Hið daglega veður og hinn ægilegi Krampus.

Hið daglega veður á Ísafirði.

Það var ansi hranalegt í morgun.  Stóra gróðurhúsið mitt alveg farið til fjandans.

IMG_0717

 Ekki beint svona kræsilegt.

IMG_0719

Þurfti að skreppa í bæinn, og tók þá þessa mynd.

IMG_0716

Svo smávegis glaðningur fyrir fjallafólkið mitt.  Upp úr hádeginu þá fór aðeins að rofa til.

IMG_0720

Það birti alveg heimikið.

IMG_0722

En samt ekki allstaðar.

IMG_0723

Ég elska þessa liti.

IMG_0724

Þetta gerðist nefnilega um leið og rafmagnið fór.  Eins og væri verið að kveikja á alheimsljósinu út af rafmagnsleysinu.

 

En ég var að lesa í fréttablaðinu um Krampus.  Krampus er eins konar grýla þeirra Austurríkismanna.

Nú er í gangi herferð til að kveða niður hræðslu barna við þetta dýr.  Ég man vel eftir jólakettinum, og hræðslu við að lenda í honum.

En fréttin er svona;

Fyrir komandi jól ákvað markaðsráð Salzborgar í Austurríki í samvinnu við dýragarð borgarinnar, dótaminjasafnið og þjóðleikhúsið að setja á fót sjálfshjálparnámskeið fyrir börn sem hræðast þarlenda jólagrýlu meira en góðu hófi gegnir.

Krampus heitir hann sem ásækir óþekku börnin.  Hann skilur eftir kol til viðvörunar heima hjá þeim eða, þegar í harðbakkann slær, bindur hann þau á höndum og fótum með stálkeðjum og slær þau í rassinn með birkivendi.

 

"Upplifðu Krampus" heitir námskeiðið þar sem börnin læra að þekkja fyrirbærið og þeim er kennt að komast yfir hræðsluna.  Með því að föndra, dansa,  og klappa dýrum minnkar smam saman fjarlægðin við hinn hyrnda, ófrýnilega og loðna Krampus.

Í dýragarðinum skoða þau horn á dýrum, í dótaminjasafninu er þeim kennd saga Krampusar og þau látin smíða sína eigin Krampus- grímu og í þjóðleikhúsinu fá þau að klæða sig í Krampus-búning og hlaupa um.

Námskeiðið var haldið í fyrsta skipti nú í haust og varð geysivinsælt.  Sjö hundruð krakkar tóku þátt og verður því haldið áfram um sinn þótt Krampus sé farinn að hlaupa um götur að hræða mann og annan.

Uppeldisfræðingarnir einblína á jákvæðar hliðar grýlunnar.  Að Krampus reki burt illa anda með sínu ljóta útliti og bjöllum og strjúki fólki með birkivendi til að stuðla að frjósemi.

Markmið námskeiðsins er að uppræta hræðslu í hjörtum barnanna.  Hins vegar á enn eftir að koma í ljós hvort Krampus fækki ferðum sínum til óþekkra barana með vönd sinn og keðjur.

 

Hér eru nokkrar myndir af Krampus hinum ógurlega, enginn furða að börnin séu hrædd við hann.  Meira að segja óhugnanlegri en Grýla, ætli við þurfum ekki líka að fara að setja á stofn sjálfshjálparnámskeið íslenskra barna vegna hennar.

IMG_6921[1]

IMG_6922[1]

IMG_69232

Þessir Krampusar eiga að vísu heima í Vín. En þeir eru heldur ófrýnilegir.

Svo ein í lokin af mínum litlu dúllum í Vín, send af mömmu þeirra.

IMG_6999

Prinsessurnar mína í Vínarborg. 


Krakkaknús undir nóttina og stormin.

Já nú er mál að halla sér, en mig langar bara til að segja góða nótt og senda ykkur smá sumarknús.

IMG_7608

Allir að knúsast.  Góða nótt. Heart


Enginn veit sína ævina fyrr en öll er, svona til umhugsunar.

Ég vil setja hér inn frábæra frásögn ísfirðingsins og bloggvinar míns Þórarins Gíslasonar.  Þetta er svo sannarlega til umhugsunar fyrir okkur öll svona mitt í önn jólanna.

http://icekeiko.blog.is/blog/icekeiko/entry/390173/#comment888613

LOFORÐ SKULU STANDA .TIL ÞESS ERU ÞAU GEFIN....................

ÉG VAR EKKI BEINLÍNIS HRESS ,hvorki til sálar né líkama í gærkvöldi,og vegna þess seinkaði þessari BLOGGFÆRSLU MINNI. ÉG TÓK ÞÁ ÁKVÖRÐUN AÐ LOFA YKKUR AÐ KOMA MEÐ MÉR Í FERÐ SEM ENGINN VILL FARA EN MARGIR VERÐA  AÐSTÆÐNA VEGNA ,SÉRSTAKLEGA  NÚ, Á JÓLAFÖSTU.  JÆJA SAMLANDAR GÓÐIR,SVO VAR NÚ KOMIÐ FYIRIR HJÁ MÉR EINS OG SVO MÖRGUM AÐ LEITA Á NÁÐIR FÁTÆKRAHJÁLPARINNAR. ÞAÐ GERIR ENGINN NEMA AÐ AÐSTÆÐUR SÉU VERULEGA ALVARLEGAR.það er mikið búið að ganga á  áður en þú stígur ÞESSI SKREF.ÉG FÓR UM KL 1500.ÞEGAR ÉG KOM INN Í HÚSNÆÐIÐ VAR MIKIÐ AF FÓLKI,MÉR VAR AFHENTUR MIÐI NR 109( ÚTGEFNIR MIÐAR 140 )  ENN FLEIRI KOMU.þAR SEM ÞAÐ VERSTA SEM ÉG GERI ER AÐ STANDA KYRR( út af hryggjarmeiðslum) fór ég út fyrir og rölti um,en inn fór ég aftur og i röðina. MEÐAN ÉG BÍÐ EINS OG AÐRIR,AÐ RÖÐIN KOMI AÐ MÉR,ÞÁ FLÖGRAR VITUND MÍN .  ENGUM HÉR INNI LÍÐUR VEL AÐSTÆÐNA VEGNA , EN ÖLLUM LÍÐUR VEL, AÐ REYNA AÐ BJARGA JÓLUNUM. ÉG FER YFIR HÓPINN, LÍT Í ANDLIT OG ANDLITIN HORFA Á MIG. ÞAÐ ER LÍTIÐ TALAÐ, NEMA ÞÁ, UM HVERNIG STAÐAN SÉ Í NÚMERUNUM,HVORT BIÐIN SÉ AÐ STYTTAST.  ÖLL ÞESSI ANDLIT HAFA SÍNA SÖGU, EINS OG MITT.ANDLIT SUMRA VORU YFIRVEGUÐ Í STÓISKRI RÓ  YFIR ÖLLU ÞVÍ SEM YFIR ÞAР HAFÐI DUNIÐ. ÖNNUR ANDLIT VORU MEÐ MEIRI SÝNILEGRI VANLÍÐAN,SVO VORU ÞARNA MEÐ MÉR Í RÖÐINNI. ELDRA FÓLK MISVEL Á SIG KOMIÐ LÍKAMLEGA EÐA SÁLARLEGA OG ALLT AÐ ÞVÍ AÐ GETA EKKI BORIÐ POKANA SÍNA.HÚÐLITUR ,TRÚARAFSTAÐA,  TUNGUMÁL OG UPPRUNI FÉLL SAMAN Í  DULARFULLA HÓGVÆRÐ ÞEIRRA SEM VORU KOMNIR MATARINS VEGNA. ÞÁ VAR EINHVER MEÐ Í FÖR,VINUR,NÁGRANNI, BARN EÐA BARNABARN TIL AÐ HJÁLPA VIÐ BURÐINN. ALLIR VORU RÓLEGIR Á YFIRBORÐINU,EN HVAÐ UNDIR KRAUMAÐI?  MARGIR VORU Á BÍLUM OG AÐRIR EKKI OG ÞÁ ÞARF AÐ BERA MATINN AÐ NÆSTU STRÆTÓSTÖÐ OG GUÐ EINN VEIT HVERT BLESSAÐ FÓLKIÐ ÞARF AÐ FARA LANGANN VEG Í ÞESSARI MATAFLA-FERÐ. SVO ÉG GERI LANGA SÖGU STUTTA.ÞÁ FÉKK ÉG EINS OG AÐRIR VEL ÚTILÁTIÐ.   EG ÆTLA HÉR MEÐ AÐ ÞAKKA ÞEIM FYRIRTÆKJUM OG EINSTAKLINGUM SEM HÉR KOMA AÐ, ANNAÐ HVORT MEÐ VINNUFRAMLAGI, EÐA MATARGJÖFUM.ÉG ÞARF EKKI AÐ SKAMMAST MÍN FYRIR AÐ GANGA ÞESSI SPOR FREKAR EN HVER ANNAR SEM LENDIR Í ÞESSUM AÐSTÆÐUM.   KÆRA FÓLK,SEM LES ÞESSA BLOGGFÆRSLU.              ÉG Á MÉR DRAUM,AÐ KOMAST Á VINNUMARKAÐ Á NÝ ALLAVEGA AÐ EINHVERJU LEYTI.                        ENGINN VEIT HVAÐ ÁTT HEFUR, FYRR EN MISST HEFUR .               ÞAÐ ER EKKI LANGUR TÍMI SÍÐAN ÉG VAR FULLFÆR UM AÐ VINNA OG VERA GÓÐUR OG GILDUR ÞAR Á MARKAÐI.   EN VEIKINDI OG SLYS  GERA EKKI BOÐ Á UNDAN SÉR.      OG HVAR ERTU STADDUR ÞÁ.      ALLT ÞAÐ FERLI SEM ÞÚ ÞARFT AÐ GANGA Í GEGN UM,ÞÁ ÆTLA ÉG SÉRSTAKLEGA TALA UM .    FRUMSKÓGA TRYGGINGARSTOFNUNAR RÍKISINS,OG,SVO FRAMVEGIS. OG HVAÐ ÞÉR BER AÐ FÁ TIL FRAMFÆRIS.ÞÚ FELLUR ÚR XXXX TEKJUM NIÐUR Í X TEKJUR HVERNIG SNÝRÐU ÞÉR ÚT ÚR ÞVÍ?  ENGINN ÞESSARA AÐGERÐA SEM ÞÉR STENDUR TIL BOÐA. NÆR TIL ÞESS HVAÐ VERÐUR UM ÞIG FÉLAGSLEGA.     ÞAÐ ER ANNAÐ FERLI.     ,SÁLAR OG ANDLEGA ERTU BARA TIL,  ÞANGAÐ TIL EINHVER REYNIR AÐ KOMA ÞÉR Á LYF EÐA MEÐFERÐ.     ÞÁ ER EFTIR AÐ ÁTTA SIG Á AÐKOMU   ÆTTINGJA,VINA OG NÁGRANNA,OG SVO,FRAMVEGIS.ÞIÐ SEM EKKI ÞEKKIÐ ÞETTAÐ. ÞIР SKULUÐ BIÐJA TIL GUÐS UM AÐ SVO VERÐI EKKI ,EINFALDLEGA VEGNA ÞESS AРOKKAR BLESSAÐA VELFERÐARKERFI VILL ÞIG EKKI. FARÐU ÞVÍ VEL MEÐ HEILSUNA, TRYGGÐU ÞIG Í BAK OG FYRIR.  SETTU SVO UPP FRONT                  SEM ENGINN SKILUR.   MÉR FINNST ÞAÐ HRÆSNI AÐ ÞORA EKKI.  ÞESS VEGNA BLOGGA  ÉG UM ÞETTA NÚ.  ÉG VONA  AÐ MEÐ ÞESSARI FÆRSLU HAFI ÉG EKKI SÆRT NEINN, ALLAVEGA LAGÐI ÉG EKKI UPP MEÐ ÞAÐ. LIFIÐ HEIL OG EIGIÐ  GLEÐILEGA HÁTÍÐ.                            NÆSTA BLOGGFÆRSLA VERÐUR EKKI FALLEG, EN HÚN VERÐUR, AÐ SJÁ DAGSINS LJÓS. KANNSKI VERÐA EINHVERJIR VITLAUSIR AF REIÐI . ÉG ÆTLA AÐ TAKA ÞVÍ. ÞANGAÐ TIL, LIFIÐ HEIL.

Það er svo óendanlega margt sem við leiðum ekki hugan að, eitthvað sem gæti alveg eins gerst hjá okkur á morgun.  Því langar mig til að leyfa þessari frásögn að standa hér til umhugsunar bæði mér og öðrum. 


Kristilegt siðgæði enn og aftur.

Hvað er kristilegt siðgæði ? Hér hefur við mikið rætt um trúmál, og mörgum heitt í hamsi. 

Sjálfsagt kemur þar margt til, ný þýðing biblíunnar, sem alls ekki allir eru sáttir við.  Sýnilegri hópar sem eru utan trúfélaga, eins og Siðmennt og Vantrú, enda hefur þeim greinilega vaxið fiskur um hrygg, og svo stækkandi hópar annara trúfélaga. 

Umræðan hefur verið á þann veg, að undirstaða tilvistar okkar hér, sé hið kristilega siðgæði.  Undir þetta sjónarmið hafa tekið Biskupinn, menntamálaráðherrann, ýmsir heittrúaðir einstaklingar, og núna síðast alþingismaðurinn Guðni Ágústsson og dóms- og kirkjumálaráðherra.

En hvað er hið kristilega siðgæði ? Sú spurning hefur vaknað hjá mér.  Hvað er það í raun og veru sem menn hengja sig svo á að við getum ekki talist siðaðar manneskjur ef við höfum ekki fengið tilsögn í kristilegu siðgæði ?

Kærleikur, umburðarlyndi og þörfin á að láta gott af sér leiða, er manninum ásköpuð, þessir þættir í manneskjunni eru í innsta kjarna hverrar mannveru.  Fólk sem aldrei hefur heyrt á Guð eða Jesúm minnst hefur þessar tilfinningar og hneigðir. Samfélög blómstruðu löngu áður en kristnin kom til.

Jólin eru líka eldri en Kristindómur.  Þau voru hátíð ljóssins, löngu áður.  Eins var með aðrar hátíðir sem nú eru taldar kristnar.  Talsmenn trúarinnar tóku upp þessa siði fólksins, til að fá það til fylgilags við sig.  Jesús er ekki heldur fæddur á jólunum. Því er hér um að ræða sögulega fölsun.  Þetta vita menn.  Því er það þegar menn segja fullum fetum að Jólin verði afnumin, Litlu jólin verði sett út í kuldan, krossinn í fánanum og þjóðsöngurinin séu í hættu, þá er það hræðsluáróður, sem ekki er samboðin sæmileg vel gefnu fólki sem veit betur.

Við sem þjóð ættum að geta rætt þessi mál af skynsemi og reynt að hafa sannleikan að leiðarljósi.  Þeir sem þurfa á því að halda að hafa trúna á Jesúm Krist og fylgja þeirri hefð sem þar er viðhöfð, eiga að fá að hafa það þannig í friði.  Og við hin, sem viljum hafa hlutina öðruvísi eigum að á að gera það líka í friði. 

Auðvitað hefur margt komið fallegt úr kristni, yndisleg tónlist, falleg ljóð, og meiriháttar listaverk, bæði á sviði tónlistar, málara og annarrar listar.  Þar hafa menn skapað ódauðleg verk af innblæstri trúar sinnar.  En það hafa líka orðið til ótal innblásin listaverk af manneskjum sem ekki teljast trúaðar.   

Ég vil neita því að kristnir menn eigi einir kærleikann umburðarlyndið og manngæskuna.  Það hefur allt með manneskjuna sjálfa að gera.   Allar manneskjur hafa þessa eiginleika, en svo er bara hvernig þær vinna úr þeim í lífi sínu.  Þar hefur trúin sáralítið með að gera.  Það er ekkert garantí fyrir því að menn séu góðir ef þeir hafa tekið trú.  Og bænir þeirra sem ekki aðhyllst neina sérstaka trú eru alveg jafn fallegar og góðar og þeirra sem eru í trúfélögum. 

Allt er þetta komið undir manneskjunni sjálfri hvernig hún ræktar sinn innri mann, hvernig hún vill koma fram við aðra, og hvernig hún vill að aðrir komi fram við hana. 

Það er ekki hægt að tenga þetta neinu öðru en manni sjálfum.  Að innræta börnum kærleika, umburðarlyndi og virðingu fyrir mannlegri reisn, auk þess að virða allt sem lifir í heimi hér, er því ekki kristilegt siðferði, heldur almennt siðferði, sem ekki lýtur neinum öðrum lögmálum en sínum eigin.  Það er því engin vá fyrir dyrum, þá við aðskiljum trúarlíf manna og svo lífsstefnu þeirra í daglegu lífi.  Fólk verður að geta skilið þarna á milli.  Því þetta er sitt hvor hluturinn. 

En það er erfitt að vinda ofan af einhverju sem manni hefur verið innrætt frá barnæsku.  það er svo sem ekki slæmt í sjálfu sér, en það er að mínu mati ekki gott að trúa blint.  Hver og einn þarf að leita sannleikans fyrir sjálfan sig.  Þannig er hver einstaklingur sterkari. 

Við eigum að hafa beint og milliliðalaust samband við almættið, hvað sem við kjósum að kalla það. 


Hið daglega veður.

Það var hræðilega hvasst í nótt.  Og sérstakega í morgun.  En það hefur lægt mikið sem betur fer. En spáð öðru eins á morgun. Vonandi fer þessu samt að lægja það er komið nóg af öllu þessu logni að flýta sér.

IMG_0713

Það er skaplegra veður núna,

IMG_0714

Skýin dálítið úfinn eins og gengur.

IMG_0715

En eins og veðrið var í gær, þá er bara notalegt að grípa í spil.

IMG_0712

En ég er búin að koma kortum og jólagjöfum sem eiga að fara utan í póstinn, og það er svo sem ágætt. 

En þá er bara að bíta í jaxlinn og harka af sér næstu lægð.  Devil


Til Hamingju Freyja.

Með að vera valin kona ársins hjá Nýju Lífi.  Það er svo sannarlega gleðilegt að fólk hefur tekið eftir þér og þinni baráttu fyrir að fá að vera þú sjálf.  Ég tók eftir auglýsingu frá þér hér fyrr í sumar.  Þar sem þú tekur fram að þú viljir vera eins sjálfstæð og þú framast getur.

Mér fannst líka frábært af þér þegar þú fórst um landið og heimsóttir skóla og ræddir við fólk um fötlun þína og hvernig þú höndlar þitt daglega líf.  Þú er ein af þessum hversdagshetjum, sem skilja eftir sig djúpt spor, vekur upp vonir annara sem eiga við svipaða erfiðleika að stríða, og peppar upp þá sem hrekjast vonlitlir um veröldina.

Svo sannarlega ertu vel að þessum heiðri komin.  Og innilega til hamingju.

441893B


mbl.is Freyja er kona ársins hjá Nýju lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið daglega veður, og smá jólafílingur.

Jæja þá er maður kominn í jólafötin, svona til að hjálpa til upp á stemninguna.  Virðist vanta upp á hana hjá sumum bloggvinum mínum.

En fyrst hér hið daglega veður.

IMG_0703

Ljómandi veður eins og sjá má.

IMG_0704

IMG_0705

Ég skrapp svo í bæinn og datt í hug að smella inn skreytingum í bænum, upp á stemninguna.

IMG_0695

IMG_0697

IMG_0696

Leggur og skel fatabúð barnanna.

IMG_0700

Kemur ekki vel út hér, en hér er skreytt í hverjum glugga.  Norðurvegur 3, sennilega.

IMG_0708

Og svo jólakerlingin sjálf hehehe...

IMG_0694

Í gær kom svo einn skólafélagi Stubbsins með honum heim, þeir voru að læra saman undir próf.  Mjög áhugasamir og duglegir.

Pétur minn Óskarsson, ég er búin að láta taka upp tónleikana, og Ágúst Atlason er að taka afrit af honum.  Mér þótti vænt um að vita að þú ert glaður með þetta.  Vona að þú njótir hans vel.

Eigið svo öll góðan dag.  Og eins og Matthildur Helgadóttir segir, jólin koma þó við nennum ekki að taka til og þýfa átt og lágt.  Það er tilhlökkunin og friður í hjartanu sem gildir þar sem annarsstaðar.


Land tækifæranna og hinna frjálsu !!!

Ég fór af forvitni inn á blogg Viðars Eggertssonar í dag, vegna fyrirsagnar, sem fékk mann til að vilja skoða innihaldið, og viti menn, hann benti á frásögn konu sem hefur orðið fyrir þeirri mestu svívirðingu af stjórnvöldum nokkurs lýðfrjáls ríkis sem ég hef heyrt um.   Að vísu hef ég heyrt af svipuðum gjörðum þessara fávita, frásagnir af fjólki sem lenti í hremmingum og fangelsun fyrir að hafa einhverntímann dvalið fleiri daga í landinu en passinn segir til um. 

En þetta er einfaldlega mál sem þarf að koma á framfæri, og hve rugluð þessi þjóð er orðin öll upp til hópa, en  mest og hættulegast þeir sem eiga að heita opinberir starfsmenn.  Hvernig höndla svona aðilar þá fólk sem einhver grunur liggur á um eitthvað misjafnt, þegar þeir koma svona fram við manneskju sem er alveg augljóst að hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut af sér.  Frásögnin er hérna, http://erla1001.blog.is/blog/erla1001/entry/388660/#comment882893

Endilega við skulum öll taka þetta fyrir og láta bloggið loga af þessu.  Svei bara, ef ég hefði ekki þegar misst allt álit á þessum aðilum þarna Búsknum og kó, þá hefði það farið niður vaskinn við þennan lestur.
En við eigum að krefjast þess að íslensk stjórnvöld hafi nú þegar frumkvæði að því að mótmæla þessum atburði, og krefjast skýringa á þessum harkalegu viðbrögðum.  Utanríkisráðuneytið á að gefa það fyllilega út að svona framkoma við íslendinga verði ekki liðið framvegis. 

Þetta er dropinn sem fyllti mælinn, ég mun aldrei leggja leið mína til Bandaríkjanna meðan þeir haga sér svona.  Fávitar mega þeir heita mín vegna.


Lognið eftir storminn.

Já hér er dáindisgott veður núna, eftir storminn í nótt.

IMG_0690

IMG_0691

IMG_0692

Ljósbláar eins og venjulega á þessum tíma.

Annars er ég að spá í að fara til Dóminikanska lýðveldisins núna fyrir áramótin, sól og hiti, það á ágætlega við mig.  Fékk góða ferð á tilboði. 

 


Myndir frá Lóu frænku - til Önnu frænku.

Anna mín Stef, hún Lóa frænka okkar sendi mér þessar yndislegur myndir áðan. Ég læt þær fljóta hér inn til að gleðja þig.

 Judit

Hvaða glæsimeyja skyldi þetta nú vera LoL

thora

Eða þessi tvö ?

mumma

Mumma frænka í Ameríku.

mumma og Judda

Uss suss, ekkert smá af silungi þarna.

afi og Stefán

Afi í öllu sínu veldi með Stefáni.

amma

Amma, mér sýnist þetta vera við Nonni allavega.  Er ekki viss með hin tvö.

Og Lóa biður kærlega að heilsa þér.  Ef þú sendir mér email, mun ég láta þig fá netfangið hennar, og þar kemstu í fleiri myndir. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Des. 2007
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband