13.11.2009 | 12:25
Kóngur og Drottning.
Ég kaupi oft DV þessa dagana. Finnst þeir taka vel á spillingarmálum og láta sig varða það sem er að gerast í samfélaginu. Núna síðast um níu ára drenginn sem var tekinn með ofbeldi frá ömmu sinni að því er virðist ekki á löglegan hátt.
En ég ætla ekki að tjá mig um það hér.
Það sem ég hef verið að hugsa um er, að undanfarin blöð hafa verið undirlögð af tveimur persónum. Þau eru Kóngur og Drottning.
Ég kannast við opinberu persónu Kóngsins, hann hefur komið víða við í íslensku samfélagi og hefur markað þar djúp spor svo ekki sé meira sagt. Endalaust getur hann komist áfram á sínum pólitísku "hugsjónum".
Kóngurinn og Drottningin virðast bæði vera hulin leyndarhjúpi. Bæði hafa þau um sig hirð aðdáenda, sem gefa þeim auðvitað þann styrk og vernd sem þarf til að komast í þessa stöðu. Að vísu er hirð Kóngsins kölluð Náhirð. Hennar sértrúarhirð.
Bæði baða sig í aðdáun áhangenda sinna, hann í pólitíkinni og hún í business.
Ég veit svei mér ekki hvernig ég á að taka uppátæki DV að setja þessa ágætu drottningu á stall og hylla hana svona í hverju blaðinu á fætur öðru. Að vísu ofbauð mér svo að ég ákvað að kaupa ekki þriðja blaðið í röð þar uppljómað af hennar persónu, þar sem var viðtal við hana upp á minnsta kosti heila opnu. Ég held sem betur fer, því eftir viðbrögðum Þórarins Tyrfingssonar í blaðinu á eftir, við ummælum hennar um fíkla og alkóhólista, er ég fegin að hafa ekki lagt það á mig með því að lesa það sem hún lætur frá sér. Þau ummæli hinnar goðumlíku fegurðargyðju er langt því frá að vera sá guðlegi innblástur sem blaðið hefur látið í ljós að hún sé haldinn. Heldur miklu fremur frá hinum svarta sjálfum.
Ég skil vel að kóngurinn klári fái að heyra það dag eftir dag í DV, hann er jú keppinautur blaðsins í dag, að vísu eitthvað hnignandi eftir því sem mér skilst.
En með Drottninguna gildir öðru máli, ég er farin að halda að minn ágæti vinur Reynir Trausta sé fallinn í netið hjá henni og orðin einn af áhangendum safnaðarins. Slík er mærðin um þessa konu sem ég veit ekki haus eða sporð á, nema að ég ét stundum Gunnars majonnes. En hún mun víst sjá um að breiða það út meðal landsmanna eins og aðrir gera með útgáfu blaða. Enda er einn af hennar miklu mannkostum að skrifa bækur.
Þetta er nú bara svona til gamans. En það er ekki þar með sagt að ýmislegt flögri að manni svona á þessum síðustu og verstu.
Eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst Ástríkur og Kleópatra miklu skemmtilegri bók.Knús á þig og þína Ásthildur mín.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 13:05
Já mér þykir líka gaman að Ástríki. Og man vel eftir sögunni um Kleópötru og aumingja byggingarmeistarann sem átti að ljúka við höllina í tíma, en Cesar var stanslaust að skemma fyrir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2009 kl. 13:45
Ég sé aldrei DV svo ég skil ekki neitt í neinu! En
samt 
IGG , 16.11.2009 kl. 02:05
Hehe þessi kona heitir Kleopatra og er forstjóri GunnarsMajonness, og það eru skiptar skoðanir á því hvort hún telst vera hæf þekkingarlega séð. Svo hefur hún gefið út nokkrar bækur sem mér skilst að liggi í búnkum hjá Majonnes. Kóngurinn er náttúrulega Bubbi kóngur alias Davíð Oddsson.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.11.2009 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.