Bara nokkur orð.

Ég sem aldrei verð veik, eða sjaldan féll í kvef og broncitis búin að hósta úr mér lifur og lungu, og verið í rúminu.  Þetta er sem betur fer að skána hjá mér.  Fékk meðul við þessum fjanda.  Það hefur verið dálítill skuggi á komu dóttur minnar, en um leið feginleiki að hún sér þá alfarið um stelpurnar.  Enda er bara mamma mamma... eins og vera ber. Hún er annars að vinna hjá dýralækninum á staðnum, þær sendast út um allar trissur.  Það eru kindur, kýr og hundar og allskyns dýr sem þurfa aðhlynningu.

En ég set inn nokkrar myndir.  Það hefur svo sem ekki verið barnalaust húsið þó húsfrúin hafi legið í bælinu.

IMG_5585

Veðrið er fallegt í dag, eins og svo oft áður.

IMG_5569

Minnsta prinsessan kom í smáheimsókn.  Og henni finnst gaman hjá afa.

IMG_5570

Hanna Sól er líka hrifin af litlu frænku sinni.

IMG_5567

Þessir piltar voru duglegir í gær, hjálpuðu mér við að passa Símon Dag meðan mamma hans þurfti að brega sér frá.

IMG_5571

Ásthildur og Evíta á kafi í að lita. 

IMG_5574

Litla skottan mín sem er orðin svo stór. 

En ég ætla að ná mér á strik.  Það gengur náttúrulegal ekki að ganga um eins og kjöltrandi fýsibelgur. 

Knús á ykkur öll. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var slæmt að heyra þetta með bölvaða pestardrulluna ég vona að þetta helvíti standi stutt við og þú verðir eins og nýsleginn "túskildingur" mjög fljótlega, það er nú bara einhvern vegin svoleiðis að maður má bara ALDREI vera að því að vera veikur, hvað þá í desember.  Það er svolítið skrítið og ótrúlegt að maður er bara enn í "sumardressinu" og það eru að koma jól.

Jóhann Elíasson, 10.12.2009 kl. 12:43

2 identicon

Það dettur aldrei niður hjá kiðlingunum dauð stund Held ég "samgleðjist" þér í einhverri óværu

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 13:22

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bataknús mín kæra, farðu svolítið varlega

Jónína Dúadóttir, 10.12.2009 kl. 13:46

4 Smámynd: IGG

Ég vona að þú hressist fljótt og vel elskuleg. Farðu vel með þig. Ég sendi þá góðu strauma sem ég mögulega get til þín.

IGG , 10.12.2009 kl. 14:26

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk innilega  

 Ég ætla að ná þessu úr mér fljótt og vel.  Einmitt Jóhann maður má aldrei vera að svona löguðu og veðrið er alveg ótrúlega gott.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2009 kl. 14:35

6 Smámynd: JEG

Farðu vel með þig góða ....og láttu dekra aðeins við þig ....þú átt það örugglega skilið.  Kveðja úr Hrútafirði. 

JEG, 10.12.2009 kl. 15:21

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Bataknús mín kæra

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.12.2009 kl. 15:42

8 identicon

Batakveðjur til þín

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 17:17

9 identicon

Farðu vel með þig Ásthildur mín og ekki fara of snemma af stað í at

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 19:29

10 identicon

Farðu vel með þig og passaðu þig að fara ekki of snemma af stað mín kæra.

 Batakveðjur og knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 19:50

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bataknús og ljúfar kveðjur í kúluhús

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.12.2009 kl. 20:28

12 identicon

Hlaut að koma að því að eitthvað léti undan, svo mikið sem búið er að mæða á þér. Gott að Bára er komin til að sinna um þær litlu og ömmuna líka . Farðu bara vel með þig svo þú náir þér vel, ég lofa þér að jólin koma þó ekki sé búið að gera allt sem átti að gera. Þegar halda skal hátíð þarf eitthvað gott að borða og fólk í kringum sig til að njóta með. Ég veit þú kannt það.

Dísa (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 22:02

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Farðu vel með þig Cesil mín. Það er bara einhvern veginn þannig að þeir sem lenda í áföllum eru veikari fyrir sjúkdómum.

Hrönn Sigurðardóttir, 10.12.2009 kl. 22:03

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

 Nornin í Suðri sendir eina góða lækningaþulu Vestur!

Jóhanna Magnúsdóttir, 10.12.2009 kl. 22:33

15 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég óska þér góðs bata. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.12.2009 kl. 00:18

16 Smámynd:

Batakveðjur

, 11.12.2009 kl. 03:24

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Batakveðjur og farðu vel með þig Ásthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2009 kl. 18:04

18 identicon

Sæl, Ásthildur.

Það er ekkert gamanmál að fá í lungun, það þekki ég og segi við þig.

Ekkert nema góð hvíld bjargar því varanlega !

Ps. Ég hef verið voða latur að kvitta hjá öllum en vonandi fer það að lagast, myndirnar þínar bregðast aldrei !

Mínar bestu óskir um góðan bata og að sjálfsögðu.

Kær kveðja á allt liðið.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.12.2009 kl. 02:07

19 Smámynd: Ragnheiður

Tek undir með þessu góða fólki hér að ofan.

Farðu vel með þig, það er eins og sorgin lami mann og pestir læðast hreinlega aftan að manni !

Knús elsku Cesil mín

Ragnheiður , 12.12.2009 kl. 10:46

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Innilega takk öll.  Ég er hrædd um að ég hafi látið plata mig út í að fara út í gær, fyrst á tónleika þar sem Úlfur var að spila, og síðan á konukvöld hjá Karlakórnum Erni.  Ég ætla að setja inn nokkrar myndir á eftir frá því.  Innilega takk fyrir að hugsa til mín.  Og ég lofa að vera góð og gæta mín vel.   Þúsund knús á ykkur öll.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2009 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband