Vorið beint í æð.

Vorið er komið.  Ég skal sýna ykkur það, svo ekki verður um villst.

IMG_7546

Sonur minn tók þessar myndir.  Hér eru börnin mín í sveitinni og það er mikið að gerast þar.

IMG_7551

Hér er Aron Máni með lambið sitt, og það er gimbur, hún hefur fengið nafnið Hanna Sól.

IMG_7558

Hér er Hanna Sól, með Hönnu Sól og báðar kunna að sitja fyrir.

IMG_7562

Já Aron Máni og Hanna Sól og Hanna Sól og Ásthildur.

IMG_7576

Krakkar og kindur í jötu.

IMG_7578

Þau undu sér vel innan um dýrin.

IMG_7580

Þær voru ekki smeykar skotturnar mínar.

IMG_7601

Já hér er ær að byrja fæðingu.  Líknarbelgurinn kominn.

IMG_7602

Nýtt líf að fæðast, er það ekki dásamlegt?  Er það ekki einmitt vorið?

IMG_7605

Þær eins og við upplifa sársaukan sem fylgir útvíkkun og hríðum.

IMG_7611

Og Aron Máni togar í litla lambið sem er að koma í heiminn.

IMG_7612

Úlfur fær að taka á móti því næsta.

IMG_7618

Allt er þetta samt undir öruggri stjórn bóndans eða bændanna, hjónanna á staðnum ömmu og afa Arons og Kristjáns Loga.Heart

IMG_7620

Móðurástin er alltaf sú sama, hvað sem dýrið heitir, hvort sem það er maður eða maur.  Þannig erum við bara. 

IMG_7638

Svo er ágætt að fara bara og gefa öndunum.  Þar er ekki erfið fæðing, eða þannig þar sem þær eignast egg og þurfa svo að liggja á, það krefst þolinmæði en ef til vill ekki sama sársauka.

En þetta elskurnar mínar er vorið beint í æð.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

meeee mikið er gaman að þessu

Ásdís Sigurðardóttir, 2.5.2009 kl. 22:44

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, vorið er komið og grundirnar gróa, gilin og lækirnir fossa á brún, ------ og lömbin,  blessuð litlu lömbin, - Hvernig finnst Hönnu Sól að lamb sé kallað nefnt hennar nafni?  Er hún alveg sátt við það? -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.5.2009 kl. 23:11

3 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Skemmtilegar myndir úr sauðburðinum.

Bestu kveðjur  / Jenni

Jens Sigurjónsson, 2.5.2009 kl. 23:27

4 Smámynd: Jens Guð

  Gaman að sjá þessar myndir úr sveitinni.  Vorið er sannarlega komið.

Jens Guð, 2.5.2009 kl. 23:31

5 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 23:43

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ymdislegt, takk fyrir

Sigrún Jónsdóttir, 2.5.2009 kl. 23:48

7 Smámynd: Karl Tómasson

 til þín kæra Ásthildur.

Talandi um gildi og aftur gildi. Ég sá þau öll hjá þér strax mín kæra vinkona og þau eru þar tilgerðarlaust.

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 3.5.2009 kl. 00:43

8 identicon

Sæl Ásthildur.

Alltaf jafn flott og fræðandi. Ég hef velt því fyrir mér hvað mikil ógæfa það er að fæðast á mölinni og tengjast ekki móðir náttúru nema að takmörkuðu leyti.

Kveðja á alla.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 00:57

9 identicon

Myndirnar þínar ylja manni alltaf sama hvað myndefnið er. Man að ég gat ekki verið inni í fjárhúsi hjá afa og ömmu, lyktin var vond og ég ældi og ældi þegar lömbin fæddust.

Kærar þakkir fyrir að leyfa okkur hinum að eiga hlutdeild í ykkar lífi.

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 08:46

10 identicon

Mikið var gaman að fá svona tvo skammta í einu. Ég hafði smááhyggjur af að eitthvað væri að þegar allt stóð óhreyft í svona marga daga. En það er gaman að sjá myndirnar úr suðurferðinni og ekki síður af sauðburðinum, það eru 50 á til baka. Rosa flott hjá Hönnu Sól að vera í svo miklu dálæti að fá lamb skírt í höfuðið á sér.. Það var líka gaman að sjá mynd af Gunnþórunni, mörg ár síðan ég hef séð hana, þó ég frétti reglulega af henni. Alltaf líf og fjör hjá þér. Á þessum degi fyrir 27 árum vorum við í Lúx með mömmu minni, pabba þínum, Ella og fleirum, yndislegu fólki á skemmtilegri ferð.

Dísa (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 11:25

11 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

vorknús, takk í dag

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 3.5.2009 kl. 12:43

12 Smámynd: Hlédís

Takk fyrir

Hlédís, 3.5.2009 kl. 13:30

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, já mér datt í hug að þið hefðuð gaman af að líta aðeins inn í fjárhúsin og upplifa vorið.

Dísa mín og þetta manstu upp á dag. Ég man eftir ferðalaginu, það var mjög skemmtilegt fyrri utan fararstjórann sem teymdi okkur á hverju mellubúlluna á fætur annari, þar sem hann átti vinkonur allstaðar hehehehe....

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2009 kl. 16:23

14 identicon

Það er ástæða til að ég man þann dag, hún mamma mín varð jafngömul þá og við á þessu ári og pabbi þinn bauð henni í mat í tilefni dagsins. En ég gleymi heldur aldrei fararstjóranum sem var ekki í þjónustu við fólkið heldur sjálfan sig.

Dísa (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 21:02

15 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Ég er alveg hugfangin. Mikið var gaman fyrir börnin að sjá lambið fæðast. Mikið tóku þau sig vel út í fjárhúsinu.

Við vorum flottar hjá Jenna okkar. Hann er frá Vopnafirði eins og sumir  en býr í Kanada.

Vona að þú hafir fengið skilaboðin frá mér.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.5.2009 kl. 21:21

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt ég fékk skilaboðin Rósa mín.  Takk fyrir þau.  Knús á þig elskuleg mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2009 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2023152

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband