Söngdívurnar mínar.

 

Árin 1965 -6 dvaldi ég í Glasgow.  Á þessum árum voru aðallega fjórar-fimm söngkonur sem kvað mest að þau ár.  Fór að rifja þetta upp af því að ég var að horfa á þættina um Cillu Black.  Mjör skemmtilega þætti í sjónvarpinu. 

Cilla var ein af þeim.  Blessuð sé minning hennar. 

CILLA_BLACK

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=ykd7172CUeA

Önnur sem mér þótti flott var Dusty Springfield.Hét víst fullu nafni

Mary Isobel Catherine Bernadette O'Brien OBE. Hún dó 1999.  Man vel eftir laginu Son of að priecherman.

images

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

http://www.last.fm/music/Dusty+Springfield/_/Son+of+a+Preacher+Man

Svo var Sandy Show ég fór á konsert með henni í Skoska sjónvarpshúsinu, þar sem oft voru haldnir tónleikar með frægu fólki.  Ég átti sem sé góðan vin, leikara sem heitir Poul Young, ekki sönvarinn samt. Hann bauð mér á nokkra svona tónleika, við vorum í útsendingu og áttum að klappa og stappa þegar við átti. Niðri á gólfi stóð maður með spjald sem á stóð"klappa" "æpa" og svo framvegis.   Ég fór meira að segja í hléinu og fékk að ræða við hana.  Hún sagði mér þá að vinir hennar The Hollies hefðu einmitt verið á Íslandi til að halda tónleika.  Sandy söng alltaf berfætt, og ég man vel eftir laginu hennar Poppet on a string.

 

images (2)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=qhLlXvkm65Y

 

Petula Clark var ein af frægum söngkonum á þessum tíma.  Hún giftist fransmanni minnir mig. 

Down town söng hún af fullum styrk.

Petula-Clark-011

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=fllN8bUJ77c     Nostalgía á fullu

 

Lúlú var ein fræg sem mér var boðið á tónleika af vini mínum.  Lúlú var skosk og skemmtileg söngkona, hún söng lagði To sir with love og lék í myndinni. 

 

MTIwNjA4NjM0MTk5MDQ5NzQw

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=yTapoA5RQyo     Ennþá meiri nostalgía.

 

Ein sem skar sig úr var Marianne Faitful, hún var bæði leikkona og trúbadúr, hún var kölluð stúlkan með englaröddina, því hún hafði svo fallega rödd.  En Marianne varð heróíni að bráð í samkrulli við Migg Jagger, því miður og hvarf í mörg ár af sjónarsviðinu, en komst svo á lappirnar aftur og gaf út plötu. Og vann til verðlauna.  Ég man eftir This little bird, þegar hún var ung. Og síðan The ballade of Lucy Jordan. Reynslunni ríkari.

images (1)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

THis little bird, með sína englarödd.

https://www.youtube.com/watch?v=YyfPiKoypxQ

 

download

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=YyfPiKoypxQ Ballade of lucy Jordan.

 

Seinna Kynntist ég tveim söngdívum í viðbót, það er Cleo Lane, sem ég var svo heppin að komast á tónleika hjá í Reykjavík, glæsileg og flott kona. 

images (4)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=XYbAmUsFFDI  Þvílík rödd, og hvernig hún lék sér með manni sínum  sir John Dankworth.  Hér Turkish Delight.  

Þegar ég var í "bransanum" og kom heim eftir böllinn dauðþreytt og tóm í hausnum, þá setti ég Cleo á fóninn og naut þetta að hlusta á hana.   Eða Moody Blues. 

 

Og síðar Dianne Warvick, dóttir mín Bára bauð mér á tónleika hjá henni í Hörpu, sem afmælisgjöf, og þvílík dýrð.

 

 images (5)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=jqCrrxUdSSY  That´s what friends are for.  Þar kom fram barnabarn hennar og söng með henni, þessi sem varð til þess að lagið Isn´t she lovely.  

Jæja þessar elskur eru allar frábærar og hafi gefið mér mikla gleði og ánægju gegnum tíðina. 


Bloggfærslur 16. desember 2015

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2020855

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband