Ljúft undir svefninn.

Bóndinn minn sagði alltaf þegar við vorum komin upp í rúm og ég fór að ræða einhver vandræða mál, ekki ræða þetta svona undir svefninn, þá hugsum við bara góðar hugsanir.

Svo ég ætla að setja inn nokkrar krúttmyndir undir svefninn, því hvað sem öðru líður, þá verðum við að lifa af, hvað sem misvitur stjórnvöld gera.  Okkar tími mun koma, og það verður tími uppgjörs og heiðarleika og sanngirni.  Við verðum að trúa því að sá tími renni upp, en þá þurfum við fyrst að losa okkur við flokksræðið og fara að hugsa sjálfstætt og gefa skít í "flokkinn" og fylgja tilfinningum okkar sjálfra.

IMG_5523

Mamma er komin með ýmsar gjafir en fyrst og fremsts bara hún sjálf.

IMG_5525

Hanna Sól fékk blóma inniskó en Ásthildur fékk pödduinniskó sem hún er rosalega hrifinn af .

IMG_5528

Mamma er alltaf best.

IMG_5530

Knús mamma mín.

IMG_5532

Nýjasta frá módel Hönnu Sól, trefill og plöntuinniskór.

IMG_5538

Alveg sama hvað þessu barni dettur í hug hún er alltaf jafn falleg.

IMG_5545

Fegurð í sjálfu sér skiptir samt engu máli ef einstaklingurinn er ekki gegnheill í fegurðinni þá bara verður ekkert úr henni.

IMG_5546

Þessi einstaklingur er bara jafnfalleg utan og innan, þannig er það bara.

IMG_5542

afi og indíjána prinsessan að lita saman.

IMG_5552

Skottið alltaf jafn einlæg og yndæl.

IMG_5565

Og Ísafjörður sýnir sína bestu hlið.  Góða nótt ljúfurnar mínar af báðum kynjum megi allar góðar vættir vaka með ykkur og vernda. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sömuleiðis.  ..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 20:43

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mikið til í þessu hjá Bóndanum þínum.

Hanna Sól er gegnheil í fegurð, algjörlega! Og það ert þú líka

Hrönn Sigurðardóttir, 8.12.2009 kl. 21:04

3 identicon

Elli hefur mikið rétt fyrir sér.  Stelpurnar frábærar eins og alltaf, skyldu þær sækja eitthvað til ömmu eða læra af henni???  Njótið að hafa Báru hjá ykkur, bið að heisa henni. Fyrirmyndir, litla dúllan mín var að óska sér um daginn og óskin var sú að verða rosadugleg að prjóna eins og amma þegar hún yrði stór. Er hægt að fá mikið meira hrós en að lítil  manneskja vilji líkjast manni?

Dísa (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 21:12

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða nótt mín kæra, sofðu vel

Jónína Dúadóttir, 8.12.2009 kl. 21:13

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hallgerður mín.

Takk Hrönn mín, reyndar kom litli Sigurjón í kvöld og ég er farin að setja samasem merki við þig og litla stubbinn.

Sem betur fer Dísa mín læra börnin af því sem fyrir þeim er haft.  Og það er okkar auðna að eiga þessa dásamlegu einstaklinga að og hafa leyfi til að leiðbeina þeim og gefa þeim gjafir inn í framtíðina.

Sömuleiðis Jónína mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2009 kl. 21:32

6 Smámynd: Ásta Björk Solis

Alltaf gaman ad skoda bloggid thitt og mikid hefur eiginmadur thinn rett fyrir ser.Enda yrdu varla godir draumar ef folk fer ad sofa med vandamal eda ahyggjur.

Ásta Björk Solis, 9.12.2009 kl. 00:16

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr, ég er sammála bónda þínum.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.12.2009 kl. 00:42

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Elli er alveg snillingur og hvað hann er natinn við að dunda og hafa ofan af fyrir litlu snúllunum er alveg sérstakt og held ég að menn mættu vera stoltir með helminginn af hans hugarfari og gæsku.

Jóhann Elíasson, 9.12.2009 kl. 06:09

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

 .. skemmtilegra ef að koddahjalið er á ljúfu nótunum, en mikið skil ég tilhneyginguna að velta upp öllu mögulegu og ómögulegu þegar lagst er upp í eftir erilsaman dag. Maður ætlar að leysa öll lífsins vandamál í rúminu, svo rosalega getur heilinn farið að snúast. En eflaust getur hann bara ofhtinað af þessu öllu saman.

Falleg börn og gaman að sjá að mamma er komin líka.

Jóhanna Magnúsdóttir, 9.12.2009 kl. 07:04

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er nú ekkert skrítið við það, þú ert svo sannarlega falleg utan sem innan ljúfust mín og stelpurnar eru það líka sem og allt þitt fólk.
Gaman hjá þeim að vera búin að fá mömmu heim og til hamingju með það.

Nei Ásthildur mín koddahjalið á bara að vera ljúft og helst við englana sem eru að vernda okkur, en ég veit að það er ekki alltaf auðvelt.

Knús í kúlu
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.12.2009 kl. 08:12

11 Smámynd:

Hann Elli þinn er vitur maður og hefur í þessu alveg rétt fyrir sér. Gott að Bára er komin til ykkar - litlu hjörtun hafa nú aldeilis kætst við það (já og þau stóru líka). Bestu kveðjur til ykkar

, 9.12.2009 kl. 09:39

12 identicon

Mikið held ég að þið hafið öll gott af því að Bára skuli vera komin heim. En Elli hefur rétt fyrir sér með koddatalið

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 11:56

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Litli Sigurjón Dagur slær öll þín barnabörn út hvað mig varðar. Ég elska þann gutta eins og ég ætti hann

Hrönn Sigurðardóttir, 9.12.2009 kl. 17:43

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús í Kærleikskúlu

Sigrún Jónsdóttir, 9.12.2009 kl. 18:34

15 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús í fagra Jólakúlu.......

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.12.2009 kl. 19:10

16 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð Ásthildur mín

Sama ósk hérnamegin og þú skrifar: "Okkar tími mun koma, og það verður tími uppgjörs og heiðarleika og sanngirni." Það þarf að moka út flórinn. Hvernig litist þér á þjóðstjórn eða Utanþingsstjórn. Fá fagfólk til að stjórna í staðinn fyrir flugfreyju sem er komin á aldur að hætta störfum.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 9.12.2009 kl. 22:29

17 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Elli hefur rétt fyrir sér. Auðvitað er lang best að fara með fagrar hugsanir inn í draumalandið, en kannski ekki alltaf jafn auðvelt að framkvæma það..

Þær eru fallegar utan sem innan, litlu skotturnar þínar, rétt eins og þú og Bára. Æðislegt að vera búin að fá hana heim. Bið að heilsa henni  Knús í Kúlu.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.12.2009 kl. 08:37

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innlitið.  Ég er búin að vera óttalegur ræfill, hef legið í rúminu nú í tvo daga.  Fór til læknis og hann sagði að ég væri með broncitis, fékk syklalyf og

Takk og knús Sigrún mín.

Já einmitt Rósa mín það þarf fagfólk sem veit hvað þarf að gera og er ekki bundið á klafa pólitíkurinnar. 

Knús Linda mín.

Knús Sigrún mín.

Hann er algjört krútt Hrönn mín hann Sigurjón Dagur.

Knús Kidda mín.

Takk Dagný mín.  Já ég er glöð með að Bára skuli vera hér heima.  Knús.

Takk Milla mín.

Takk Jóhanna mín.

Takk Jóhann minn.  Eg held að Elli sakni þess að hafa ekki haft tíma fyrir börnin sín.  Nú hefur hann nægan tíma, eða gefur sér hann.

Knús Jóna Kolbrún mín.

Takk og knús Ásta mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2023312

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband