20.5.2009 | 20:46
Prinsessumynd og annað skemmtilegt.
Ég fór í hádeginu og heimsótti mæðgurnar. Prinsessan er dásamlega fallegt barn, fíngerð en samt svo stinn. Hún heldur meira að segja höfði og reynir að setjast upp. Geri aðrir betur.
Hér er verið að koma sér á ról og í leikskólann.
Amma taktu mynd af blómunum!!!
Hér er svo prinsessan mín þessi yngsta.
Það er dálítið erfitt að opna augun í birtunni, en mamma hennar sagði að hún hefði legið lengi í morgun og skoðað allt í kring um sig.
Stoltur móðurafi. Þau eru fullkomið kraftaverk þessi litlu kríli.
Hér eru grallaraspóarnir sem eru að hjálpa mér í skrúðgörðum bæjarins þessa dagana. Þeir eru alveg ágætir, og kurteisir og áhugasamir .... ennþá.
Ásthildur og Óðinn Freyr hann er voða montinn af litlu systur sinni.
Amma viltu taka aðra mynd af fallegu blómunum okkar.
Má ég kynna ykkur fyrir Pernille, hún er stammrós og skartar núna sínu fegursta. Sannkölluð fegurðardýs.
Hér kennir ýmissa grasa ekki satt!!!
Og meðan stóra systir gerir sér dælt við blómin, vill þessi helst moka.
Það er sólskyn núna dag eftir dag, og snjóinn tekur hratt upp.
Haginn fer nú samt ekki að grænka fyrr en hann rignir.
Kátir kúlukrakkar.
Og feðgarnir að skoða fiskana í tjörninni.
Þau eru samt mest úti, þegar sólin skín þá liggur við að vera of heitt í garðskálanum.
Það var grillað í kvöld og svo fengu börnin að grilla sykurpúða, eða hvað þetta kallast. En það er af því að það er frí á morgun.
En sem sagt ég er að kafna úr vinnu og orkan er enginn. Þess vegna er ég lítið við þessa dagana, en ég lofa að vera duglegri þegar törninni líkur elskuleg mín.
Eigið gott kvöld og dreymi ykkur vel. Munið að allt það jákvæða sem við leggjum inn í samfélagið kemur tífallt til baka, og það skiptir okkur öll miklu máli. Það er enginn kvóti á kærleika né bros, og ekki heldur hrós eða kærleiksrík orð til hvers annars. Það er allt ekki bara frítt, heldur fær maður borgað með sér, tífallt. Knús á ykkur öll.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.5.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 2023147
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndisleg lítil rauðhærð prinsessa
Til hamingju með hana.
Frábærar myndir að vanda og litli rauðhausinn "minn" með, mér til gleði
Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2009 kl. 21:17
Yndisleg sú litla og á eftir að kæta ömmu sína með uppátækjum eftir nokkur ár. Þau stóru eru líka frábær eins og alltaf. En rósin Pernille er æði. Alveg skellti mér.

.
Dísa (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 22:28
Fín sú stutta og alveg í stíl í kúluna, til hamingju með ömmubarnið.
Maður verður glaður af því að skoða hjá þér myndirnar, þannig er það nú bara
Ragnheiður , 20.5.2009 kl. 22:49
Alltaf jafn frábært að kíkja hér inn, til hamingju með ríkidæmi þitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.5.2009 kl. 13:44
Til hamingju með yngstu prinssessuna þína. MIkið er hún falleg, og rauðhærð að auki. Ætli það fylgi bara ekki þessum degi að fæðast státinn g hress, reyna að setjast upp og lyfta höfði, horfa rannsakandi í kringum sig, og velta fyrir sér hvort að hún hefði ekki örugglega valið rétt.
Yngri dóttir mín er einmitt fædd 20. maí og varð 24ra ára í gær. Og hún var svona státin eins og þessi litla yndisfríða ömmustelpa þín. Og á fæðingardeildinni, svaf mín á bakinu með annan fótinn vafðan utanum sængina og hinn fótinn upp á vöggubrúninni. Og hjúkrunarfólkið fylgdist forvitið með ungabarninu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.5.2009 kl. 18:19
Innilega til hamingju með nýjasta krúttið Ásthildur
Fallegt lífið og fjörið í kringum þig. Þessi líflegu fallegu börn innanum suðræn blóm og snjótoppuð fjöll í sólskininu
Bara yndislegt.
Ragnhildur Jónsdóttir, 21.5.2009 kl. 19:58
Þvílík dúllurófa þessi glænýja. Oh mig langar að knúsa.
Takk fyrir fallegu myndirnar þínar.
Það er alveg brjálað fjör í kúlu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2009 kl. 21:07
Til hamingju með nýjasta afkomandann. Gullfalleg lítil stúlka
, 21.5.2009 kl. 22:03
Til hamingju aftur með nýju prinsessuna.
Er það Skafti sem á hana?
Laufey B Waage, 22.5.2009 kl. 14:22
Til hamingju með litla krúttið Ásthildur mín
Kristín Katla Árnadóttir, 22.5.2009 kl. 21:43
Óðinn tekur sig vel út með barnabarnið. Ekki leiddum við hugann að því að við ættum eftir að verða afar, þegar við vorum á sjónum, í "gamla daga".
Jóhann Elíasson, 23.5.2009 kl. 11:04
Alltaf jafn gaman að koma hérna við og sjá myndirnar þínar af börnum,blómum og öllu sem þú festir á mynd.
Knús í grillkúluna
Kidda (IP-tala skráð) 23.5.2009 kl. 12:09
Takk öll. Nei þá hafið þið væntanlega verið ungir og spræki og meira hugsað um að búa þau til sjálfir Jóhann minn
Eða eins og brandarinn frá kórstjóranum Eyfirska en hún stjórnar karlakór, þau voru á ferðalagi og mættu rútu fulla af konum, þetta er örugglega kvennakór sagði einhver, stoppum og búum til barnakór kvakaði þá annar 
Já þessi prinsessa er í boði Skafta Laufey mín.
Lilja mín já ætli það fylgi ekki bara þessum degi með státin stúlkubörn, þá brosir nú framtíðin við okkur konum tel ég.
Innilega takk öll fyrir innlitið. Ég er tölvulaus eins og er, svo ég kemst ekki inn á einn eða neinn. Búin að vera svoleiðis síðan á miðvikudag. Þó ég geti aðeins stolist inn í vinnunni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.5.2009 kl. 13:54
Yndislegar myndir
ætla að fara vera aðeins virkari hér á mbl blogginu og fylgjast með ykkur knús í ´sumarkúluna
Brynja skordal, 24.5.2009 kl. 11:04
Innlitskvitt og kveðjur....:)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.5.2009 kl. 13:25
Takk elskurnar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2009 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.