Að bera ábyrgð enn og aftur.

„Þetta var bara skond­in fyr­ir­sögn, og stund­um fer umræðan um þetta mál út í það að vera grát­bros­leg, en það hef­ur ekk­ert með saka­málið sjálft að gera. Það hef­ur verið húm­or­inn sem varð til þess að ég ýtti á like-takk­ann.“

Er ekki í lagi með fólk?  Gera þeir sem eiga að vera fyrirmyndir í okkar samfélagi, sér ekki grein fyrir því að með því að haga sér eins svona, draga þeir út trúverðugleika fólks á æðstu stofnunum ríkisins.  

 Það fylgir ábyrgð því að vera í forsvari fyrir landsmenn, þetta fólk fær greidd laun sem eru miklu ofar öllu sem almenningur fær, og eiga þar með að sýna ráðdeild og ábyrgð.

Að láta sér detta í hug að fara niður á þetta plan er alveg með ólíkindum og ætti að víkja þessum manni frá málinu og það strax.  

Ég man vel eftir því þegar umhverfisráðherra tjáði sig um virkjunarmöguleika, og þurfti að víkja sæti vegna þess að hún hafði tjáð sig um málið.  Þetta er bara nákvæmlega það sama.  

Við almenningur í landinu krefjumst þess að þið sem fáið laun sem eru langt ofar okkar launum með tilliti til ábyrgðar, sýnið þá ábyrgð og gangist við henni, og ef ykkur verður á, þá víkið sæti, þetta á við innanríkisráðherra og hans aðstoðarmenn, en einnig þá sem eru að sækja málið af hálfu embættis saksóknara.  

Segi bara fyrir mig, ég er orðin fullsödd af því kæruleysi sem ráðamenn sýna okkur og senda okkur fingurinn æ ofan í æ.  Því miður eru of margir sauðir innan um fólkið í landinu sem bera enga ábyrgð á atkvæði sínu og gerir okkur hinum erfitt fyrir að reyna að koma á alvöru lýðræði.   

 Vonandi kemur sá tími að hægt verður að refsa ráðamönnum fyrir óalandi framkomu gagnvart almenningi í landinu.  En til þess þarf að ala upp unga fólkið okkar í því að enginn flokkur má vera áskrifandi að atkvæðum fólks.  

 

 

 


mbl.is Saksóknari „lækar“ ummæli um lekamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. september 2014

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2020865

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband