Ég var klukkuð aftur.

þú uppljóstrar átta atriðum um þig (á blogginu þínu) og klukkir síðan átta aðra bloggvini.

Svona hljóða skilaboðin sem ég fékk frá bloggvinkonu minni Jónu Ingibjörgu sem klukkaði mig í gær.

Átta atriði.  

1.   Ég var 12 ára, þegar ég eignaðist fyrsta gítarinn.

2.   13 ára höfðum við tvær vinkonur mínar stofnað tríó og skemmtum á allskonar skemmtunum í mörg ár.

3.   16 ára kom ég fyrst fram og söng með frændum mínum í BG. 

4.   18 ára fór ég í lýðháskóla í Svíþjóð, Vimmerby folkhögskola.

5.   19 ára var ég síðan aupair í Glasgow í Skotlandi.

6.   Ég á áritanir frá öllum hljómsveitarmeðlimum Kinks.

7.  Ég hef talað við Sandy Show, kenndi henni meira að segja"komdu sæl".

8.  Var nokkrum sinnum boðið að vera með á hljómsveitarupptökum í skoska sjónvarpinu m.a. með Brendu Lee.

Þetta eru átta atriði sem ekki margir vita, og sennilega enginn í dag.

en ég klukka; merlin, Grétu Úlfs, jakobk, ingabv, glomagnada, ljónið, (Guðný GG), gustasig.

Untitled-1

Smile


Undir svefninn.

 

Jamm þar sem maður á alltaf að vera í góðu jafnvægi undir svefninn elskurnar, þá ætla ég að fara með ykkur í smá ferðalag frá Ísafirði til Reykjavikur og aftur til baka.  Það er róandi og notalegt.

Ferd í fermingu Arons. 033

Ferd í fermingu Arons. 034

Ferd í fermingu Arons. 036

Ferd í fermingu Arons. 038

Ferd í fermingu Arons. 040

Ferd í fermingu Arons. 041

Ferd í fermingu Arons. 043

Ferd í fermingu Arons. 047

Ferd í fermingu Arons. 049

Ferd í fermingu Arons. 051

Ferd í fermingu Arons. 053

Ferd í fermingu Arons. 083

Ferd í fermingu Arons. 091

Ferd í fermingu Arons. 122

Ferd í fermingu Arons. 125

Ferd í fermingu Arons. 136

Ferd í fermingu Arons. 144

Ferd í fermingu Arons. 149

Ferðalag án orða fari í apríl 2006.  það er bara að njóta.  Hér er fegurð Íslands í hnotskurn.

Góða nótt Heart

 


Frá sjó og haga til maga taka tvö.

Ég var að lesa eftirfarandi í Bændablaðinu sem barst inn um bréfalúguna mína í dag;

Eftirlit með innfluttu kjöti afar takmarkað.

Af og til eru birtar fréttir af því í danska bændablaðinu Landbrugsavisen að mikið gerlainnihald sé í innfluttu kjöti.  Bændablaðinu datt í hug að leita eftir því hvort eins væri ástatt varðandi innflutt kjöt til Íslands.  Í ljós kom að eftirlit  með kjöti er á hendi tveggja stofnana hér á landi. Annarsvegar er það Landbúnaðarstofnun, sem fyrst og fremst hefur eftirlit með íslenskri kjötframleiðslu í sláturhúsunum.  Hins vegar er það svo umhverfisstofnun sem fylgist með kjötvinnslustöðvum.  Þarna er ákveðin skörun.  Samkvæmt samtölum sem undirritaður átti við starfsfólk þessara stofnana eru línur ákaflega óskýrar hvað eftirlit varðar, þær skarast víða og hægt er að fullyrða að sumt í eftirlitinu sé á gráu svæði sem lítið eða ekkert sé sinnt.

“Ákveðin atriði virðast vera hjá báðum stofnunum, en eru hjá hvorugri” eins og einn viðmælandinn orðaði það.

 Margar kjöttegundir fluttar inn. 

Í ár hafa verið flutar inn ýmsar tegundir af kjöti, þar má nefna kjúklingabringur og læri, andabringur, elgskjöt og kjöt af fleiri villtum dýrum, svo sem nautalundir frá Nýja-Sjálandi.

Samkvæmt reglum Evrópusambandsins á eftirlit með kjöti í hverju Evrópusambandslandanna fyrir sig að vera það strangt að ekki þurfiað skoða það frekar þegar það er flutt til annarra landa.  Þetta á bara við um löndin innan ESB.  Samt eru endalausar ásakanir í gangi milli dana og svía og norðmanna um að salmonella sé í kjúklingakjöti frá þessum löndum.

Kjöt sem kemur frá löndum utan ESB – landanna á að sæta rannsókn.  Enginn kannaðist við að nýsjálensku nautalundirnar sem hér eru til sölu, væru sérstaklega skoðaðar þótt þær kæmu alla leið frá Eyjaálfu.  Ef þetta kjöt kemur inn í kjötvinnslu hér á landi gæti sýnataka hugsanlega farið fram en ekki af því kjöti sem liggur í frystikistum verslana.  Nýsjálenska nautakjötið er fryst og pakkað í Nýja- Sjálandi og því virðist sem ekkert eftirlit sé með ástandi þess.

Engar tölur var að fá um hvort sala á erlendu kjöti hefði verið stöðvað vegna gerla í kjötinu, og heldur ekki hve mörg sýni væru tekin, hver tæki þau og undir hvaða kringumstæðum.  S.dór.

_____________________________________

Er þetta ekki einkennilegt í ljósi þess reglugerðafargans sem snýr að íslenskum bændum ?  Þegar konur mega ekki einu sinni baka pönnsur og selja á markaði, því það er svo mikil hætta á smiti.   Eða algjörlega bannað að selja kjöt frá bóndabæjum til neytenda, og það í okkar hreina og smitfría landi ? 

Maður spyr sig, hverra hagsmuna er verið að gæta hér.  Það er alveg öruggt sem sést á þessu að það er ekki verið að hugsa um hag almennings í landinu.  Og ekki verið að hugsa um hag bænda.  Það má hver hugsa það sem hann vill.  En fyrir mér er það auðsætt að hér er verið að hugsa um peningamennina enn og aftur.  Passa upp á að þeir hafi nú sitt.  Og enginn kássist upp á þeirra jússur. 

En ætlum við endalaust að láta bjóða okkur þetta.  Og eins með fiskinn í sjónum.  Ætlum við endalaust að láta traðka á okkur, binda hendur okkar á bak aftur af misvitrum stjórnmálamönnum, sem vita ekki einu sinni hvernig lífið gengur fyrir sig fyrir utan Reykjavíkursvæðið. Eða vilja ekki vita það.

Er ekki komin tími til að við látum í okkur heyra og krefjumst réttar okkar, að fá að ráða einhverju sjálf um hvernig við lifum og hverja við skiptum við.  Hvernig við nýtum þær auðlindir sem eru samkvæmt stjórnarskrá sameign þjóðarinnar allrar, en ekki fáeinna útvaldra manna, sem eru nú að eignast tögl og haldir í því sem okkur hefur allaf verið sagt að væri þjóðareign ?

 

PIC00005[1]


Góðan og blessaðan daginn.

Ég eyddi lunganum úr deginum með gamalli vinkonu minni, sem var hér á ferð.  Henni Elínu Stefánsdóttur, kominn úr sveitinni, og gat ekki beðið eftir að fá sér Kóka kóla LoL En ánægð yfir dvölinni í sveitinni.  Enda ekki á kot vísað hjá honum Sigurjóni á Hrafnabjörgum, og allar plöturnar hans.

Svo kom litla dúllan mín í heimsókn hún Evíta litla Cesil.

IMG_9445

Hér er hún með mömmu sinni, hún hefur stækkað heilmikið og er farin að standa upp.

IMG_9446

Hver á bjartara bros Heart

Úlfurinn og Sóley Ebba tóku dúett á píanóið.

IMG_9449

Og svo var gallerí himin opinn náttúrulega.

IMG_9442

IMG_9444

Svo óska ég ykkur þess að þið eigið góðan dag.  Heart


Frá Haga til maga.

Þegar ég fór suður um daginn, þá mætti ég mörgum risatrukkum, upp á tvær til þrjár hæðir, oft með tengivagni aftaní.  Þessir risatrukkar fluttu fé í sláturhús.  Ég fékk sting í hjartað.  Þessar vesalings skepnur, hefur enginn spáð í hvernig þeim líður í þessum flutningum ? 

Ekki hef ég séð neins staðar mótmæli dýraverndunarsamtaka gegn þessum flutningum.  Eða finnst slikum það ekki taka því, þar sem búið er að dæma skepnurnar til dauða.  Og hvað með nautgripina sem fluttir eru í svona gámum langar leiðir, stundum beint úr hlýju fjósi til aftökustaðar.

Og til hvers er þetta allt saman ? Jú það er verið að hygla sláturhúsahöfum, alveg eins og útgerðarmenn hafa fengið fiskinn í sjónum, þá eiga sláturhúsahafar einkarétt á því að slátra.  Þó flytja þurfi dýrin langar leiðir.  Stundum velta þessi risavagnar og blessaðar skepnurnar deyja eða merjast. 

Og allt þetta gerist í nafni "hagræðingar" þó löngu sé vitað að stórar einingar séu ekkert hagkvæmari en smáar.

Ég vil vekja athygli á þessu vonda máli og hvetja dýraverndunarsamtök til að leggjast á árar og koma í veg fyrir svona flutninga í framtíðinni.

Hér þarf að endurskoða hvort ekki sé rétt að staldra við og lesa betur reglur Evrópusambandsins um heimaslátrun.  Ég las í Bændablaðinu að reglurnar væru túlkaðar allt of þröngt hér á landi, sennilega til að vernda þá sem vilja fá og stór sláturhús.  Í öðrum Evrópulöndum eru allstaðar til staðar heimaslátrun, þar sem bændur geta selt almenningi sínar afurðir.

Ég er viss um að ef leyfði yrði heimaslátrun og verkun á kjöti, þannig að bændurnir sjálfir fengju að slátra og vinna kjötið til sölu til almennings, þá myndi það hleypa miklu lífi í landbúnaðinn. Þetta yrði auðvitað gert undir eftirliti dýralækna.  En ég sé fyrir mér að bændur myndu sameinast um að slátra, og vinna kjötið sitt, og fólk gæti komið heim á bæina og keypt af þeim allskonar afurðir.  Það yrði þá örugglega ekki bara kjöt, heldur myndu þeir líka fara að búa til meira, osta, berjasaft og sultu, og markaðir myndu koma á fót nærri neytendum í nágrenni við þá bændur sem þannig stæðu að málum.  Það væri hægt að notast við færanleg sláturhús, eins og notast er við allskonar slátturgræjur. 

IMG_9405

Svona skylti myndum við þá sjá víðar, og hægt væri að versla beint frá bændunum sjálfum. Þeir sem bestir væru, myndu geta selt mest, þar yrði eftirlitið í höndum neytenda.

IMG_9406

Þessi glæsilegi markaður er rétt hjá afleggjaranum til Akraness.  Þarna gætir ýmiskonar handsverks og annars.  En mikið hefði verið gott að geta keypt aðrar afurðir eins og kjöt beint af bóndanum.

IMG_9408

Mér finnst þetta frábært framtak, en mér skilst að það hefi ekki verið auðvelt að fá því framgengt.  Því hendur bænda eru bundnar af fáránlegum reglum og stöðlum, sem standast engan veginn neina skoðun eða skynsemi.

IMG_9411

Ég er viss um að ef leyfð væri sala til almennings frá bændum, yrði það mikil lyftistöng fyrir bændurna og myndi hleypa heilmiklu lífi í sveitir landins, það væru góðar mótvægisaðgerðir.

IMG_9413

Ég skora á bændur að flykkja sér um þetta Haga til Maga dæmi, og krefjast þess að fá að selja sínar vörur eins og aðrir.  Láta reyna á hvort það er ekki brot á stjórnarskránni að hefta svo frelsi þeirra, sem ljóst er að gert er í nafni hreinlætis og umhugsunar fyrir heilsu okkar.  Ég er allavega alveg óhrædd við að reyna.  'Eg vil geta keypt mér vambir og sláturefni, vélundu og annað af skepnunum í sláturtíðinni, beint af bóndanum, og ég vil geta keypt mér kjöt af nýslátruðu.  Ég vil líka geta keypt mér gott rauðvín heimabruggað af bóndanum, (berjavín, jafnavel rabbabarahvítvín).  Sultu, ábrystir, osta, skyr og allt hvað það nefnist. 

Við viljum íslenskt.  Og ég vil geta keypt það beint af býli.  'Eg vil líka sjálf ráða hvaða býli ég fæ að kaupa þetta frá.  Ekki sérvalið af einhverjum ráðamönnum sem skammta leyfum til sinna manna.  Sá sem er duglegastur og færastur í sinni grein á að bera mest úr býtum, og skussarnir mega eta það sem úti frýs. 

Og það á enginn að "EIGA" réttin til að slátra dýrum bóndans.  Hann á sjálfur að fá að ráða því hvernig hann hagar sínum markaðsmálum.

Íslenskur Sveitamarkaður það er framtíð landbúnaðarins.  Það er ég viss um.

GudniLand

Það er komið nóg af svona haftakörlum, sem hafa haldið bændum föngnum árum saman.  Nú er lag fyrir nýja tíma,  fara yfir haftastefnuna og gefa spilin upp á nýtt.  Bæði í landbúnaði og sjávarútvegi.  Koma svo !!!


Óbeisluð - frumsýning, Ernir á flugi, sveitamarkaður, og næturrölt í borg óttans.

Komin heim út borg óttans, myndin var algjörlega frábær, og ..... það sem kom  mér mest á óvart hvað hún var fyndin.  En það skrifast mest á Matthildi og Eygló.... en síðan bara alla hina.  En sjón er sögu ríkari.  þetta var aldeilis frábær skemmtun.  Það var smáhnútur í maganum á mér, þegar við stormuðum inn í bíóið, hvað ef nú..... eða ...... úff..... En það var alveg óþarfi að hafa áhyggjur, myndin er frábærlega vel heppnuð hjá þeim Hrafnhildi og Tínu. 

IMG_9370

Hér er grallarinn Matthildur, en ævintýrið byrjaði í þessum ljósa kolli.  En hefði samt ekki orðið að veruleika ef hún hefði ekki átt flippaðar vinkonur algjört ljós fyrir eiginmann, og síðast en ekki síst 14 manneskjur sem þorðu.  Smile

IMG_9371

Elísabet sló rækilega í gagn sem uppistandari, og verður fljótlega í þættinum hennar Sirrýjar Örlagaeitthvað.  Og hún ákvað þetta bara daginn áður.  Þær eru ekkert að gera hlutina mjög mikið fyrirfram eða stressa sig þessar stelpur.

IMG_9372

Eygló lét sig heldur ekki vanta, en hún kom þarna fyrir sem ankerið, sem stendur á bak við og allt snýst kring um.

IMG_9373

Okkur var boðið í smáveislu eftir frumsýningu.  Hér eru nokkrir keppendurnir og dómarinn Barði gröfukall.

IMG_9379

Hópurinn heldur glaður fyrir utan kvikmyndahúsið.  Þetta var dýrðleg stund.

IMG_9380

Jamm þar var mjög gaman þetta kvöld.

IMG_9381

Halldór Jónsson var kynnir á galakvöldi óbeislaðra.  Hann sló í gegn, og þegar súpan kláraðist í miðju matarstússinu, þá fór hann bara upp á svið og sagði brandara, meðan Matthildur og kó fóru og redduðu meiri súpu.  Enginn var pirraður á biðinni, allri bara voru hæst ánægðir. 

IMG_9382

Í góðum hópi með Hrafnhildi, Tínu, hún kom allaleið frá Beirút til að vera á frumsýningu og Þorsteini J.  En hann kom á sýninguna, og tók viðtöl við Möttu og Hrafnhildi, það verður sennilega birt næsta fimmtudag. 

Daginn eftir fórum við svo öll út að borða saman, það tilheyrir eftir svona skemmtilegt og velheppnað kvöld.

IMG_9396

Nú er að velja rétt.

IMG_9401

Á pubbarölti í bort óttans.  Ekki sáum við neitt sem gat orkað tvímælis, allir bara vinalegir og í góðu skapi, eina sem ég sá sem vakti ugg, var hópur af heimavarnarliði uppstrílaðir og tilbúnir í allt.  Skil ekki þessa umræðu um læti.

IMG_9402

Þær hafa ekki einfaldan smekk Eygló og Matthildur. hehehehe....

IMG_9404

Já það virkaði ekki mjög óttaþrungið á mig, lífið í  miðbænum þetta kvöld.  Bara glaðlegt fólk sem var að skemmta sér.  Ég sá að vísu einn pilt kasta af sér vatni, og ég sagði við hann, að ég ætlaði að vara Villa Vill við.  LoL Hann hélt samt áfram að pissa.  Gat ekki hætt greinilega.

Svo má segja að gallerí himin hafi verið fallegur líka í henni Reykjavík.

IMG_9386

Flott, meiriháttar reyndar.

IMG_9388

Stórglæsilegt bara.

IMG_9389

Galleríið er stærra í Reykjavík en á Ísafirði, það segir sig sjálft, þar sem höfuðborgin er jú miklu stærri.

IMG_9390

Gunnar var örugglega að afhomma þarna í kirkjunni.  W00t

IMG_9405

Svo ók ég fram á sveitamarkað.  Ég ætla að ræða hann betur síðar.  En það var gaman að rölta þarna um og skoða hvað fólki hafði til sölu.

IMG_9408

Þarna kenndi margra grasa, en meira um það síðar.

IMG_9355

Í djúpinu sáum við þrjá erni, þeir flugu þarna um og létu vindinn bera sig.  Það var erfitt að ná góðum myndum.  Veðrið var frekar drungalegt.  En það var gaman að sjá þessar glæsilegu skepnur með þanda vængi.

IMG_9362

Þeir léku sér og skeyttu ekkert um okkur, þarna niðri.

IMG_9420

Og þeir voru ennþá þarna í dag, þegar við ókum heim.

IMG_9424

Svo eru það vestfirsku fjöllinn, maður finnur orkuna streyma á móti sér, þegar maður kemur heim.

IMG_9419

Flott ekki satt ?

IMG_9436

IMG_9435

Skútur á siglingu í góða veðrinu.

IMG_9432

Ef þið skylduð ekki vita það, þá er þetta vegurinn upp í himnagalleríið.  Hann nær alla leið upp í himininn.  LoL


Óbeisluð fegurð - hér kem ég.

Er að leggja af stað til að vera viðstödd frumsýningu heimildarmyndarinnar um óbeislaða fegurð.  Við ætlum að skemmta okkur óbeislað saman.  Þetta verður frábært.  Ég er náttlega búin að fara í klippingu og litun til hennar Grétu.  Ég hvet alla til að mæta á sýninguna auðvitað. 

IMG_9335

Alveg tilbúin í slaginn sko !

Með því að styrkja þessa heimildarmynd þá eruð þið í raun að styðja við bakið á Sólstöfum, en það er systurfélag Stígamóta.  Svo það er gott málefni, fyrir utan boðskapinn í þessu tiltæki Matthildar og kó.  Að vekja athygli á því, að í raun og veru er ekki hægt að keppa í fegurð.  þar er svo margt annað sem liggur til grundvallar, svo sem eins og manneskjan sjálf sem sálarvera. 

IMG_4101

Kempurnar sem bera ábyrgð á uppákomunni.

IMG_4099

Óbeisluð fegurð 2007.  Hún segir hér við ykkur, Ég ætla að vinna.  Og það gerir hún og við öll. Heart


Hahahahahahahahaha...

Ætli það séu einhver takmörk fyrir því hvað fólki dettur í hug að framkvæma, skoða, spá og spekulera í ?      LoL

Ætli það sé eitthvert samhengi í að lækna hamstra af þotuþreytu og svo mannfólkið?  Gæti það ef til vill verið lausnin að hafa flugmenn með beinstífann göndulinn við stjórn þotna.  Eða var ef til vill verið að tala um snjóþotu, sjóþotu, eða bara þrotlaust þjót hamstranna á rúlluhjóli í búrinu ? LoL

Svo er synd að ekki fundust amerísku dátarnir sem voru að prófa sig áfram með samkynhneigðarsprengjuna.  Þeir ættu ef til vill að fá Gunnar í krossinum í lið með sér, og þá aðra sem telja sig geta afhommað, ef menn geta á annað borð afhommað fólk, þá hlýtur það að vera létt verk að homma þá aftur. 

Djísus hvað það er hressandi að lesa svona hluti í morgunsárið.  Það hefur algjörlega bjargað deginum fyrir mér. 36_11_6 4_1_219


mbl.is „Samkynhneigðarsprengja" hlýtur Ig Nóbelsverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þakka þér góður Guð fyrir að ég er ekki eins og allir hinir, ég ber mér á brjóst og er auðvitað sæl með að vera faríseri meðal allra hinna.

Djísús kræst þvílík hræsni, ætli þjóðhöfðingjar heimsins grípi þetta ekki á lofti og þakki sínum allra heilgara fyrir að þurfa ekki að skammast sín meira en orðið er.  Allt í gúddí Aung San Suu Kyi mín, vertu bara nógu auðmjúk við manninn og ekki vera með neina stæla eða læti og allt verður bara gott, og við getum andað léttar.  Skítt með munkana og andófsfólkið sem þeir eru að dunda sér við að pynta í fangelsunum, og skítt með fólkið sem þeir eru að hundelta og murka lífið úr í rólegheitum.  Það er svo erfitt að þurfa að bera ábyrgð á svoleiðis.  Þess vegna skaltu bara taka þessari nauðgun Aung San Suu Kyi og helst líka ósmurt í óæðri endann, þvi við viljum ekkert vesen hér, við þessi friðelskandi, skilningsríku, vestrænu hræsnarar.  Það þarf bara að vera auðmjúk, og þakka fyrir að vera á lífi og sona.  Ekki fara að spá í fólkið sem er verið að murka lífið úr.  Það er allt í gúddí sko.

Mikið djöfull getur maður orðið hundsvekktur á þessum svokölluðu lýðræðishetjum út um allan heim.  Þessum vestrænu forystumönnum sem eru svo umburðarlyndir gagnvart öllum morðingjum heimsins, nema þar sem olíu er að finna eða aðrar auðlindir, sem þeir þarfnast.  Ég segi oj, ég segi pass og ég segi skammist þið ykkar.  Og þar eru íslensk stjórnvöld ekki undanskilin.


Tónleikar með Gilles Apap.

Já ég brá mér á tónleika i kirkjunni í kvöld, alveg hreint frábæra tónleika, með heimsfrægum manni sem heitir Gilles Apap, en ekki síst var góður vinur minn að spila þarna Hjörleifur Valsson.

Þegar það lá fyrir að við færum á tónleika í staðinn fyrir sund, varð stubburinn dálitið svekktur. Maður bara veit ekki neitt, er búinn að plana ákveðinn hlut (sund með afa) og svo er bara rokið til og gert eitthvað annað.  Og svo þarf Sóley Ebba (annað barnabarn) auðvitað endilega að vilja einmitt þetta.

Já en þetta er miklu uppbyggilegra en sund, sagði afi.  Þarna verða bæði Bach og Mozart.

Ha, sagði stubburinn, er Mózart ekki dáinn ?LoL

Nema hvað við fórum þarna fjögur á tónleika, amma, afi, Sóley Ebba og Stubbur.

Og það var reyndar alveg meiriháttar, tónleikarnir fóru fram í kirkjunni þar sem hljómburður er mjög góður.

IMG_9311
Allt tekið upp auðvitað.

IMG_9315

Þarna er hann snillingurinn, algjörlega afslappaður og í góðum fíling, byrjaði á einhverju sem mér fannst vera írsk þjóðlaga músikk.  Og svo á miðjum tónleikum byrjaði hann að ............................ já byrjaði að blístra í takt við fiðluna.  Ótrúlega flott LoL

Á síðustu árum hefur Gilles Apap unnið sér orð sem einn af fremstu og nýstárlegustu fiðluleikurum heims.  Hann hefur komið fram sem einleikari með mörgum þekktustu hljómsveitum heims s.s. Berlinar Fílharmoníunni, Rússnesku þjóðarhljómsveitinnni, Sinfóniuhljómsveir San Francisco og svo mætti áfram telja.  Hann hefur farið tónleika ferðir um víða veröld og komið fram á tónlistarhátíðum í evrópu, Ameríku, Ástralíu, Indlandi, Kína, Japan og víðar.  Gilles Apap, hefur tileinkað sér ýmsa stíla fyrir utan klassik á einstaklega sanfærandi hátt, m.a. jass og þjóðlagagónlist frá ýmsum löndum.  Hann hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlega túlkun á eigin útsetningu á klassiskum verkum og þjóðlagatónlist, sem hann hefur flutt á sin einstaka hátt oft með eigin hljómsveitum.  Sem dæmi um fjölhæfni hans sem tónlistarmanns má nefna að á síðustu mánuðum hefur hann m.a. leikið fiðlukonsert Alban Bergs í Sviss, fiðlukonsert nr. 1 eftir Sjostakovitsj í Tyrklandi og frumflutt fiðlukonsert eftir DAvid Balikrihnan í Nashville.  Og svo framvegis.  ...

IMG_9325

Tveir snillingar að leika saman Fiðlukonsert eftir Bela Bartók.  Algjörlega frábærir.

IMG_9326

Hér koma þeir inn Balzamersveditin Bardukha, sem léku algjörlega frábær þjóðlög frá Austur Evróðu og Litlu Asíu, eins og þeir sögðu. Og takið eftir listaverkinu á bak við.  fjöldi af fuglum sem almenningur hefur búið til, allt merkt og hægt að sjá hver gerði hvaða fugl.

IMG_9327

Í algjöru stuði.

Hjörleifur á Fiðlu, Ástvaldur á Harmonikku, Steingrímur á Slagverk, Birgir á Kontrabassa. Þvílíkur fílingur.

IMG_9330

Og þarna er snillingurinn Apap kominn aftur.

Og ég var að hugsa meðan þetta fór fram, hve við erum rík hér á þessu krummaskuði, að eiga þessa arfleifð.  Heimsfrægt fólk sem kemur og eru okkar bestu vinir, til dæmis Askenasi, Erlingur Blöndal Bengtson, sem er af ísfirskum ættum.  Hjörleifur, Hjálmar J. Ragnar, Jónas Tómasson, og margir margir fleiri.  Og að búa að svona uppeldi fyrir börnin okkar, er ómetanlegt.  Arfleiðin skilar sér líka í því að hér er svo mikil tónlistarmenning, að heimsfrægir listamenn vilja leggja leið sína hingað til að bjóða okkur sitt framlag við listagyðjuna.  Hér býr þekkingin, áhuginn og krafturinn til að gefa þessu fólki til baka, það sem það vill fá fyrir að flytja okkur list sína.  Þetta gerir menningarbæinn Ísafjörð rosalega mikið að því sem hann er, og svo margt fleira sem ég nefni ekki hér, af því að ég er að dást að einmitt þessari tónlist. 

En svo við snúum okkur að öðru þ.e. gallerí himni, þá var hann líka flottur í kvöld.

IMG_9301

Eins og sjá má.

IMG_9303

Hann getur líka verið ógnvekjandi eins og þungur niður bassans.

IMG_9306

Eða trillandi ljós eins og fiðlan. 

En í kvöld fékk ég góðan innblástur í sálina mína.  Þvílík upplifun þvílík tónlist, og troðfull kirkja, með ærslafullu lófaklappi og ánægju tónlistargesta, það er veganestið sem tónlistarfólkið fór með í kvöld, þegar flugvélin hóf sig til flugs í næturhúminu, eftir velheppnaðan konsert.

Og eins og Gilles Apap sagði, við Hjörleif, you are the homeboy here, and that's becouse of you I´m here, þá segi ég, elsku Hjörleifur minn.  Ég held að ég muni þig best með fiðluna þína að spila fyrir sýningu hjá LL, í Félagsheimilinu í Hnífsdal, þegar þú varst bara smápolli. Hve langt þú hefur komið síðan þá, orðin virtur tónlistarmaður, m.a. í söngleiknum um Edit Piaff.  Þú ert flottastur. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Okt. 2007
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband