16.7.2011 | 21:52
Pípí verður stór.
Eins og þið vitið þá kom gæsarungi inn í garðskálann minn óforvarendis í vor smákríli, sem stóð ekki út úr hnefa. Hann fékk nafnið Pípí, vegna þess að það er nákvæmlega það sem hann segir.
Nú er Pípí að verða táningur, stirðbusalegur og tætingslegur. En það er gaman að fylgjast með honum, vaxa og dafna.
Þetta er uppáhalds stellinginn hans. Hann eltir mig upp á lóð, þegar ég fer í söluna. Þar heillar hann gestina og þeir fylgjast með honum. Hann er líka afar eftiritektarsamur, því hann virðist fylgjast vel með öllu sem gerist í kring um hann.
Af því að hann er svo mikill skítapési þarf ég að smúla garðskálann á hverjum degi. Honum er illa við slönguna. Þetta með að stökkva vatni á gæs á ekki við um Pípí. Og í morgun þegar ég var að ná í slönguna út í garð, sá hann til mín og hljóp sem fætur toguðu út í garð, til að verða ekki fyrir slöngunni. Ég var rétt búin að taka hana upp til að bera hana inn. Svo ályktunarhæfni Pípí er í ágætu lagi.
Systur mínar eru að gera grín að mér og segja að ég þurfi að kenna honum að fljúga. En ég segi þá bara að ég fari með hann upp á kúluna og hendi honum niður og segi: Fly or Die. auðvitað myndi ég aldrei gera það.
En þar sem dúnninn er að fara og fjaðrirnar að vaxa þarf hann sífellt að vera að snyrta sig.
Og það eru allskona tilfæringar, þessar myndir eru teknar í dag eftir vinnu, þegar við sátum og sóluðum okkur í kvöldsólinni.
Hann er afar hjálpsamur, elftinginn er best, svo er grasið og arfinn. Hann trampar niður blómin er étur þau ekki. En hann er duglegur að borða, svo borðar hann líka hænsnamat og allskonar kál.
Smá leikfimiæfingar. Hann er mesti klaufi að koma sér niður af tröppunum, hann kemst auðveldlega upp, en niður kútveltist hann ef maður hjálpar honum ekki.
Stundum liggur hann með báða fætur aftur fyrir sig. En hann er alveg vakandi yfir öllu sem gerist í kring um hann.
Fjaðrirna hans eru að byrja að vaxa yfir dúninn.
Jamm það þarf aðeins að líta í kring um sig, þó maður sé nokkuð öruggur hjá mömmu.
Best að færa sig aðeins.
Og snyrta aðeins meira.
Já svona ná betur undir krikann.
Og svo fjaðrirnar sem eru að myndast.
Og stélið.
Hér sést svo hvernig fjaðrirnar myndar, vaxa fyrst fram og svo fyllist á þær eftir sem á líður. Þetta verður glæsigæs.
Mamma fær svo smádekur líka.
Ekki veitir af að nudda þreytta fætur. Ósköp mjúklega samt.
Já þetta er lykt sem mér finnst góð segir hann.
Og ekki verra að mamma strjúki yfir kroppinn líka.
Svona kaup kaups. En Pípí er skynsamur fugl og ljúfur. Hann er samt að byrja að sýna smá tendensa til að passa húsið, ef einhverjir koma sem hann þekkir ekki. En hann lætur ekki þannig upp í garðplöntustöðinni, þar rabbar hann við gestina af miklum móð og fær hlýjar viðtökur.
Já samspil milli manns og dýrs er algjörlega eftir því hvernig við sjálf viljum hafa það. En nóg af Pípí litla sem bráðum verður stór og glæsilegur.
OG ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.7.2011 | 01:50
Erum við ekki komin dálítið langt í tepruskap og tvískinnungi?
Mikið erum við rosalega orðin langt frá uppruna okkar ef fólk fer á límingunum þó einhver sprangi um nakinn. Ég segi nú bara hverjum er ekki sama þó Jón Jónsson fari út á tippalingnum. Þvílíkur teprugangur. Fæðumst við ekki öll nakinn, og þó við höfum lært gegnum tíðina að klæða af okkur kuldan, þá er ekki þar með sagt að ef það er nógu hlýtt að við getum ekki gengið um án klæða ef við viljum, og af því að það TRUFLAR TEPRULEGA NÁGRANNA say no more.
Við höfum fengið líkama, og hann eldist svo hvað með það þó einhverjir komnir á aldur þurfi að fara út án fata.
Þvílík skömm að mann greyið hafi viljað þrífa bílinn sinn nakinn, og karlakerlingarnar og kerlingakarlarnir í næstu húsum hafa staðið á öndinni af hneykslun og teprugangi.
Er í alvörunni hægt að banna fólki að ganga um í fæðingarfötunum, eða verða næstu lög þannig að það sé bannað að fæðast nema barnið sé komið í föt áður en það kemur út, því það gæti hneykslað læknir og ljósmóður að sjá tilla eða píku, svona óforvarendis.
Nei mannskepnan er komin langt frá uppruna sínum og er í rauninni að afneita sjálfri sér með svona teprugangi, segi og skrifa.
![]() |
Áttræður strípalingur handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.7.2011 | 11:11
Lífið er geimvera .....eða ekki.
Það er að renna upp fyrir okkur almenningi í heiminum að við höfum orðið fyrir árásum geimvera. Nema þessar geimverur koma ekki utan út heimi að því best ég veit. Þær hafa fjölgað sér og stækkað meðal okkar, og með klíkuskap og peningum komið sér svo vel fyrir að þær ráða öllu sem þær vilja ráða. Þessar skepnur eru í líki manns, en hafa hvorki heila né hjarta. Þær eru blindar af græðgi bæði í peninga og yfirráð. Til þess að halda okkur mannskepnunum niðri, hafa þeir uppi allskonar tilburði, búa til stríð, olíukreppur, jafnvel hvalaelskendur. Þeir ráða öllu peningakerfi heimsins, og rúlla upp einu ríki, og hygla öðru. Allt er þetta gert í "mannúðarskyni" að því okkur er sagt. Þeir ráða líka öllum fjölmiðlum heimsins, nema rétt netinu að einhverju leyti, annars væri ég ekki að skrifa þetta. Ef þeir finna að þetta litla sem eftir er af netfrelsi er að gera þeim skaða, þá munu þeir loka þeirri upplýsingaleið líka. Það er ekki bara samtrygging meðal íslenskra ráðamanna, heldur nær þessi samtrygging sem net út um allan heim, þar sitja geimverurnar og plotta um hvað eigi að taka fyrir næst, og hvað þeir ágirnast þann daginn. Hvort sem það eru olíulindir, gullnámur eða jafnvel saltnámur ef út í það er farið. Næstu baráttumálin verða líklega að sölsa undir sig síminnkandi vatnsbýskap jarðarinnar, og jafnvel ef þeim tekst að gjaldfæra loftið sem við öndum að okkur.
Þess vegna eru menn sem vilja koma sannleikanum áleiðis hundeltir allstaðar. Læknar sem reyna að vara við lyfjum sem eru hættuleg eða öðru slíku eru þaggaði niður af mafíunni sem lítur stjórn lyfjarisanna, sem eru auðvitað hluti af geimverunum.
Ég veit ekki hvað er hægt að gera til að koma þessu oki af, því alltaf verður þetta augljósara og ljótara. Lygin stærri og leyndarmálin fleiri. Eina sem getur hugsanlega bjargað mannlegri reisn er samtakamáttur hins vinnandi manns. Og þá er ég að tala um allt venjulegt fólk í heiminum. Það er svo sem að gerast víða að fólk er að gera uppreisn gegn valdinu, og fá að finna fyrir því með allskonar stríðstólum og öðrum andstyggilegum meðulum ráðandi afla, sem ekkert vilja heldur en að við lúffum og gerum eins og okkur er sagt. Það er þegiðu og haltu áfram að skaffa okkur meiri peninga.
Ég er ekki að finna þetta upp, eða gantast, ef þið skoðið málið þá sjáið þið að þetta er bara svona. Og enginn vill eða getur breytt þessu nema við sjálf. Eða eins og maðurinn sagði; einhversstaðar þarf að byrja.
En nóg um þetta.
Ást er.....
Knús.
Og Pípí er að stækka, nú er hann farin að sýna takta við að passa húsið ef fólk kemur sem hann þekkir ekki. Ætli ég þurfi að binda hann úti á túni eins og varðhund?
Afi er farin til Noregsi að vinna. Ekki af því að hann skorti vinnu hér, heldur var hann beðinn sérstaklega um að koma. Stubbur kom að kveðja hann í gær.
Við munum öll sakna hans og vonum að hann komi sem fyrst heim aftur.
Það er munur að eiga tvo flotta afa.
Og Pípí vill vera með. Hann er orðin klunnalegur og er að fá fjaðrir og dúnninn að fara, gaman að sjá hvernig fjaðrirnar vaxa.
Ég held að þeir hljóti að vera að dansa!!!
Kvöldsólin kæru ísfirðingar brottfluttir, kvöldsólin og lognið.
Það er dálítið merkilegt með RUV að það er eins og hvergi megi vera gott veður nema á Akureyri og Egilstöðum. Þeir eiga góða veðrið, er gjarnan sagt, og þegar veðrið er vont hjá þeim, þá er ekkert talað um veður. En komi sólarglæta þá er strax byrjað; besta veðrið á Akureyri og Egilsstöðum. Jæja ég get frætt ykkur um að Júlímánuður er búin að vera yndæll hér fyrir vestan, og nú er hitin að nálgast 20° með sól. Það segja margir að veðrið á vestfjörðum sé best geymda leyndarmál landsins. Því það virðist vera markvisst þagað um það þegar veður er gott, en talað hátt ef það er slæmt. 'Eg veit satt að segja ekki af hverju þetta er. En svona er þetta bara.
Ein lítil saga af því. Hér fyrir nokkrum árum þegar ég var að vinna og byrjaði fyrir kl. 7 á morgnana, ég kom út og það var ekki ský á himni, og algjört logn, þá heyrði ég í útvarpinu að það var sagt að ekki yrði flogið til Ísafjarðar og Vestmannaeyja vegna þoku. Ég hringdi í fréttastofuna og spurði af hverju þeir segðu að það væri þoka hér. Við fengum þær upplýsingar á flugvellinum sagði maðurinn sem hafði svarað í símann. Skrýtið segi ég, því ég stend hér fyrir utan húsið mitt og það er ekki skýdróg á himni og algjört logn. Jæja getur þú sagt til um að það sé fært að fljúga, sagði maðurinn. Nei auðvitað ekki, svaraði ég, hverngi á ég að geta gefið leyfi til flugs hingað. En ég get sagt þér að það væri stórfrétt ef það væri EKKI hægt að fljúga í svona veðri. En þið eruð nú vön að tala veðrið niður hér fyrir vestan bætti ég við. Nú þú heldur kannski að við sitjum hér á kaffistofunni og ákveðum að það sé vont veður fyrir vestan, sagði hann snefsinn. Já sagði ég, ég gæti best trúað því. Honum varð svaravant.
Svo hringdi ég inn á flugvöll og viti menn, símsvarinn var ennþá í gangi síðan kvöldið áður með upplýsingum um að flugvöllurinn væri lokaður vegna þoku.
Ég hringdi svo eftir átta inn á flugvöll og sagði þeim frá samtali mínu og þeir urðu gapandi. En það KOM ALDREI LEIÐRÉTTING Á ÞESSARI FRÉTT hjá þeim á RUV.
Í morgun var þessi mynd tekinn.
Allt gengur sinn vana gang hér, tvö skemmtiferðaskip við kajann og börnin farin uppáklædd í vinnuna við að skemmta fólkinu.
Allur snjór farin út Eyrarfjallinu.
En nú verð ég að fara að koma mér út og njóta veðurblíðunnar. Eigið góðan dag elskurnar, og gætið ykkar á geimverunum. Látið þær ekki plata ykkur með fagurgala eða mútum. Þær eru ekki að hugsa um okkur heldur sjálfar sig, enda hvernig má annars vera, það gleymdist að setja í þær hjarta og heila
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.7.2011 | 11:57
Ég les ekki fréttir, þær gera mig dapra.
Sagði dóttir mín, en ég hef lítið náð í hana á netinu undanfarið. Hún er að skrifa ritgerðina sína, og barnið stækkar og stækkar í maganum á henni. Ásthildur er orðin óþolinmóð hún er búin að bíða og bíða og bíða!!!Ég er eiginlega sammála dóttur minni, það er vissulega dapurlegt að lesa og heyra fréttirnar í dag. Allskonar subbugangur að koma upp á yfirborðið, og auðvitað er enginn sekur nema þeir sem læðast inn í Bónus eða Samkaup til að fá sér að borða. Þeir eru gripnir strax og látnir greiða sektir sem þeir eiga ekki fyrir, því þá hefðu þeir væntanlega keypt sér matinn.
Ekki eru betri fréttir erlendis frá Grikkland, Írland, Spánn, Portúgal, og núna Ítalía á nánösunum í herkví furstanna í Brussel. Og svo er þa ástandið í Libýu, Súdan, Egyptalandi og öllum þeim löndum, lýðræðisbylting alþýðu heimsins er að vakna og vill fá að vera til, ég veit ekki hvort við höfum vaknað of seint, en það er svakalegt að horfa upp á stjórnvöld drepa sitt eigið fólk sem er að krefjast þess réttar síns að fá að vera til, jafnvel í Grikklandi og fleiri vestrænum löndum er örvæntingin orðin slík að þeir beita allskonar tækjum og tólum til að halda fólkinu niðri. Ekki veit ég hvar þetta endar, en það er víst að það fólk sem hefur sölsað öll lífsgæði heimsins undir sig, getur ekki verið án þrælanna, svo ef þeim tekst ekki að beygja þá aftur undir sig, verða þeir að útrýma þeim og búa sér til róbóta til að vinna þrælaverkin fyrir lítið sem ekkert. Við lifum núna á tímum Sódómu og Gómorru, og ekkert getur bjargað okkur nema samstaða fólksins í landinu okkar nákvæmlega sama og gerist og er að gerast annarsstaðar í heiminum.
Þess vegna er ég ein af þeim sem er eins og strúturinn, set hausinn í sandinn og hugsa meira um það sem í kring um mig er til að halda sönsum.
Það er ekki oft sem við fáum ættingja Ella í heimsókn, en í fyrradag kom systurdóttir hans Lára í heimsókn með son sinn og fjölskyldu. Það var afar gaman.
Sonur hennar Auðunn konan hans sem er sænsk og foreldrar hennar. Og Pípí undir stólnum hennar Láru að skoða rauðu skóna.
Systir mín og mágur komu líka og mamma Siggu það er ósköp notalegt að sitja fyrir framan kúluna og sleikja sólskinið. Ef þið haldið að Pípí sé ekki þarna, þá er hann undir stól systur minnar að narta í rauðu skóna
Jæja elskurnar allt gott að frétta héðan í dag, enginn heimsendir eða krýsur. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.7.2011 | 09:23
Til hamingju með afmælisdaginn Júlli minn og Pípí fær heimsókn.
Hér komu tvær glaðværar skottur í gær, reyndar þrjár því sú þriðja kom í gærmorgun með ömmu sinni, vinkonu minni henni Dísu í kaffi í gærmorgun.
Hinar tvær komu svo með mömmu sinni í gærdag, hér ómaði því gleði og hlátur.
Þeim stóð nú ekki alveg á sama fyrst, en Pípí elskaði skóna hennar Bjargeyjar.
En svo var bara voða gaman.
Pípí var voða ánægður með báðar heimsóknirnar, því hann fékk nefnilega klapp og kjass.
Þetta eru rosaflottir skór hugsar hann örugglega. Ágústa María vildi strax koma og heimsækja kúluna.
Og svo fær hann klapp. Aldís sem kom í gærmorgun klappaði honum líka, hún var líka fyrst dálítið smeyk, en hún er orðin svo stór stelpa núna.
Hér eru svo fallegu börnin mín að fara niður í Neðsta kaupstað til að skemmta ferðafólki.
Það verður nóg að gera hjá þeim í dag, því hér eru tvö skemmtiferðaskip við höfnina.
Togararnir okkar eru eins og smátappar við hliðina á þessum risum.
Og hér kemur flugvélin inn til lendingar. Hér geta gamlir ísfirðingar séð hve mikill snjór er ennþá í fjöllunum komin 8. Júlí. afmælisdagur elsku Júlla míns.
Elsku fallegi drengurinn minn sem varst alltaf að hlú að þeim sem áttu bágt, og hugsaðir alltaf minnst um þig sjálfan. Til hamingju með daginn ljúfurinn minn hvar sem þú ert á himnum, við hjálparstörf þeirra sem eiga við erfiðleika að stríða. Góðar sálir sem hafa villst af leið, þar ert þú á heimavelli elsku Júlli minn. Þú veist að mamma elskar þig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.7.2011 | 20:16
Ísafjörður... bærinn minn.
Ísafjörður í sól og sumri. Í gamni og alvöru, í blíðu og stríðu, það er bærinn minn.
Júlíus Geirmundsson komin að landi með met afla. Júlíus Geirmundsson var afi minn, og það voru pabbi minn og bróðir hans auk skipstjórans sem byggðu upp veldi Gunnvarar og áttu þetta glæsilega skip. Til hamingju áhöfn með glæsilegan árangur.
Við höldum okkur við höfnina í dag, því þar er fjörið. Þetta eru gömlu húsin í Neðstakaupstað og þangað koma túristar og aðrir landsmenn og ekki síst ísfirðingar til að njóta góðs matar og finna andblæ liðins tíma.
Hér eru líka listaverk sonar míns fiskarnir hans, hér er haldið utan um þá og þeirra gætt, og þeir vekja mikinn áhuga ferðafólks. Algjörlega umhverfi við hæfi.
Geimveran hans. Þegar hann var í fjörunni, þá sá hann fyrir sér hvað steinarnir gætu táknað. Þessi er afar raunveruleg.
Já andblær liðins tíma, Morrinn sér um að skemmta fólkinu sem kemur til að njóta.
Krakkarnir fara í leiki og syngja fyrir gestina. Hér er Úlfur, og hann nýtur sín í botn að vera í þessum góða félagsskap.
Einhver leikur sem ég kannast ekki við.
Í grænni lautu það geymi ég hringinn sem mér var gefinn og hvar er hann nú?
Og þau bæði skemmtu sér og öðrum.
Inn og út um gluggann... inn og út um gluggann.. inn og út um gluggann og alltaf sömu leið.
Svo eru farþegar kvaddir með virktum.
Skipið bíður...
Bless bless... nú er smá pása áður en næsta rúta kemur....
Og Tjöruhúsið lætur enginn fram hjá sér fara. Þýskur vinur okkar sem kemur hér í endaðan júlí er einmitt búin að bjóða okkur í mat þangað og ég er farin að hlakka til.
Og svo ísfirðingar og nágrannar, munið að ég er með opið upp í garðplöntustöðinni frá eitt til sex virka daga og tvö til fimm á laugardögum, það er mikið af blómum á góðu verði afar ódýr og góð, heimaræktuð með ást og umhyggju, tilbúin til að fara að heiman til ykkar... og það er sko nóg úrval. Endilega nú þegar sumarið er loksins komið að skella ykkur í heimsókn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
4.7.2011 | 11:25
Hvað eiga Pípí og Össur sameiginlegt?
Að hafa gott hjartalag, þar endar samlíkingin líka.
Ég er sammála þeim sem segja að síðustu yfirlýsingar Össurar Utanríkisráðherra og mannsins sem leiðir samningaferli við ESB, sýni að hann er óhæfur til að vera okkar meginn við borðið. Þvert á móti vinnur hann með "óvininum" í þessu máli. Hvað ætlar íslensk þjóð að láta draga sig lengi á asnaeyrunum vegna þessarar heimskulegu umsóknar, sem ekki virðist vera neinn meirihluti fyrir. Ætlum við að láta draga okkur inn í blauta drauma eins manns, sem vill vera stór kall í útlöndum?
Mér þykir að mörgu leiti vænt um Össur hann er náttúrbarn með stórt hjarta. En það gerir hann ekki hæfari til að fara með svo mikil völd, þvert á móti.
Hvar er vinstri hreyfingin grænt framboð? Hvar er yfirleitt stjórnarandstaðan þegar gjörsamlega er gengið fram af þjóðinni með svona yfirlýsingum? Eru þau öll bara í sínu langa sumarfríi og kemur ekkert við hvað er að gerast meðan þau spóka sig í sínu LANGA fríi, sem er arfur frá gamalli tíð, þegar bændur voru uppistaðan á alþingi og þurfti að fara í sauðburð, heyskap og smölun áður en alvara lífsins tæki við á alþingi?
Var ykkur ekki falið af þjóðinni að vernda land og þjóð?
Við sitjum uppi með mannfælinn forsætisráðherra sem helst vill vera í friði og lætur ennþá óhæfari einstakling stjórna á bak við, semja ræðurnar og tala tungum. Við erum með fjármálaráðherra sem talar í hring, og gumar af afrekum eins og farsælli lausn á lokum Icesave vitleysunnar, þegar það var þjóðin sjálf sem tók af honum ómakið. Og þessar endalausu hreykingar hans af hvað allt sé gott og hvað við höfum það nú annars gott af því að hann hefur stjórnað svo vel.
Ég verð því miður að segja það að ég treysti ekki einum einasta manni í þessari ríkisstjórn, og það sem verra er að því síður myndi ég treysta sjálfstæðisflokknum, eða framsókn fyrir fjöreggi okkar. Þetta segir mér að við þurfum að vinna vel meðan þetta "ástand" varir þ.e. stoppistand, og byggja upp þjóðina til að standa á rétti sínum og fara að standa saman um að breyta samfélaginu. Það gerist ekki nema með vakningu þjóðarinnar og samstöðu.
Fólk verður að fara að skilja að það er komin tími til að breyta um gír, og fá þetta fólk frá sem hefur sestið meirihluta æfi sinnar á alþingi og þekkir ekki annað en svona vinnubrögð, og gerir allt til að halda völdum. Þeir hafa síðan smitað þá sem á eftir komu í sömu vitleysunni. Svo nú þarf virkilega að skipta um lið. Fá aftur venjulegt fólk verkamenn, bændur, vörubílstjóra, gröfukarla, kennara og fólk sem virkilega er með púlsinn á þjóðinni til að bjóða sig fram og setjast á alþingi til að vinna að okkar málum af ALVÖRU OG ÁBYRGÐ. Ég bið ekki um meira. Eftir allt ætti fjórflokkurinn að vera liðinn undir lok.
Smá fréttir af Pípí.
Pípí á sér bæli, hann er ekki þrifnasta vera í heimi, en ég tek mig til á morgnana og hreinsa til hjá honum. En svona finnst honum gott að ligga. Og takið eftir, tuskan hans er á milli tveggja skóa.
Hann er eiginlega að verða táningur, og frekar klossaður þessi elska, eins og unglingar verða þegar þau eru að stækka í óðaönn, hann er meira að segja að verða of stór fyrir kettina. Það eru líka að byrja að myndast fjaðrir á vænstubbunum og stélinu. Þetta verður myndar gæs.
Þetta er hollningin á honum þegar hann ræðir málin. Þá teygir hann fram hálsinn og setur gogginn upp á við og svo tölum við saman. Líka þegar hann biður um eitthvað eins og til dæmis mat.
Hér má sjá hvítu litlu fjaðrirnar sem eru byrjaðar að myndast við vængina og stélið.
Mamma mamma má ég?
Ég hitti mann í gær sem hefur skrifað mér bréf frá henni Ameríku og þakkað mér tilskrifin og myndirnar. Það var virkilega gaman að hitta hann, ég var mjög ánægð með bréfið frá honum. Þessi ágæti maður er ættaður héðan og sennilega alin upp á Grænagarði II. Pétur Njarðvík heitir maðurinn. Takk fyrir ágætis viðkynningu og þú ert auðvitað alltaf velkomin í kaffi.
Eins og sést hefur snjóinn tekið heilmikið upp síðan fór að hlýna og ekki síður eftir að rigninginn kom.
Svo segi ég bara eigið góðan dag. Og munum að við erum fyrst og fremst þjóð meðal þjóða, sjálfstæð í yfir þúsund ár, með hléum reyndar. En við þurfum enga sérfræðinga á vegum ESB til að segja okkur að við séum betur komin undir þeirra verndarvæng "græðgiskrumlu". Við erum best komin með því að standa saman, verja okkar auðlindir og læra að velja hæfasta fólkið í störf hvort sem það heitir stjóri eða ríkisstjóri. Klíkuskapur og frændhygli bítur alltaf í rassgatið á okkur á endanum, eins og sést vel núna í allri stjórnsýslunni, þar sem vinavæðingin og sérhagsmuna gæslan hefur náð nýjum hæðum í þessari velferðarstjórn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.7.2011 | 12:56
Til Hamingju með daginn Óðinn Freyr.
Elsku kúturinn okkar á afmæli í dag.
Með Daníel og Júlíönu Lind stóru systkinunum.
Í kúlu með Júlíönu.
Hjálpa afa að laga hjólið.
Með langafa.
Og Báru frænku.
Í garðskálanum með strákunum.
Og afa.
Í rabbabaraslag.
Og nú ertu orðin svo stór strákur og algjör töffari. Til hamingju með afmælið elsku Óðinn Freyr og batni þér sem fyrst handleggsbrotið.
Kær kveðja frá afa, ömmu og krökkunum í kúlunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.7.2011 | 11:58
Meira ungviði og túrhestar.
Í gær fékk ég skemmtilega heimsókn, krakkarnir á leikskólanum Eyrarskjó vildu fá að koma í heimsókn, þ.e. þau sem eru að byrja í skólanum í haust. Þar á meðal Sigurjón Dagur, og hann var auðvitað búin að tala svo mikið um kúluna og aðallega ungann Pípí, svo þau vildu endilega koma og skoða, sem var reyndar auðsótt mál. Þau komu um hádegið og grilluðu og höfðu gaman, en mesta lukku vakti samt Pípí, að lokum varð hann leiður á þessari athygli og skreið undir stólinn hennar "mömmu" sinnar.
Þarna er verið að dáðst að kirsuberjunum.
Þau komu auðvitað hjólandi þessar elskur.
Fóstrurnar grilla og börnin gera sér gott af.
Svo er það bara skólinn í haust og alvara lífsins.
Ætlu þau komi ekki aftur í heimsókn í haust á vegum skólans, en fyrstu árs bekkingar fá alltaf að koma í heimsókn og skoða gróðurinn og hænurnar.
Nú er hægt að segja að sumarið sé komið þegar riddarar Rósu eru komnir á kreik.
Dágóður hópur að hlaupa í ár, það er gaman að fylgjast með þeim hlaupa hér framhjá, ég hleyp með þeim í huganum og er viss um að vöðvarnir mínir meðtaka skilaboðin.
Jamm þetta er hin besta skemmtun bæði fyrir mig og þau.
Pípí gerir líka hálsæfingar, ein sagði í gær hvað er þetta er nú litli ljóti andarunginn Sem breytist í svan, og ég sagði að ég myndi nú bara þakka fyrir það, því eins og hann lítur út í dag líkist hann mest strút.
Flottur, en hann gerir samt oft æfingar, hann leggur fæturna aftur og teygir þær reglulega. Vitið þið að endur eru með þófa undir fæti, einn stór undir fætinum og þrír minni fram eftir miðtánni, og einn á hvorri hinna, samt er hann stundum sárfættur að ganga í mölinni.
En hann er alveg viss um að ég sé mamma hans, það átti að setja hann í girðingu sem Elli hafði smíðað fyrir hann úti í grasinu, en hann grét og kallaði þangað til ég gafst upp og hleypti honum út, og hann varð svo hamingjusamur.
Ég fékk bók inn úr dyrunum í gær, eftir þýska stúlku sem skrifar um íslendinga og trú þeirra á álfa og huldufólk hún heitir Alva Gehrmann, en inn í þetta fléttar hún til dæmis óbeislaðri fegurð, þar er einn kafli um mig, sem kallast Miss Auraund ihre innere Schönheit, ég skil náttúrulega ekki bofs, en sé samt að talar um klæðaburðin á mér í byrjun; Ásthildur Cesl Þórðardóttir kleidet sich eher unscheinbar. Eins türkisblauer Strickpulli, eins dunkle, locer sitzende Hose und dazu Birkenstocs mit Wollsochen ihre Haare sind einfach da.
Það er örugglega hægt að skoða og panta bókina á facebook síðu hennar http://www.facebook.com/#!/allesganzisi eða www.dtv.de
Ég er að bíða eftir enskri eða íslenskri útgáfu.
Í morgun kom svo inn úr dyrunum par, að vísu sennilega bara vinir eða frændur, því hann býr í Canada en hún í Vín. Hún sagðist hafa komið hingað um 1999, og komið í heimsókn þá og langaði að skoða sig um aftur. Ég sýndi henni bókina, og hún las kaflann um mig með mikilli ánægju og hló mikið, þannig að þetta er greinilega skemmtileg bók. Takk Alva mín.
Hér les hún upp úr bókinni.
Og þá er ég þotinn út að gera eitthvað gagn. Það þarf að smúla stéttina eftir Pípí, því hann er ekki "kassavanur" og kúkar þar sem honum dettur í hug, svo verður hann móðgaður þegar maður kemur með pappír og þurrkar upp eftir hann, sem betur fer er þetta nánast lyktarlaust þar sem hann étur bara grænmeti og gras og drekkur vatn.
En ég segi bara eigið góðan dag elskurnar. Og þið sem skiljið þýsku kíkir á síðuna hennar Ölvu.
Alles Ganz Isi, Isländiche Lebenkunst für Anfänger und Forgeschrittene.
Bloggar | Breytt 2.7.2011 kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023337
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar