9.11.2009 | 22:32
Minning um listamann taka tvö.
Já þetta er taka tvö um sýninguna og það sem var í kring um hana.
ég þurfti aðstoð við að prenta út myndir og þar sem synir mínir tveir sem eftir eru hafa flutt sig út til Noregs, þá á ég sem betur fer einn son í viðbót, fyrir utan Bjössa minn og það er Rolando. Hann kom og hjálpaði mér og kom með englana sína með sér. Rolando ég vona bara elskulegur minn að þitt fólk hafi sloppið í San Salvador við hörmungar fellibylsins.
Og það er auðvitað farið í kistuna góðu hjá ömmu og fundið eitthvað til að gera sér til skemmtunar.
Flottur spidermann, ég er samt ekki alveg viss um að hann kunni að höndla byssuna.
Áður en þið skammið mig fyrir að láta barnið hafa svona beittan hníf, þá vil ég segja í fyrsta lagi þá lét ég hana ekki hafa þennan hníf, hún hefur örugglega bjargað sér um hann sjálf. Og svo álít ég að börn þurfi að læra af reynslunni að umgangast hluti sem geta gert þeim mein. Alveg eins og þetta með ofurþrifnað. Það er sagt að á misjöfnu þrýfist börnin best. Og það er bara þannig. Ef við ofverndum þau, þá læra þau ekki að bjarga sér. Það er mín skoðun allavega.
Fröken Hanna Sól.
Flottust.
Þetta er blómálfaprinsessa, við eigum allskonar ævintýrapersónur hér í kúlunni. Og þær birtast þá og þegar.
Þetta er aftur á móti engill í bláum skóm, sem hún elskar. Amma keypti þá í Pforsheim í sumar og hún hefur verið í þeim síðan.
Þær eru eins og svart og hvítt, og þær rífast eins og hundur og köttur, en þær elska hvor aðra algjörlega.
Og svo er komið að því að undibúa sýninguna. Halldór besti vinur Júlla var auðvitað með þeim fyrstu að mæta.
Sonur Magga Hauks og Rönku, Guðmundur hér með Úlfi mínum. Og það er verið að undir búa sýninguna. Ranka og Maggi höfðu búið til súpu í anda Júlla míns, og þar að auki voru brauðtertur og allskona meðlæti sem þetta yndæla fólk hafði útbúið honum til heiðurs. Þau eru einstök og Júlli var þeirra fjölskylduvinur algjörlega. Ég er svo þakklát fyrir hvað þau hafa verið honum góð. Og ég veit að hann var þeim virkilega hjálparhella. Stundum kom hann heim og sagði; mamma ég þarf að útbúa blómaskreytingar fyrir Tjöruhúsið, má ég fá blóm í garðinum hjá þér. Og alltaf var það jafn sjálfsagt mál. Hann var sannur listamaður líka í blómaskreytingum.
Þessi mynd er skemmtileg því báturinn í baksýn er raunverulegur hann er í glugganum. Ég verð að viðurkenna að ég átti dálítið við hvíta hákarlinn, hann hafði verið niður í gámi fyrir utan og rignt niður, þannig að bakugginn var brotinn og líka sporðurinn. En hann hafði verið með hákarlinn í höndunum lengi og ég vildi hafa hann á sýningunni, svo ég fékk gips og málningu og setti allt í gang að gera hann sýningarhæfan. Hann er auðvitað samt sem áður að sjálfsögðu algjörlega hannaður af drengnum mínum.
Þetta er indíjáni, ég var með myndabók af sumum listmundum eftir Júlla, og þegar Halldór sá mynd af þessum karli, þá fór hann og sótti hann. Hann er sem sagt í hans eigu. ég vissi ekki hvar hann var niðurkomin. Svo er um fleiri muni vinirnir hans eiga fullt af verkum eftir hann. Þau ætla ég mér að fá lánuð á afmælinu hans og hafa flotta sýningu í júlí á næsta ári honum til heiðurs.
Gleðitímabil hjá syni mínu. Þá voru litirnir fallegir og ljúft að skoða.
Svo komu þessi dimmu tímabil inn á milli.
Þessi ætti að vera í hverjum banka á Íslandi til minningar um útrásarvíkinga. Páfuglinn er þeirra status.
Og hann gerði skapalón af fiskunum sem hann gerði. Hér er ýsa.
Og litli Sigurjón Dagur sem var svo ungur þegar pabbi hans dó. En hann man samt alveg heilmikið eftir pabba sínum. Og ég er viss um að Úlfur mun vera með honum og kenna honum það sem pabbi var svo iðinn við að gefa þeim. Heilræðin og það sem skipti máli í lífinu. það var hann óþreytandi í að kenna bæði sonum sínum og hinum barnabörnunum mínum. Þau koma til með að muna það. Það er nokkuð víst.
Fiskarnir hans sem eru staðsettir fyrir utan Neðstakaupstað munu verða teknir inn og hlúð að þeim í vetur, og settir upp aftur næsta vor. Það er samkomulag milli mín og safnstjórans, og hann mun fá verðugan minningarplatta á þeim stað sem hann elskaði svo mikið.
Amma við fundum þennan stein og pabbi sá strax að þetta var geimvera. Hann tók ekki hvað stein sem var, heldur velti þeim fyrir sér, hverjum og einum, og hann sá fiskinn í þeim þegar hann ákvað að taka þá með sér heim. Svona var drengurinn minn.
Þetta yndislega fólk Maggi og Ranka buðu okkur í mat í hádeginu í gær. Þau eru rómuð um alla veröldina svei mér þá. Því fólk hefur komið hér frá ýmsum löndum til að borða fisk í Tjöruhúsinu. Og fiskurinn undir pönnunni er auðvitað frá Júlla. Mér var sagt að a.m.k. í tveim giftingum sem haldnar voru niður í Tjöruhúsi var fólk leyst út með fiskum frá honum. Hann vildi gefa og hann gaf. Og ég veit að fólk metur það að eiga fisk frá honum.
Það voru margir sem lögðu leið sína niður í Tjöruhúsið í gær. og ég var svo stolt af syni mínum. En líka Úlfi sem stóð og bakaði vöfflur ofan í gestina.
Fólk safnaðist líka saman fyrir utan og spjallaði því veðrið var svo gott.
Myndarskapurinn hjá gjestgjöfunum var frábær. Þar var ekkert til sparað við að bjóða fólki upp á trekteringar og Júllasúpu, sem margir þáðu.
Þetta er skútan IjElla sem hann gaf okkur pabba sínum.
Og það voru sett kerti við hvert listaverk fyrir utan Tjöruhúsið.
Og á kertafleytingu sem var lokaathöfn á vetrarnóttum var endað með því að syngja; Í faðmi fjalla blárra, fyrst með gamla laginu sem við Ísfirðingar þekkjum öll og svo með nýju lagi sem Baldur Geirmundsson hefur samið, sem er ekki síður fallegt. Og þarna syngja þau nýja lagið. Ég sagði að það væri vel við hæfi að syngja einmitt þetta ljóð Í faðmi fjalla blárra til minningar um son minn, því hvergi vildi hann annarsstaðar vera en einmitt hér á Ísafirði. Hann elskaði Ísafjörð og fólkið hér. Og það geri ég reyndar líka.
Litli stubbur og mamma hans, sem sakna svo mikið. Þau hafa misst svo mikið, þar sem Júlli minn var þeim alltaf svo góður og hjálpsamur. Og hann elskaði báða syni sína út af lífinu. Og þeir gáfu honum það besta sem til var í þessum heimi. Eitthvað til að lifa fyrir, traust og trúnað. Þeir gáfu honum ekki síður mikið, en hann þeim.
Eftir þenna langa dag var gott að komast í gott bað í kúlunni. og það var ósvikin gleði, börn eru svo fljót að gleyma sem betur fer. Þó muna þau allt það sem skiptir máli. Við megum margt læra af börnunum.
Þessi er fyrir ísfirðingana mína og sérstaklega Erlu og fólki við Seljalandsveginn.
Og það var regnbogi yfir Ísafirði í dag.
Enn einn sólargeislin hún Snæfríður, sem dundaði sér hér hjá mér í dag, þó Hanna Sól hefði farið í heimsókn til Sigurjóns. Við erum svo rík af börnum. Meira að segja börnin á leikskólanum kalla okkur afa og ömmu. Hvað er hægt að fá betra hrós en það frá sakleysinu og einstaklingunum sem þekkja ekkert nema sannleikan og lífði eins og það blasir við þeim.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fiskarnir og önnur steinlistaverk Júlla eru ótrúlega flott, ég hef alltaf verið hrifin af steinlistaverkum. Geimveran er náttúrulega ekki af þessum heimi. Til hamingju með sýninguna.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.11.2009 kl. 00:59
Til hamingju með þessa sýningu elsku Ásthildur. Það er svo yndislegt að koma hér við og sjá að lífið heldur svo áfram sinn gang
Sigrún Jónsdóttir, 10.11.2009 kl. 01:51
Jónína Dúadóttir, 10.11.2009 kl. 15:40
Flott sýning, gaman að dagurinn gekk svona vel. Líka gaman að sjá öll litlu krílin sem gefa svo mikla gleði og líf.


Dísa (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 18:09
Já, það var fyndið þegar Snæfríður kom heim í gær eftir heimsóknina til Hönnu Sólar, ég spurði hana hvað þær hefðu verið að bralla, þá sagði hún: "mamma hún var ekki heima en ég lék bara við ömmu hennar í staðinn" og svo hló hún hjartanlega!
Erna Sigrún (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 19:24
Flott sýning og viðeigandi umhverfið í Tjöruhúsinu fyrir listaverkin hans Júlla. Hvað varðar uppeldið þá er ég þér alveg sammála börn verða að spreyta sig til að læra á lífið. Fólk í dag ofverndar oft börnin sín í æsku en ætlast svo til allt of mikils af þeim þegar þau verða unglingar. Er von að mörgum börnum líði illa?
, 10.11.2009 kl. 19:52
Takk öll.
Erna mín já, meðan Snæfríður fór heim að ná í þrjá ísa, ákvað stelpuskottið mitt að fara í heimsókn til Sigurjóns Dags. Ég var einmitt að hafa áhyggjur af því að Snæfríður kæmi á meðan. Svo þegar hún kom, þá bauð ég henni bara inn og við horfðum á Maryposa og svo lék hún sér að dótinu. Við vorum báðar hæst ánægðar.
Stundum geta ömmur verið bara ágætar.
Alveg rétt Dagný þau þurfa að fá að spreyta sig og vera treyst svona í hófi allavega.
Takk Jóna mín. Ég er allavega mjög stolt af drengnum mínum.
Takk Sigrún mín.
knús Jónína mín
.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2009 kl. 22:52
Takk fyrir mig ljúfust mín, ég er bara hrærð
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2009 kl. 08:25
Knús inn í daginn Milla mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2009 kl. 10:32
Þú ert bara yndisleg Ásthildur, afstaða þín og viðhorf eru svo ekta og heilbrigð finnst mér. Ég er ekki hissa þó blessuð börnin sæki til þín. Innilega til hamingju með þetta allt saman.
IGG , 12.11.2009 kl. 01:50
...já og takk fyrir frásagnirnar og myndirnar af fallegu verkunum hans sonar þín, sýningunni, börnunum og heimahögunum.
IGG , 12.11.2009 kl. 01:53
Mikið sem ég hefði viljað sjá þessa sýningu.
Takk fyrir að sýna okkur hana með ljósmyndum.
Laufey B Waage, 12.11.2009 kl. 20:57
Mín er ánægjan elsku Ingibjörg mín. Innilega takk.
Var stundum hugað til þín Laufey mín og fisksins þíns.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2009 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.