Kúlulíf.

Já það kom inn úr dyrunum í dag bréf um að það ætti að bjóða upp kúluna mína.  Vonandi er það bara vondur draumur.... en það er það auðvitað ekki.  Svo er bara að sjá hvernig ég klóra mig út úr því.

En hér eru nokkrar kúlumyndir eins og kúlumyndir eiga að vera.

IMG_4830

Morgun með fullt hús af börnum, sem þurfa að fara í leikskóla og skóla.  Litlir englar sem þurfa sitt.

IMG_4831

Það þarf að bursta tennurnar svo karíus og baktus komist ekki til að bora göt.

IMG_4835

Ef við viljum hafa matseldina svona fyrir alla, þá er upplagt að baka pizzur.

IMG_4838

Það er nefnilega eins og að skreyta piparkökur fyrir jólin allir geta verið með.

IMG_4839

Og áhugin leynir sér ekki.

IMG_4840

Svo má skreyta alveg eins og maður vill.

IMG_4844

Já hér eru prinsessur daglegt brauð.

IMG_4850

Afi viltu dansa?

IMG_4854

Það á að snúa svona í hring!!!

IMG_4859

Þetta finnst mér rosakúl.  Það eru ekki bara mömmur sem eru úti að labba með börnin, heldur pabbarnir líka og þeir eru náttúrulega flottastir.

IMG_4861

Hér er nýja baðlinan í kúlunni.

IMG_4870

Og þetta er nýja fatalínan. Do it your self.  Þetta fer sennilega bara í framleiðslu fljótlega.

IMG_4871

Ekki málið hjá stubbnum.  Gerði þetta alveg sjálfur, hans eigin hönnun.

IMG_4872

Sjá nánar hér.

IMG_4873

Tökum á móti pöntunum.  Tounge

IMG_4832

Mínir elskulegu brottfluttu ísfirðingar eins og þið sjáið er snjólínan komin ansi langt niður núna.

IMG_4856

Svona lítur Ísafjörður út seinnipart dags.  Þið kannist við þetta. En þetta er bara upprifjun.  Og það er alltaf nóg pláss handa öllum.   Og ég get lofað ykkur að vænt um þykjan er ríkjandi hér það hef ég fundið undanfarið.  Við erum hér ennþá full af kærleika og góðmennsku.

Eigið góða nótt og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Bolurinn sem strákurinn hannaði er mjög flottur.  Hann er efnilegur hönnuður. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.11.2009 kl. 23:55

2 Smámynd: Ragnheiður

Hvurslags ástand...vonandi nærðu að klóra þig fyrir þetta fjármálahorn. Það er bara erfitt ástandið víða mín kæra

Myndirnar eru flottar og flottir krakkar í kúlu

Ragnheiður , 6.11.2009 kl. 00:12

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Trúi því aldrei að þú getir ekki reddað þessu elsku besta mín, engin getur búið kúluna eins og þið hjón með þeim kærleika sem þið eigið og börnin sem elska ykkur þau eiga að búa í kúlu með ömmu og afa.

Stubburinn er bara flottastur, cool bolur.
Takk fyrir myndirnar ljúfust
Kærleikskveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.11.2009 kl. 05:54

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hjartans kveðjur og knús

Jónína Dúadóttir, 6.11.2009 kl. 06:04

5 Smámynd: Laufey B Waage

Úlfur er auðvitað listamaður, eins og hann á kyn til.

Takk fyrir myndina af flottasta pabbanum.

Góða helgi mín kæra.

Laufey B Waage, 6.11.2009 kl. 08:56

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Laufey þeir voru flottir strákarnir, sérstaklega auðvitað annar þeirra

Knús og kram til þín líka Jónína mín.

Takk Milla mín já ég reyni að klóra mig út úr þessu einhvernveginn.

Takk Ragga mín.  Já ástandið er víða mjög erfitt.

Segðu Jóna mín.  Hann er flottur strákurinn minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.11.2009 kl. 10:16

7 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Það má sjá að það er fjör í kúlukoti.  Gangi ykkur vel í slagnum við fjármálin.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 6.11.2009 kl. 10:17

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.11.2009 kl. 10:20

9 identicon

Flottir krakkar, Úlfur hefur augljóslega mikið hugmyndaflug og er heppinn að fá að nýta það. Vona að gangi hjá ykkur með kúluna, óhugsandi að einhver annar en þið passið þar.

Dísa (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 12:24

10 identicon

Þegar ég las þetta í gærkvöldi varð ég orðlaus. En núna trúi ég því að ykkur takist á einn eða annan hátt að leysa þetta bévítans peningavesen. Það getur enginn búið í kúlunni nema þið, þið eruð kúlan og kúlan eru þið.

Knús í kærleuikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 12:36

11 Smámynd: IGG

Gangi þér vel að verja Kúluna þína Ásthildur.

Mikið held ég að gaman og gott sé að vera kúlubarn hjá ykkur hjónum og ekki leyna sér listrænir hæfileikar barnanna.

IGG , 6.11.2009 kl. 14:06

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Mikið er hann að verða sjarmerandi - "stubburinn" .. komið nýtt yfirbragð sem ég hef ekki séð áður.

Fallegt mannlíf í Kúlunni, prinsessur, prinsar, súperömmur og afar, slíkt má ekki bjóða upp! 

Jóhanna Magnúsdóttir, 6.11.2009 kl. 15:35

13 Smámynd:

Flottur bolur hjá Úlfi  Sammála Jóhönnu - svona mannlíf má ekki bjóða upp.

, 6.11.2009 kl. 22:37

14 identicon

ég trúi því ekki fyrir en ég tek á því að ekki sé hægt að leiðrétta þessa ömurlegu aðgerð. við erum að tala um fjölskyldu með fullt hús af frábærum börn í einhverju kærleiksríkasta umhverfi sem hægt er að finna fyrir börn.

auðvitað eru erfiðirtímar en hvar er karlmennskan? samhugurinn? við erum að tala um frábært heimili hjá fólki sem umvefur börn. megum játa okkur aum ef þessu verður ekki kippt í lag. ábyrgðin er okkar.verði það ekki erum við smærrri en áður var talað.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 12:02

15 Smámynd: Jens Guð

  Dúndurtöff bolur hjá dregnum.

Jens Guð, 7.11.2009 kl. 18:33

16 Smámynd:

Elsku Ásthildur - mikið fannst mér notalegt að sjá þig í fréttunum áðan  Verkin hans Júlla eiga svo sannarlega skilið að fá sína sýningu.

, 7.11.2009 kl. 19:26

17 identicon

Gangi allt vel hjá þér á morgun. Gaman að sjá þig áðan í fréttunum.

Dísa (IP-tala skráð) 7.11.2009 kl. 22:56

18 Smámynd: IGG

Yndislegt að sjá þig, Júlla og fiskana hans í sjónvarpinu í kvöld.

IGG , 8.11.2009 kl. 02:07

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Ásthildur mín, þegar ég sá þig í sjónvarpinu þá langaði mig til að troða mér inn og knúsa þig, og ég vildi að ég væri fyrir vestan um þessa helgi, en verð að sætta mig við næsta sumar þá vonandi komum við.

Ég sakna þín hér á blogginu, veit samt að það er nóg að gera hjá þér og endilega settu inn myndir frá helginni.

Sendi þér ljós og gleði í hjarta
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.11.2009 kl. 08:19

20 identicon

Kæru hjón. Mikið eiga barnabörnin ykkar gott að fá að alast upp kring um ykkur. Þið umvefjið þau ást og leyfið þeim svo greinilega að njóta sín, skapa, prófa og skemmta sér. Þannig uppeldi er ómetanlegt og á eftir að fylgja þeim sem dýrmæt reynsla gegn um lífið.

Við hjónakorn sendum ykkur bestu kveðjur og biðjum alla góða vætti að vaka yfir ykkur í kúlunni ykkar. Þar eigið þið að eiga heima og hvergi annars staðar.

Við þekkjum það af eigin reynslu hvernig það er að ganga út úr húsinu sínu, því eina sem maður vildi búa í og þurfa að finna sér annan farveg án þess að hafa óskað þess. Það er svo erfitt og við óskum engum þess að þurfa að ganga gegn um þá reynslu sérstaklega þegar maður er orðinn fullorðinn. Við sendum ykkur stuðningskveðjur héðan úr Borgarfirðinum og trúum því að þetta fari allt vel.

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 13:14

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innleggin og kærleikan.  Ég er hrærð í hjarta að lesa það sem þið skrifið.  Er reyndar algjörlega hrærð inn að beini eftir daginn í dag. 

Það sem gæti bjargað mér og fólkinu mínu í dag er; að húsið mitt er ekki túskildings virði.  Málið er að það helst uppi af kærleikanum sem hér er og umhyggjunni fyrir börnunum.  Allt hér inni er ónýtt, innréttingar, þakið lekur og hér er ekkert að sækjast í fyrir annað fólk.  Það sem hér skiptir máli er ævistarf okkar Ella við að planta niður trjám og gróðri.  Vitanlega stendur kúlan eins og er, en við ætluðum að gera við hana fyrir nokkrum árum.  Dúkur sem er á þakinu var garanteraður í 20 ár, núna eru komi 24 ár og hann komin á tíma, allt annað er líka orðið illa úti.  Þannig að hér er ekkert að sækjast í fyrir fólk.  Ekkert sem ryð og mölur fá grandað.  Bara ævistarf okkar og svo það sem hér hefur verið sett á blað... eða þannig.

Æ elskuleg mín, ég veit ekki hvað verður.  En lífið heldur áfram, en samt sem áður veit ég ekki hvað yrði um mig ef ég þyrfti að fara héðan.  Þetta er ekki bara eitthvað hús, þetta er mitt líf.  Þó maður eigi ekki að segja svona, þá er það bara þannig. 

Svo kemur bara í ljós hvað gerist.  En ég ætla mér að gera það sem ég get til að halda því sem ég hef hér.  Knús á ykkur inn í nóttina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2009 kl. 00:48

22 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Ásthildur. Flottur strákur í flottum bol. Er hann ekki flottasta sköpun föðurins. Virðist líka hafa erft sköpunargáfuna hans. Eitt bréf er bara automatisk aðgerð sem þú ættir ekki að óttast of mikið þó hún sé ógnandi í sjálfu sér. Ef ég get aðstoðað þig með eitthvað á þessum vettvangi þá er það meira en velkomið. Þú veist að ég hef séð þetta allt saman áður. Þú bara lætur vita af þér ef þú vilt. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.11.2009 kl. 20:56

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kolla mín.  Ég ætla að tala við Ella minn og við höfum ef til vill samband.  Hann var einmitt að tala um að hann þyrfti að fá ráð frá einhverjum sem kynni.  Ég ætla að ræða þetta og þiggja mín kæra Takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2009 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband