27.4.2009 | 12:59
Nýtt barn og fjöruferð.
Ég vil byrja á því að þakka öllum þeim sem stóðu með Frjálslyndaflokknum, veittu honum atkvæði sitt og þeim sem stóðu vaktina hjálpuðu til á allan hátt. Það er notalegt að finna að fólk er tilbúið til að hjálpa til. Vissulega er þetta áfall, en tíminn mun leiða í ljós hvað verður. Ef til vill kemur eitthvað gott út úr þessu öllu saman. En ég er auðvitað dauðsvekkt fyrir mína hönd og félaga minna. Tel að það verði bið á lýðræðinu meðan við höfum ekki réttlátari umfjöllun um þá sem bjóða sig fram og misvitra svokallaða stjórnmálafræðinga með áróður endalaust meira að segja á kosningardaginn. Þeir ættu að skammast sín fyrir sinn þátt í úrslitunum. Það á ekki að ræða við þrælpólitískt fólk sem kallar sig stjórnmálafræðinga og heldur svo heilu kosningarræðurnar fyrir ákveðna stjórnmálaflokka, eins og ákveðin kona gerði bæði í sjónvarpsþætti og útvarpinu á kjördag. Það verður að fara að gæta meðalhófs í umfjöllunum ef lýðræðið á að fá að þróast, og fólk geti á hlutlausan hátt valið þá stefnu sem það vill fylgja. Annað er bara óþolandi. Að fjölmiðlar skuli vísvetandi reyna að hafa áhrif á hvernig fólk í landinu kýs, bæði með áróðri og þöggun.
En ég dvel ekki lengi við þetta mál. Það mun koma í ljós hvað verður um minn góða flokk. Ég sendi bara bestu kveðjur til þeirra allra sem þar eru innanbúðar.
Litlar skottur létu sér úrslitin í léttu rúmi liggja. Þær fóru út að leika í snjónum.
ég held að hún sé að lýsa yfir stuðningi við Ástþór og Lýðræðisframboðið hans. Hún vill örugglega meira og virkara lýðræði þegar hún vex úr grasi. Enda eru þær báðar tvær kjarnakonur.
Að moka moka snjó.
Eitthvað hugsandi á svipin báðar.
Nammi namm.
Prinsessa að pússla.
Og önnur sem málar.
Ísafjörður er ennþá til og jafn fallegur.
Og lífið heldur áfram.
Einhverntíman kemur svo réttlætið.
Kamelíufrúin mín upp á sitt fegursta þessa dagana.
Kirsuberin og perurnar líka.
Við ákváðum að skella okkur í fjöruferð í gær.
Hér er svo spjallað.
Fegurðin býr í ýmsum myndum.
Og það er gaman í fjöruferðum. Þegar okkar krakkar voru litlir fórum við oft í fjöruferðir.
Þar er líka hægt að sulla.
Og auðvitað týna skeljar.
Og fegurð.
Gullmethafi í snjólistaverki, þ.e.a.s. Kúlumetið
Svo má sulla í tjörninni.
Ég hafði tækifæri til að gleðjast í gær því þá bættist drengur við barnabarnaflóruna, hann er sá 19. Var tekin með keisara kl. 11 í gærdag. Vildi ekki bíða lengur með að koma. mikið fallegur drengur 51 cm og þrjú kíló. Fullkominn segir hinn hreykni faðir.
Já hann er bara alveg eins og pabbi sinn þessi elska.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með litlu Guðsgjöfina ykkar Ásthildur mín.Kveðja vestur.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 13:06
Sæl Ásthildur.
Til Hamingju með nýja barnið
.
Já,oft er það svo að ósanngjörn ummæli... fella fólk. Það eru flestir sammála um það að flokkurinn þinn var fyrir margt góðra gjalda verður.
En sumir voru ekki hrifnir af innanbúðarátökunum sem fóru ekki leynt. Kannski það hafu haft áhrif til hins verra. Ég held að þú segir satt þegar þú segir" Kannski kemur eitthvað gott út úr þessu" .
Takk fyrir, síðuna þína og myndirnar ylja altaf
Kær kveðja á alla línuna.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 13:14
Innilega til hamingju elsku Ásthildur mín.....knús og kram.....
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.4.2009 kl. 14:29
Til hamingju með þann nýja og þau sem fyrir eru.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.4.2009 kl. 15:12
Innilegar hamingjuóskir með nýja sonarsoninn elsku Ásthildur og ljúfar kveðjur í kærleikskúlu
Sigrún Jónsdóttir, 27.4.2009 kl. 15:27
Innilegar hamingjuóskir með þann litla. Gaman að sjá frá fjöruferðinni, alltaf hægt að sjá eitthvað skemmtilegt þar og aldrei eins þó farið sé oft. Leitt hve illa gekk í kosningunum hjá Frjálslyndum, en ég yrði ekki hissa þó þið risuð upp á ný, annað ólíklegt. Ég er sammála þér með áróðurinn, mér fannst bæði í , fréttum og viðtölum hreinn áróður sem ég hélt að væri ekki leyfilegt, allavega er það ósiðlegt. Einnig fannst mér áberandi hve mikil áhersla var lögð á Evrópusambandsmál eins og allt lagaðist við það. Fréttamenn stýrðu líka allt of mikið um hvað mætti tala. En nú verðum við að vona að eitthvað verði gert annað en tala. Nóg blabla í bili, verkin þurfa að tala.
Dísa (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 16:04
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæl Ásthildur mín
Til hamingju með nýja barnabarnið.
"Barnabörnin eru kóróna öldunganna, og feðurnir eru heiður barnanna." Orðsk. 17:6
Þetta orð passaði betur hér áður fyrr þegar lengra var á milli hvers liðs. Amma mín var orðin sjötug þegar ég fæddist svo ég hitti hana ekki fyrr en þegar hún var orðin 75 ára. Vinkona mín varð amma þegar hún var rúmlega 30. Þannig að þetta hefur heldur betur breyst.
Svo má ég til að senda þér blóm og sumaróskir í leiðinni.
Guð blessi ykkur hjónin og alla fjölskylduna.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.4.2009 kl. 16:42
Til hamingju ! Ég ætla að kvitta núna en ég er ein af þeim sem kíki hérna oft við.
Það er svo gaman að fylgjast með lífinu fyrir vestan, þar sem ég er líka ættuð frá Djúpuvík á Ströndum sem tilheyra líklega Vestfjörðunum en ég bý núna á Akureyri.
Það er svo gaman hvernig þú blandar saman lífinu í kúlunni, barnabörnunum og veðráttunni og lífinu fyrir vestan.
Vonum það besta eftir þessar kosningar okkur Íslendingum til handa. Leitt með þá frjálslyndu sem höfðu svo margt til síns máls en eins og þú segir "Lífið heldur áfram"....Áfram Ísland...Kveðjur frá Akureyri
Hulda Margrét Traustadóttir, 27.4.2009 kl. 17:40
Til hamingju með barnabarnið. Greinilega myndarpiltur og vonandi á hann bjarta framtíð fyrir sér. Það er vissulega leiðinlegt hvernig fór fyrir okkar flokki í kosningunum. Mér finnst að við ættum að halda ótrauð áfram og byggja á þeim góðu málefnum sem við höfum fram að færa. Við þurfum að nota tímann og hlúa að innra starfi flokksins og þá munum við koma sterkari í næstu baráttu. Mikilvægt að við byrjum á þessari vinnu strax.
Helga Þórðardóttir, 27.4.2009 kl. 21:18
Takk fyrir hlýhug og góðar óskir.
Helga mín ég er sammála því að við verðum að nota tímann og vinna upp grasrótina. Vonandi sjáumst við á miðstjórnarfundinum á fimmtudaginn.
Takk Hulda mín. Mikið er ég glöð að heyra þetta. Já áfram Ísland, Íslandi allt, það vil ég.
Knús Rósa mín elskuleg og takk fyrir þennan flotta blómvönd.
Takk Dísa mín, já ég vona að við rísum upp á ný sterkari en áður. Fjöruferðir eru bara hreint út sagt æðislegar.
Takk Sigrún mín. Knús á móti.
Takk Jenný mín.
Takk Linda mín.
Takk Þórarinn minn. Já ég held að það komi alltaf gott út úr lífsreynslum og þroska. Þannig er það bara.
Takk Ragna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.4.2009 kl. 23:03
Það er gaman að lesa jákvæðar fréttir frá þér Ásthildur og ég hlakka til að hitta þig á miðstjórnarfundinum
Hamingjuóskir með litla piltinn
Ólafía Herborg (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 23:13
Vá - 19. barnabarnið?! Hjartanlega til hamingju. Gullfallegur drengur
, 28.4.2009 kl. 02:26
Já Cesil.
þessi þín orð ættu einnig vel við vandamál flokksins að mínu mati.
"
Það verður að fara að gæta meðalhófs í umfjöllunum ef lýðræðið á að fá að þróast, og fólk geti á hlutlausan hátt valið þá stefnu sem það vill fylgja. Annað er bara óþolandi. Að fjölmiðlar skuli vísvetandi reyna að hafa áhrif á hvernig fólk í landinu kýs, bæði með áróðri og þöggun. "
Lýðræðishreyfingin sem ég átti þátt í að stofna 1998, og gekk til liðs við eftir brotthvarf úr FF, hefur dyggilega staðið vörð um það sem þú nefnir hér.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 28.4.2009 kl. 02:28
Til hamingju Ásthildur með barnabarnið sem fæddist sama dag og mín yngsta. Alltaf gaman að sjá myndirnar þínar. Kveðja af Suðurlandinu
Guðrún Jónsdóttir, 28.4.2009 kl. 08:22
Takk Ólafía mín. Já það verður gaman að hittast og spjalla.
Takk Dagný mín.
Guðrún María, víst deilum við þessari reynslu af fjölmiðlum. Það með ólíkindum hve fjölmiðlar ætla sér að deila og drottna, hafa áhrif í stað þess að vera hlutlausir og leyfa skoðanamyndun að þróast í friði.
Takk Guðrún mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2009 kl. 09:54
Hjartanlegar hamingjuóskir með nýjasta barnabarnið
Hann er yndislega fallegur af þessum myndum að dæma 
Fjöruferðir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Þar finnast endalaust nýjir fjársjóðir og tilfinning fyrir óendanleikanum við hafið svo stórt og magnað.
Ég verð að segja að mér finnst leitt með flokkinn ykkar. Ég vona að ykkur takist að reisa hann við.
Ragnhildur Jónsdóttir, 28.4.2009 kl. 11:01
Til hamingju með nýjasta barnið.
Laufey B Waage, 28.4.2009 kl. 12:36
Til hamingju með nýjasta barnið og öll hin líka.
Kveðja Þ
Þórdís Einarsdóttir, 28.4.2009 kl. 13:08
Takk allar. Já Ragnhildur mín það er alveg öruggt að það bíður margur fjársjóðurinn í fjörunni. Takk fyrir hlý orð og góðar óskir.
Takk Laufey mín
Takk Þórdís mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2009 kl. 13:44
Innilegar hamingjuóskir með nýjasta ömmubarnið, hann er megakrútt
Skemmtilegar myndir að venju.
Knús í ömmukúluna
Kidda (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 20:12
gleðilegt sumar og yndislegur nýji fjöslkyldumeðlimurinn
til hamingju
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 28.4.2009 kl. 20:25
Hamingjuóskir með barnabarnið 'Asthildur mín, fínar myndir eins og alltaf og gaman að sjá bæði börn og blóm hjá þér.
Kærar kveðjur til ykkar frá Noreg.
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 28.4.2009 kl. 20:47
Til hamingju með þennan litla fallega dreng þú ert rík kona 19 yndisleg barnabörn.Kveðja
gaddur, 28.4.2009 kl. 23:56
Góðar kveðjur til þín og þinna kæra Ásthildur.
Ég kíki á þig í sumar á nýja tjaldvagninum.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 28.4.2009 kl. 23:59
Lífið er yndislegt.
Til hamingju með 19.barnabarnið
Solla Guðjóns, 29.4.2009 kl. 09:25
Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn :)
Ég ætla að kíkja til Vínar eftir rúma viku, það verður æðislegt að komast þangað aftur ;)
Bið að heilsa skvísunum, hitti Hönnu Sól á leið úr sundi um páskana, alltaf jafn gaman að sjá þessar elskur.
Hjördís á Hellu (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 15:43
Ynnilegar hamingjuoskir med nyjasta medliminn *-- algjort krutt
Eg man nu eftir fjoruferdunum med henni ommu minni a djupavogi og ad fara ut a sandana,mjog godar bernskuminningar Y--
Ásta Björk Solis, 30.4.2009 kl. 18:56
Takk Ásta mín.
Já föruferðir eru mjög skemmtilegar.
Gaman verður hjá þér Hjördís mín. Bið að heilsa Báru minni.
Og góða ferð.
Tall Solla mín.
Þú verður að gera það Karl minn. Til lukku með nýja tjaldvagninn. Láttu mig vita á hvaða tíma þú verður. Ég verð að öllum líkindum ekki heima frá 28 júní til 20 júlí. En allann annan tíma.
Þakka þér fyrir Gaddur.
Takk Sirrý mín
Takk elsku Hulda mín og sömuleiðis gleðilegt sumar.
Knús á þig til baka Kidda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2009 kl. 11:23
Til hamingju með fallega drenginn
Vá, 19 barnabörn, það er heilmikill fjársjóður. Alltaf gaman að fylgjast með kúlubúum. Flott snjólistakonan
og öll hin líka. Gaman að fá að fylgjast með gróðrinum hjá þér. Knús í Kúlu 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.5.2009 kl. 13:44
Kæra vinkona. Langt síðan eg hef verið hér á ferð. Allaf jafn yndislegt að kíkja við. Yndislegar myndir og innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Yndislegur eins og hin. Kær kveðja vestur til ykkar allra.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.5.2009 kl. 14:42
Takk innilega elsku Sigrún mín. Já svo sannarlega eru þessi 19 börn fjársjóður til framtíðar, það eru engin bankahrun þar á ferðinni eða mölur og ryð, bara sönn gleði.
Ég hef saknað þín Ásdís mín elskuleg. Vonandi hefur þú það gott.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2009 kl. 17:11
ELSKU ÁSTHILDUR MÍN ,ÞÚ ERT STÓR RÝK KONA ,HVAÐ SAGÐIRU 19STK GERI AÐRIR BETUR .TIL HAMINGJU VINA MÍN MEÐ LITLA HERRA MANNIN ÞINN .
MEGI GUÐ OG GÆFAN FYLGJA YKKUR ÖLLUM OG ÖLLUM ÞESSUM DÝRMÆTA FJÁRSJÓÐ SEM BÖRNIN ERU,ÞAÐ KEMUR EKKERT Í STAÐINN FYRIR ÞAU ,FYRIR GEFÐU, ÉG ER SVO MIKILL BARNA KARL Á 4 STIKKI OG EINN FÓSTUR SON ,OG 2 BARNA BÖRN .ÉG ELSKA ÞAU ,ÚTAF LÍFINU ,ÞAÐ VÆRI ÓSKUP TÓMLEGT EF ÞEIRRA NYTI EKKI VIÐ .GUÐ BLESSI LITTLA DRENGINN OG YKKUR ÖLL . BLOGGVINAKVEÐJA FRÁ MÉR TIL ÞÍN .HILMAR SÆBERG (DRENGUR GÓÐUR).
Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 3.5.2009 kl. 00:29
Takk fyrir þetta Hilmar minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2009 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.