Á köldum Ísafjarðardegi er notalegt að fara í smá hugarferðalag. Má bjóða ykkur með?

Maður súnkar niður þegar veðrið lætur svona við mann.  Hundleiðinlegt, en svo er Hanna Sólin mín lasin svo við verðum að vera heima í dag.  Amma það er hundleiðinlegt að vera alein heima, ég má ekki fara í sund ekki fara út.  Ég veit elskan, viltu lita, ég skal finna litabók og liti.  Já!!!

En amma fór að garfa í gömlum myndum og minnast liðinna stunda.

Þegar veðrið er svona leiðinlegt þarf maður annað hvort að muna að aðrir hafa haft það verra, eða endurupplifa góða hlýja daga.

Daccá1

Ekki vildi ég hafa upplifað austurþýskaland á þessum tíma.

Daccáa þyskaland2

Hvað getur maður eiginlega sagt?

Daccáa þyskaland5

Það er alveg með ólíkindum.

Daccá

Ef þið samt sem áður farið í þessar hryllilegu útrýmingarbúðir, á skuluð þið fá með ykkur túlk.  Þá kemst sagan betur til skila.

Daccáa þyskaland

Maður getur líka farið inn á pöbb í litlu smáþorpi.  Hér í Lubbenå banka menn þrisvar í borðið og þá er verið að bjóða gesti velkomna.  Þessi maður fyrir endann hér nær er hann Ziegfrid, hann hafði lesið allar sögurnar eftir Laxnes.

Kúpaaþýskaland3

Þarna getur maður líka farið í siglingu um síkin á gondólum.  Friðsælt og ljúft.  Það er hægt að velja um tveggja - fjagratíma eða dagsferð.  Bjór og snafs um borð.

Danamarka

Það má skoða stórkostlegar hallir og kirkjur í Köln til dæmis.

Danamarka2

Fara á garðyrkjusýningu í Danmörku.

Ýmsir staðir

Nú eða eyða tímanum í sumarbústað í danskri sveit með ættingjum og vinum.

Ýmsir staðir2

Eða fá sér öllara með skólasystkinum á góðum dönskum degi.

Síðan má fara vestur um haf og heimsækja vinkonur.

ameríka

Fara með henni upp í sögufræg smáþorp þau finnast líka í Ameríku.

Ameríka-ísó2

Og skoða sig um.

Ameríka-ísó

Allt hægt að sjá í BNA

ameríka4

Þar eru líka stærstu lágmyndirnar.

ameríka2

Svo má líka fara aðeins sunnar.

Kúpa

Kúpu til dæmis.  Havanna er skemmtileg borg að skoða, bara gæta sín á stelpunum.  Þær eru allsvæsnar við að reyna við karlana án þess að við tökum eftir því.  Halda fastar í þá en veskin.

Kúpa2

Svo syngja þeir svo ljómandi vel á ströndinni.

Kúpaaþýskaland2

Svo má fara út að sigla.

Kúpaaþýskaland1

Eða bara út í sjóinn.

Kúpa3

Pálmar, vindlar og romm.

Danamarka4

svo má fara ennþá sunnar til Belize, Cayman islands.

Belize

Aldrei hret þar.

Belize2

Bara ósköp notalegt að vera.  

3

Já Ísland er land andstæðnanna.  von að við finnum okkur allt til að rífast um og hamast.

Ameríka-ísó4

Þessi mynd er svona 20 ára gömul.  Það er ekki mikill gróður í kring um mig þá.

En ég vona að þið hafið notið þessa ferðalags með mér í minningalandi.  Þar er svo sem af nógu að taka.  En þetta nægir í dag.  Heart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heima er best.Knús úr norðangarranum í Eyjum vestur til ykkar.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 14:05

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir mig

Sigrún Jónsdóttir, 8.5.2009 kl. 15:09

3 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 8.5.2009 kl. 15:44

4 identicon

Naut ferðalagins í botn og lét mig dreyma um suðrænar slóðir. Flott næst neðsta myndin, miklar andstæður. Vona samt að sumarið fari að koma vestur og norður.

Knús í blómakúluna

Kidda (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 15:52

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk yndislegust, víða hefur þú farið og notið þess í botn.
Ljós til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.5.2009 kl. 16:00

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar.  Það er gaman að deila þessum minningum með yndælum manneskjum. 

Já Milla mín ég hef farið víða, og í sumar er meiningin að fara til Eistlands, og þvælast þaðan niður Evrópu og enda í Serbíu en þangað ætla ég að fara í brúðkaup.  Kem að öllum líkindum við á ýmsum stöðum í Þýskalandi eins og Berlín og Dietlingen.

Vona það líka Kidda mín, það er allavega góð spá.

Knús Ragnheiður mín.

Takk sömuleiðis Sigrún mín.

Já Ragna mín heima er best.  Knús á móti.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.5.2009 kl. 16:24

7 identicon

Sæl og takk fyrir yndislegt hugarflug. Við erum nýbúin að taka nagladekkin undan bílnum og komin í sumarfrí. Við höfum hugsað okkur að taka hring um blessaða vestfirðina og þá verður nú örugglega kíkt í kúluna ykkar í blómaskrúðið.

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 16:44

8 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 8.5.2009 kl. 17:27

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk kærlega fyrir þetta ferðalag, lyfti mér upp.

Þú ert heldur betur víðförul.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2009 kl. 17:53

10 identicon

Takk, gott að fara í svona sumar úr rokinu, hann hékk þó þurr í dag.

Dísa (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 19:59

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.5.2009 kl. 20:44

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég tók andköf yfir arkitektúr í Köln sem og í Auschwitz/Birkenau! Hrikalegar andstæður!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2009 kl. 21:27

13 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Hæ og hó

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.5.2009 kl. 21:41

14 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Hæ og hó.

Fyndið en eitthvað gerðist og innleggið droppaði inn áður en ég var búin að kvitta.

Læknirinn hérna hefur ekki við að hjálpa fólki sem er með sólsting eða illa sólbrennt. Það er sko slydda og flutningabíllinn var fastur uppá heiði og því mjólkurlaust í búðinni.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.5.2009 kl. 21:43

15 Smámynd:

Aldeilis að konan er víðförul  Skemmtilegt hugarferðalag - takk fyrir

, 8.5.2009 kl. 22:11

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið Dísa mín og svo sannarlega eruð þið Steini alltaf velkomin í kúluna.  Gott hjá ykkur að ferðast um Vestfirði í sumar.

Knúsí knús Sirrý mín.

Jenný mín, já ég hef verið á ýmsum stöðum mín kæra.  Gleður mig að geta kætt þig aðeins ljúfust mín.

Hehehe Dísa mín, hann hékk sko ekki þurr hér í dag, það var slydda með meiru.

Knús Linda mín.

Hrönn já ég skoðaði líka kúluförin í Dresten og fór upp á manngert fjall í Phorsheim þar sem leifunum af bænum hafði verið skóflað saman í fjall, þegar bandamenn drápu um 18 þúsund manns eftir að stríðinu lauk, af því að það voru verksmiðjur þar sem framleiddu varahluti í stríðstól.  Átjánþúsund konur börn og menn sem voru bara manneskjur.  Sumt af því sem Bandamenn gerðu er ekki fallegt ekki frekar en Nasistar, fasistar, kommúnistar, kapítalistar, þetta fjandans listakjaftæði er öllum til ills ef út í það er farið.

Virðist vera sólríkt hjá þér mín ljúfa Rósa.

KNús Dagný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2009 kl. 00:15

17 Smámynd: Solla Guðjóns

Nú var margt að skoðahef ekki komið hér svo lengi,maður er alltaf á facebook.

Solla Guðjóns, 9.5.2009 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2023152

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband