú!!!
En ég ætla að setja inn nokkrar myndir svona sem upphitun.
Komin heim tilbúinn í slaginn með mínu fólki.
Við Elli erum ánægð með að vera komin heim.
ég heimsótti duglegu fallegu systur mína í Köge, nánar verður skýrt frá því síðar.
Líka þessu fallega brúðkaupi.
Hér erum við skátengdadóttir mín, en við náðum mjög vel saman.
Massei Fergusson.... nei made ein Yugoslavi, nánar sagt frá því síðar líka.
Reykjanes var síðasti viðkomustaðurinn áður en Ísafjörður, og þessi mynd var tekinn til að gleðja bloggvinkonu mína Sollu. Her er systir hennar og sonur sem elduðu þennan líka flotta fisk fyrir okkur í Reykjanesinu, þegar við ákváðum að koma þar við, fara í laugina og borða á heimleiðinni.
En sumsé hér er ég komin. Knús á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
18.7.2009 | 17:20
Beograd
Ég er í afslöppun upp æa hótelherbergi nákvæmlega núna. Við Elli fórum á baðströnd hér í dag, ekki á sjó en við ána Sava. Þar var margt um manninn og verulega heitt, þar sem hitinn er yfir 35 %.
Í gær fórum við að borða í stærsta spilavíti í Evrópu að því að okkur var sagt. Sannarlega 5 stjörnu restrausrant enda maturinn og þjónustan algjört æði sértaklega fyrir sveitalubbana okkur, núna er fólkið vinir og vinnufélagar Bjössa komin og þetta er því um 20 manna hópur. Serbarnir vildu allt fyrir okkur gera, því við erum stærsti hópur ferðamanna sem hafa komið hingað hingað til. Ferðaskrifstofa ríkisins hefur umsjón með þessu öllu og þið fáið síðar að vita allt sem þar er innifalið. Forstjóri ferðaskrifastofunnar var þarna kominn til að fylgjast með að allt færi vel fram. Það virðist meiriháttar mál að fara inn í spilavíti, það þarf að fylla út einskonar register eins og maður þarf að fylla út í flugvélum, síðan er tékk inn hlið, það þarf að sýna passa og leitað á fólki, gengið inn um hlið eins og á flugvöllum, allar myndavélar teknar af manni og svo framvegis. Eins mikið og ég er nú á móti svona, lét ég mig hafa það í þetta sinn, og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með mat eða þjónustu. En sorry engar myndir.
En það er gífurlegur hiti hér í Beograd, Eftir smá stund förum við að sigla á Dóná og borðum kvöldmat um borð í ferju. En ég ætla að senda ykkur nokkara myndir frá í dag, ein auðvitað fáið þið svo ferðasöguna beint í æð þegar heim kemur.
Þetta er aðvísu ekki sandströnd, en ósköp notaleg fyrir utan það
Útsýnið út um gluggan á Hótel Zíra.
Lítill ömmustubbur Arnar Milos með pabba sínum, en hann er rosalega duglegur strákur. Við erum núna öll saman á Hótelinu líka fyrrverandi hans Ella míns, en við erum bara flottar saman.
Mín á markaðnum að kaupa sér húfu, enda nauðsynlegt í öllum þessum hita.
En nú þarf ég að þjóta, bless mín kæru og hafið það gott. Ég er að verða uppétin af fjandans moskitóunum og að drepast úr kláða, en þá er bara að bíta í jaxlinn og bölva í hljóði.
Mikið er ég annars sorgmædd yfir hvernig stjórnmálin eru að þróast heima, þegar við þurfum virkilega að standa saman sem þjóð, þá kasta stjórnamálamenn hverri bonmbunni á fætur annari og skilja fólkið eftir í rjúkandi rúst. Svei þeim bara. Við eigum ekki að láta þá blekkja okkur, og við eigum alls ekki að verja þá vegna flokkadrátta það sem gildir í dag er að við fólkið stöndum saman og látum engan blekkja okkur, því hér er ekkert upp á borðum eins og þau reyna að segja okkur, hér er allt njörvað undir borðinu og enginn veit hver er að gauka hvað að verjum, eins og þýskur vinur minn sagði, það er það sem þeir gera, og þeir hafa nóga peninga til að kaupa fávísa pólitíkusa til fylgilags við hvað sem er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar