Ég þarf að biðjast afsökunar

Ég varð því miður að taka út færsluna mína um Deddu.  Einhverjir ættingjar skipuðu mér að taka hana út. Það fylgdi með að ég væri það versta kvikindi sem hefði fæðst á þessari jörð, og ég skyldi biðjast afsökunar á þessari færslu minni og tilkynna að ég hefði verið drukkinn við að rita hana.

Ég vil biðja þá afsökunar sem ég særði með færslunni.  Fólk verður alltaf viðkvæmt þegar maður missir ástvin og það er skiljanlegt.  En ég var hvorki drukkinn né í annarlegu ástandi, öðru en kærleika og virðingu til þessarar frænku minnar sem mér þótti alltaf vænt um.  Þetta er eins og bleikur fíll í stofunni.  Hefði átt að gera mér grein fyrir því.

En svona lítum við misjafnt á hlutina. 

Ég er sem sagt mesta skriðdýr á þessari jörð, andskotans djöfuls kvikindi og búin að rústa öllum tengslum mínum við ættina. 

Elsku Dedda mín ég segi því bara blessuð sé minning þín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Leiðilegt að heyra elsku vinkona, svona er maður stundum misskilinn, þegar maður gerir eitthvað af tómri hjartagæsku er það tekið á versta veg.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.5.2009 kl. 15:13

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæl ásthildur mín.

Leitt að heyra en ættingjarnir þínir hljóta að átta sig og öll þessi ljótu orð sem þau viðhöfðu um þig hljóta þau að sjá að var ósanngjarnt og þau ættu allavega að biðjast afsökunar á svona ljótum orðum.

Guð blessi þig móðir góð og örugglega ertu besta amma í heimi að mati Hönnu Sól og Ásthildar og allra hinna.

Vertu keik.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.5.2009 kl. 15:26

3 identicon

Nú á ég ekki til aukatekið orð. Nei segðu öðrum en okkur þessar lyndiseinkunnir sem þér eru gefnar upp.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 15:26

4 identicon

Sæl Ásthildur.

Ég ætla að segja sem minnst. En Kærleikur til einnar manneskju á prenti er betri en fegrunarskrif um aðra.

Gangi þér vel. og svo oft hef ég orðið fyrir rangindum að því að ég dansaði ekki eftir limum annarra.

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 15:43

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki gat ég séð neitt í þessari færslu, sem var þess vert að biðjast afsökunar á en ég er þá sennilega óalandi og óferjandi með þér Ásthildur mín.  Ekki þykir mér nú  slæmt að vera í kompaníi með þér.

Jóhann Elíasson, 10.5.2009 kl. 16:03

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ljúfar kveðjur til þín frábæra kona

Sigrún Jónsdóttir, 10.5.2009 kl. 16:39

7 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég sá þessa færslu og mér eiginlega fannst það undarlegt að skrifa sem minningarorð að litið hefði verið niður á þessa konu og eiginlega hefði verið litið á hana sem personu non grata. Þetta finnst mér ekki beint kærleiksrík kveðja og skil ég ættingjana að því leiti. Ef svo hefur verið þá má stundum satt kjurrt ligga því aðgát skal höfð í nærveru sálar og fólk misbrotið eftir andlát ástvinar. Aftur á móti eru viðbrögð ættingja þinna kannski svoltíð ýkt. Ekki það að þetta komi mér nokkurt við. Vona að þið ættingjarnir náið sáttum.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 10.5.2009 kl. 16:59

8 identicon

Knús á þig Ásthildur eins og alltaf.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 17:12

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, ég veit að ég geng ekki í takt við aðra.  Ég er oft svolítið öðruvísi, en þessi færsla var virkilega eins og ég upplifði þennan frábæra atburð.  Málið er að ég var að segja hvað öðru fólki fannst, fólk sem ekki þekkti hins innsta kjarna frænku minnar.  Það var ekki mín hugsun að hún væri persóna non grata, heldur tilvísun í hvað sumt fólk hélt, og það var til að sýna svart á hvítu að þrátt fyrir hugsun fólks þá stendur persónan sjálft upp úr og viðbrögð fólksins sem elskaði hana sýndi svart á hvítu að þarna fór elskuleg kona sem hafði unnið hug og hjörtu fólksins í kring um sig.  En þetta sýnir bara það sem ég er alltaf að benda á, að fólkið mitt íslendingar hugsa í kassa, og sjá ekkert út fyrir þann kassa. Þar er allt svart eða hvítt. Og ef einhver reynir að segja hlutina eins og þeir blasa við, þá fá þeir good morning beint í andlitið. 

Ókey ég er versti óþverri sem skríð á þessari jörð.  En ef það þýðir að það megi ekki segja hlutina eins og þeir eru, þá er ég alveg sátt við að vera sá óþverri.   Það breytir ekki því að ég elska ættingja mína og það var ekki ætlun mín að særa neinn.  En fólk má líka aðeins hugsa sig um.  Hvenær er maður að særa fólk, og hvernig.  Ég tel að minning mín um Deddu frænku mína hafi verið heiðarleg og henni til dýrðar.  En svona getur fólk horft ólíkum augum á það sem sagt er.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2009 kl. 17:32

10 identicon

Sæl Ásthildur.

 Nei, þú ert ekki versti óþvrrei á jörð og ég velti því fyrir mér hver er svo hreinn/hrein að geta látið þessi orð um munn sér fara ?

Megi allt gott umvefja þig ,

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 18:02

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég sleppti úr nokkrum blótsyrðum og því versta sem frændi inn sagði.  Enda á það ekki erindi við annað fólk.  Ég bara veit að það sem ég sagði var sannleikurinn og þar var líka væntum þykjan fyrir elskulegri frænku minni.  ég verð að segja það að ég bjóst svo sem við viðbrögðum frá mínum kæru ættingjum, en alls ekki úr þessari áttinni, heldur frá þeim sem ég ræddi um í sambandi við bókarburð og slíkt. 

Reyndar verð ég að segja að ég get ekki tekið þetta til mín, og þeir sem eru sammála frænda mínum sem hringdi, nóta bene hvorki börn Deddu né bróðir, verða bara að eiga það við sig hvort ég hafi farið yfir strikið með þessari færslu, sem mér fannst full af kærleika og aðdáun.  Hitt er svo annað mál að hringja í manneskju og segja að hún sé aumasta skriðdýr á jörðinni helvítið þitt, aumingi og vesalingur þú verður ekki bara skotinn heldur gerð útræk úr fjölskyldunni  og þar fram eftir götunum, getur einungis orðið sjálfum sér til minnkunnar. 

Ég hef aldri látið neinn þagga niður í mér.  En ég tók út þessa færslu af virðingu við mína kæru frænku, þó svo hvert og eitt orð þar sé rétt og satt.  Af því að ég vil ekki særa það yndislega fólk börnin hennar og barnabörn.  Hinir mega bara éta það sem úti frýs.  Ef þau geta ekki tekið sannleikanum eins og hann er, þá er það þeirra mál.  Auður Þorgerður Jónsdóttir stendur samt sem áður eftir keik og hennar yndislegu börn og barnabörn.  Þannig er það bara.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2009 kl. 20:30

12 Smámynd: Hlédís

Það er erfitt að verða fyrir fautalegum árásum, líka og ekki síður óverðskuldað. Minningarorðin voru óvenjuleg, samt hlý og góð.

Kær kveðja

Hlédís, 10.5.2009 kl. 21:19

13 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Kær kvedja og stort fadmlag til din Asthildur min

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 10.5.2009 kl. 22:29

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég las ekki færsluna en efa ekki að hún hafi verið vel meint. Í Sólarljóðum er mælt fyrir um að gefa dánum ró en hinum líkn er lifa. Þeir sem komnir eru yfir móðuna miklu hafa annað og betra við tíma sinn að gera en að lesa minningargreinar Moggans eða að liggja yfir bloggfærslum, þess vegna er best að beina orðum til eftirlifenda í slíkum skrifum.  Það getur samt verið nauðsynlegt að ná sambandi við  burtgengnu og það er best get með því að skrifa þeim bréf og koma því til skila með brennifórn, því ég hef fyrir satt að skilaboðin berist óbrengluð með reyknum.

Sigurður Þórðarson, 10.5.2009 kl. 23:06

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur mín, ekki las ég þessa færslu og hef heldur enga trú á að þú hafir ritað eitthvað  siðlaust um þessa frænku þína elskuleg.
þekkti heldur ekki þessa konu svo ekki úttala ég mig um hana.

Sendi þér kærleik og ljós mín ljúfasta kona.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.5.2009 kl. 08:28

16 Smámynd: G.Helga Ingadóttir

Ég missti af þessari færslu, það er bara mjög gott ef að þú getur fyrirgefið ættingjum þínum og vonandi á þessi atburður ekki eftir að trufla þig of mikið. Lífið er víst alltof dýrmætt og of stutt til þess að gleyma að njóta þess. þú átt nú svo margt til að þakka fyrir og ég reyndar trúi því að þú gerir það, Guð blessi þig væna kona.

G.Helga Ingadóttir, 12.5.2009 kl. 16:13

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku Guðlaug mín, og þið öll.  Ég taldi mig vera að hrósa elsku frænku minni, því glæsilegri jarðarför hef ég ekki verið í.  Yfirfull kirkja og löng biðröð í kirkjugarðinum, og allar þorpskonurnar í Hnífsdal lögðu á sig að baka kökur og halda glæsilega erfidrykkju sem hver sem er gæti verið stolur af.  Veit ekki hvað fór svona í taugarnar á frænda mínum, en eflaust hugleiðingar mínar um móðurina sem átti barnið utan hjónabands og þar sem hann átti kærustu og barn með henni.  En er ekki lífið bara svoleiðis?  Við erum öll breysk og eigum okkar erfiðleika.  En hugleiðinarnar um móðurina voru um hvernig henni hefði liðið við jarðsetningu barnsföðurins, ég samsamaði mig henni og skil að hún hafi átt erfitt, öll samúðin var með unnustunni, móðirin gleymd einhversstaðar. Æ af hverju má maður ekki segja hlutina eins og þeir eru, ef þeir eru settir fram af kærleika og skilningi?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2009 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2023152

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband