Bara svona undir svefninn.

Ég er búin að eiga tilfinningaríkan dag.  Fyrst var að jafna sig eftir frábæran kvöldverð á Hótel Ísafirði, jólahlaðborð eins og þau gerast best.  Maturinn algjörlega frábær og vinur minn Halldór Smára við hljómborðið gaf veislunni glæsilega svip.  Hann er ekki síðri en Villi Valli, og þá er nú mikið sagt.  Strákurinn er algjörlega frábær á hljómborðið.  Svo komu félagar úr Litla leikklúbbnum og sungu, ungir krakkar.  Það er verið að setja upp sjóv með Ellý Vilhjálms, þau sungu eins og englar, og auðvitað Gummi Hjalta þar með gítarinn.  En þau vissu auðvitað ekki að Vilhjálmur Vilhjálms var einmitt hér í skóla, við vorum jafngömul og hann var hér í fjórða bóknáms, eða menntaskóla deild.  Áður en menntaskólinn kom. Þessi yndæli strákur, það var auðvitað áður en hann sjálfur varð frægur, bara bróðir Ellýjar.

Svo í dag fór ég með pabba mínum á jólahlaðborð á Hlíf.  Ákvað að hafa ekki myndavélina með.  En það var þvílíkt dýrð.  Kvenfélgaskonur í Ísafjarðarkirkju sáum um samkvæmið.  Þær voru flottar og allt með glæðibrag.  Skemmtiatriði og alles.  Séra Magnús Grætti mig alveg óvart, með sannri jólasögu frá upplifun hans sjálfs.  Pabbi minn skemmti sér mjög vel, og við sátum þarna í góðu yfirlæti í klukkutíma og vorum leyst út með jólagjöfum.  Innilega takk elsku Gei Gei og þið allar hinar fyrir okkur pabba. Heart

Svo fór ég í Kapelluna í Hnífsdal, þar sem Evíta og fullt af litlum yndislegumbörnum voru að leika hátíðarleik.  Séra Magnús Var þar fremstur í flokki við að koma þessu heim og saman.  Verð að segja það hér að hann er alveg sérstakur maður.  Ég er ekki viss um að ég hefði yfirgefið kirkjuna ef hann hefði verið prestur hér þá.  En ekki af því að ég trúi á krist eða biblíuna.  Heldur bara af því að hann er svoddan ljúflingur.

IMG_5492

Engill bíður eftir að leika. Reyndar átti ég þarna í kapellunni ekki færri en átta barnabörn.

IMG_5495

Tvær Sólveigar Huldur og mamma Tinna. Yndislegar allar.

IMG_5496

Fermingarbörn frá Hnífsdal spiluðu þarna stóra rullu.  Og ég var einmitt að hugsa í kvöld að þó svona langt sé liðið frá því að Hnífsdalur var innlimaður í Ísafjörð þá eru þau samt sem áður Hnífsdalingar, stoltir og flottir og sérstakir.

IMG_5497

Alvaran alveg á fullu, beðið eftir að koma fram, og auðvitað verður þurrkað framan úr dömunni áður en hún fer fram. Smile En þetta er lítill engill.

IMG_5498

Skaftafjölskyldan mín, vantar bara Daníel og Júlíönu en þau búa í Reykjavík með mömmu sinni.

IMG_5500

Nokkur af barnabörnunum og svo séra Magnús.

IMG_5507

Kvennakór Hnífsdalskapellu. Og ég fór að hugsa hversu margir kórar eru til hér.  Sennilega allt að tíu ef talið er.

IMG_5511

Hér er svo lítill frændi minn að spila. Litla systir var líka að spila, en ég var þá með Evítu litlu á hnjánum svo mér tókst ekki að taka mynd af henni.

IMG_5512

Sameinaður gospelkór og kvenfélagskór Hnífsdalskirkju.

IMG_5514

Og með óminn um hin fyrstu jóla í eyrum mér læddi ég mér út úr þessari yndslegu athöfn.  Því ég var með steikina í ofninum og þurfti að koma mér heim.  En ég var með tárin í augunum og hjartað fullt af söknuði og tærum kærleika.  Þetta var bara svo fallegt.  Og þó ég sé ekki kristinn, þá er ég að átta mig á því hvað það er sem gerir kirkjurnar og söfnuðina að því sem þau eru. Það er ekki biblían, það er ekki heldur stofnunin Kirkja.  Það er fólkið sem af kærleika gefur allt sitt til af kærleikanum.  Ég hef nefnilega stundum velt fyrir mér af hverju skyggnir sjá ljós yfir kirkjum.  Það er uppsafnaður kærleikur þeirra sem taka þátt.  Þess vegna held ég að prestar eins og séra Magnús Erlingsson skerpi ljósið yfir kirkum sem hann kemur við sögu, á meðan ljósin í kirkjum sem til dæmis séra Gunnar heyrir til, deyfir ljósin sem þar skína, því miður. Því fyrir mér er kærleikurinn alheimsmál, ekki mál einhverra sem telja sig til ákveðinna söfnuða.  Og Hver sá sem miðlar og ræktar kærleikann lætur það ljós skina og gefur öllum ljós og vellíðan.

IMG_5516

En ég sagði ykkur frá því að ég keypti kræklinga í gær á torginu af strákunum í björgunarsveitinni.  og það kostaði mig 500 kr. kilóið.  sem er ekkert verð fyrir þá eðalvöru.  En við höfðum kræklingana í forrétt í kvöld og hér er litla krílið mitt að gæða sér á því sælgæti. Ég læt því myndirnar tala.

IMG_5518

Nammi namm og hún glommaði í sig kræklinga.

IMG_5519

Og svo er að opna skelina.

IMG_5520

Já það þarf að beita kröftum.

IMG_5521

Og smá leikaraskap.

IMG_5522

Svo er lesið, og farið að sofa því á morgun kemur mamma, sú besta í heimi.  Og við hlökkum öll til að fá hana til okkar.

En þessi dagur var dýrð í upphæðum, bæði gleði og sorg, en fyrst og fremst þakklæti fyrir allt það góða og yndislega sem fólk er að gera hvort fyrir annað. Til að gleðja og hugga og bara vera til öðrum til uppbyggingar og gleði.  Innilega takk fyrir mig. Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2009 kl. 23:26

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ásthildur er flott með kræklinginn. Ég vildi að ég gæti fengið mínar dætur til að smakka svona lostæti  Kærleikurinn er ómetanlegur. Ef allir miðluðu af kærleik eins og þú væri heimurinn betri.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.12.2009 kl. 23:51

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Var sjálf í kirkju í kvöld að prédika, það var vissulega notaleg stund; sendi þér upphafsbænina mína:

Bæn
Leiddu mig Guð - eftir þínu réttlæti, sestu niður með mér og rabbaðu við mig, gerðu beina brautina þína fyrir mér og gef mér ljós þitt svo ég sjái hvert ég á að stefna.  Gefðu mér daglegt brauð  og hjálpaðu mér við að fá að taka þátt í að baka það.  Sendu mér áfram englana þína. Því að þú ert vinkona mín og vinur sem gengur með mér í gleði og sorg.  Amen

Jóhanna Magnúsdóttir, 6.12.2009 kl. 23:56

4 Smámynd:

Þar held ég Ásthildur mín að þú hafir fundið innihald trúarinnar  Ég yfirgaf líka kirkjuna fyrir löngu en trúin mín kom aftur til mín og gefur mér styrk og von. Eigðu góða nótt og njóttu samfundanna við Báruna þína þegar hún kemur

, 7.12.2009 kl. 00:05

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.12.2009 kl. 01:02

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf er gott að koma á síðuna þína.  Mér líður alltaf betur á eftir.

Jóhann Elíasson, 7.12.2009 kl. 04:41

7 Smámynd: Skafti Elíasson

Já alltaf gaman að skoða bloggið þitt mamma, takk fyrir það.

Skafti Elíasson, 7.12.2009 kl. 05:06

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 7.12.2009 kl. 08:00

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.12.2009 kl. 08:10

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Séra Magnús er öðlingur, skemmtilegri og yndislegri mann erfitt að finna.
Þessi tími með börnunum okkar í kirkju eða ekki kirkju er ljósið elsku Ásthildur mín, ég tel ljósið vera sannleikann því við getum ekki neitað því, það er þarna.
Ég trúi á æðri mátt og það er fyrir mér yndisleg tilfinning.

Hefði viljað vera í messu hjá henni Jóhönnu vinkonu okkar, en það verður einhvern tímann.

Myndirnar eru flottar að vanda.

Kærleik í kúlu
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.12.2009 kl. 08:42

11 identicon

Yndislegt að sjá og að helgin þín var svona góð. Mín var svona líka, ég var meira og minna umkringd góðu fólki og vinátta og væntumþykja umlukti allt og alla. . Svo verður dagurinn í dag frábær hjá ykkur að fá mömmu og dóttur heim.. Eins og þú sagðir í gær, ég held að ekkert geti slitið taugina milli okkar elsku vinkona mín.

Dísa (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 10:14

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að heyra Dísa mín.  Það er yndislegt að eiga góðar stundir með fjölskyldunni og aldrei þýðingarmeiri en einmitt á þessum tíma.  Þessi taug er römm elskuleg mín og hún slitnar ekki svo glatt. 

J'a Milla mín það hefði verð gaman að hlýða á Jóhönnu.  Hún er ein af þessum kærleiksríku manneskjum, sem við þurfum á að halda í samfélaginu á þessum tímum.

Takk fyrir innlitið elsku Jenný mín.

Knús Jónína

Takk Skafti minn. 

Gleður mig að heyra Jóhann.

Knús Jóna Kolbrún.

Dagný, já ætli það sé ekki rétt hjá þér.  Ég hef fundið taktinn sem ég vil dansa eftir.

Þetta er virkilega falleg bæn Jóhanna mín.  Ég segi sama og Milla, það hefði verið gaman að hlusta á messuna þína.

Sigrún ég veit að sú litla var svöng, en hún glommaði í sig fleiri kræklinga, og fannst þeir góðir. 

 Knús til þín Birna Dís

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2009 kl. 13:34

13 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 7.12.2009 kl. 14:08

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 7.12.2009 kl. 14:43

15 identicon

Maddý (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 18:20

16 identicon

Kæra Ásthildur.

Þakka þér góðar umsagnir um framleiðsluvöruna okkar. Það voru ekki björgunarsveitarmenn að selja krækling, heldur félagið Vesturskel ehf sem byrjaði að rækta krækling árið 2007 og var að kynna sýna fyrstu framleiðslu. Þú hefur eðlilega ályktað eins og kannski fleiri að af því Jói í Ísnum sem er framámaður í Björgunarfélagi Ísafjarðar var að selja og kynna, en hann er einn af stofnendum Vesturskeljar ehf. Ég vildi bara koma þessu á framfæri svo ekki yrði misskilningur af. Við reiknum með ef allt fer eins og við ætlum, að á næstu árum verði þetta ekki bara fyrir jólin heldur stöðugt framboð allt árið. Bestu kveðjur til þín og þinna. Magni

Magni Guðmundsson (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 19:57

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Anna Ragna, Sigrún og Maddý.

Fyrirgefðu Magni minn misskilningin.  En það er eins og þú segir eflaust vegna Jóa sem ég taldi þetta vera björgunarsveitina.  Ég þakka innilega fyrir mig og mæli hiklaust með þessari eðalvöru.  Kræklingurinn smakkaðist æðislega með köldu hvítvíni.  

Vil ráðleggja þeim sem ekki eru vanir svona kræsingum, að það á að setja bara smávatn í pott, ekki salta neitt, því kræklingurinn er nógu saltur beint úr sjónum.  Það þarf bara að fljóta upp á hann hálfan vatnið þarf að vera sjóðandi þegar skelin er sett í vatnið, og um leið og skelin opnast er hann tilbúinn.  Og hann er góður, því get ég lofað. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2009 kl. 20:30

18 identicon

Fer ekki ofan af því að það er betra mannlíf út á landi heldur en hérna á höfuðborgarsvæðinu.

ps. ég gæti aldrei borðað krækling

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 09:46

19 Smámynd: Ragnheiður

Þú hittir naglann á höfuðið með kirkjuna og það samfélag allt,án þess gæti ég ekki verið í mínum erfiðleikum í lífinu en það er ekki þar með sagt að ég trúi hverju orði í Biblíunni- það er allt önnur Ella

Hjartans kveðja

Ragnheiður , 8.12.2009 kl. 13:21

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kidda mín maður getur alltaf prófað eitthvað nýtt.  En eg get alveg trúað því að allt mannlíf sé einfaldara og einlægara úti á landi.  Öðruvísi allavega.

Ragnheiður mín, já þetta er það sem mér finnst líka samhugurinn og ósérhlífnin er það sem stendur uppúr ásamt kærleikanum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2009 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband