Minning um listamann.

Ég eyddi deginum í að setja upp sýninguna til minningar um Júlla minn.  Það var yndislegt, og ennþá yndislegra voru viðtökurnar.  Það mætti fullt af fólki og honum var sýnd svo mikil virðing.  Ég var þarna allan daginn og alveg fram á kvöld.  Hjónin Maggi og Ranka sem hafa rekið matsölustað á heimsmælikvarða núna undanfarin ár í Tjöruhúsinu, þau höfðu undirbúið veislu fyrir gesti sem komu.  Meðal annars var boðið upp á fiskisúpuna hans Júlla míns.  Ég ætla ekki að setja inn margar myndir núna, ætla að setja inn fleiri myndir á morgun.  Ég er algjörlega búin eftir daginn, bæði tilfinningalega og líkamlega.  En ég er svo sátt og glöð samt sem áður fyrir alt sem var gert fyrir elskulega sonin minn í dag.

IMG_4923

Úlfur stóð sig eins og hetja og bakaði vöfflur ofan í gesti. 

IMG_4925

Það voru margir sem lögðu leið sína niður í Tjöruhús í dag til að skoða verkin hans Júlla míns.  Og ég var svo stolt af drengnum mínum.

IMG_4926

Sumum fannst þeir samt vera útundan.  Ekki illa meint en bara sona. Þeir þekktust mjög vel Júlli minn og þessi piltur hér.

IMG_4937

Og hér er Bjarni frá Brekku.  Hann er besti flakarinn í bænum og sennilega sá besti á Íslandi.  Hér er hann að segja okkur frá því hvernig hann vann skákkeppni, og er sannfærður um að Júlli hjálpaði honum að vinna. Það var lagt undir 100.000 kall, en minn maður sagði bara, ég hef ekkert við peninga að gera, ég vil bara lesa fyrir þig upp úr biblíunni.  Betra væri að fleiri hugsuðu þannig.  Ekki neitt 2007 dæmi þar á ferð.

IMG_4938

Þegar fór að rökkva var kveikt á kertum við listaverkin hans Júlla sem eru úti á svæði Neðstakaupstaðar.

IMG_4941

Amma; sagði Úlfur pabbi tók ekki hvað stein sem var úr fjörunni.  Hann valdi hvern og einn sérstaklega, og hann sá fiskinn í steininum, þegar hann tók hann.  og þegar við fundum þennan, þá var ekki spurning, þetta var geimvera.

IMG_4943

Þetta er Hulk, einhver á frú hulk og það væri gaman að vita hver.  en Hulk er nakinn og ég stóð Úlfinn að því hvað eftir annað að reyna að fela bibban með laufum.  Enn Hulkinn ísfirski er bara flottur.

IMG_4944

Bæjarstjórnin ákvað að kunngera næsta bæjarlistamann í Tjöruhúsinu og minntust í leiðinni Júlla míns.  Billa var kjörin næsti bæjarlistamaður.  Til hamingju með það mín kæra.

IMG_4950

Síðan var kertafleyting í fjörunni og hún var í og með til heiðurs Júlla mínum.

IMG_4951

Mikið held ég að hann sé stoltur, minn elskulegi sonur.

IMG_4955

Dagskráin endaði svo á söng í fjörunni, í Faðmi fjalla blárra sem er þjóðsöngur Ísfirðinga, og reyndar var svo frumflutt nýtt lag við þetta frábæra ljóð, lag eftir frænda minn Baldur Geirmundsson. ég gat ekki sungið með, því ég var með ekkan upp í hálsi.  Í faðmi fjalla blárra var alveg í anda Júlla míns, sem elskaði bæinn sinn svo mikið, að það kom aldrei til greina annað en að eiga hér heima og starfa og hér gaf hann af sér allt sem hann átti til. Og bæjarbúar hafa svo sannarlega sýnt að þeir virtu hann líka og elskuðu.

 

IMG_4961

Þess vegna er ég sátt, þó tárin leki endalaust þá þykir mér svo vænt um hvað allir hafa tekið drengnum mínum vel og hvað hann hefur markað djúp spor í heimabæinn sinn.  Hvað hann hefur gefið mörgum af sér.  Ég móðir hans áttaði mig ekki á þvi hve í raun og veru djúp spor hann hefur markað í samfélagið.  Og svo áttaði ég mig líka á því hve drengurinn minn var í raun og veru líkur mér.  Ég er ekki að hrósa mér, en ég hef fundið að þrátt fyrir allt þá lifði í honum það sem ég lagði inn og lagði mesta áherslu á í þessu lífi, það er virðing fyrir öllu lífi, virðing fyrir bæði dýrum, fólki og plöntum.  Ég hef lært að skoða sjálfa mig í ljósi þess sem hann var og sjá að börnin okkar endurspegla það sem við leggjum inn í banka lífsins fyrir þau.  Þannig að það er ekkert auðvelt að vera foreldri, og sennilega eiga afar og ömmur að ala upp börnin, því þau hafa öðlast viskuna, þolinmæðina og reynsluna til að gefa einstaklingnum þau tækifæri sem þau eiga skilið.  Hér áður þá áttu afi og amma virkan þátt í uppeldi barnanna, þar voru ekki leikskólar heldur afi og amma sem voru inn á heimilum og áttu ríkan þátt í uppeldinu.  I dag er öllu skipt upp, það eru leikskólar, skólar á mismunandi stigum, vinnustaðir og svo dvalarheimili.  Þar með er kippt út því elementi að afi og amma séu til staðar til að bera áfram þekkinguna til barnabarnanna, sem var svo rík hér áður.  Hér þarf að hlú að því og skoða hvort ekki sé komin tími til að kippa þessu í lag og sameina leikskóla og dvalarheimili, þannig að afi og amma séu ekki bara óvirkir þáttakendur í lífinu, heldur séu þaú meðvirk í leikskólum og komi þar inn til að sinna börnunum, segja þeim sögur og fræða þau um gamla tíma.  Því þó fóstrur séu alveg frábærar og góðar að öllu leyti, koma þær samt sem áður ekki í staðin fyrir afa og ömmu.  Reyndar kalla mörg börnin á leikskólanum mig ömmu þegar ég kem þar inn, og mér þykir afar vænt um það. Heart

Megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda.  Ég sit hér með ekkan í hálsi og hjartað úti  af upplifun dagsins og þakklæti mínu til samfélagsins sem ég er þátttakandi í, Takk innilega, takk ísfirðingar hve vel þið hafið tekið mér og drengnum mínum, sem lifði alltof stutt fyrir minn smekk, en enginn ræður sínum næturstað og allt er náttúrunni háð.  Við höfum ekkert með það að segja, heldur verðum að beygja okkur undir það sem gerist.  Ég er reyndar sannfærð um að okkur er ætlaður ákveðin tími hér í lífsins táradal, við förum hvorki fyrr né síðar en áætlað er.  Þannig er lögmálið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er þér algjörlega sammála með lögmálið, öllu er afmarkaður tími.  Svo þetta með ömmurnar og afana, þau eru mikilvæg í lífi barnabarna sinna, og líka allra hinna barnanna.  Ég held að margt fólk sem er á elliheimilum gæti notið þess að heimsækja leikskóla sér til skemmtunar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.11.2009 kl. 01:54

2 Smámynd: Ragnheiður

Ég rétt sá glitta í þig mín kæra í fréttunum- ég mun reyna að fletta því upp og sjá betur.

Yndislegir Ísfirðingar...alveg magnað fólk..!!

Knús í nóttina, þú sérð mín megin hvað heldur mér á fótum nú

Ragnheiður , 9.11.2009 kl. 02:35

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 9.11.2009 kl. 07:16

4 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 07:43

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Trú, von og kærleikur... það er það sem þú stendur fyrir

Jónína Dúadóttir, 9.11.2009 kl. 08:11

6 identicon

Takk Íja mín fyrir flotta sýningu og góðar veitingar. knús

Gréta (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 08:18

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið langar mér að taka utan um þig elsku Ásthildur mín. Fallegar myndir

Kristín Katla Árnadóttir, 9.11.2009 kl. 08:38

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Af myndunum að dæma er ekki hægt ímynda sér að minningarsýningin hefði getað heppnast betur.  Til hamingju!  Hann Júlli hefur örugglega verið á staðnum, mjög stoltur og líka vissan um að hann hafði mun meiri áhrif á bæjarlífið en hann gerði sér grein fyrir og þá meina ég á jákvæðan hátt.  

Jóhann Elíasson, 9.11.2009 kl. 08:46

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Maður tárast nú bara að sjá hvað þið eruð fallegt og vel gert fólk í kúlunni við heimsenda.  Það streymir hér út af blogginu, svo maður finnur virkilega fyrir því. Að minnast hins góða og fagra í öllu, vekur sátt og græðir sár. Fáum er það eins vel gefið og þér Ía mín.

Jón Steinar Ragnarsson, 9.11.2009 kl. 10:13

10 identicon

Þarf ég nú að fara að horfa á fréttir

Frábært hvað dagurinn heppnaðist vel, fiskarnir hans Júlla eru líka frábærir. Eins og allt sem hann gerði.

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 11:05

11 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 9.11.2009 kl. 11:26

12 identicon

Þú ert einstök Ásthildur og mikið eru þeir heppnir sem eiga þig að. Með kökk í hálsi les ég orðin þín, svo sönn, svo djúp og svo einlæg Gangi þér allt í haginn.

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 11:36

13 identicon

Flottur dagur hjá þér.Svona kemur batinn,tala og framkvæma.Guð styrki þig og þína

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 11:36

14 identicon

Til hamingju með þessa glæsilegu sýningu. Ég hefði vilja mæta, en það er gaman að fá að sjá myndirnar og fylgjast aðeins með svona úr fjarlægð.

Harpa J (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 11:38

15 Smámynd:

, 9.11.2009 kl. 17:32

16 Smámynd: Bjarni Líndal Gestsson

Við hjónin óskum ykkur í Kúlu hjartanlega til hamingju með þessa frábæru sýningu. Hann Júlli hefur ekki bara haft auga fyrir því sem í steinunum bjó, heldur líka þolinmæði og dugnað við að afkasta öllu þessu á ekki lengri tíma.

Takk fyrir súpuna og aðrar veitingar.

Bjarni Líndal Gestsson, 9.11.2009 kl. 17:59

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul innilega fyrir hlý orð og knús. Ég verð víst að viðurkenna að ég fór ofan í kjallara í dag. Fór í vinnuna en varð að fara heim fljótlega, algjörlega búin.  Ég vissi ekki hvort ég væri að fá flensu eða bara orkan búin.  Þorði ekki að heimsækja pabba minn, til að smita hann ekki ef það væri flensa. 

En ég er að ná mér, og eftir situr gleðin yfir vel heppnaðri sýningu, yndislegum móttökum og þeirri virðingu sem syni mínum og mér var sýnd í gær af bæjarbúum.  Og meira að segja kertafleytingin var að hluta til tileinkuð honum.  Veðrið var upp á það allra besta og allt bara féll svo vel saman. 

Veit ekki af hverju ég fór svona flikk flakk í dag, fór bara heim og lagðist upp í rúm og breiddi sængina yfir mig.  En sem betur fer þurfti ég að sækja litlu gleðigjafana mína.  Og fleiri börn kíktu við, Óðinn Freyr með sína vini og Snæfríður var hér alveg til klukkan sex.  Og svo auðvitað Úlfurinn minn. 

En mín kæru nú líður mér miklu betur.  Þetta er bara eitthvað sam maður ræður ekki við.  Söknuðurinn og sorgin hellist yfir mann óforvarendis og ekkert getur komið í veg fyrir það.  Maður verður bara að þrauka og bíða eftir að þetta líði hjá.  Það má segja að ég sé vön slíku, þar sem ég var með mígreni frá því ég var unglingur og fékk köst nánast í hverri viku alveg fram á fimmtugsaldurinn.  Stundum hugsaði ég að það væri bara lausn að láta hálshöggva mig til að losna við þjáninguna.  En svo lærir maður bara að bíða af sér stormin og lifa með þessu.  Manneskjan hefur ótrúlegan aðlögunarhæfileika, ekki eins og rottan og kakkalakkinn ef til vill, en ekki fjarri lagi.

Málið er að þegar manni fer að líða betur, þá kemur þakklætið fyrir að líða betur.  Þá getur maður borið saman og veit hve mikils vert það er að ljósið virki inn í manni, en slökkni ekki eða flökti.  Held bara að ég setji inn nokkrar fleiri myndir af sýningunni á eftir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2009 kl. 19:47

18 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Ásthildur. Ég votta þér dýpstu samúð vegna sonmissi þíns. Eitthvað sem enginn getur skilið sem ekki reynir. Ég komst þó nærri því þegar ég missti mág minn til 23ja ára og persónulegan trúnaðarvin og félaga árið 2001. Þá fór óskaplega í skapið á mér allt tal um að " tíminn lækni öll sár" en eftir sitji góðu minningarnar, gjöfin sem einstaklingurinn var manni. Ég verð samt að viðurkenna að þetta er rétt og ég vona að þú verðir ekki eins lengi að ná þessu og ég var. Knús á þig gæðakona og valkyrja vestursins. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.11.2009 kl. 20:43

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kolla mín.  Já það er margt sem fer í taugarnar á manni þegar maður er í sorg.  Og sumt er bara alveg rétt, þegar á reynir.  Ég ætla að reyna að standa mig vel þó ekki væri nema fyrir börnin mín elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2009 kl. 21:45

20 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Tek undir þetta ömmu og afatal, við þurfum að vera meira til staðar. Mín ömmu-og afaminning er ein af mínum dýrmætustu perlum í þessu lífi.  

Knús í kúluhús. 

Jóhanna Magnúsdóttir, 10.11.2009 kl. 17:12

21 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já Jóhanna ég tek undir það. Ég var amma sjálf en átti líka ömmu á lífi og það var æðislegt. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 10.11.2009 kl. 21:38

22 Smámynd: IGG

Ég samgleðst þér innilega Ásthildur mín með sýninguna á verkunum hans Júlla þíns og upplifunina á þeim góðu áhrifum hann hafði á þá fólkið og umhverfið. Það er nokkuð sem gott er að ylja sér við í söknuðinum og sorginni. Það er svo gott að lesa skrifin þín og sjá myndirnar. Þú gefur svo mikið af þér og það er svo dýrmætt fyrir þá sem njóta. Hjartans þakkir.

IGG , 12.11.2009 kl. 01:41

23 Smámynd: Laufey B Waage

Knús

Laufey B Waage, 12.11.2009 kl. 21:01

24 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2009 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband