Nokkrar myndir úr kúlu.

Nokkrar myndir.

Englarnir mínir eru sífelld uppspretta gleði.  Reyndar er fullt hús núna, því ég er með strákana Kristján Loga og Aron Mána núna í tvær nætur, meðan stóra systir er að spila og keppa í Kópavoginum.  Hún er reyndar að spila sennilega í þessum skrifuðu orðum.  Gangi þér vel elsku stelpan mína. Heart  Amma er stolt af þér hvernig sem fer.

IMG_4814

Þetta byrjaði allt með því að Hanna Sól fór til tannlæknis í skoðun, því við viljum hafa heilar tennurnar okkar og ekki láta Karíus og Baktur komst inn fyrir dyr. Af því að hún var svo dugleg og þæg fékk hún náttúrulega verðlaun, og hún valdi svona tattú.  Hanna Sól þarf líka alltaf að deila því sem hún á.  Og afi var auðvitað alveg upplagður til að fá svona tattú.

IMG_4816

Það krefst auðvitað vinnu að setja þetta á.

IMG_4817

Og ákveðinnar tækni, en Hanna Sól vissi alveg hvað átti að gera.

IMG_4818

Svona nú er þetta alveg að verða búið.

IMG_4820

Sko ekki slæmt.  Þegar afi fór í sund í gær, fóru gárungarnir að stríða honum.  Hann væri súper afi. Já sagði afi strax, ég geymi einmitt búningin heima. 

IMG_4822

Englaprinsessur er hér á sveimi öðru hvoru og eru alltaf jafn yndislegar.

IMG_4824

Svo þarf að hvíla sig aðeins og hugsa málið.

IMG_4825

Alvarleikinn á prakkaranum stafar af einhverju sem er að gerast í sjónvarpinu.

IMG_4826

Hún fylgist nefnilega með af athygli því sem hún á annað borð er að fylgjast með.  Eins og amma sín.

IMG_4827

Sem sagt fullt hús, hér vantar stóra strákinn minn, hann er nefnilega að verða svo stór.

Eigið góðan dag elskurnar.  Ég þarf að fara að huga að sýningunni sem verða á næsta sunnudag.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2009 kl. 13:15

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Yndislegar myndir og mikill kærleikur í þeim, sú neðsta minnir mig á gestaherbergið hjá mér er þau eru öll og kannski vinir einnig. þá er sko legið í gestarúminu með kodda og sængur.

Kærleik til þín ljúfust
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.11.2009 kl. 15:37

3 identicon

Alltaf jafn gaman að fá að gægjast inn. Frábær afi sem tekur þátt í fjörinu og amma myndar allt saman.

Dísa (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 17:16

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Yndisleg englaprinsessa og Ásthildur litla er að verða eitthvað svo fullorðinsleg. Falleg börn í kúlu

Hrönn Sigurðardóttir, 4.11.2009 kl. 18:44

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Milla mín já þeim líkar vel að liggja svona í hrúgu.  Mér er sagt að svona sé þetta hjá grænlendingum sem hafa verið hér á sjó.  Þeir kúra saman og eru jafnvel að fitla í hárinu á hvor öðrum.  Okkar sjómönnum fannst þetta skrýtið.  En er þetta ekki einmitt það sem er náttúrulegt, snerting og óttaleysi við náungan.

Knús Ásdís mín.

Já Dísa mín, afinn er alveg flottur. 

Hrönn min, já litli prakkarinn hefur þroskast mikið.  og skyndilega.  Allt í einu er litla barnið orðin stór og ekki smábarn lengur. 

Annars er ég í megnustu vandræðum.  Datt í hug að melda mig í ljósmyndakeppni sem fer fram á helginni, er búin að finna fimm myndir sem mig langar að senda, en get ekki gert upp á milli.  Vildi að ég gæti spurt ykkur, en ég held að það megi ekki.  Svo ég verð bara að velja eina úr.  Set hinar bara hingað inn þegar hin eina hefur verið valin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2009 kl. 19:40

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

tjah.... þú veist að ef Sigurjón Dagur er á einhverri þeirra þá fær hún mitt atkvæði! Það er ekki einleikið hvað sá drengur hefur mikinn sjarma

Hrönn Sigurðardóttir, 4.11.2009 kl. 21:14

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég veit Hrönn mín.  Ég frétti í dag að þessi elska sé sennilega með svínaflensuna.  Vona að honum batni sem fyrst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2009 kl. 23:17

8 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Alltaf jafn yndisleg, hvað búa margir í þessari englakúlu ? 'Eg dáist af dugnaði þínum mín kæra það er alveg með ólíkindum hvað þú kemst yfir að gera alla daga, sendi bara knús í kúluhús

Hulda Haraldsdóttir, 4.11.2009 kl. 23:56

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hulda mín venjulega erum við fimm, ég Elli minn, Úlfur sem við höfum forræði yfir, Hanna Sól og Ásthildur sem ég fóstra fyrir dóttur mína sem er að læra til dýralæknis.  En svo eru barnabörnin af og til hér stundum eitt og stundum fleiri.  Það er alltaf spennandi að fá að gista hjá afa og ömmu.  Núna eru tveir guttar hér hjá okkur Kristján Logi og Aron Máni.   Takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.11.2009 kl. 00:01

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég leyfi barnabörnunum mínum sjaldan að gista hjá mér, ég er ennþá með tvo unglinga heima.  Ég er búin að fá nóg af börnum fyrir lífstíð að ég held.  Barnabörnin mín vakna svo snemma að ég nenni ekki að hafa þau, ég er varla sofnuð þegar þau fara á fætur. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.11.2009 kl. 02:05

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Yndislegt

Jónína Dúadóttir, 5.11.2009 kl. 07:50

12 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín

Mikið var gaman af þessum myndum. Barnabörnin þín eiga yndislegan afa. Hann er svo duglegur að gefa þeim tíma og taka þátt í því sem þau vilja gera og skapa. Skilaðu kveðju til eiginmanns þíns og segðu honum að hann sé flottur.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.11.2009 kl. 13:20

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góð Jóna mín

Takk Jónína mín.

Ég skal gera það með gleði Rósa mín og kær kveðja til þín líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.11.2009 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband