Sjokkeruð er ég og algjörlega mát.

Ég er sko meira en undrandi á brotthvarfi Ásgerðar Jónu úr flokknum.   Það virtist ekki vera nein vandamál eða deilur sem ollu henni áhyggjum á landsþinginu.  Og hún talaði þar mikið um hvað hun teldi vera hlutverk varaformanns, og virtist tilbúin í slaginn.

Síðan eru liðnir níu dagar, og allt í einu uppgötvar frúin að við erum óalandi og óferjandi.  Það er ekki bara það, heldur ræddi hún ekki við fólkið sem studdi hana og agiteraði fyrir fyrir varaformannsembættið.  Það er ekki góður siður að minu mati að hlaupa með hlutina fyrst í blöðin, og hverfa svo bara út í buskann.  Ég er allavega sár, ég ákvað fyrir orð nokkurra kvenna að veita henni mitt atkvæði, vegna þess að ég taldi hana duglega konu og hún virtist hafa heilmikinn áhuga á því að takast á við áskorunina.  En sum sé ég var plötuð upp úr skónum, all svakalega, og stend fullkomlega á gati.  Ég er ekki bara undrandi á uppákomunni ég er sjokkeruð og algjörlega gapandi. 

Ég las það einhversstaðar eða heyrði í útvarpinu að maður ætti alltaf að trúa þeirri hugsun sem fyrst kæmi inn í hugann, af því að það væri innblásturinn,  hjartað, síðan kæmi heilinn og skynsemin og þurrkaði fyrstu hugsunina út.   Jæja mín fyrsta hugsun var að þetta væri síðasta sendingin frá Jóni Magnússyni og Nýju afli, svona good bye, farwell, adjö, auf Wiedersein, adios.  Það var bara eitt sem klikkaði, hún hefði auðvitað átt að hámarka grínið með því að gera þetta með stæl  1. apríl.  Það er ekki svo andskoti langt þangað til, að það hefði verið lang flottast.  Þá hefðu þau getað hlegið í kór vitandi að grín ársins var fullkomnað.  Svo hefði Eiríkur Stefánsson getað plaffað á okkur á færi í Útvarpi Sögu, til að fullkomna niðurlæginguna.

Það er líka sagt að maður eigi ekki að skrifa eitthvað þegar maður er reiður, eða svekktur, jæja ég hef brotið þá reglu í dag.  Þess vegna get ég ekki einu sinni óskað henni góðs með framtíðina, vona samt að hún hafi það gott og líði vel á sálinni.  Það er bara þessi hugsun að ef þetta hefur nú allt saman verið skipulagt og ráðgert fyrirfram, þá ætti Ásgerður Jóna að fá Óskarinn, eða í það minnsta Grímuna fyrir stjörnuleik.  Það er stórkostlegt að plata alla upp úr skónum svona líka svakalega, að við stöndum gapandi hvert framan í annað og skiljum ekki hvað gerðist eiginlega.  Að því leytinu gekk plottið upp, og óska ég Nýju afli til lukku með það.  Hitt er svo annað mál, að við gefumst ekki upp ef það hefur verið meiningin.  Heldur höldum ótrauð áfram, einbeittari en fyrr í að standa af okkur þennan slag.  Það er allavega mín hugsun hér og nú.  Over and out!!!


mbl.is Guðjón A. undrandi á uppsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein lítil hugleiðing um lífið og tilveruna.

Ég er sennilega dálítið öðruvísi en margir aðrir.  Ég er til dæmis á móti bönnum og boðum, tel að með slíku fari hlutirnir bara í kaf og verði að glæpum, og glæpamönnum.  Eg held nefnilega að fólk hætti ekki að stunda ákveðna hluti þó þeir séu bannaðir samkvæmt lögum.

Þetta á til dæmis við um vændi.  Ég er auðvitað algjörlega á móti mansali og þrælahaldi.  Melludólgar eru viðbjóður og ættu ekki að vera til.  En að banna vændi og kaup á vændi finnst mér eiginlega vera dálítið út í hött.  Ég er nefnilega alveg sannfærð um að það bara gengur ekki upp.  Konur hætta ekki að selja líkama sinn, og karlmenn hætta ekki að kaupa sér samfarir við það að þetta sé bannað.  Það sem gerist að þá er þetta orðin glæpastarfssemi og fer neðanjarðar, hverfur í djúpin, og gæti stuðlað að ennþá meiri eymd og kúgun kvenna.  En þetta er mín meining, og ég tel mig þekkja mannlegt eðli nokkuð vel.

Eins er með hass og álíka fíkniefni.  Ég hef aldrei alveg skilið þennan ótta við lögleiðingu á kannabis.  Með því að lögleiða slík efni, þá færum við neysluna upp á yfirborðið, sláum glæpinn úr höndum innfluttningsaflanna.  Neyð fíklanna yrði ekki eins mikil.  Þegar bjórinn loks var leyfður fóru púrítanarnir að tala um að neyslan myndi aukast upp úr öllu valdi.  Það jókst að vísu neysla á bjór en minnkaði að sama skapi á sterkari drykkjum.   Ef til dæmis menn færu út í að banna sterk vín myndi örugglega brugg fara upp úr öllu valdi.  Það yrði sennilega bruggað í flestum húsum.  En um leið yrðu þeir borgara sem það gerðu lögbrjótar.  Þar væri verið að búa til glæpamenn, rétt eins og það er veriðað búa til glæpamenn sem rækta hassplöntur, og þá er ég svo sem ekki að tala um heilu frabrikkurnar, heldur bara alla sem rækta sitt eigið stuff í stofuglugganum. 

Það er líka vitað að kannabis er gott lyf við ýmsum sjúkdómum, en það má alls ekki nota það, vegna orðsporsins.  Mér finnst þetta skrýtið svo ekki sé meira sagt.  Þetta segi ég manneskjan sem hef verið í 30 ára baráttu við fíkn í fjölskyldunni.   Ég veit líka að þó minn sonur sé hættur að nota þessi ólöglegu lyf, þá gat hann alltaf orðið sér úti um þau allstaðar.  Það kostaði bara heilmikið og gerði hann að afbrotamanni ofan á fíknina. 

Ég held að málið sé að þeir sem græða á að flytja þessi efni inn, vilji ekki lögleiða þau.  Þeirra hagur er að þetta sé allt í þeirra höndum og að fíklarnir séu þeirra eign líka.  Og ég er viss um að þeir sem fjármagna innfluttning og dreyfingu á fíkniefnum eru ekki einhverjir lúserar á botni samfélagsins, svo ekki sé meira sagt.

Auk þess er svona heimaræktað hass örugglega hreinna en efni sem flutt er inn.  Með því að ganga svona fram í að fylgjast með kannabisræktun hér heima, er stuðlað að meiri innfluttningi og meiri gjaldeyriseyðslu.  Eða ætlar einhver að segja mér að fólk bara hætti bara si sona, eða að þetta sé einhver ábót við innfluttning?  Nei ég held að það sé orðið erfiðara að flytja inn efnin eftir hrunið og þess vegna gripið til heimaframleiðslu.

Fíkn er ástand sem menn ráða illa eða alls ekki við.  Fíknir eru margskonar, matarfíkn, kynlífsfíkn, reykingar og drykkja, fíkn í athygli og svo framvegis.  Það sem þarf að gera er að hjálpa fólki að komast yfir fíknina.  Það þýðir einfaldlega ekki að setja lagabann og segja þetta má ekki.  Það má svo sem segja slíkt, en það bara hefur enginn áhrif. 

Það þarf lokaða meðferðarstofnun fyrir fólk sem ræður ekki við aðstæður í lífi sínu.  Það þarf opinbert eftirlit með sölu og neyslu á fíkniefnum.  Auðvitað kostar það peninga, en hvað  halda menn að það kosti þjóðfélagið árlega að hafa fíklana á þeim level sem þeir eru í dag, í hringrás neyslu innbrota eða árása, í fangelsi, út aftur.  Hverjir eru svo það sem bíða á næsta götuhorni tilbúnir með næsta skammt til að halda hringrásinni áfram?  Nei gott fólk, hér þarf að hugsa algjölega upp á nýtt.  Það sem hér hefur viðgengist í yfir 20 ár er gjaldþrota stefna.  Það þarf að þora að breyta til, finna þá sem standa á bak við þetta ferli og færa þá til dóms, rétt eins og útrásarvíkingana. 

Nýtt Ísland er ekki bara á hinu pólitíska sviði, það þarf líka að hugsa margt annað upp á nýtt, eins og að skilja að glæpamenn sem eru í eðli sínu glæpamenn og svo hins vegar fíkla sem leiðast út í allskonar vitleysu vegna þess að þeir eru ekki lengur sjálfráðir gerða sinna.  Þangað til það verður gert, verða fangelsin full af afbrotamönnum, sem oftar en ekki eru ekki í eðli sínu afbrotamenn.  Lögreglan á fullu við að eltast við hassræktendur, og hefur ekki tíma til að verja almenna borgara fyrir árásum og allt kerfið útbólgið af vandamálum.  Forvarnir þurfa að vera miklu beittari, en eftirvarnirnar eru ekki til í dag, en þurfa svo sannarlega að vera til staðar.  Ekki bara fyrir fíklana, heldur alla sem þeim tengjast. 

Við hugsum því miður í kössum, og sjáum ekki út fyrir þá kassa.  Vonandi förum við samt að rumska og standa upp og krefjast breytinga í þjóðfélaginu.  Ekki bara á einu sviði, heldur þarf að stokka upp allt samfélagið og skoða það ofan í kjölin.  Finna hina raunverulegu sökudólga og koma þeim undir lás og slá.  Þeir eru víða mennirnir sem valda skaða bæði í bankahruni, græðgi en líka sem valda sársauka, angist og dauða unga fólksins okkar.  Það er einfaldlega ekki viðunandi.


Ömmur og skottur.

Ennþá var gott veður í dag, reyndar alveg yndislegt.  Ég var að passa litlu skotturnar mínar Evítu og Ásthildi, Hanna Sól fékk að fara í heimsókn til Sigurjóns, og Úlfur fór með afa sínum á Þingeyri þar sem afi var að klippa limgerði.  Við höfðum það fínt hér heima Cesiljarnar þrjár LoL

IMG_6776

Veðrið var virkilega fallegt og eftir hádegi var sól og blíða.

IMG_6779

Úlfur að leggja af stað með afa að klippa, tilbúin í allt.

IMG_6780

Við héldum okkur hinsvegar í frumskóginum.

IMG_6782

Þar er alltaf nóg hægt að gera.

IMG_6783

Tilbúnar í slaginn, við ætlum nefnilega í labbitúr.

IMG_6784

en ekki of langt, því amma getur ekki borið tvo litla prakkara, svo fæturnir verða að duga.

IMG_6785

Það er allt svo spennandi.

IMG_6787

Svo hittum við konur sem voru í göngutúr.  Þær þekktu Evítu litlu og tóku stelpurnar tali.

IMG_67861

Sjáiði svipinn á dýrinu, hehehehehe....

IMG_6788

Já það er fjör í labbitúr.

IMG_6789

Það er sagt að hestar séu heimfúsir, en þessar tvær voru sko ekki síður heimfúsar, þær hlupu af stað heimleiðis í átt að kúlunni. 

IMG_6790

Og svo er mynd sem ég tók á Seljalandsdal í dag.  Ég hef ekki farið þar uppeftir síðan nýji garðurinn kom, og sjáiði, þarna lengst fyrir neðan er gamli skíðaskálinn, þarna upp á Gullhól held ég var sett upp gamla færanlega smíðastofan frá grunnskólanum, og núna er þarna gönguskíðaparadís. 

IMG_6792

Slæðukona???  Ónei prinsessa komin út baði. 

IMG_6795

Lítill matargoggur.

Þetta eru myndir kvöldsins mín kæru.  Knús á ykkur og góða nótt Heart


Smámömmó, blóm í kúlu og ýmislegt smálegt.

Allt gott héðan.  Ég þurfti að sækja stóru stúlkuna mína á leikskólan á hádegi í gær, hún var komin með gin og klaufaveiki. Það var samt miklu auðveldara að eiga við hana blessaða stór og þroskuð fimmára hnáta.  Sem betur fer gat ég tekið verkefnin með mér heim í þetta skiptið.

En nú er föstudagur og helgin framundan.

IMG_6723

Veðrið ljúft eins og sjá má.

IMG_6724

Það er líka hægt að sjá að mikið hefur tekið upp snjóinn úr fjöllunum þessa hlýviðrisdaga.

IMG_6726

En ég lofaði Kiddu vinkonu minni nokkrum blómamyndum úr garðskálanum, til að minna á vorið.  Hér er begonía sem er alltaf falleg vegna litar blaðanna.

IMG_6727

Það er ekki langt í að Kamelíufrúin fari að sýna sína eldrauðu knúppa.

IMG_6728

Prímúlur eru endalaus uppspretta gleði og fegurðar.

IMG_6729

Og litadýrðar.

IMG_6730

Vetrarlaufið er komið með hvít falleg ber.

IMG_6732

Beinviðurinn líka flottur.

IMG_6734

Og taxusinn.

IMG_6735

Ílexið þessar sígrænu plöntur lífga svo sannarlega upp á garðskálann.

IMG_6737

Yukkan og súlusýprisinn eru líka glæsileg.

IMG_6740

Já hún vildi fara í skólann sú stutta.

IMG_6741

Að vísu nýkomin heim frá leikskólanum Cool

IMG_6746

En taskan var bara svo spennandi.

IMG_6747

Og maður þarf náttúrulega að fara allaleið. LoL

IMG_6749

Hér er svo indíjána prinsessa!!!

IMG_6750

Þegar maður er heima, þá þarf að dunda sér við eitthvað LoL

IMG_6751

Þetta kann hún líka ennþá.

IMG_6752

Tjörnin er endalaus uppspretta ánægju.

IMG_6757

Og við ákváðum að grilla af því að það er föstudagur.  Hanna Sól fékk að kveikja í grillinu, undir öruggri stjórn afa.

IMG_6758

Hviss bang!!!

IMG_6759

Já og það tókst.

IMG_6761

Það er samt alltaf best að sulla bara LoL

IMG_6764

Litla dýrið söng; allur matur á að fara, upp í munn og oní maga.... Hún er ótrúleg, farin að tala svo mikið og syngja.

IMG_6765

Svo er rosagaman að fara í eltingarleik við afa með krabbann.  Þ.e. grillklóna, spennandi fram yfir allt.

IMG_6775

En svona er lífið í kúlunni, nú eru þær báðar sofnaðar eins og englar, afi í sundi og Úlfur í Taekwon do og amma að skrifa hér til ykkar elskuleg. 

Ég vona svo bara að þið eigið gott kvöld. 

Ég get upplýst það hér að laugardaginn 28 marz n.k. verður námskeið í klippingu trjáa hér á Ísafirði, og sennilega 18 apríl námskeið í ræktun matjurta.  Spennandi námskeið.  Þessir aðiljar höfðu hvoru tveggja samand í dag og ég ætla að vera þeim innan handar með það sem ég get.  Svona ofan á allt hitt.  GrinHeart En það er reyndar mikill áhugi núna á ræktun almennt.  Og það er vel.

 


Hitt og þetta ekki fyrir viðkvæma.(LOL)

Skoðanakannanir eru ekki mínum flokki hliðhollar í dag, en það gerir ekkert til, ég er samt bjartsýn.  Þó fólk reyni að þaga okkur í hel, gerir ekkert til, ég er samt bjartsýn.  Fólk sem reynir að setja á okkur svartan blett með lyginni einni og illum hug, gerir ekkert til ég er samt sem áður bjartsýn.  Við  erum flottust, með besta málefnasamningin og valinn mann í hverju rúmi.  Það munu sitja konur í helming forystusæta á listum hjá okkur flottar sterkar konur í Reykjavik Suður, Kraganum og Norðausturkjördæmi.  Okkar menn eru alþýðufólk sem er nálægt grasrótinni, og hefur gott og mikið samband við fólkið í landinu.  Ég held að þessar skoðanakannanir séu ekki marktækar.  Við skulum sjá hvað kemur upp úr kjörkössum í vor. 

Já ég er bjartsýn, hef alltaf verið og mun vonandi alltaf verða.  Ég vil hvetja alla til að kynna sér málefni okkar á www.xf.is

Nú verða menn að fara að hugsa sjálfstætt.  Það dugir ekki að ætla sér að græða á daginn og grilla á kvöldin og láta D fyrir Drottinn hugsa fyrir sig.  Sá Guð hvorki fæðir fólk né klæðir.  Hann hugsar ekki um litla fólkið, heldur lítur á þau sem auðsveipa þegna sem hægt er að blekkja og nýta sér.  Sá Drottinn vill gera þá ríku ríkari því það eru þeirra menn. 

Hugsandi fólk spyr; hvernig getum við vakið þessa þjóð?  Og það er réttmæt spurning.  Ég er ekki að falast eftir atkvæðum.  Ég er að falast eftir því að þið gott fólk kynnið ykkur það sem flokkarnir hafa fram að færa, en ekki bara það sem fólk segir, heldur skoðið líka hvað þeir flokkar hafa verið að gera hingað til.  Ekki láta segja ykkur fallegar sögur rétt fyrir kosningar.  Lygin verður þá að sannleika og ég held að sumir trúi því sem þeir eru að segja.  En oftar en ekki er það hjómið eitt hjá allof mörgum.  Skoðið til dæmis hvað það ágæta fólk hefur haft fram að færa bara á siðastliðnu kjörtímabili.  Hvaða frumvörp það hefur lagt fram, og hvernig það hefur afgreitt hin ýmsu mál áður en þið trúið fagurgala heimsins. 

En ég ætla svo að setja hér inn svona undir svefninn nokkur lífsins blóm til að gleðja.

IMG_6713

Þetta eru vorblómin mín.

IMG_6714

Þau eru litrík, skemmtileg og lífsglöð.

IMG_6715

Vandamálin eru hvort þau komast út í garðskálan án þess að fara í stígvélin, áður en amma sér til þeirra.

IMG_6716

ég skal mála allan heimin elsku mamma, eintómt sólskin bjart og jamt. Heart

IMG_6717

Já vorið er sannarlega komið í kúlunni.

IMG_6718

Sjáiði áhugasemina hjá litla prakkaranum!!!

IMG_6720

Og svo er það eldhúsborðið sem er rosalega notalegt til setu.

IMG_6721

Þetta er framtiðin.  Ekki láta fagurgala og innantóm loforð eyðileggja framtíð þeirra.  Ekki gefa þeim tækifæri sem hafa setið og stjórnað í 18 ár með þeim árangri sem nú blasir við.  Það er komin tími til að leyfa öðrum að spreyta sig.  Ég er reyndar viss um að margt af því unga fólki sem nú er að bjóða sig fram í fyrsta sinn, vill vel og telur sig geta breytt einhverju, en í þeim stóra trúarflokki sem ég er að tala um verður engu breytt.  Þar er allt í föstum valdaskorðum og enginn fær að rokka þeim bát eitt eða neitt.  Því það þarf að vernda þeirra menn, mennina sem halda þeim við völdin, þar er ekkert til sparað enda maskínan komin á fullt skrið að sverta, niðurlæjga eða þegja í hel þá sem vilja breyta og bæta Ísland. 

 


Sitt af hverju tagi undir svefninn.

Nafna mín er að á sér á strik aftur.  Ég hef verið ansi bundinn yfir henni síðastliðna þrjá daga, eins og gengur með svona lítil kríli, þau skilja ekki alveg að maður þurfi lika að gera eitthvað annað.  Og svo er maður gjörsamlega búin um kvöldið, sem átti að fara í eitthvað annað.  En svona er lífið, og það er yndislegt.  Heart

Það er búið að vera meiriháttar veður hér síðan á helginni.

17.03.09 001

Þessi er dálítið rómó.

17.03.09 002

Það er mikill snjór í fjöllunum núna, en hefur samt farið heilmikið, því hér er hitinn í plús þessa dagana.

17.03.09 008´

Hádegið í dag.

17.03.09 015

Og svo seinnipartinn.

17.03.09 009

Þessi var að þurrka vængina í dag.

17.03.09 004

Sigurjón kom í heimsókn í gær.

17.03.09 006

Hanna Sól er alltaf að módelast sona...

17.03.09 007

Og Ásthildur tilbúin í vinnuna, það sést líka á fótabúnaðinum að hún veigrar sér ekki við allskonar vinnu LoL  en nú eru bólurnar að þorna svo hún fær að fara á leikskólann á morgun. 

En ég ætlaði að setja inn ljóðið mitt sem ég setti saman á landsþinginu, það var svona í stemningunni sem var þar:

 

Feigum ekki forðað er,

 

ófeigum til Heljar hrundið.

 

Samstaða og sáttin hér

 

Sannarlega í kross er bundið.

 

 

 

Ergelsi og öfund græn,

 

allra verst þó iðkum við.

 

Þess vegna er sóknin slæm.

 

Það svíður – okkar góða lið.

 

 

 

Snúum bökum saman nú. 

Sverjum bræður frið og ást.

 

Kyssumst knúsumst ég og þú

 

Svo kærleik engan betri sást.

 

 

 

 

Upp skal rísa andinn sterki,

 

Upp með þúsund radda brag.

 

Fokkum ekki frjálsra merki,

 

fylkjumst undir Eff í dag.

 

 

14. mars 2009.

Við eigum góðan málefnasamningi sem við gætum vel að, og pössum upp á.  Hann er aðalsmerkið okkar.  Og nú ríkir bjartsýni hjá okkur.

En ég segi bara góða nótt og sofið rótt.  Heart


Smá mömmó undir svefninn!!!

Svona mömmublogg undir svefninn.

Jamm Það var hringt frá leikskólanum hennar Ásthildar um hádegisbilið í dag og mér tilkynnt að hún væri komin með einhverjar bólur, ef til vill hlaupabólu, en þegar nánar var að gáð, þá var talið að sennilega væri þetta gin- og klaufaveiki.   Og ég er ekki að djóka, þó þessi litla rófa sé hvorki með gin né klaufir, þá er þetta víst hægt LoL Allavega eru bólurnar mest í munninum á henni og svo á útlimum. 

En sem sagt amma þurfti að sækja litla prakkarann á leikskólann og hlú að honum heima.  Þar var líka Úlfurinn sem hafði dottið á snjóbretti í gær og gengur við hækjur.

IMG_6649

Í gær aftur á móti var fjör.  Þá var hoppað í rúminu hennar Hönnu Sól.

IMG_6654

Já og ætli hún standi nú bara si sona á veggnum LoL

IMG_6657

Og grallarinn hann afi þurfti auðvitað líka að prófa.

IMG_6660

Veðrið í dag var alveg meiriháttar.

IMG_6664

Ég elska þessa birtu.

IMG_6666

Og svona manngerð fjöll má auðvitað nota til þess að skemmta sér.

IMG_6667

Þetta er gaman.

IMG_6668

Meira af þessu fallega hvíta og bláa.

IMG_6670

Pollurinn með íshröngli.

IMG_6671

Já fallegt veður.

IMG_6677

Svo við ákváðum að fara í göngutúr, enda sú litla ekki með hita, bara bólur.

IMG_6682

Yndislega gaman.

IMG_6684

Svo vildi afi líka láta draga sig.

IMG_6687

Dálítið erfitt, en samt hægt hehehehe

IMG_6683

Friður sé með yður.

IMG_6690

Ekki alveg samt, því þetta eru leifar af snjóflóði á Grænagarð.   En eigendur eru við öllu búnir þar á bæ, enda á snjóflóðahættusvæði.

IMG_6691

Hér hrinur úr hverju gili fyrir innan okkur, en vel er fylgst með öllu og við því alveg örugg.

IMG_6693

Og víst er þetta bæjarstæði fallegt líka.

IMG_6696

Engi og kúlan í sól, kyrrð og friði.

Eigið góða nótt elskurnar. Heart


Má bjóða ykkur í bíltúr?

Ég ætla að bjóða ykkur í bíltúr frá Stykkishólmi til Ísafjarðar yfir Laxárdalsheiðina.  Gjörið svo vel að hoppa upp í bílinn og njótið íslenskrar náttúr, svo hrein og yndisleg.  Perla engu öðru lík.

IMG_6518

Þessi er að vísu tekinn á leiðinni til Stykkishólms.

IMG_6614

Hólmarar eiga glæsilega nýja kirkju og svo eiga þeir víst aðra gamla ekki síðri.  Diddú var með tónleika þarna á laugardaginn, en því miður hafði ég ekki tíma til að hlusta á hana.

IMG_6615

Stykkirhólmur er einn af fegustu bæjarstæðum á Íslandi er óhætt að segja, alveg eins og Ísafjörður.

IMG_6616

ég hafði samt ekki tíma til að aka um bæinn, því við áttum langa leið fyrir höndum.

IMG_6617

Veðrið var dulúðugt, sólin óð í skýjum og birtan var sérkennileg, en allt svo fallegt.

IMG_6618

Hver á sér fegra föðurland.

IMG_6619

Þetta gæti verið beint upp úr draugasögum íslenskum.

IMG_6620

Þar sem maður er einn í heiminum til að njóta fegurðarinnar.

IMG_6622

Stærri er Gullfoss þessi foss, þetta er auðvitað vatn en í öðru formi.

IMG_6624

Ein einmana falleg gömul kirkja á víðavangi.

IMG_6625

Víðernin sem við erum svo kærulaus um því miður.  Þetta er fjársjóður komandi kynslóða.

IMG_6627

Það er að segja ef við fáum að vera í friði með landið okkar.  Það gæti verið að við yrðum hrakinn héðan af fólki sem þarf að flýja sín heimili vegna þess að þau verða óbyggileg, sannarlega hrollvekjandi hugsun, en alls ekki útilokuð.

IMG_6630

En allt þetta er okkar í dag.

IMG_6631

Himnagalleríið er alveg opið þessa dagana.

IMG_6632

En það þarf líka að huga að praktískum hlutum eins og að gefa hestunum.

IMG_6634

Hér sést ofan í Hrútafjörðinn.

IMG_6635

Skýin eru eilíf uppspretta fegurðar, og hér sjást þau vel fyrir mengun.

IMG_6637

Og aldan brotnar við fjörunnar grjót.

IMG_6638

Hvít fjöllinn móti bláu hafi.

IMG_6640

Svartir kletta drangar rísa eins og tröll sem dagað hafa uppi.

IMG_6641

Og sólin brosir bak við skýin. 

IMG_6642

Færustu myndhöggvarar gætu ekki gert þetta betur.

IMG_6645

Og heldur ekki þetta listaverk, en þau eyðast líka fyrr en önnur. Þess vegna ber að njóta þeirra á stað og stund.

IMG_6644

Skyldi ísbjörn hafa fengið sér far með þessum?

IMG_6647

HVergi er himininn blárri en í fallegu íslensku vetrarveðri.

IMG_6648

Og komin heim, ég býð ykkur í kaffi elskurnar og þakka samfylgdina, vona að þið hafið notið ferðalagsins.  Heart


Þingið hjá Frjálslyndum í Stykkishólmi í myndum.

Þá er ég komin heim, var að hellast inn úr dyrunum.  Ég var mjög sátt við fundinn í Stykkishólmi.  Það var að vísu synd að allmargir komust ekki vegna veðurs full rúta snéri við í Mosfellsbænum og nokkrir einkabílar frá Suðurlandi komust ekki vegna veðurhamsins. 

IMG_6517

Við Elli fengum samt mjög gott ferðaveður en illviðrið skall á um leið og við komum á leiðarenda, hér eru held ég Ljósufjöll.

IMG_6521

Hér er verið að tékka sig inn á landsþingið, kempan Ragnheiður Ólafsdóttir.

IMG_6522

Allt á fullu með tæknimálin.

IMG_6526

Gísli var eini fréttamaðurinn sem mætti á fundinn.  Gæti verið út af veðrinu líka. 

IMG_6528

Guðjón Arnar setur fundinn.

IMG_6532

Fundarstjórar fundarritarar og umsjónarmenn þingsins.

IMG_6533

Eins og ég sagði þá var færra en til stóð vegna veðursins.  En það var góðmennt og mjög gott andrúmsloft meðal fundarmanna.

IMG_6535

En það var sumstaðar þröngt setinn bekkurinn samt.

IMG_6537

Og vel var unnið.

IMG_6539

Málið er að koma þessum myndarlega strák inn á þing aftur.

IMG_6541

Ásgerður Jóna í pontu að gera grein fyrir afstöðu sinni til embættis varaformanns.  Henni mæltist vel, enda náði hún kjöri, hörkudugleg kona.

IMG_6550

Siggi sæti bloggvinur og prakkari.

IMG_6551

Og Karl V.  komin yfir til okkar, hér í góðum félagsskap Kristmanns og Guðmundar Hagalínssonar sem er númer 6 á okkar lista eins og síðast hann verður 75 ára í sumar, en lítur ekki degi eldri út en 65.

IMG_6552

Það var borin fram súpa í hádeginu.

IMG_6555

Og lögreglan var á svæðinu drjúgt lengi, fyrst héldum við að það væri vegna Sturlu hehehehe... en svo reyndist einhver kjáninn hafa sent rasistabréf í öll hús og hóta öllu illu til flokksmanna, svo þeim þótti ráðlegra að hafa gát á öllu.  Svona getur fólk hagað sér sem ekki sést fyrir í sínum einkarasisma en sakar aðra um slíkt, líkt og ónefnd kona sem vill láta taka sig alvarlega í blaðaheiminum, en sést ekki fyrir í öfgunum.

IMG_6557

Og Guðjón var auðvitað að ræða við blaðamanninn, þennan eina sem mætti á svæðið sennilega vegna veðurs.  Ekki er lengra til Stykkishólms en til Raufarhafnar væntanlega.

IMG_6559

Verðandi varaformaður sækir gögnin sín.

IMG_6563

Hér er tilkynnt um að Guðjón Arnar hafi sigrað í kosningu um formannssætið.

IMG_6564

Og fólkið fagnaði formanni sínum vel.  Það verður líka að segjast eins og er að Magnús Þór tók tapinu eins og sannt karlmenni, kvaðst myndu halda áfram að starfa með flokknum og vinna að málefnum hans. 

IMG_6566

Þau komu að austan alla leið.  Ekki Ólafur F. samt. 

IMG_6574

Um kvöldið var svo hátíðakvöldverður og allir í sínu finasta pússi.

IMG_6576

Taktu mynd af okkur frændkynunum sagði Ólafur, glæsileg ekki satt!  Sturla nýtur sín vel þarna.  Hann sagði mér að "græjurnar" væru í stofufangelsi LoL

IMG_6579

Þessir tveir létu sér samt fátt um finnast.

IMG_6582

Formaðurinn okkar lék á alls oddi og reytti af sér brandara svo söng hann fyrir okkur Fyrir sunnan fríkirkjuna.

IMG_6584

Hér má sjá kappann Jens Guð bloggvin minn og Kolbrúnu Stefánsdóttur sem mun leiða listan í Kraganum, glæsileg og mjög svo frambærileg kona.

IMG_6586

Það var góður matur á boðstólum sem gestirnir gerðu góð skil.  Þessi glæsilega stúlka með makkann í forgrunni mun leiða listan fyrir austan.  Lýst rosalega vel á hana.  gaman að hve margar hæfileikarikar konur komust til trúnaðarstarfa fyrir flokkinn okkar á þessu landsþingi og hve margar í raun og veru leiða lista til alþingiskosninga.  Þó er ekki búið að ljúka við að setja upp lista, þeirri vinnu er raunar hvergi nærri lokið.

IMG_6587

Formaðurinn á góðri stund.

IMG_6588

Frú Barbara Kristjánsson með pólskri mágkonu sinni.  Barbara er afskaplega yndæl kona.

IMG_6590

Þessi fallega stúlka er dóttir þeirra Guðjóns og Barböru.

IMG_6600

Og Karl Fimmti kom okkur verulega á óvart og sagði brandara svo salurinn lá í hláturskasti. 

IMG_6611

Svo var dansað á eftir og menn höfðu góða skemmtun. 

Þetta er bara mjúka hliðinn á þinginu, allar tölulegar upplýsingar getur fólk séð á www.xf.is, þetta er mannlegi þátturinn.  Það var ljóst að þetta var fundur sátta og sameiningar.  Við ætlum okkur að standa betur saman og styðja hvort annað og vera betri manneskjur.  Gleðin og kærleikurinn sveif yfir vötnum eins og í gamla daga í upphafi.  Nýtt fólk er velkomið til okkar og mun verða vel tekið.  Það er til dæmis upplagt fyrir búsáhaldafólkið okkar að kynna sér málefnasamninginn og skoða hvort þau geta ekki komið til okkar. 

Eins og Helga Þórðardóttir sagði svo flott; hvað getum við gert til að vekja þjóðina.  Þau hjón hafa starfað mikið fyrir borgarahreyfinguna og það var auðvelt sagði Helga, því ég var að vinna samkvæmt málefnasamningi Frjálslynda flokksins.  Svona er hann.  Það er bara að koma því til skila til fólksins.

Við erum hér með besta málefnasamninginn og það sem meira er, við stöndum við hann frá A til Ö. 

En nóg í bili. Ég setti fram ljóð þarna í gær, en það er ennþá í töskunni minni, ég ætla að setja það hér inn, þegar ég fæ hana inn úr bílnum.

En eigið gott kvöld elskurnar, og endilega án allra skuldbindinga kynnið okkur hvað við höfum fram að færa.  Heart

 


Stykkishólmur here I come.

Jæja þá er það Stykkishólmur.  Landsþing og alles.  Ég er að leggja í hann eftir smá stund.  en vil setja inn nokkrar krúttmyndir áður en ég legg í hann, svona fyrir mömmu og pabba.

IMG_6488

Afi og Hanna Sól við morgunmatinn.

IMG_6491

Sumir ekki alveg vaknaðir.

IMG_6493

En það kemur þegar maður er komin í gallann.

IMG_6497

Og það má alltaf fara í flottar stellingar.

IMG_6500

Svo er gott að láta afa bera sig í bílinn.

IMG_6510

Og Evíta í heimsókn.

IMG_6511

Þær eru svo skemmtilega ólíkar, önnur alltaf að sulla, hin að taka til og þrýfa.  Þið megið giska hér hver LoL

IMG_6512

Og svo vill litla manneskjarn láta í sig skott, það gengur að vísu illa, en hún er alsæl.

IMG_6504

Að lokum sólarupprásin í gærmorgun.  Eigið góðan dag elskurnar, það getur vel verið að ég geti kíkt á ykkur í Stykkishólminum.  En þangað til hafið það gott.

Það stefnir í spennu, nú ætlar Magnús Þór að hjóla í formanninn, og svo er Karl V. Matthíasson gengin til liðs við Frjálslynda flokkinn, hver segir að það sé ekki fjör í pólitíkinni.

Knús á ykkur öll. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband